Dagblaðið Vísir - DV - 03.06.1996, Blaðsíða 27
MÁNUDAGUR 3. JÚNÍ 1996
39
DV
I
4
Fréttir
KENWOOD
kraftur, gœði, encling
1 7////////////J
Smáauglýsingadeild DV er opin:
• virka daga kl. 9-22 • laugardaga kl. 9-14 • sunnudaga kl. 16—22
Smá- auglýsingar DV 55$ 59$$
Nemendur á ferðamálabraut við Sæ-
nautasel - búnir að kveikja upp.
DV-mynd SB
| Menntaskólinn á Egilsstöðum:
Ferða-
mála-
braut
með nýju
sniði
DV, Egilsstöðnm:
í haust hófst kennsla á ferðamála-
braut við Menntaskólann á Egils-
stöðum. Námið er nýjung hér á
landi þar sem hluti er starfsnám á
vinnustað. Náminu er skipt i áfanga
eins og ferðaþjónustu, ferðafræði,
markaðssetningu og hótel- og veit-
ingarekstur og tekur tvö ár auk 180
klukkustunda vinnu.
Ein önn af fjórum er við Hús-
stjórnarskólann á Hallormsstað en
þar er námið sniðið að þörfum þess-
ara nema, það er í stað handavinnu
er lögð áhersla á hótelræstingu,
matseðla, þjónustu og fleira.
Menntaskólinn fékk svokallaðan
Comenius- styrk vegna verkefnis
um Menningararfleifð í ferðaþjón-
ustu sem unnið var í samvinnu við
skóla í Skotlandi og Finnlandi.
Nemar við ME völdu Sænautasel
sem verkefni og gerðu m.a. mynd-
band þar sem brugðið var upp svip-
mynd af daglegu lífi á heiöarbýli
fyrir hundrað árum eða svo.
í áfanga í landafræði leituðu nem-
endur að nýjum ferðamannastöðum
á Austurlandi og uppgötvuðu þar
ýmsa ónotaða möguleika.
Sigurborg Kr. Hannesdóttir ferða-
málafræðingur hafði umsjón með
j brautinni. 11 stunduðu námið í vet-
’ ur og þegar hafa 6 þeirra fengið
vinnu á hótelum í sumar. -SB
í
Húsavík:
Kaupfélögin
í harðri
samkeppni
DV, Húsavík:
Kaupfélag Þingeyinga hefur tekið
rekstur verslunarinnar Þingeyjar á
Húsavík, sem hefur verið í eigu
Skipaafgreiðslu Húsavíkur ehf., á
leigu. Þingey hefur verið helsti sam-
keppnisaðili KÞ á þessu markaðs-
svæði í matvöru sl. ár.
Þetta verður fimmta matvöru-
verslunin sem KÞ rekur og ætlunin
er að breyta rekstrarfyrirkomulag-
inu í nokkurs konar bónus/nettó
stíl. Fækka á vörutegundum veru-
lega og lækka jafnframt vöruverð.
Reyna á þannig að standa betur að
vígi gagnvart harðnandi samkeppni
á þessum markaði frá KEA-Nettó á
Akureyri. -AA
Gottmnnlí samhjátp ogyamhugur
eru vitnisburöur okhrlslendmga
um árangurfriðar og ajvopnunar.
íslendiiMim býðst það hlutverk
að leioa heiminn til tófer.
'áðheiminn
sín án voprn. Enmn erpvíbetri;
hlutverkjriðawoða enforseti
islenskupjóðarinnar.
Forsetí íslands
- boðberi tíðar í heiminum.
ÁslþárMagnússon hefursiarfað víða um heim
aðfriðarmdum og meðal annars hbtíð
alþjóðlegar viðurkenningarjyrir störfsín.
Hann byður nújram reynslii sína
ogþekkingu íembœttíforsetalslands
Tökumforystuna
- virkjum Bessastaoi í þágu tóðar.
^SA ST ^
STUÐNINGSMENN FRIÐAR
Forsáíslaná
BOÐBERI
FRTOAR
Sérhvert ferðalag hefet á einu skrefi.