Dagblaðið Vísir - DV - 29.05.1996, Side 22

Dagblaðið Vísir - DV - 29.05.1996, Side 22
26 MIÐVIKUDAGUR 29. MAÍ 1996 Fréttir Sauðburður í Fljótum í seinna fallinu DV, Fljótum: Ekki er hægt að jafna aðstöðu sauðfjárbænda í Fljótum vorið 1996 saman við vorið á undan, svo gjöró- líkar eru aðstæðurnar. Nú eru öll tún auð og um miðjan maí var kom- inn þokkalegur gróður fyrir fé, jafn- vél í úthaga. Fyrir ári var sveitin eins og jökull yfir að líta. Þá voru menn að moka snjó af blettum svo þeir gætu látið lambfé standa úti Jara og Einar duttu í lukkupottinn! Nú eru Jara og Einar byrjuð að kaupa. Það fyrsta sem varð fyrir valinu var vaskur og krani. Þau vantar ennþá allt miili himins og jarðar, s.s. sófaborð, borðstofuborð og stóla, hornskáp með gleri, fataskáp, náttborð, tölvuborð, vesk; baðskáp, standlampa, sjónvarp, örbylgjuofn, blóm o.fl. DV œtlar að gefa þeim 300.000 kr. í brúðargjöf til að byggja upp framtíðarheimili sitt með hlutum sem þau finna í gegnum smáauglýsingar DV. Þau eiga 286.500 kr. eftir. Hvað kaupa þau nœst? Nú er tími til að selja! Smáauglýsingar 550 5000 Félagarnir Birgir og Jóhannes Helgi í fjárhúsinu á Ökrum. DV-mynd Örn þegar fjárhús voru orðin yfirfull. í vetur gripu nokkrir bændur til þess ráðs að seinka sauðburði og bófst hann því víða ekki fyrr en eft- ir 20. maí. Aðrir héldu hins vegar sínu striki og létu burðinn hefjast á sama tíma og undanfarin ár, þ.e. á tímabilinu 10.-15. maí. Segja má að veðráttan hafi leikið við fjárbændur til þessa því þótt ekki hafi verið sér- stök hlýindi hefur tíð verið ágæt og hægt að hleypa lambfé úr húsi nán- ast eftir hendinni. Hins vegar hefur illilega skort vætu þannig að sprettu á túnum hefur farið lítið fram um tíma. -ÖÞ Seyöisfjörður: Gamanleikur á fjölunum DV, Seyðisfirði: Leikritið, sem frumsýnt var hjá Leikfélaginu fyrir skömmu, er gam- anleikur eftir breska leikstjórann og leikarann Ray Cooney. Þjóðleik- húsið sýndi þetta leikverk fyrir nokkrum árum og þótti nýstárlegt og eftirminnilegt. Leigubílstjóri í London er kvænt- ur tveimur konum og hefur það gengið slysalaust hjá honum nokk- uð lengi. Lánið er oft hverfult og óhapp veldur því að hann lendir í basli með að útskýra fyrir lögregl- unni hvers vegna hann búi á tveim- ur stöðum. Nú fer því margt for- vitnilegt og broslegt að gerast... Efnið snýst að miklum hluta um það sém mikið er á dagskrá í um- ræðu - samkynhneigð og tvíkvæni. Það vekur því vafalaust spurningar og umræðu, en hér er íjallað um þessi mál hlutlaust og hófsamlega. Leikstjóri er heimamaðurinn Hermann Guðmundsson, þaulvanur leikari og leikstjóri eins og hinn breski höfundur. Áhorfendur tóku leiknum mjög vel, skemmtu sér konunglega og létu það ótvírætt í ljósi að leikslokum. -JJ Tjölduðu á Kringlumýrar- braut Nokkrir unglingspiltar tóku sig til og tjölduðu á umferðareyju milli akreina á Kringlumýrarbraut um helgina. Lögregla var kvödd til og batt hún enda á útileguna með því að biðja þá um að hafa sig á brott. Ekki er vitað hvers vegna piltarn- ir ákváðu að svala útivistarþörf sinni með þessum hætti. SF

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.