Dagblaðið Vísir - DV - 31.05.1996, Page 6

Dagblaðið Vísir - DV - 31.05.1996, Page 6
6 FÖSTUDAGUR 31. MAÍ 1996 Neytendur Garðúðunartímabilið er komið vel af stað: Folk getur valið náttúruvæn efni Neytendasíðan hefur verið með hugann við garðinn að undanfórnu og vildi komast að því hvort nauðsyn- legt væri að úða garðinn og ekki síð- ur hvort þyrfti að nota óvistvæn eit- urefni til þess. Guðný Olgeirsdóttir, garðyrkjufræðingur hjá Reykjavíkur- borg, varð fyrst fyrir svörum í sam- bandi við umhirðuna. „Maðkurinn er farinn að koma svo það borgar sig fyrir fólk að láta úða hjá sér. Maðkurinn kemur fyrst og fremst á vorin en síðan sést hann eitt- hvaö á haustin líka. Hann er einkum á víðinum og birkinu um þetta leyti. Lúsin er slæm og fólk þarf að vera vakandi fyrir henni,“ segir Guðný. Getur drepið runna Guðný segir maðkinn éta blöðin og lúsina sjúga sáfann úr þeim. Skað- valdarnir geti vel drepið runna. Að- spurð um aðra umhirðu garðsins, t.d. varðandi áburð og mosa, segir Guðný að hægt sé að kaupa þar til gerðan mosaeyði en besta leiðin til þess að losna við hann vistvænt sé að hleypa krökkunum með boltann á blettinn og leyfa þeim að troða svolítið á hon- um. „Mosinn þolir minna álag en gras- ið og því hopar hann þegar álag er á segir Gísli Sigurðsson hjá Gróðurvörum Jóhann Helgi Hlöðversson, skrúðgarðyrkjumeistari hjá Jóhanni Helga og Co, var að úða í Hafnarfirði þegar DV hitti á hann í gær. DV-mynd BG Hljómsveitarstjóri Leikstjóri Leikmynd Búningar Lýsing Garöar Cortes Halldór E. Laxness Axel Hallkell Hulda Kristín Magnúsdóttir David Walters grasinu. Eins má bera gott lag af sandi ofan í svörðinn en það þolir mosinn illa.“ Guðný segir ekkert nema gott um það að segja að fólk beri skít á garð- ana hjá sér. Tilbúinn áburður sé vissulega til en hann sé ekki eins vist- vænn. Hún segir best að bera áburð- in á snemma á vorin en segir í raun óhætt að gera það hvenær sem er. Of snemma og of lengi í samtölum við menn í garðúðun- um kemur fram að stundum séu menn að úða of mikið. í einhverjum tilvikum er farið of snemma af stað og í öðrum eru menn að úða eftir að það hættir að hafa einhverja þýðingu. „Um leið og maðkurinn fer aö láta sig síga ofan í jörðina til þess að púpa sig er alveg tilgangslaust að vera að úða. Eins myndi ég segja að fólk ætti ekki að láta úða hjá sér fyrr en það er farið að sjá maðkinn. Ef hann er lítið farinn að láta sjá sig má búast við að eggin eigi eftir að klekjast út og þvi verði allt orðið morandi strax aftur," sagði garðúðunarmaður við DV í gær. Náttúruvænt efni Neytendasíðan spurði Gísla Sig- urðsson, framkvæmdastjóra Gróður- vara, um hvað menn væru að nota við úðunina. Fyrirtækið er leiðandi í sölumálum gróðurvara. „Eins og er nota menn mest af efni sem heitir Permasect en sem betur fer er það á undanhaldi. Við erum rétt famir að kynna náttúruvænt efni sem kallast Trounc og flokkast sem lífrænt efni. Því má t.d. sprauta beint á grænmeti og borða það svo eftir tvo daga. Með eiturefnunum þurfa menn að bíða í allt að 14 til 20 daga. Það er jákvæð þróun í þessu og við erum ánægðir að geta boðið fólki að velja hvort það vill nota þessi kemísku efni eða náttúruvæn," segir Gísli. Samkvæmt upplýsingum neyt- endasíðunnar er algengasta verðið á garðúðunum á bilinu 3000 til 5000 kr. en vegna mikillar samkeppni hafa menn verið að bjóða verulegan af- slátt. Að gefnu tilefni er rétt að benda fólki á að þeir sem vinna við þetta þurfa leyfi frá Hollustuvemd. Fólk ætti að biðja um að fá að sjá þessi leyfi. -sv Almannatryggingar: HLUTVERKASKIPAN Galdra-Loftur Steinunn Dísa Ólafur Andi (samviska Lofts) Gamli maöurinn Gottskálk biskup Þorgeir J. Andrésson Elín Ósk Óskarsdóttir Þóra Einarsdóttir Bergþór Pálsson Loftur Erlingsson Bjarni Thor Kristinsson Viðar Gunnarsson Kór og hljómsveit íslensku óperunnar FRumsÝninc i. jóní HÁTÍDARSÝninc 4. jóní ÖÐRÖR SÝninCAR^ 7., 