Dagblaðið Vísir - DV - 31.05.1996, Side 12

Dagblaðið Vísir - DV - 31.05.1996, Side 12
12 FÖSTUDAGUR 31. MAÍ 1996 Spurningin Hvað myndir þú gera ef þú ynnir tíu milljónir í happ- drætti? Ragnheiður Sveinsdóttir sjúkra- þjálfari: Njóta lífsins bara. Fríða Björk Sveinsdóttir verslun- armaður: Stofna fyrirtæki. Sævar Baldursson verslunarmað- ur: Ég myndi gefa helminginn inn- an fjölskyldunnar og gleðja hana. Hinn helminginn myndi ég nota fyr- ir sjálfan mig, ég þarf ekki nema fimm. Soffía Eiríksdóttir hjúkrunar- fræðinemi: Flytja til Bahamaeyja og lifa þar í leti. Guðrún Sigríður Ölafsdóttir hjúkrunarfræðingur: Ég hugsa að ég myndi fá taugaáfall. Helena Sigfúsdóttir skrifstofu- maður: Ætli ég myndi ekki gefa mestallt. Lesendur Konráð Friðfinnsson skrifar: Innflutningur til landsins hefur nú aukist á síðustu mánuðum. Vissulega ánægjuleg tíðindi sem slík. Hæstvirtur forsætisráðherra benti einmitt á þessa hluti í ræðu er hann hélt á fundi Verslunarráðsins, að því er mig minnir. - Af orðum hans mátti ráða að hann hefði vilj- að vekja menn til umhugsunar um hvort ekki væri rétt að fara sér hægt þama. Málið er einfalt; verði þenslan of mikil í samfélaginu vegna innflutn- ingsins getur þrýstingurinn sem af hlýst raskað svefnró verðbólgunn- ar, sem þá fer á stjá til aö skekkja hvaðeina í samfélaginu. Við þekkj- um vel mátt verðbólgunnar frá fyrri árum. Þess vegna verða menn að vera samstiga nú ef ekki á illa að fara. Batinn er sem sé ekki lengur eitthvað sem koma mun í framtíð- inni, heldur er hann áþreifanlegur. Og spurningin er ávallt sú sama: Hvemig viljum við notfæra okkur þá staðreynd? Ég tel að hvers kyns bata, sem verður í þjóðfélögum, eigi aö brúka til hagsbóta fyrir hinn almenna mann, en ekki t.d. til óþarfa bygg- ingarframkvæmda, svo ég nefni eitt- hvaö. Og við getum aukið kaup- máttinn með ýmsu móti. Uppsveiil- una nú á með öðmm orðum ekki að færa neinum á silfurfati sem elds- neyti fyrir veröbólguna. Ávallt eru til menn sem vilja hagnast á þessu ástandi, en gróði sem á þann hátt næst, er ekki til langframa. Og ég er mótfallinn því aö hér verði lögð braut fyrir þannig þankagang. Sannleikurinn er sá að allir tapa á verðbólgunni. Einnig hinir efna- meiri. Gróði allra landsmanna ligg- ur því í að henni sé haldið í dvala, Beint samband er á milii aukins aðflutnings og þenslu í landinu, segir m.a. í bréfi Konráðs. og ýmislegt er á sig leggjandi tU að ná því takmarki. Það hefur þó tekist í sex ár. Sem fyrr ræður þjóðin sjálf hvað gert er í þessu efni. VUji hún tU að mynda sprengja sig á ein- hverju kaupæði verður svo að vera. Hyggist fólk svo láta tímann og batann vinna á sinn hátt verða hlut- irnir líka viöráðanlegri. í dag eru á lofti teikn sem þarf að gaumgæfa og því miður getur mað- ur ekki annað sagt en aö beint sam- band sé á milli aukins aðflutnings og þenslu í landinu, þenslu sem auðvelt er að missa tökin á. Þessum hlutum á verkalýðshreyfingin að huga að, því að hér er um brýnt