Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.1996, Blaðsíða 7
FIMMTUDAGUR 30. MAÍ 1996
7
Fréttir
Fylgi frambjóðenda eftir flokkum - samkvæmt skoðanakönnun DV 28/5 '96 -
Ólafur Ragnar Grímsson Pétur Kr. Hafstein Guðrún Agnarsdóttlr Guðrún Pétursdóttir
□ a IbIdQg Qj □ v
□ Óákv./svara ekki
Ástþór Magnússon
Forsetafylgi eftir flokkum:
Einlitast fylgi
Péturs Hafstein
- Ólafur Ragnar „dreifðastur“
Pétur Kr. Hafstein forsetafram-
bjóðandi hefur aðallega stuðning
fólks úr Sjálfstæðisflokknum á með-
an fylgi annarra frambjóðenda
skiptist meira á milli flokka. Ólafur
Ragnar Grímsson hefur einn fram-
bjóðenda stuðning úr öllum flokk-
um en þó aðallega úr Sjálfstæðis-
flokknum, Alþýðubandalaginu og
Framsóknarflokknum. Þetta má
m.a. lesa úr nýrri skoðanakönnun
DV um fylgi við forsetaframbjóð-
endur sem birtist í blaðinu í gær.
Tekið skal fram að þessi greining
er meira til gamans gerð. Frekar
skal líta á þessar niðurstöður sem
vísbendingar, sérstaklega hvað
varðar fylgi Ólafs Ragnars, sem
naut 52,3 prósenta fylgis þeirra sem
afstöðu tóku, og Péturs Hafstein
sem fékk 26,6 prósenta stuðning.
Flokkaskipting annarra frambjóð-
enda er ekki eins marktæk.
Óákveðnir kjósendur eða þeir
sem neita að gefa upp afstöðu sína
til stjórnmálaflokka eru fjölmennir
í stuðningsliðum frambjóðendanna,
yfirleitt í kringum þriðjungur. Þetta
er svipuð niðurstaða og í könnun
DV í apríl sl. nema hvað ópólitísk-
um stuðningsmönnum Péturs hefur
fjölgað verulega. Tæplega helming-
ur fylgismanna Péturs kemur úr
Sjálfstæöisflokknum.
Guðrún Agnarsdóttir er með
flesta fylgismenn úr Sjálfstæðis-
flokknum og Kvennalistanum. Um
þriðjungur stuðningsmanna Guð-
rúnar Pétursdóttur kemur úr Sjáif-
stæðisflokknum og svipað margir
úr Alþýðuflokknum og Framsóknar-
flokknum. Framsóknarmenn virð-
ast helst halla sér að Ástþóri Magn-
ússyni.
FVlgisskipting eftir flokkum sést
nánar á meðfylgjandi grafi. Sem
kunnugt er stendur A fyrir Alþýðu-
flokk, B fyrir Framsóknarflokk, D
fýrir Sjálfstæðisflokk, G fyrir Al-
þýðubandalag, J fyrir Þjóðvaka og
V fyrir Kvennalista.
-bjb
Hlutafélagið Póstur og sími:
Vilja fresta frumvarpinu
Frumvarpið um að gera Póst og
síma að hlutafélagi var til 2. um-
ræðu á Alþingi í gær. Ásta R Jó-
hannesdóttir og fleiri stjómarand-
stöðuþingmenn lögðu þá til að
frumvarpinu yrði frestað til
haustsins og tíminn þangað til not-
aður til að ganga betur frá þeim
málum sem að starfsfólkinu snýr.
Ásta R. og Ögmundur Jónasson
sögöu að of margir lausir endar
væru varðandi réttindi um 2.500
starfsmanna Pósts og síma eftir að
fyrirtækinu hefur verið breytt í
hlutafélag.
Einar K. Guðfinnsson, formaður
samgöngunefndar, sagði þetta
rangt. Það hefði verið vel og
tryggilega gengið frá réttindamál-
um starfsfólks. Þó væri það svo að
í svo stónun hópi sem starfsmenn
Þósts og sima væm færi ekki hjá
þvi að einhver vafaatriði gætu
komið upp. Sagði hann að þriggja
manna undirbúningsstjórn myndi
verða skipuð til að ganga endan-
lega frá réttindamálum starfs-
fólksins. Sagði hann að starfsfólk-
ið myndi í engu missa áunnin og
samningsbundin réttindi. -S.dór
iii
Þtfí þá efna Bónus Radíó 09 fþróttir
fyrir alla, til fjölskyldu-skokks 09
þú gætir jafntfel unnið þér inn tfegleg
tæki - bara fýrir að tfera með - sama
htforf þú er fyrstur eða síðastur!
Til dæmis:
• Samsung-sjónvarpstæki með
innbyggðu myndbandstæki
• Siemens GSM-síma
• Samsung-hljómflutningstæki
• Ferðatæki með geislaspilara
• Og fullt, fullt af fleiri
góðum vinningum...
Vertu með ! Þú þarft ekki að vera
göður hlaupari til að vinna...
því það verður ekkert
kapphlaup - Eitthvað fyrir alla
fjölskylduna og svo verður skemmtun
og grillveisla að skokkinu loknu.
\A
>3
* *$$$
iosásí
ÍÞRÖTTIR FVHIR RLLR
Símaskráin 1996
er komin út
Mýja símaskráin tekur gildi
Mundu eftir afhendingarmiðanum
og náðu í nýju símaskrána
strax í dag
■ Mýja
símaskráin
-útbreiddasta bók á íslandi
PÓSTUR OG SlMI