Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.1996, Side 28

Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.1996, Side 28
I Vihnkigstölur mióvik asginn 29.5/96 w 40X41X44 12 28'35 Vlnnlngar Fjöldl vinninga Vinnlngsupph*ð l.icft 3 15.230.000 2. Saf 6 í -n 812.746 Í.Saft 3 67.680 4. 4 afí .173 1.860 5. lafl' *«'583 230 HtlldarvihnjhnupfiÍMÓ Á ítlarufí 47.161.656 16.701.656 0000 29.5. KIN 'c; <= FRETTASKOTIÐ SÍMINN SEM ALDREI SEFUR Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eöa er notaö í DV, greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnieyndar er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan sólarhringinn. 550 5555 Frjalst.ohaÖ dagblaÖ FIMMTUDAGUR 30. MAÍ1996 15 milljónum ríkari: Keypti sjálf- valsmiða á 200 krónur Viðskiptavinur sem keypti sjálf- valsmiða á 200 krónur í versluninni Horninu á Selfossi fyrir hádegi í gær er orðinn 15,2 milljónum króna ríkari eftir drátt í Víkingalottóinu. Hann hafði ekki gefið sig fram þeg- ar DV fór í prentun. Gunnar Guðmundsson, eigandi Hornsins, sagði í morgun að starfs- fólk sitt hefði verið að tala um að lottókassinn hefði gefið tæplega 40 milljónir króna í „fyrstuvinninga" frá áramótum. Þann 6. janúar kom einmitt stærsti vinningur á einn að- ila fyrr og síðar i íslenska lottóinu - tæplega 24 milljónir króna. „Við höfum að jafnaði verið með hæsta vinning í lottóinu einu sinni á ári á þeim tíu árum sem það hef- ur verið í gangi," sagði Gunnar. Einu sinni var fyrsta vinnings, tæp- lega 3ja milljóna króna, ekki vitjað. „Sá hefur sennilega týnt miðanum," sagði Gunnar. Hann sagði að salan í Víkinga- lottóinu hefði ekkert verið meiri en venjulega í gær. 47,2 milljónir króna voru í pottinum og fá Norðmaður og Svíi því einnig sínar rúmar 15 millj- ónir króna hvor í sinn hlut. Þetta er í fjórða sinn sem íslendingur hlýtur 1. vinning í þessu Norðurlanda- lottói. Síðast var það í apríl 1994 þegar ungt og heppið par hlaut tæp- ar 40 milljónir í vinning. -Ótt Björk á ferð og flugi Björk Guðmundsdóttir syngur á listahátíð hér á landi í júní en hún verður á ferð og flugi í allt sumar. 15.-16. júní syngur hún á fjáröflunar- tónleikum, Frjálst Tíhet, í Golden Gate Park i San Fransisco. Verður þar aðalnúmerið ásamt Beastie Boys. Þann 6.-7. júlí verður Björk með tvenna tónleika í Belgíu, 12. júlí í Finniandi og 13. júlí i Lettlandi. Þá kemur hún fram á Gurten-tónlistar- hátíðinni í Sviss 19. júlí og á Phön- ix- tónlistarhátíðinni í Bretlandi 23. júlí. Hún verður á Lowlands-tón- leikunum 23. ágiist, í ísrael 26.-28. ágúst og 31. ágúst í Dublin á írlandi. Bresk blöð hafa verið með sögu- sagnir um að Björk og Goldie muni ganga í hjónaband í ár og gefa út saman 12 laga plötu. Sex laganna þar verða endurunnin lög af Post- plötunni. -DÓ Eldhúsdagur í kvöld klukkan 20.30 heijast al- mennar stjórnmálaumræður, eld- húsdagsumræður, á Alþingi. Þeim verður að vanda bæði útvarpað og sjónvarpað. -S.dór ÞA ER PAÐ SPOLA I KVÖLD FYRIR PA SEM EKKI EIGA AFRUGLARA! Veöriö á morgun: Hvasst og víöa úr- koma Á morgun verður allhvöss og jafnvel hvöss norðaustanátt. Um allt austanvert landið mun verða rigning og einnig norðanlands og á Vestfjörðum síðdegis, en vestan og suðvest- an til verður úrkomulítið. Veðrið í dag er á bls. 36 Ágúst Einarsson, formaður efna- hags- og viðskiptanefndar Alþingis, mælti um miðjan dag í gær fyrir frumvarpi um vörugjald af ökutækj- um. Gárungar kalla þetta ,jeppa- frumvarpið“ vegna þess að það ger- ir ráð fyrir að fækka gjaldflokkum vörugjalds á bifreiðar úr 4 í 3. Þá mun verð á stærri bifreiðum með aflmeiri vélar lækka. Sérstaklega munu dýrustu jepparnir með stærstu vélarnar lækka mest, eða um allt að hálfa milljón. Þetta frum- varp var í gær afgreitt á methraða í gegnum þingið og var orðið að lög- um fyrir kvöldmat. Lögin taka gildi 1. júní. -S.dór Jökuldalsheiöi: Ungverjar veltu bíl Tveir ungverskir ferðamenn á bflaleigubfl veltu bílum á miðri Jök- uldalsheiði í gær. Sluppu þeir án meiðsla frá óhappinu en bíflinn er mikið skemmdur og var óökufær eftir. Mennimir komu sér sjálfir til ___þyggða og tilkynntu lögreglu um veltuna. -GK Óvenju vel