Dagblaðið Vísir - DV - 29.05.1996, Blaðsíða 33
MIÐVIKUDAGUR 29. MAÍ 1996
37
Jóhannes Jóhannesson með
eitt verka sinna í bakgrunninum.
Myndir
Jóhann-
esar og
Karólínu
í Gallerí Fold við Rauðarár-
stíg var opnuð um síðustu helgi
sýning á olíumálverkum Jó-
hannesar Jóhannessonar. Á
sama tíma sýnir Karólína Lár-
usdóttir ný þrykk í kynningar-
horni gallerísins. Sýningin
stendur til 9. júní.
Jóhannes er Reykvíkingur og
tók sveinspróf í gull- og silfur-
smíöi áður en hann hélt til
Bandaríkjanna í listnám árið
1945. Ári síðar hélt hann sína
Sýningar
fyrstu einkasýningu í Lista-
mannaskálanum og ári síðar
tók hann þátt í fyrstu Septem-
bersýningunni ásamt félögum
sínum sem síðar mynduðu Sept-
emberhópinn svokallaða. Jó-
hannes stundaði síðan fram-
haldsnám á Ítalíu, Frakklandi
og fleiri löndum. Hann hefur
haldið fjölda einkasýninga og
tekið þátt í samsýningum hér á
landi og erlendis.
Karólína Lárusdóttir er eins
og Jóhannes fædd í Reykjavík.
Hún nam list sína i Englandi og
hefur búið þar. Hún hefur feng-
ið margar viðurkenningar fyrir
liststörf sín.'
Ferða-
þjónusta
í sátt við
umhverfið
er yfirskrift ráðstefnu á veg-
um umhverfisráðuneytisins og
Ferðamálasamtaka íslands sem
verður í Háskólabíói í dag í sal 3.
Vináttufélag íslands
og Kanada
Aðalfundur Vináttufélags ís-
lands og Kanada verður haldinn
í veitingahúsinu Lækjarbrekku
í kvöld kl. 20.
Samkomur
Vímuefnafræðsla
Alla miðvikudaga, kl.
17.30-19, eru umræður fyrir for-
eldra um vímuefnafræðslu að
Hverfisgötu 4a. Fjölskylduráð-
gjafi Tinda, Ragnheiður Óladótt-
ir, heldur fyrirlestra og stjórnar
umræðum.
Borgarafundur á
Austurlandi
Guðrún Agnarsdóttir forseta-
frambjóðandi verður með borg-
arafund í Verkalýðshúsinu á Fá-
skrúðsfirði í kvöld kl. 20.
Tríó Björns Thoroddsen og Egill á Kringlukránni:
Klassískur djass og
frumsaminn
Sem fyrr á miðvikudögum verð-
ur djass á boðstólum í Kringlu-
kránni sem er á efri hæð Borgar-
kringlunnar. I kvöld er það Tríó
Björns Thoroddsens ásamt Agli
Ólafssyni sem skemmtir gestum
staðarins. Stutt er síðan út kom
plata með þeim félögum sem heit-
Skemmtanir
ir Híf hopp, þar fara þeir á kostum
í fjölbreyttu lagavali og hefur plat-
an fengið afbragðs viðtökur. Þá
hafa þeir Björn og Egill einnig
leikið saman í Tamlasveitinni og
frá þeirri sveit kom út plata fyrir
jólin sem einnig fékk góðar viðtök-
ur.
Þeir félagar leika í kvöld lög af
plötum þeirra en uppstaðan er
klassísk djasslög ásamt írum-
sömdu efni. í tríói Björns, sem Hrafnsson á bassa og Ásgeir Ósk-
leikur á gítar, eru einnig Gunnar arsson á trommur.
Þeir skemmta á Kringlukránni í kvöld, talið frá vinstri: Gunnar Hrafnsson,
Björn Thoroddsen, Egill Ólafsson og Ásgeir Óskarsson.
Hálendisvegir
enn ófærir
Greiðfært er nú um alla helstu
þjóðvegi landsins. Vegavinnuflokk-
ar eru víða að gera við vegi eftir
veturinn og setja nýja klæðingu þar
sem þarf. Hálendisvegir eru enn
ófærir vegna snjóa og er ólíklegt að
Færð á vegum
þeir opni í bráð, þó gætu einstaka
leiðir opnast í næstu viku. Sums
staðar er mikil aurbleyta á vegum,
einkanlega þeim sem liggja hátt og
þar er öxulþungi bifreiða takmark-
aður. Þar sem vegavinnuflokkar eru
að störfum ber að sýna aðgát og
einnig er vissarar að aka hægt þar
sem ný klæðing er vegna steinkasts.