hagsmunamál að ræða fyrir um- bjóðendur hennar. - í stað þess að berjast endalaust við réttkjörna valdhafa. Innflutningurinn - er verðbólgan að vakna? Hafa skal það er sannara reynist Georg Bæringsson skrifar: Fólki hér vestur á ísafirði var skemmt þegar það las í Tímanum á dögunum að þær fregnir hefðu bor- ist frá kosningamiðstöð Guðrúnar Pétursdóttur í Reykjavík að hún hefði „snarfyllt fundarsal Stjórn- sýsluhússins á ísafirði, rétt eins og Pétur Kr. Hafstein hafði áður gert“. Þetta eru undarlegar fréttir fyrir ísfirðinga - og fráleitt sannar. Hið sanna í málinu er að um 50 manns komu á opinn fund Guðrúnar Pét- ursdóttur á ísafirði, en hins vegar voru um 300 manns á fundi Péturs Kr. Hafstein þann 1. maí síðastlið- inn. Sá fundur var gríðarlega vel heppnaður - mikil stemning og ánægja. Pétur Kr. Hafstein flutti þar mjög góða ræðu og fjölmargir tóku til máls og lýstu stuðningi við fram- boð hans. Fundur Guðrúnar hins vegar var engan veginn eins vel heppnaður, enda mun færri fundar- gestir. Það verður að gera þá kröfú til kosningaskrifstofu stuðningsmanna frambjóðenda aö þeir láti fjölmiðl- um í té réttar upplýsingar og skreyti sig ekki stolnum fjöðrum. Því vil ég beina þeim tilmælum til stuðningsmanna Guðrúnar Péturs- dóttur að þeir gefi réttar upplýsing- ar í framtíðinni, þannig að almenn- ingur geti treyst því að þær séu rétt- ar. - Annað er ekki sæmandi for- setaframbj óðanda. Langholtsdeilan gengur aftur Kristján Sigurðsson skrifar: Langholtsdeilan gengur nú aftur með skýrari formerkjum en áður. Aðalsafnaðarfundur í Langholts- sókn skorar á kirkjumálaráðherra að tcika til greina skriflegar yfirlýs- ingar um að leysa sóknarprestinn frá störfum. Ekki orð um biskups- málið eöa áskorun til kirkjumála- ráðherra að aðhafast eitthvað í því vegna kæru á hendur honum um kynferðislega áreitni. - Ekki heldur orð um það mál frá prófastinum, Ragnari Fjalari, sem sagðist álíta aö afar erfitt yrði fyrir kirkjuyfirvöld (hver sem þau nú eru í hans huga í þessu tilfelli!) að komast hjá því að „grípa til aðgerða"! Já, nú á aldeilis í síma 5000 i kl. 14 og 16 mSílM þjónusta allan Góðverk safnaðarbarna Langholtssóknar árið 1996? að grípa til aðgerða gegn séra Flóka Kristinssyni. Segja honum upp störfum og helst að gera hann at- vinnulausan. Þetta er góðverk safn- aðarbarna Langholtssóknar árið 1996. Mikil mildi ásamt festu þeirra sem valdið telja sig hafa. - Með að- stoð kirkjuyfirvalda að sjálfsögðu. Og svo eru það kvensurnar tvær, söngkonan og starfskona sóknar- nefndarinnar sem sögðu af sér sam- kvæmt úrskurði setts biskups í Langholtsdeilunni. Auðvitað eru þær ekki ánægðar, og því verður að telja þær frumkvöðla að áskorun- inni um brottvikningu séra Flóka (þótt tillagan hafi komið frá söng- konunni, konu organistans). Þetta mál er nú orðið eitt viðamesta hneykslið í kirkjusögu okkar á síð- ari tímum, og er mál að linni. Því linnir þó ekki með því að þvinga séra Flóka frá embætti. Sú aðgerð magnar