8., II. OC 14. jóní ADEÍnS ÞESSAR SÝnÍnGAR mÍÐASÖLA OPÍn DACL. 15-19. SÍmÍ 551-1475 Spurt og svarað - Tryggingastofnun svarar lesendum DV Karlmaður hringdi og vildi fræð- ast um endurgreiðslur vegna mik- ils læknis- og lyfjakostnaðar. í bæklingi frá Tryggingastofiiun seg- ir að ekki sé endurgreiddur kostn- aður vegna lyfja sem Trygginga- stofnun tekur þátt í að greiða og maðurinn viU vita hvað átt sé við. Sem fyrr eru það Ingibjörg Stefáns- dóttir og Svala Jónsdóttir hjá fræðslu- og útgáfudeild Tryggingastofnunar sem svara spurningum sem lesendur senda inn. Þeir sem hafa spurningar varðandi almannatryggingar geta hringt i umsjónarmann neytendasíð- unnar, Svan Valgeirsson, í síma 550- 5000 og 550-5814 og i bréfasíma 550- 5020. Skipt í fjóra flokka Lyfjum er skipt í fjóra flokka eftir greiðsluskiptingu. í fyrstu flokkunum eru lyf sem Tryggingastofnun greiðir að fullu. t honum eru sykursýkis-, krabbameins- og glákulyf. í öðrum og þriðja flokknum eru lyf sem sjúkling- ur greiðir að hluta á móti Trygginga- stofnun. í þeim flokki eru m.a. psori- asis-, asma- og ofnæmislyf, flogaveiki- lyf, meltingarlyf, hormónalyf og fleira. Það er kostnaður sjúklinga vegna lyfja i þessum flokkum sem þeir geta fengið endurgreiddan fari hann yfír ákveöið mark. Hlutfall end- urgreiðslu og upphæð endurgreidds kostnaðar fer eftir árstekjum fjöl- skyldu eða einstaklings. í íjórða flokknum eru lyf sem sjúkl- ingur greiðir að fulu. í þeim flokki eru m.a. sýklalyf, verkja- og róandi lyf, getnaðarvarnalyf og hósta- og kveflyf. Kostnaður vegna þeirra fæst ekki endurgreiddur nema vegna lyfja- notkunar barna, sex ára og yngri. -sv Nýja símaskráin: í einu bindi Ný símaskrá Pósts og síma fyrir 1996 tekur gildi frá og með deginum í dag og geta símnot- endur nálgast eintök sin á næstu póst- og símstöö gegn framvísun miða sem sendir hafa veriö heim til þeirra. Símaskráin er nú aftur komin í eitt bindi eftir aö horfið var frá skiptingu milli einstaklinga og fyrirtækja vegna eindreginna óska viðskiptavina. Þó geta þeir sem vilja fengið skrána í tveim- ur bindum en þá er henni ein- faldlega skipt í tvennt og er höf- uðborgarsvæðið í fyrra bindinu en landsbyggðin í því síðara. Alls voru prentuð 190 þúsund eintök og að venju er hægt að fá símaskrána með hörðum spjöld- um gegn vægu gjaldi. í bókinni er 15 blaðsiðna kort af höfuð- borgarsvæðinu og 6 bls. listi yfir götuheiti þar sem vísað er í kortið. Að öðru leyti er skráin með hefðbundnu sniði. Umhverfið: Mýkingar- efni menga í nýjasta eintaki Neytenda- blaðsins er grein undir yfir- skriftinni, Verum mjúk við.um- hverfið. Þar er verið að fjalla um mýkingarefni og bent á nokkrar staðreyndir um það efiii. Þar er þess getið að flest af þeim hrein- lætisvörum sem við notum inni- halda efni sem menga umhverf- iö. Raka- drægni minnkar Um leið og menn nota mýk- ingarefni til þess að gera þvott- inn mjúkan eru þeir að draga mjög úr hæfileika þvottarins til þess aö draga í sig vökva. Dæmi voru jafnvel um að rakadrægni færi niöur i 0% og þar með voru til dæmis handklæði með öllu ónothæf til síns brúks. Rannsóknin leiddi í Ijós að mýkst uröu frottéhandklæði með því að láta þau i þurrkara og ekki með því að nota mýking- arefni. Þegar handklæði eru hengd upp til þerris án þess að í þau sé notað mýkingarefni verða þau stíf séu þau þurrkuð við stofuhita. Þau verða mýkri ef þau eru hengd upp í röku her- bergi og einnig ef þau eru hengd upp utan dyra þegar vindur er. Hrinda frá sér vatni Bómullarefni eru mjög þægi- leg í notkun þar sem raka- drægni þeirra er mikil. En þeg- ar mýkingarefni eru notuð við þvottinn hrinda þau frá sér vatni í meira eða minna mæli. Handklæði voru sérstaklega rannsökuð og kom í ljós að þeg- ar mýkingarefni voru notuð gátu þau einfaldlega synt ofan á vatninu og rakadrægnin var í sumum tilvikum engin. -sv

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.