E1 Hálka og snjór 0 Vegavinna-aðgát @ Öxulþungatakmarkanir
Q>, LokaðrSt°ÖU ® ÞunSfært ©Fært flallabílum
Ástand vega
Sonur Ingu og
Ragnars
Myndarlegi drengurinn á mynd- spítalans 26. maí, kl. 14.26. Hann
inni fæddist á fæöingardeild Land- var við fæðingu 3800 grömm að
þyngd og 54 sentímetra langur. For-
---—------------;----- eldrar hans eru Inga Dís Þórðar-
Barn dagsins dóttirogRagnarDagurGuðmunds-
----------------------- son og er hann fyrsta bam þeirra.
dagsfSSl)
i
% *
Al Pacino leikur borgarstjórann í
New York, sem kann að koma fyrir
sig orði.
Spilling
Stjörnubíó hóf um síðustu helgi
sýningar á Spillingu (City Hall). í
henni leikur A1 Pacino borgar-
stjóra New York borgar, John
Pappas sem stendur i ströngu við
ýmis mál. Hann er refur í stjórn-
málunum og hefur kænsku til að
komast hjá beinum átökum á þvi
sviði, en að mörgu er að huga og
honum til hjálpar er aðstoðar-
maður hans, Kevin Calhoun sem
lítur upp til yfirmanns síns. Þótt
þeir hafi ólíkar skoðanir á hlut-
unum vinna þeir vel saman. Allt
gengur upp hjá þeim félögum þar
til morgun einn að til skotbar-
daga kemur milli lögreglumanns
og eiturlyfjasala og sex ára svart-
ur drengur verður fyrir skoti og
Kvikmyndir
deyr. Upp úr þessu máli spinnst
ótrúlegur söguþráður þar sem
spillingarvefurinn nær til æðstu
embætta borgarinnar.
Auk Pacino leika í myndinni
John Cusack, Bridget Fonda og
Danny Aiello. Leikstjóri City Hall
er Harold Becker, en hann og A1
Pacino gerðu saman hina ágætu
spennumynd.-Sea of Love.
Nýjar myndir
Háskólabíó: Lán í óláni
Laugarásbíó: Tölvurefir
Saga-bió: Stolen Hearts
Bíóhöllin: Last Dance
Bíóborgin: Executive Decision
Regnboginn: Barist í Bronx
Stjörnubíó: Spilling
Gengið
Almennt gengi LÍ nr. 105
29. mai 1996 kl. 9.15
Eining Kaup Sala Tollnenqi
Dollar 67,570 67,910 66,630
Pund 102,380 102,910 101,060
Kan. dollar 49,120 49,420 48,890
Dönsk kr. 11,3220 11,3820 11,6250
Norsk kr. 10,2320 10,2890 10,3260
Sænsk kr. 9,9150 9,9700 9,9790
Fi. mark 14,1800 14,2630 14,3190
Fra. franki 12,9180 12,9920 13,1530
Belg. franki 2,1274 2,1398 2,1854
Sviss. franki 53,1700 53,4700 55,5700
Holl. gyllini 39,0600 39,2900 40,1300
Þýskt mark 43,7400 43,9700 44,8700
It. lira 0,04341 0,04367 0,04226
Aust. sch. 6,2140 6,2530 6,3850
Port. escudo 0,4259 0,4285 0,4346
Spá. peseti 0,5250 0,5282 0,5340
Jap. yen 0,62170 0,62550 0,62540
irskt pund 105,470 106,130 104,310
SDR/t 96,85000 97,43000 97,15000
ECU/t 82,7000 83,1900 83,3800
Símsvari vegna gengisskráningar 5623270
Krossgátan
Lárétt: 1 morgunn, 8 fita, 9 vonda, 10
hlassið, 11 frískur, 13 smátt, 15 innan,
16 bardagi, 17 lögun, 18 sjávargróður,
19 fjær, 21 himna, 22 aftur.
Lóðrétt: 1 skamma, 2 blaut, 3 skítur, 4
grandanum, 5 ánægja, 6 gangflötur, 7
brún, 12 glerið, 14 áhrif, 17 berja, 18
eins, 20 drykkur.
Lausn á síðustu krossgátu:
Lárétt: 1 kvöl, 5 ess, 8 risar, 9 ká, 10
álkuna, 10 sjá, 13 niða, 15 viku, 16 haf,
17 Einar, 19 grugg, 20. grugg.
Lóðrétt: 1 krá, 2 vilji, 3 ös, 4 launung,
5 erni, 6 skaða, 7 sáð, 11 káki, 12 svög,
14 afar, 16 hag, 17 er, 18 rú.