Dagblaðið Vísir - DV - 31.05.1996, Side 15
FÖSTUDAGUR 31. MAÍ 1996
15
Embætti til sölu?
í yfirheyrslu DV síðasta laugar-
dag lýsti Pétur Hafstein því yfir að
barist yrði til síðasta blóðdropa i
kosningabaráttunni. Heldur komu
þessi ummæli spánskt fyrir sjónir
þar sem kosningabarátta hans hef-
ur hingað til einkennst af blóð-
leysi hins litlausa embættis-
manns. Hinn pólitíski blóðþrýst-
ingur frambjóðandans virðist í
lægra lægi og óljóst með öllu hvað
varð þess valdandi að hann lagði í
bardagann. Raunar hefði betur
verið við hæfi að hæstaréttardóm-
arinn hefði sagt að barist yrði til
síðustu krónu í kosningabarátt-
unni og ekkert til sparað.
Ef fram fer sem horfir stefnir í
að kosningabarátta Péturs Haf-
stein verði ein sú dýrasta sem rek-
in hefur verið hér á landi; tugum
milljóna á að eyða i að kaupa nýtt
Kjallarinn
Birgir Hermannsson
stjórnmálafræðingur
„í vestrænum lýðræöisríkjum eru víðast
hvar reglur um fjármögnun kosningabar-
áttu, t.d. hámark á eyðslu einstakra fram-
bjóðenda, reglur um hverjir megi gefa fé
og hversu mikið og upplýsingaskyldu
flokkanna um fjármál sín.“
embætti fyrir hinn vammlausa
embættismann.
Peningar og lýöræöi
Fyrr í mánuðinum hélt félag
stjórnmálafræðinga fund um for-
setakosningarnar og vakti Herdís
Þorgeirsdóttir þar athygli á því
‘ ófremdarástandi sem ríkir um
fjármögnun kosningabaráttu og
stjórnmálastarfsemi hér á landi. í
vestrænum lýðræðisríkjum eru
víðast hvar reglur um fjármögnun
kosningabaráttu, t.d. hámark á
eyðslu einstakra frambjóðenda,
reglur um hverjir megi gefa fé og
hversu mikið og upplýsingaskyldu
flokkanna um fjármá] sín. Hér á
landi eru engar slikar reglur til.
Það er engin tilviljun að reglur
um fjármál stjórnmálaflokka og
kosningabaráttu hafa verið settar
í flestum lýðræðisrikjum. Það
gefur augaleið að sá sem þyggur
stórfé af fjársterkum aðilum er
ekki fyllilega sjálfstæður gagn-
vart þeim og því er mikil hætta á
því að peningamenn kaupi sér
óeðlileg áhrif á stjórnun ríkja eða
sveitarfélaga. Að lágmarki til
ætti það að vera opinbert hverjir
gefa fé til kosningabaráttu,
þannig að fjölmiðlar geti fjallað
um það og veitt nauðsynlegt að-
hald. Almannahagsmunir krefj-
ast þess að um fjármögnun kosn-
ingabaráttu gildi almennar og
skýrar reglur.
Eins og staða mála er hér á
landi er ekkert óhugsandi að for-
setaframbjóðendur framtíðarinnar
verði í boði stórfyrirtækis sem
vilji kaupa sér áhrif. Forseti ís-
lands var í boði Goodyear Cor-
poration! Framtíðarsýn af þessu
tagi finnst flestum ógeðfelld - og
nánast óhugsandi - en það er ekk-
ert í framkvæmd kosninga hér á
landi sem kemur í veg fyrir þetta.
Hver borgar?
Að undanfórnu hafa fjölmiðlar
beint spjótum sínum að Ástþóri
Magnússyni og þeim gríðarlegu
fjármunum sem hann hefur eytt í
að koma boðskap sínum á fram-
færi. Enginn veit í raun og veru
hvaðan þeir peningar koma eða
hversu háar fjárhæöir hér er um
að tefla.
Á fyrrgreindum fundi stjórn-
málafræðinga upplýsti Valgerður
Sverrisdóttir alþingismaður að
kosningabarátta Framsóknar-
flokksins fyrir síðustu kosningar
hefði kostað rúmar 20 milljónir,
auk þess sem einstök kjördæmi
hefðu eytt, en það væri líklega
annað eins.
Pétur Hafstein eyðir nú í aug-
lýsingar margfalt hærri upphæð-
um en Framsóknarflokkurinn
hefði talið ráðlegt fimm vikum fyr-
ir kosningar. Er ekki kominn tími
til að fjölmiðlar kalli fleiri en Ást-
þór Magnússon inn á teppi tU sín
og spyrji: Hver borgar?
