Dagblaðið Vísir - DV - 03.06.1996, Blaðsíða 36
FRÉTTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eöa er notaö í DV,
greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö
í hverri viku greiöast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Viö tökum við fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
Frjálst,óháð dagblað
MÁNUDAGUR 3. JÚNÍ1996
ísafjarðarbær:
Mikið verk
fram undan
- segir bæjarstjórinn
Nýtt sveitarfélag, ísaijarðarbær,
__iók formlega til starfa á norðanverð-
um Vestfjörðum á laugardag.
„Sameiningin hefur tekið form-
lega gildi en nýkjörin bæjarstjórn
kemur saman til fyrsta fundar á
þriðjudag. Ég á ekki von á öðru en
ég verði ráðinn til að stjórna henni
en það kemur betur í ljós á fundin-
um á þriðjudag. Þá verður einnig
ákveðið nafn á hið nýja sveitarfélag.
Ég held að allir séu nokkuð ánægð-
ir með þessa sameiningu en það er
Ijóst að mikil vinna og mikið verk
er fram undan,“ sagði Kristján Þór
Júlíusson, bæjarstjóri á ísafirði, við
DV i gærkvöld. -RR
L O K I
Valinn besti tenórinn í Copenhagen Singing Competition:
Riðaði til á svið-
inu og sá svart
- segir Jón Rúnar Arason um átökin í lokaaríunni
í sjónvarpinu.
„í svona keppni eru gerðar
miklu meiri kröfur en gerðar eru
til stjarnanna. Það verður allt að
vera 150 prósent. Ég var kominn á
síðustu blóðdropana í lokaaríunni
í Nessun dorma og undir lokin
var hreinlega að líða yflr mig. Ég
riðaði til á sviðinu og sá bara
svart. Stærsti plúsinn við þessa
keppni var að allan tímann var
mikið af áhorfendum. Ég er alveg
tilbúinn að syngja úr mér gam-
irnar fyrir fólk,“ sagði Jón Rúnar
sigurreifur eftir sigurkvöldið.
Jón Rúnar hefur verið að læra
hjá hinum umdeilda kennara
André Orlowitz en þess má geta
að allir þrir karlmennimir sem
komust í úrslit eru nemendur
hans.
„Þetta er stórkostlegur kennari
og ég er ekki í nokkrum vafa um
að hann hefur hjálpað mér að
komast þetta langt.“
-Pj
DV, Kaupmannahöfn:
„Þetta er helvíti gott spark í
rassinn og mikil viðurkenning.
Ég er greinilega á réttri leið,“ seg-
ir tenórinn Jón Rúnar Arason eft-
ir frækilega framgöngu í Copen-
hagen Singing Competition. Það
voru 130 evrópskir óperusöngvar-
ar sem reyndu fyrir sér í keppn-
inni og komst Rúnar alla leið í sex
manna úrslit. Á lokakvöldinu
söng hann meðal annars hinar
þekktu aríur La donna mobile og
Nessun dorma og ætlaði fagnaðar-
látunum aldrei að linna eftir
flutning hans á síðari aríunni.
Um kvöldið var hann útnefndur
besti tenórinn í keppninni og fékk
sérstök „Heltentenor" verðlaun,
enda er keppnin kennd við Wagn-
ertenórinn Lauritz Melchior.
Lokakeppnin var í Konunglega
leikhúsinu á laugardagskvöldið
og var Margrét Danadrottning
meðal gesta. Uppselt var í húsið
þótt keppnin væri samtímis sýnd
?'
M
Átján lög eftir Atla Heimi Sveinsson við Ijóð Jónasar Hallgrímssonar voru frumflutt í Skarðskirkju í Holta- og
Landsveit á föstudagskvöldið. Myndin er tekin að tónleikum loknum. Flytjendur, sem Atli Heimir nefndi
Fífilbrekkuhópinn, voru hylltlir lengi og vel í lokin. Atli er hér annar frá hægri ásamt flytjendum með blómvendi í
fanginu. Frá vinstri á myndinni eru Anna Guöný Guðmundsdóttir, Hávarður Tryggvason, Signý Sæmundsdóttir,
Sigurlaug Eðvaldsdóttir, Atli og Sigurður Ingvi Snorrason. DV-mynd Jón Þórðarson
Veöriö á morgun:
Að mestu
þurrt
Á morgun er spáð austan- og
noröaustankalda á landinu. Við
suður- og austurströndina má
reikna með skúrum eða súld en í
öðrum landshlutum ætti að vera
þurrt. Það ætti að sjást til sólar á
Vesturlandi og þar og á suðvest-
urhominu verður hlýjast, allt að
þrettán stig yfir daginn, en kald-
ast verður á norðausturhorninu,
í kringum fimm stig.
Veðrið í dag er á bls. 44
Hrunamannahreppur:
Lítilli fiugvél
hlekktist á
Litlu munaði að illa færi þegar
lítilli flugvél hlekktist á í flugtaki í
Hrunamannahreppi í gærkvöld.
Flugmaðurinn ætlaði að hefja sig til
flugs en náði vélinni ekki á loft
vegna mikils meðvinds. Stélið rakst
í og við það stakkst vélin fram og
mótorinn brotnaði af. Vélin fór
aldrei af hjólunum og flugmanninn
sakaði ekki. -sv
Fáskrúðsfjörður:
Saumaður 80
spor í bakið
Maður skarst illa á baki í rysk-
ingum á Fáskrúðsfirði aðfaranótt
sunnudags. Manninum var kastað í
gegnum glerborð og þurfti að sauma
80 spor í bakið á honum. Skurðimir
voru ekki djúpir, að sögn lögreglu,
og í gær var ekki vitað hvort ein-
hver eftirmál yrðu af hasarnum.
-sv
íslandsmótið í skák:
Anna Björg ís-
landsmeistari
Anna Björg Þorgrimsdóttir varð
íslandsmeistari kvenna í skák á
Skákþingi íslands í Garðabæ í gær-
kvöld. Keppni í landsliðsflokki
karla lýkur í dag. Helgi Ólafsson er
efstur með 8 vinninga en Jóhann
Hjartarson og Margeir Pétursson
eiga einnig möguleika á íslands-
meistaratitlinum, Jóhann með 7
vinninga og Margeir 7!4. -bjb
Tveir humarbátar:
40 vodka-
flöskur í
veiðarfærin
„Menn héldu að þarna væri
kominn glaðningur fyrir sjó-
mannadaginn. Það var auðvitað
tekinn tappi af einni flöskunni en
verstur andskoti að þetta var svo
brimsalt og gjörsamlega ódrekk-
andi,“ sagði Þorleifur Guðmunds-
son, skipstjóri á humarbátnum
Jóni Trausta ÍS, í samtali við DV
en 16 vodkaflöskur komu í veiðar-
færi skipsins úti fyrir Krísuvíkur-
bergi fyrir helgina. Á svipuðum
slóðum og tíma fengu skipverjar á
Aðalbjörgu RE 24 vodkaflöskur í
humartrollið.
Að sögn Þorleifs eru mörg dæmi
þess að áfengi hafi komið í veiðar-
færi skipa á þessum slóðum, s.s.
sénever og gin. -bjb