hefur viðrað í vor þótt aðeins hafi rignt í gær og í fyrradag. Ferðamenn hafa því notið veðurblíðu. Þess- ar hollensku stúlkur hjóluðu til Þingvalla og nutu náttúrudýrðarinnar. DV-mynd GS Áttu fjársjóð í skúrnum! Kaupum góðmálma sími 581-4757 ^aiHRINGRÁS ^ r ENDURVINNSLA ^ Tilvalin til að merkja Ijósmyndirnar í fjölskyldualbúminu bíother"300 Takmarkað magn Verð 6.995 kr. RAFPORT Nýbýlavegi 28 Sími 554 4443 Innbrot: Nágrannar sáu þjófana Vökulir nágrannar söluturns við Langholtsveg komu í veg fyrir að _ hópur fimm unglinga brytist þar Tnn í nótt. Létu þeir lögreglu vita áður en piltarnir komust inn. Voru þeir allir gripnir á staðnum og færðir á lögreglustöðina. Tveir þeirra voru 15 ára gamlir og fóru heim í fylgd foreldra sinna. Hinir voru rétt yfir lögaldri. Grunur vaknaði einnig um að strákahópur hefði brotist inn í bíla í Hlíðunum. Voru þeir handteknir en ekkert fannst sem benti til inn- brota. -GK Hannes og Helgi efstir _ Hannes Hlífar Stefánsson og Helgi Ólafsson eru efstir og jafnir á Skákþingi íslands, Eimskipsmótinu með 5F2 vinning að loknum 7 um- ferðum. Jóhann Hjartarson og Mar- geir Pétursson koma næstir með 5 vinninga. Hannes Hlífar gerði í 7. umferð jafntefli við Jón Viktor Gunnarsson, Margeir tapaði óvænt fyrir Sævari Bjarnasyni, Helgi vann Þröst Þórhaflsson og Jóhann vann Magnús Örn Úlfarsson. -ÍS Alþingi: „ Jeppaf rumvarp- ið“ á hraðferð í gegnum þingið • Skrifstofufólk sýslumanna og tollstjóra á leiö úr SFR: Klofningur í uppsiglingu ekki svo einfalt mál segir Jens Andrésson, formaður SFR Um 300 manna hópur innan Starfsmannafélags rikisstofnana er á leið út úr félaginu. Grétar Guðmundsson, deildarstjóri inn- heimtudeildar toflstjóra í Reykja- vík, segir að búið sé að fara fram á viðræður við dómsmálaráðu- neytið um hvemig málum verði hagað, þ.e. hvernig að úrsögninni og stofnun nýs stéttarfélags verði staðið, og er svars frá ráðuneytis- stjóra um þau mál beðið. Um er að ræða starfsfólk tollstjóra og sýslu- mannsembætta um allt land og eru ástæður óánægju þess með veruna í SFR bæði kjaralegs og faglegs eðlis. „Við áttum fund uppi í ráðu- neyti í byrjun maímánaðar sl. um málið og skrifuðum bréf í fram- haldi af því. Máliö er tilkomið vegna óánægju með afkomu okkar hóps innan SFR en jafnframt hef- ur verið óánægja með þau nám- skeið sem hafa verið í boði hjá fé- laginu og ráðuneytinu en þau hafa ekki nýst því fólki sem vinnur í okkar fagi að neinu leyti. Við höf- um viljað fá námskeið sem nýtast okkar fólki í starfi þannig að það geti veitt skjótari og betri þjón- ustu,“ segir Grétar. Fulltrúar mjög margra starfs- greina eru innan SFR, svo sem starfsfólk sjúkrastofnana og opin- berra og hálfopinberra fyrirtækja og stofnana, og segir Grétar að sá þáttur félagsstarfsins sem snýr að starfsfólki tollstjóra og sýslu- manna sé svo þungur í vöfum að þetta fólk telji sig ekki eiga heima í SFR. Grétar segir að í kjaramál- um hafi félagsstjóm SFR einblínt á kjarabætur í formi vaktaálags og aukagreiðslna sem alls ekki eigi við um skrifstofufólkið. Jafnframt haíl SFR dregist mjög aftur úr í kjaramálum almennt og ekki virst hafa haft afl til að taka á því máli. „Úrsögn úr SFR er ekki svo ein- falt mál því að samkvæmt lögum um réttindi og skyldur opinberra starfsmanna og um samningsrétt- armál þeirra þá eru ákvæði um að fagstéttir með ákveðinn lágmarks- fjölda geti stofnaö sérstéttarfélög. Skrifstofufólkið hefur hins vegar ekki viðurkenningu sem fagstétt og meðan svo er ekki verður það að sætta sig við það fyrirkomulag sem nú er,“ segir Jens Andrésson, formaður SFR. Jens segir þetta mál bæði kjara- legs og félagslegs eðlis en skrif- stofufólkið telji sig hafa borið skarðan hlut frá borði í síðustu samningum. Hins vegar hafi sú ákvörðun verið tekin í félaginu í kjarasamningum að semja um krónutöluhækkun og koma þannig til móts viö sjálft höfuðmarkmið þess, að bæta kjör hinna lægst- launuðu mest. Þeir sem þágu laun samkvæmt miðri launatöflu fé- lagsins og þar fyrir ofan hafi því fengið hlutfallslega minnstar hækkanir og því minni sem ofar dró í launastiganum. -SÁ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.