Birgir Hermannsson
Ekkert óhugsandi að forsetaframbjóöendur veröi í boöi
stórfyrirtækis. - Forseti íslands var í boöi Goodyear Cor-
poration! - segir m.a. í grein Birgis.
Haskolinn a Akureyri
- bjargvættur og keppinautur
Gera Reykvíkingar sér ljóst
hvað Háskólinn á Akureyri er að
veita þeim mikla keppni? Hann
hefur tekið til sín obbann af vaxt-
armöguleikum Kennaraháskólans
í Reykjavík, hjúkrunarfraéðibraut
HÍ og sjávarútvegsnáms HÍ. Og nú
síðast hefur hann tekið til sín for-
ystuna í að færa leikskólakennara-
námið á háskólastig. Allt eru þetta
spænir úr aski íbúa suðvestur-
hornsins.
Fróðlegt var að skoða viðbrögð
forstöðumanna Fósturskólans við
þessum fréttum: Þeir viðurkenndu
að þetta væri það framfaraspor
sem þeir hefðu verið að bíða eftir;
hins vegar vonuðust þeir eflaust
eftir að þeirra eigin skóli hefði
hreppt hnossið og að þeir sjálfir
hefðu orðið háskólakennarar.
Vaxtarbroddur mennta?
Undirritaður spáir því að Há-
skólinn á Akureyri eigi eftir að
erfa allt góssið; að hann hefji
næst íþrótta-, þroskaþjálfunar-
og iðjuþjálfunarkennslu á há-
skólastigi og nái þannig til sín
restinni af hinum fyrirhugaða
uppeldisháskóla sem flestir
höfðu séð fyrir sér að yrði í
Reykjavík.
Það hlýtur þó að vera Reykvík-
ingum huggun harmi gegn að
Akureyringar eru þarna senni-
lega að skapa ný tækifæri fyrir
atvinnulíf íslendinga sem ekki
hefðu skapast nema með þessari
dreifbýlispólitísku aðferð.
Þannig fíýta þeir nú fyrir nú-
tímavæðingu atvinnuvega og
mannlífs á íslandi og komast í
forystu í að draga úr gliðnun lífs-
Kjallarinn
Tryggvi V. Líndal
þjóöfélagsfræöingur
gæðabilsins milli íslands og Evr-
ópusambandanna.
Úreltar forsendur?
Að vissu leyti er frumkvæði HA
þó á skjön við rót vandans en
hann er sá að það er til of mikið af
fólki og af börnum í landinu mið-
að við þarfir vinnumarkaðarins.
Og sú staða á eftir að versna. Því
er HA fyrst og fremst að liðka fyr-
ir þeirri framtið þar sem fólk býr
við meiri menningu þrátt fyrir
minni efnisleg verðmæti. Má segja
að allt nám sem stuðlar ekki að
tækniþróun sé þessu marki
brennt.
ísland á ekki aðeins við offram-
leiðslu á börnum að etja heldur
líka á fleiri lítt arðbærum afurð-
um, svosem sauðfé og flski. Við
þurfum að fara að gera eitthvað
allt annað í stað þess að reyna að
hagræða í sama farinu því á með-
an höldum við áfram að dragast
aftur úr tæknivæddari þjóðum.
(Áður hefur undirritaður stungið
upp á því að hagkvæmara væri
fyrir okkur að flytja inn fullorðið
menntað fólk en að framleiða það
sjálf. Þótti það hin mesta goðgá.)
Hins vegar felur HA í sér vonar-
neista þar sem eru tilraunir til líf-
tækniiðnaðar, iðntækniþróunar
og fiskeldisrannsókna en slíkt
telst vera vænlegt framlag til sam-
keppnisiðnaðar komandi aldar.
Rómaveldi hið forna leið undir
lok m.a. af því að því gekk of vel
að breiða út menningu sína; jaðar-
þjóðirnar urðu nógu kunnáttu-
samar til að fræsa það niður en
ekki nógu menntaðar til að geta
byggt annað jafngott í staðinn.
Líkt virðist nú vera að eiga sér
stað með Evrópubandalagslönd
gagnvart undirboðum Asíuþjóða
og annarra láglaunaþjóða í hag-
nýtum smáiðnaði.
En hvar er ísland í þessu dæmi?
Það er ekki ein af hátækniþjóðum
Evrópu né heldur ein af smá-
tækniþjóðum Asíu. Því svipar
meira til Grænlands að því leyti
að það vill bæði halda (góðum
launum) og sleppa (hátæknivæð-
ingu). Líklegt er því að það fái
hvorugt.
