Dagblaðið Vísir - DV - 31.05.1996, Blaðsíða 26
34
FÖSTUDAGUR 31. MAÍ1996
Afmæli
Bjarni J ónsson
Bjarni Jónsson flokksstjóri,
Fögrubrekku 19, Kópavogi, er fimm-
tugur í dag.
Starfsferill
Bjarni fæddist í Reykjavík en ólst
einkum upp í Kelduhverfi í Norður-
Þingeyjarsýslu. Hann var búsettur í
Grindavík 1966-76, á Húsavík
1976-86 en hefur síðan átt heima í
Kópavogi.
Bjarni lauk barnaprófi 1960, sótti
enskuskóla á Englandi 1982, lauk
grunnskólaprófi 1984 og hefur síðan
lokið nokkrum áföngum á við-
skiptabraut framhaldsskóla og
fjölda námskeiða um vinnuvélar,
bifreiðar, verkstjórn og skipstjórn.
Bjarni stundaði sjómennsku á
ýmsum skipum frá Vestmannaeyj-
um, Reykjavík og Grindavík á árun-
um 1963-71 og 1975-76. Hann var bíl-
stjóri og tækjamaður í Grindavík
1971-75, bílstjóri á Húsa-
vík 1976-86, starfrækti
söluturn í Hafnarfirði
1986-89, er vélamaður og
flokkstjóri hjá Kópavogs-
bæ frá 1990 og starfrækir
jafnframt veitingastofu í
Reykjavík ásamt konu
sinni frá 1995.
Bjarni var félagi í
Round Table á Húsavík
1978-84 og formaður þar
1981-82, og félagsmaður í
Kiwanisklúbbnum Eldey
í Kópavogi frá 1992 og
nefndarformaður þar frá
1993.
rj
Bjarni Jónsson.
Fjölskylda
Bjarni kvæntist 31.5. 1967 Elínu
Sigurðardóttur, f. 11.3. 1947, fram-
kvæmdastjóra. Hún er dóttir Sig-
urðar Ólafssonar og Gerðu Krist-
ínar Hammer í Grinda-
vík.
Börn Bjarna og Elínar
eru Jón, f. 3.12. 1967, d.
17.6. 1979; Gerður, f. 26.1.
1970, búsett í Mosfellsbæ
en maður hennar er Sig-
urður Jónasson lögreglu-
maður og eiga þau saman
eitt barn auk þess sem
Gerður á barn frá því
áður; Jóna Björk, f. 4.3.
1981; Sólborg Ösp, f. 1.7.
1982.
Albróðir Bjarna var Ein-
ar Gunnar, f. 4.6. 1950, d.
15.4. 1993, loftskeytamað-
ur og bóndi á Brú á Jökuldal.
Hálfsystkini Bjarna, sammæðra,
eru Guðmundur Sigvaldason, f. 14.4.
1954, framkvæmdastjóri á Akureyri;
Kristín Sigvaldadóttir, f. 30.10. 1955,
starfsstúlka í Eyjafjarðarsveit; Páll
Sigvaldason, f. 15.2. 1960, stöðvar-
stjóri í Fellabæ; Óskar Sigvaldason,
f. 10.10. 1962, verslunarmaður í
Reykjavík.
Hálfsystur Bjarna, samfeðra, eru
Matthildur, f. 2.1. 1946, ráðgjafi í
Chicago í Bandaríkjunum; Guðný
Ólöf, f. 14.1.1953, verkakona á Húsa-
vík.
Foreldrar Bjarna eru Jón Bjarna-
son, f. 20.6. 1924, ellilífeyrisþegi í
Kópavogi, og Ásthildur Guðmunds-
dóttir, f. 1.7. 1928, starfsstúlka á
Húsavík.
Kona Jóns Bjarnasonar er Sólveig
Maríusdóttir, húsmóðir í Kópavogi,
en maður Ásthildar er Sigvaldi
Jónsson, bílstjóri á Húsavík.
Bjarni tekur á móti gestum í Kiw-
anishúsinu, Smiðjuvegi 13a, Kópa-
vogi, eftir kl. 19, laugardaginn 1.6.
nk.
