Dagblaðið Vísir - DV - 03.06.1996, Blaðsíða 10
10
MÁNUDAGUR 3. JÚNÍ 1996
j&ÚÖiWO'jijii-.up.ort;
pTyflRrJnTJÍíinr jCrJiHjJuu
Jpyú ífr:JfúítfAot£Ml óœ
j&'j&Æjyofib*#.
Mm?r -
GARNHUSIÐ
FLUTT!
Erum flutt í Aðalstræti 7.
Full búð af spennandi prjónagarni
og uppskriftum.
Nýtt prjónaföndurblað og garn.
Líttu inn.
GARNHÚSIÐ
Aðalstræti 7
sími 561 8235
Fréttir
Kumlbúinn kominn heim:
Minjasafn Austurlands
opnað í glæsilegu húsi
DV, Egilsstöðum:
„Við vonum að Minjasafn Austur-
lands verði eins konar brú milli for-
tíðar og framtíðar," sagði Þórey
Hannesdóttir, formaður safnastjórn-
ar, þegar Minjasafn Austurlands
var opnað í hinu nýja safnahúsi á
Egilsstöðum 27. maí sl.
Fjöldi gesta var við athöfnina.
Steinunn Kristjánsdóttir, forstöðu-
by nike
y 1 wL
Air Max
Hlaupaskór með þrískíptum
loftpúða í hæl. Stór loftpúði
undir tábergi. Dynamic Fit
reimakerfi.
Air Max Triax
Hlaupaskór með stórum loft-
púða í hæf og loftpúða undir
tábergi. BRS 1000 carbon ytri
sóli.
Verð 13.990
Verð 10.990
✓
Air Base
Hlaupaskór fyrir þá sem jiurfa
á stöðugum skó að halda.
Stór loftpúði í hæl, BRS 1000
carbon ytri sóli.
Verð 7.99Q^
A r
Lettur og breiður hlaupaskór
Stór loftpúði í hæl. Pylon
miðsóli.
Vetp 5,990
-"- ■V’-v, ^________________________________________________________________________________________________
w
hí 20
oo/
wm
d
Gestir virða fyrir sér eftirlíkingu af kumlinu. Þór Magnússon þjóðminjavörður
og Sturla Böðvarsson, formaður þjóðminjaráðs, lengst til vinstri. Þá má sjá al-
þingismennina Jón Kristjánsson og Hjörleif Guttormsson. DV-mynd Sigrún
maður minjasafnsins, stjórnaði at-
höfninni en fjölmörg ávörp voru
flutt. Þór Magnússon þjóminjavörð-
ur flutti árnaðaróskir, Sturla Böð-
varsson, formaður þjóðminjaráðs,
færði safninu að gjöf frá Minjasafn-
inu á Akranesi kistil gerðan af Rík-
harði Þórólfssyni frá Húsey og sagði
frá því að nú hefði verið ráðinn
minjavörður á vegum þjóðminja-
safns á Austurlandi, sá fyrsti utan
höfuðborgarsvæðisins.
Haraldur Sigurðsson, Akureyri,
ættaður frá Möðrudal, færði safninu
að gjöf sverð sem gengur undir
nafninu Möðrudalssverðið. Það
fann Sigurður Stefánsson í Möðru-
dal í svonefndum Grafarlöndum
1840 og hefur það fylgt afkomendum
hans síðan. Haraldur færði einnig
safninu 100 listaverkabækur í minn-
ingu Hauks Stefánssonar og skal
andvirði þeirra varið til að efla
myndlist.
Aðrir sem fluttu ávörp voru Hjör-
leifur Guttormsson, sem rakti sögu
safnsins, Jón Kristjánsson þingmað-
ur, Guðmundur Magnússon, form-
aður byggingarnefndar, Skúli
Magnússon, sem starfaði við upp-
setningu safnsins, Þuríður Back-
man, forseti bæjarstjórnar Egils-
staðabæjar, sem afhenti stóra vegg-
mynd af bænum, og Guðrún Krist-
insdóttir, minjavörður Austurlands.
Frumkvöðlar að stofnun safnsins
voru Gunnar Gunnarsson rithöf-
undur, sem þá bjó á Skriðuklaustri,
og Sigrún Blöndal, skólastjóri á
Hallormsstað.
Þessi athöfn fór fram í rúmgóðu
anddyri. Síðan var sýningarsalur-
inn opnaður og þar gat að líta hinn
fræga kumlbúa úr Skriðdal sem nú
er kominn heim í Hérað, að
minnsta kosti í bili. Hvíla nú bein
hans ásamt hesti og hundi í eftirlík-
ingu af kumlinu í umgerð úr ísl.
lerki. Ér ekki að efa að hann verður
miðpunktur safnsins. En það er
margt að sjá. Þarna hefur verið sett
upp heil baðstofa. Hún er frá
Brekku í Hróarstungu. í henni var
búið til 1964 en síðan var hún rifin
en viðir geymdir þar til nú að hún
reis að nýju, að vísu innandyra.
Hún gefur þó góða hugmynd um
húsakost forfeðranna.
Fjölbreytt starfsemi verður í safn-
inu. í sumar verður sýnd ullarvinna
í baðstofunni alla sunnudaga. Fimm
gönguferðir verða og boðið verður
upp á hestakerruferðir alla laugar-
daga. Þá er í safninu vefstóll með
uppistöðu og verður hægt að panta
tíma og vefa mottur. Safnið verður
opið alla daga frá 11-17 til 1. sept.
í kjallara er stórt geymsluhús-
næöi með fjölda muna. Safnahúsið
er 1400 m2 á 3 hæðum. Þar eru 3
söfn. Héraðsskjalasafn Austurlands
er í kjallara og bókasafn Héraðsbúa
á efstu hæð.
-SB
mrnmgm :
Aðstaða krókabáta hefur verið bætt tii muna á Suðureyri. Bátar við nýju flot-
bryggjuna. DV-mynd RS
Suðureyri:
Bætt aöstaða krókabáta
DV, Suðureyri:
Aðstaða krókabáta á Suðureyri
hefur verið bætt til muna og nýlega
var lokið við endanlega framkvæmd
á flotbryggjunni og landgangi í smá-
bátahöfninni. Dýpka varð smábáta-
höfnina verulega og sjóvarnargarð-
inum breytt talsvert.
Meira rými er nú í stóru höfninni
fyrir smærri báta.
í smábátahöfninni er einnig lítil
trébryggja þar sem skekktueigend-
ur hafa áðstöðu. -RS
Arni og Ingólfur til Sjónvarpsins
- hvíla Þriðja manninn
Árni Þórarinsson og Ingólfur
Margeirsson færa sig um set í vet'ur.
Þeir hætta með þáttinn Þriðja
manninn á Rás 2 og verða með sjón-
varpsþátt í Ríkissjónvarpinu.
„Það er ekkert hægt að segja um
það á þessu stigi hvernig sjónvarps-
þáttur þetta verður. En þetta verður
ekki Þriðji maðurinn,“ segir Árni.
Hann getur þess að þeir Ingólfur
hafi haldið þættinum úti tvo síðast-
liðna vetur og fundist tími til kom-
inn að hvíla hann aðeins. „Sjón-
varpið sýndi áhuga á að við ynnum
fyrir það og það verður væntanlega.
Við höfum haft mjög gaman af að
vinna að Þriðja manninum og átt
mjög gott samstarf við Rás 2 og
starfsfólkið þar.“
-IBS