Hátæknisamfélag óskast
Háskólinn á Akureyri er á já-
kvæðri leið en betur má ef duga
skal fyrir íslendinga. Annars mun-
um við tæpast hafa ráð á uppeldis-
háskóla sem stendur undir nafni.
Hvað þá á listaháskóla; fyrir
myndlist, tónlist og leiklist; sem
krefst ennþá meira rýmis og bún-
aðar. Þá dugir varla minna en að
við verðum fyrst, fyrir alvöru orð-
in vel auðug þjóð af hátækniút-
flutningi.
Grænland er ennþá víti til varn-
aðar. Þar er kominn háskóli sem
er ennþá fámennari en HA og lítil
sem engin listaskólakennsla er þar
í landi. Enda stendur Gænland
ekki undir því að verða efnahags-
lega sjálfstætt með sjávarútveg
sem megintekjulind. Þó gerir það
nú eins og við kröfur um sömu
lífsgæði og eru í hinni gömlu góðu
Danmörku.
Tryggvi Líndal
„Að vissu leyti er frumkvæði HA þó á
skjön við rót vandans en hann er sá að
það er of mikið af fólki og af börnum í
landinu miðað við þarfir vinnumarkaðar-
ins. Og sú staða á eftir að versna.“
Meðog
á móti
Peningagreiðsla til marka-
skorara
Allir eiga
möguleika
Við erum að
setja íslenska
knattspyrnu á
Lengjuna i
fyrsta skipti og
settumst niður
og spáðum í
með hvaða
hætti við gæt-
um kynnt það
og komumst aldss°n, stuöia-
að þeirri niö- st|óri Ge,rauna-
urstöðu að 1. deild karla fengi
mesta umfjöllun. Við viljum því
tengja Lengjuna á mestan hátt
við það og því var ákveðið að
taká upp þessa hugmynd sem er
sænsk. Þetta hefur fengið góð
viðbrögð. Hvað peningana varð-
ar þá er mönnum frjálst að nota
þá eins og þeim lystir. Leikmað-
urinn, sem skorar þrennu, á pen-
ingana einn og sér, svo er það
hans að ráðstafa þeim. Þetta
verða ekki skattskyldir peningar
og við komum til með að taka
skattinn á okkur. Það eiga allir
möguieika á að skora og menn
hafa verið að skora þrjú mörk í
hvaða stöðu sem er. Við höfum
því ekkert samviskubit út af
þessu. Við vonum að með þessu
aukist sóknarleikurinn og fleiri
mörk verði skoruð. Þetta á að
veröa hvatning fyrir leikmenn.
Það eru engin ný tíðindi að
menn hafi fengið borgað fyrir að
skora og síðast sá ég í DV aö fyr-
irtæki á Húsavík ákað að greiða
leikmanni Völsungs peninga fyr-
ir að skora þrennu.“
Haraldur V. Har-
I leikmanna-
sjóö
Ég er kannski ekki alveg' bú-
inn að mynda mér skoðun um
þetta og maður veit ekki hvernig
þessi peningagreiðsla kemur til
með að líta út.
Þá á ég við
hvort þetta eru
peningar sem
þarf að greiða
skatt af eða
hvort litið er á
þetta sem
happdrættis-
vinning. Ég Magnús páisson,
myndl alveg þjálfari Fylkis.
vilja sjá þessar
100.000 krónur skiptast jafnt á
leikmannahópinn frekar en að
eirin maður sitji að þessum pen-
ingum. Það má segja að það sé
ósanngjarnt að fara að verð-
launa leikmanninn sem gerir
þrjú mörk í einum og sama
leiknum á meðan kannski vam-
armaðurinn er að verjast mörk-
um og ég tala nú ekki um mark-
vörðinn sem kannski ver tvær
vítaspyrnur og stendur.sig vel.
Þá vilja þeir leikmenn sem
leggja upp mörkin oft gleymast.
Hvað varðar mitt félag þá er
erfitt fyrir mig að fara að setja
einhverjar reglur en mér per-
sónulega fyndist það sanngjamt
að þessir peningar færu í leik-
mannasjóð. Ég held aö þessir
peningar eigi ekki eftir að hafa
nein sérstök áhrif á leikmenn en
100.000 er ekki lítill peningur og
maður sem væri búinn að skora
tvö mörk í leik myndi örugglega
gera haröa atlögu tii að ná
þrennunni.“ -GH
Kjallarahöfundar
Æskilegt er að kjallaragreinar
berist á tölvudiski eða á netinu.
Hætt er við að birting annarra
kjallaragreina tefjist.
Netfang ritstjórnar er:
dvritstía/centrum.is