Hrönn Þormóðsdóttir
Hrönn Þormóðsdóttir
skrifstofumaður, Heiðar-
garði 9, Keflavik, verður
fimmtug mánudaginn 3.6.
nk.
Starfsferill
Hrönn fæddist í
Reykjavík en flutti með
foreldrum sínum til
Málmeyjar á Skagafirði
1949. Ibúðarhúsið þar
brann 22.12.1951 og fluttu
þau þá til Hofsóss. Hún
flutti svo til Keflavíkur
1955 og hefur átt þar
Hrönn Þormoðsdóttir.
heima síðan.
Hrönn gekk í Barna- og
gagnfræðaskóla Kefla-
víkur og lauk þaðan
unglingaprófi 1961. Hún
hóf síðar nám við Fjöl-
brautaskóla Suðurnesja
1985 og lauk þaðan versl-
unarprófi 1989. Hrönn
hefur lengst af starfað
við fiskvinnslu og af-
greiðslu- og skrifstofu-
störf.
Hrönn hefur gegnt ýms-
um félagsstörfum. Hún
er einn af stofnendum
Sinawiksklúbbsins Vík-
Andlát
ur og var fyrsti formaður hans
1981-82.
Fjölskylda
Eiginmáður Hrannar er Hall-
björn Sævar, f. 13.4. 1946, flugvirki.
Hann er sonur Guðlaugar Hall-
bjömsdóttur matráðskonu.
Börn Hrannar eru Magnús Þór, f.
19.1. 1964, smiður, kvæntur Hörpu
Sæþórsdóttur og eru börn þeirra
Haraldur Bjarni, f. 17.5. 1989, Eyrún
Ósk, f. 13.5.1991, og Marta Hrönn, f.
27.2. 1996; Hilmar Kári, f. 5.1. 1973,
nemi; Guðlaug Emma, f. 24.1. 1974,
nemi.
Systkini Hrannar eru Helga Þór-
dís, f. 5.9. 1942, gift Karli Steinari
Guðnasyni; Úlfar, f. 19.6. 1944; Logi,
f. 14.3.1951, kvæntur Bjargeyju Ein-
ardóttur; Anna Björg, f. 22.9. 1960, í
sambúð með Erling Kristinssyni.
Foreldrar Hrannar eru Þormóður
Guðlaugsson, f. 15.3. 1916, d. 5.5.
1989, verslunarmaður, og Guðbjörg
Þórhallsdóttir, f. 17.10. 1920, hús-
móðir.
Hrönn og Hallbjörn halda sameig-
inlega upp á afmælin sín í Kiwanis-
húsinu, Iðavöllum 3C, laugardaginn
1.6. milli kl. 17.00 og 19.00.
Ingvar Agnarsson
Ingvar Agnarson, skrifstofustjóri
Barðans, til heimilis að Hábraut 4,
Kópavogi, lést á Landakotsspítala í
Reykjavík 23.5. sl. Útför hans fór
fram frá Fossvogskirkju í gær.
Starfsferill
Ingvar fæddist í Stóru- Ávík í Ár-
neshreppi á Ströndum 8.6. 1914 en
ólst upp á Steinstúni í Árneshreppi
frá tveggja ára til þrettán ára. Hann
flutti þá með föreldrum sínum að
Melum og var þar til átján ára ald-
urs er hann fluttist með þeim að
Hrauni í Árneshreppi.
Ingvar vann við síldarsöltun á
Eyri við Ingólfsfjörð í tvö sumur og í
síldarverksmiðjunni á Djúpuvík í
nokkur sumur. Hann vann í síldar-
vinnu á Siglufirði sumarið 1930,
stundaði nám viö Samvinnuskólann í
Reykjavík 1937-38, vann í kaupfélag-
inu á Skagaströnd 1938-39 og var
verkamaður í Reykjavík
1939-1941.
Ingvar keypti, ásamt
Guðmundi Kristjánssyni,
Gúmmívinnustofu Reykja-
víkur 1941 og starfaði síð-
an við hana, fyrst á Lauga-
vegi 77, á Grettisgötu 18, í
Skipholti 35 og loks í
Skútuvogi 2. Þá starf-
ræktu þeir sólningarverk-
stæðið Barðann ásamt
Halldóri Björnssyni þar
sem Ingvar vann þar til
hann hætti störfum fyrir
rúmum tveimur árum.