deilumar. Á meðan bisk- upsmálið er óleyst veröur ekki tek- ið mark á títtnefndum „kirkjuyfir- völdum“ í samhengi við lönguvit- leysuna í Langholtssókn. Gandhi-viður- kenning Sigurður Björnsson hringdi: Tveir frambjóðendanna til for- setakjörs, Ólafur Ragnar Gríms- son og Ástþór Magnússon, hafa hlotið viðurkenningu frá Gand- hi-stofnun fyrir að stuðla að friði og mannbætandi aðgerðum. Nú hefur Ólafur Ragnar upplýst að ekki sé um sömu stofnun að ræða, önnur sé í Bandaríkjun- um, hin á Indlandi og það sé hin raunverulega Gandhi-stofnun. Ástþór hefur þó vinninginn enn sem komið er því hann og forseti Bandaríkjanna hafa báðir hlotið viðurkenningu frá Gandhi-stofii- un. Hvor stofnunin er meira „ekta“? Enn eitt „flug- flippið" Pétui- Árnason hringdi: Mér þykir einum of mikið hvernig hægt er að koma hér upp hverju „flugflippinu" á fæt- ur öðru til að flytja farþega til og frá íslandi. Nú eru þaö svokall- aðar „Bingóferðir" sem fella nið- ur auglýstar ferðir, og það i ann- að sinn'- bæði frá Kaupmanna- höfn og frá íslandi. Eru virkilega engin yfirvöld hér sem fylgjast með framkvæmd nýrra sam- gönguaðila sem festa hér rætur? - Við viljum frelsi í samgöngum, en aðilar verða að hafa efni á að halda rekstrinum gangandi. Gestaboð forsetans Jóhanna Jóliannsd. skrifar: Það var fróðlegur listi sem Mbl. birti sl. miðvikudag yfir gesti forseta íslands i kvöldverð- arboði til heiðurs forseta írlands á Hótel Sögu. - Ég styð heilshug- ar slíkan virðingarvott sem for- seti íslands sýnir erlendum gest- um okkar, en ekki hvernig að þessum boðum er staðið. Það er t.d. ótækt að fylla gestalistann með fyrrverandi þessum og hin- um fyrrverandi embættismönn- inn ráðuneyta. Hvaöa erindi eiga þeir? Eða fyrrverandi frúr ráð- herra? Hins vegar mættu vera fleiri af athafhamönnum og for- stöðumönnum stofnana, og minna af starfsfólki ýmissa emb- ætta og mökum þeirra. Vanhæfni er aðalsmerkið Nanna skrifar: Nú er það vanhæfnin sem gildir. Yfirkjörstjómarformaður lýsir sig vanhæfan gagnvart Ólafi Ragnari Grímssyni, og nú er að fara af stað slík mna nafna sem kann aö teljast vanhæf vegna skyldleika, fyrrum sam- starfs eða kunningsskapar við forsetaframbjóðendur að kannski verður að taka forseta- kjör út af dagskrá að sinni. Ég tel vanhæfnina vera orðna aðals- merki væntanlegra forsetakosn- inga og vonast til að embættið sem slíkt verði lagt niður í nú- verandi mynd og það sameinað embætti forsætisráðherra. Kosningaspá til forsetakjörs Egill Jónsson skrifar: Ég held að mikið eigi eftir að breytast í kosningaspám til for- setakjörs. Eftir síðustu uppá- komu og yfirlýsingar formanns yfirkjörstjórnar tel ég að það verki sem bakslag hjá bæði Ólafi Ragnari Grímssyni og einnig Pétri Kr. Hafstein. Þau atkvæði renni til Guörúnar Ágnarsdóttur sem fólk líti á sem óháðasta frambjóðandann og þann sem komi best fyrir í framsögn og framgöngu. Og nú spái menn í hvert stefnir um niðurstöðuna.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.