Dagblaðið Vísir - DV - 29.05.1996, Síða 22
26
MIÐVIKUDAGUR 29. MAÍ 1996
Fréttir
Sauðburður í Fljótum
í seinna fallinu
DV, Fljótum:
Ekki er hægt að jafna aðstöðu
sauðfjárbænda í Fljótum vorið 1996
saman við vorið á undan, svo gjöró-
líkar eru aðstæðurnar. Nú eru öll
tún auð og um miðjan maí var kom-
inn þokkalegur gróður fyrir fé, jafn-
vél í úthaga. Fyrir ári var sveitin
eins og jökull yfir að líta. Þá voru
menn að moka snjó af blettum svo
þeir gætu látið lambfé standa úti
Jara og Einar
duttu í lukkupottinn!
Nú eru Jara og Einar byrjuð að kaupa. Það
fyrsta sem varð fyrir valinu var vaskur og krani.
Þau vantar ennþá allt miili himins og jarðar,
s.s. sófaborð, borðstofuborð og stóla, hornskáp
með gleri, fataskáp, náttborð, tölvuborð, vesk;
baðskáp, standlampa, sjónvarp, örbylgjuofn,
blóm o.fl.
DV œtlar að gefa þeim 300.000 kr. í brúðargjöf
til að byggja upp framtíðarheimili sitt með hlutum
sem þau finna í gegnum smáauglýsingar DV.
Þau eiga 286.500 kr. eftir.
Hvað kaupa þau nœst?
Nú er tími til að selja!
Smáauglýsingar
550 5000
Félagarnir Birgir og Jóhannes Helgi
í fjárhúsinu á Ökrum. DV-mynd Örn
þegar fjárhús voru orðin yfirfull.
í vetur gripu nokkrir bændur til
þess ráðs að seinka sauðburði og
bófst hann því víða ekki fyrr en eft-
ir 20. maí. Aðrir héldu hins vegar
sínu striki og létu burðinn hefjast á
sama tíma og undanfarin ár, þ.e. á
tímabilinu 10.-15. maí. Segja má að
veðráttan hafi leikið við fjárbændur
til þessa því þótt ekki hafi verið sér-
stök hlýindi hefur tíð verið ágæt og
hægt að hleypa lambfé úr húsi nán-
ast eftir hendinni. Hins vegar hefur
illilega skort vætu þannig að
sprettu á túnum hefur farið lítið
fram um tíma. -ÖÞ
Seyöisfjörður:
Gamanleikur
á fjölunum
DV, Seyðisfirði:
Leikritið, sem frumsýnt var hjá
Leikfélaginu fyrir skömmu, er gam-
anleikur eftir breska leikstjórann
og leikarann Ray Cooney. Þjóðleik-
húsið sýndi þetta leikverk fyrir
nokkrum árum og þótti nýstárlegt
og eftirminnilegt.
Leigubílstjóri í London er kvænt-
ur tveimur konum og hefur það
gengið slysalaust hjá honum nokk-
uð lengi. Lánið er oft hverfult og
óhapp veldur því að hann lendir í
basli með að útskýra fyrir lögregl-
unni hvers vegna hann búi á tveim-
ur stöðum. Nú fer því margt for-
vitnilegt og broslegt að gerast...
Efnið snýst að miklum hluta um
það sém mikið er á dagskrá í um-
ræðu - samkynhneigð og tvíkvæni.
Það vekur því vafalaust spurningar
og umræðu, en hér er íjallað um
þessi mál hlutlaust og hófsamlega.
Leikstjóri er heimamaðurinn
Hermann Guðmundsson, þaulvanur
leikari og leikstjóri eins og hinn
breski höfundur. Áhorfendur tóku
leiknum mjög vel, skemmtu sér
konunglega og létu það ótvírætt í
ljósi að leikslokum. -JJ
Tjölduðu á
Kringlumýrar-
braut
Nokkrir unglingspiltar tóku sig
til og tjölduðu á umferðareyju milli
akreina á Kringlumýrarbraut um
helgina.
Lögregla var kvödd til og batt
hún enda á útileguna með því að
biðja þá um að hafa sig á brott.
Ekki er vitað hvers vegna piltarn-
ir ákváðu að svala útivistarþörf
sinni með þessum hætti. SF