Ingvar var formaður Félags Ár-
neshreppsbúa í Reykjavík í 5 ár og
vann að Stjörnusambandsmálefn-
um. Hann var einn stofnenda Félags
nýalssinna 1950 og sat í stjóm þess
um árabil, var ritstjóri Félagsblaðs
nýalssinna og tímaritsins Lífgeisla
frá upphafi, 1975.
Fjölskylda
Ingvar kvæntist 29.5. 1939 Aðal-
heiði Tómasdóttur, f. 12.11. 1912,
húsmóður. Foreldrar hennar voru
Tómas Sigurðsson, bóndi á Brimils-
völlum í Fróðárhreppi, og k.h.,
Ragnheiður Árnadóttir húsfreyja.
Sonur Ingvars og Aðalheiðar er
Sigurður, f. 12.12. 1942, starfar við
hjólbarðayerkstæðið Barðann,
kvæntur Ágústu Jónsdóttur og eiga
þau fjögur börn.
Systkini Ingvars sem upp
komust: Guðrún Ágústa, f. 16.5.
1915, d. 3.2. 1935; Jón, f. 24.7. 1916,
vélvirki í Kópavogi.
Foreldrar Ingvars voru Agnar Jóns-
son, f. 24.1. 1889, d. 16.7. 1973, bóndi á
Hrauni í Árneshreppi, og k.h., Guð-
laug Þorgerður Guðlaugsdóttir, f. 20.1.
1889, d. 7.11. 1976, húsfreyja.
Ætt
Agnar var sonur Jóns, b. í Stóru-
Ávík, bróður Guðmundar í Ófeigs-
firði, ættfóður Ófeigs-
fjarðarættarinnar. Jón
var sonur Péturs, b. á
Dröngum, Magnússonar,
b. og hreppstjóra á Finn-
bogastöðum, Guðmunds-
sonar, b. á Finnbogastöð-
um, Bjarnasonar, ættfóð-
ur Finnbogastaðaættar-
innar. Móðir Péturs var
Guðrún Jónsdóttir, b. á
Látrum á Látraströnd,
Ketilssonar, og k.h., Kar-
ítasar Pétursdóttur, syst-
ur Jóns, prófasts á
Steinnesi, langafa Sveins Björnsson-
ar forseta. Jón á Steinnesi var
langafi Jóns Þorlákssonar forsætis-
ráðherra og Þórunnar, móður Jó-
hanns Hafstein forsætisráðherra,
fóður Péturs forsetaframbjóðanda.
Móðir Jóns Péturssonar var Hall-
fríður, systir Jóns, afa Hannibals
Valdimarssonar, fóður Jóns Bald-
vins. önnur systir Hallfríðar var
Guðrún, amma Magnúsar Óskars-
sonar, fyrrv. borgarlögmanns. Hall-
fríður var dóttur Jóns, b. á Melum,
Guðmundssonar. Móðir Jóns var
Guðrún eldri Sigurðardóttir, systir
Guðrúnar yngri, langömmu Her-
manns, föður Sverris, bankastjóra
Landsbankans. Móðir Agnars var
Guðrún Ólafsdóttir, b. á Gnýsstöð-
um á Vatnsnesi, Jónssonar, bróður
Hallfríðar.
Guðlaug Þorgerður var dóttir
Guðlaugs, b. í Steinstúni, Jónsson-
ar, b. í Norðurfirði í Víkursveit,
Jónssonar, b. í Ingólfsfirði. Móðir
Guðlaugs var Ingibjörg Gisladóttir,
b. í Norðurfirði, Jónssonar, b. í
Furufirði, Gíslasonar. Móðir Gísla
var Ingibjörg Jóhannsdóttir Gott-
freðs, b. á Krossnesi í Árneshreppi,
Jónassonar, b. í Litlu- Ávík, Jóns-
sonar. Móðir Jóhanns var Jóhönna
Gottfreðlína Jónsdóttir, systir Óla
Viborg, afa Jakobs Thorarensen
skálds.
