Dagblaðið Vísir - DV - 31.05.1996, Blaðsíða 23
FÖSTUDAGUR 31. MAÍ 1996
31
Smáauglýsingar - Sími 550 5000 Þverholti 11
Bílaleiga
BÍLALEIGA
Ótakmarkaður akstur
Bílaleiga Gullvíöis., fólksbílar og jeppar
á góðu verði. A daggjaldi án km-
gjalds eða m/innif. 100 km á dag.
Þitt er valið! S. 896 6047 og 554 3811
og á Akureyri 462 3400 og 896 5355.
JH Bílartilsölu
8 manna - góö kaup. Til sölu VW
Caravella, árg. ‘88. Fjölskyldubíll -
ferðabíll - flutningabíll - vinnubíll.
Sparneytinn, dísil, sjálfsk., m/vökva-
stýri, ekinn 10 þ. á vél, samlæsingar,
krómfelgur, skíðabogar, hauspúðar.
Verð 470 þús. Staðgreiðsluafsláttur.
Uppl. í s. 421 3420 eða 421 4870 eða á
Bflasölu Keflavíkur í síma 421 4444.
Til sölu Pontiac Le-mans, árg. ‘66,
þarfnast lagfæringar, biluð vél, ný-
upptekin vél getur fylgt og skipting.
Bein sala eða skipti á Endurohjóli,
t.d. Dakar -‘87-89. A sama stað óskast
nytrokerfi í bíl og bílskúr, helst ná-
lægt höfuðborgarsvæðinu. Uppl. í
síma 897 2877 eða 896 6664.
Iveco turbo daily 4x4, 9 farþega, árg.
‘91, ásamt vagni. Tilvalið fyrir hesta-
menn. Upplýsingar í síma 456 8172 eða
853 1058.
Honda Civic 1600Í GT ‘89 til sölu, vökva-
stýri, allt rafdrifið. Mjög fallegur bíll,
selst á góðu verði gegn staðgreiðslu.
Upplýsingar í síma 893 1205.
Jeppar
Gott verö. Nýr Dodge Ram ‘95 (allt
eins og ‘96), V-10 300 hö., SLT-útgáfa,
sjálfskiptur, driflæsing, auka kæling
á vél og skiptingu, rafdr. sæti, rúður
og læsingar, hraðastillir og veltistýri,
útvarp og segulband, tvílitur, grænn
og grár. Verð 2.980 þús. Uppl. hjá
Bflabúð Benna, sími 587-0-587,
Vagnhöfða 23,112 Rvík.
Cherokee Laredo ‘91, 4 1 vél, sjálfskipt-
ur, ekinn aðeins 62 þús. Toppeintak,
gott verð. Upplýsingar hjá
Bflabúð Benna, sími 587-0-587,
Vagnhöfða 23,112 Rvík.
Laxveiðin byrjar í fyrramálið:
Spáð er bestu
opnun seinni ára
- Norðurá blá fyrir neðan Laxfoss
• Veiöimenn eru orönir spenntir aö hefja laxveiðina þetta árið enda er
spáö góöum dögum í byrjun veiöitímans. Karl Óskarsson er einn þeirra
veiöimanna sem bíða meö óþreyju að hefja veiðiskapinn en hér kíkir hann
eftir laxi í Dulsunum í Laxá á Ásum fyrir fáum dögum.
DV-mynd G.Bender
Það styttist í að laxveiðin hefjist
þetta árið en fyrstu veiðimennirn-
ir munu reyna í laxveiðiánum í
fyrramálið. En það eru Norðurá,
Þverá og Laxá á Ásum sem verða
opnaðar þennan fyrsta veiðidag.
Skilyrðin eru feiknagóð en snjó-
leysi í fjöllum gæti þurrkað upp
sumar veiðiárnar þegar líður á
sumarið nema rigni verulega. En
öll skilyrði núna í byrjun eru frá-
bær. Sérfræðingar sem DV ræddi
við í gærkvöldi spá einhverri
bestu opnun seinni ára þetta sum-
arið. Laxinn er genginn í nokkrar
laxveiðiár og fleiri laxfískar eru á
leiðinni.
„Það er rétt að veiðimenn hafa
sjaldan verið eins spenntir og ein-
mitt núna þessa dagana. Spáð er
mjög góðri opnun þetta árið í lax-
veiðinni, enda öll skilyrði í finu
lagi,“ sagði Friðrik Þ. Stefánsson,
formaður Stangaveiðifélags
Reykjavíkur, í samtali við DV í
gærkvöldi í veiðihúsinu við Norð-
urá. En hann byrjar með stjórn
Stangaveiðifélags Reykjavíkur í
Norðurá á laugardaginn.