Auglýsing um uppsögn 3ja flokka
spariskírteina ríkissjóðs með
gjalddögum 1. og 10. júlí 1996.
Með heimild í 3. mgr. 5 gr. skilmála neðangreindra flokka
spariskírteina ríkissjóðs segir ríkissjóður hér með upp öllum
skuldbindingum sínum skv. spariskírteinum í greindum flokkum
miðað við næsta fasta gjalddaga, sem er annars vegar 1. júlí 1996
og hins vegar 10. júlí 1996.
Spariskírteini þau sem hér um ræðir eru:
Flokkur: Útgáfudagur: Innlausnargjalddagi:
1986-2A6 Júní 1986 1. júlf 1996
1986-1A4 Janúar 1986 10. júlí 1996
1986-1A6 Janúar 1986 10. júlf 1996
Samkvæmt ákvæðum 2. mgr. 6. gr. skilmála greindra flokka
spariskírteina greiðast hvorki vextir eða verðbætur vegna hækkunar
vísitölu eftir gjalddaga þann sem uppsögn miðast við.
Samkvæmt skilmálum greindra spariskírteinaflokka fer innlausn
fram í Seðlabanka íslands.
Reykjavík, 24. maí 1996
RÍKISS J ÓÐUR ÍSLANDS
Ingvar Agnarsson.
Til hamingju
með afmælið
31. maí
85 ára
Sigríður Ingibergsdóttir,
Dalbraut 18, Reykjavík.
80 ára
Sigrún Björnsdóttir,
Álfaskeiði 37, Hafnarfirði.
75 ára
Vilborg Stefánsdóttir,
Kleppsvegi 6, Reykjavík.
Jósef Einvarðsson,
Vesturgötu 64, Akranesi.
Kristín Pétursdóttir,
Hraunbæ 103, Reykjavík.
Bera Þorsteinsdóttir,
Blikahólum 10, Reykjavík.
Guðrún Veturliðadóttir,
Hlíf I, Torfnesi, ísafirði.
70 ára
Viggó Brynjólfsson,
Bogabraut 18, Skagaströnd.
60 ára
Nanna Lára
Karlsdóttir,
Sjávarborg,
Höfn í
Hornafirði.
Eiginmaður
hennar er
Jón Ingi
Björnsson.
Þau eru að heiman.
Erna Valdís Halldórsdóttir,
Skaftafelli 1, Seltjarnamesi.
Sigiu-ður Guðni Sigiu-ðsson,
Hraunbæ 150, Reykjavík.
Hann er að heiman.
50 ára
Bylgja Jónina Óskarsdóttir,
Birkihlíð 28, Reykjavík.
Ámi Halldór Sófusson,
Tunguseli 10, Reykjavík.
Jón Gunnlaugsson,
Urriðakvísl 1, Reykjavík.
Ingibjörg Aradóttir,
Meðalholti 6, Reykjavík.
Jóhann Antonsson,
Sognstúni 4, Dalvík.
Guðrún Halldórsdóttir,
Melasíðu 8G, Akureyri.
40 ára
Gunnþór Hákonarson,
verkstjóri hjá Akureyrarbæ,
Möðrusíðu 1, Akureyri.
Eiginkona hans er Margrét
Arngrímsdóttir, starfsmaður
hjá Foldu.
Þau taka á móti gestum í
Hamri, félagsheimili Þórs, frá
kl. 20.00-23.00 á afmælisdag-
inn.
Björgvin Sigurðsson,
Borgarheiði 9 H, Hveragerði.
Ámý Guðrún Jakobsdóttir,
Skagabraut 48, Akranesi.
Þóra Þórhildur
Guðjónsdóttir,
Hjarðarhaga 11, Reykjavík.
Guðbjörg M.
Hafsteinsdóttir,
Breiðagerði 2, Reykjavík.
Erlendur Níels
Hermannsson,
Dalsgerði 6A, Akureyri.
Guðrún Hólmfríður
Ágústsdóttir,
Valshólum 6, Reykjavik.
Marín Björk Magnúsdóttir,
Strandaseli 7, Reykjavik.
Konráð Gunnarsson,
Sambyggð 2, Þorlákshöfn.