„Það er draumavatn í veiðián-
um og ef ekkert breytist verður
þetta fin opnun hjá okkur í Norð-
urá í Borgarfirði. Laxinn er geng-
inn í ána og það hafa sést laxar í
og við veiðiárnar. Lax sást fyrir
framan Elliðaárnar fyrir fáum
dögum. Fyrir neðan Laxfossinn er
kominn hellingur af laxi, áin er
blá fyrir neðan fossinn. Fiskifræð-
ingarnir spá góðu sumri og tíð-
arfarið hefur líka verið einstakt,“
sagði Friðrik enn fremur.
Laxarnir eru gengnir víða þessa
dagana í veiðiár, eins og Laxá í
Kjós, Langá á Mýrum, HafFjarð-
ará, Miðfjarðará og Laxá á Ásum,
svo einhverjar séu nefndar.
-G.Bender
Setbergsá:
Veiðileyfin lækka um 100%
„Við höfum alla vega leigt ána
til eins árs en sjáum hvað setur.
Við höfum lækkað veiðileyfin um
100% en engin veiði hefur verið
leyfð í ánni síðustu tvö ár,“ sagði
Guðmunda Haraldsdóttir, formað-
ur Veiðifélagsins Gunnhildar, sem
leigir Setbergsá á Snæfellsnesi.
„Þegar veiði var leyfð síðast í
ánni fyrir tveimur árum kostaði
stöngin dýrast 22 þúsund en núna
kostar dagurinn dýrast 9800. Með-
alveiðin síðustu árin hefur verið
kringum 110 laxar. Þetta verð á
veiðileyfum er í góðu lagi í ánni
en ódýrast er þetta 5800,“ sagði
Guðmunda og bætti við að vel
hefði gengið að selja veiðileyfin
síðan samningar tókust.
Það eru fleiri veiðiár en Set-
bergsá sem hafa lækkað. Brynju-
dalsá í Hvalfirði hefur lækkað
verulega á milli ára en engum laxi
verður sleppt í hana á þessu
sumri. Það er stranglega bannað!
Laxinn er farinn að láta sjá sig
víða þessa dagana og sáust laxar í
Laxfossi í Laxá í Kjós fyrir fáum
dögum. Fyrstu laxarnir eru farnir
að skríða upp í Laxá á Ásum en
vænn fiskur sást í ánni fyrir fáum
dögum. Það eru Norðurá og Þverá
í Borgarfirði sem verða opnaðar
fyrst en síðan Laxá á Ásum klukk-
an fjögur 1. júní. En þá hefst lax-
veiðin á fullu.
-G.Bender
Suzuki Vitara JLXi 1991, hvítur, ekinn
50 þús. km, álfelgur, upphækkaður
með 33” heils árs dekk. Bein sala eða
skipti á dýrari 4x4 bíl. Upplýsingar í
síma 552 2838.
Toyota extra cab ‘91, 2,4 dísil, plast-
hús, brettakantar, sílsabretti o.fl.
Verð 1.290 þús. Upplýsingar hjá
Bflabúð Benna, sími 587-0-587,
Vagnhöíða 23,112 Rvík.
fg&gM Pallbílar
AMC J-10 4x4 ‘81 til sölu, 6 cyl.,
beinskiptur, ekinn 66 þús. km. Verð
300 þús. Upplýsingar í vs. 551 9680 eða
hs. 557 1117.
Bílastæðamerkingar og malbiksvið-
gerðir. Allir þekkja vandann þegar
einn bíll tekur tvö stæði. Merkjum
bílastæði fyrir fyrirtæki og húsfélög,
notum einungis sömu málningu og
Vegagerð ríkisins. Látið gera við mal-
bikið áður en skemmdin breiðir úr
sér, B.S. verktakar, s. 897 3025.
Vinnulyftur eht.
Fyrir iðnaðarmenn o.fl. Höfum til
leigu og sölu sjálfkeyrandi vinnulyft-
ur. Mnnuhæð allt að 14 m. S. 554 4107.
Þjónusta
Tíu ára afmælistilboð. Fallegar neglur
án fyrirhafnar. Ofnæmisprófaðar
Iréne Gel gervineglur. Tíu ára reynsla
í meðhöndlun nagla. Reyndu aðeins
það besta. Verð aðeins 3500.
Gyða Einarsdóttir, sími 555 0612.-
I
l 7
: . 2 • IS
lelöandl á slnu svlblt
FJALLAHJÓLAB ÚDIN - FAXAFENÍ14, REYKJAVÍK
s: 5685580. Mlklö úrval fylglhluta trá vlrtum framleiöendum!
KVIKMYNDAs//w
9 0 4 - 5 0 0 0
Verð aðeins 39,90 mín.
Þú þarft aðeins eitt símtal
í Kvikmyndasíma DV tii að fá
upplýsingar um allar sýningar
kvikmyndahúsanna ♦
KVIKMYNDAsmw
9 0 4 - 5 0 0 0