Dagblaðið Vísir - DV - 04.06.1996, Blaðsíða 19
18
ÞRIÐJUDAGUR 4. JÚNÍ 1996
ÞRIÐJUDAGUR 4. JÚNÍ1996
23
íþróttir
íþróttir
Vill kaupa Leeds
Breskur fjölmiölahópur,
styrktur af mörgum sterkum
Ijárfestum, er í viðræöum um aö
kaupa úrvalsdeildarliðið Leeds
Utd. Hópurinn kallar sig The
Caspian Group Plc og eru þeir
tilbúnir aö borga núverandi eig-
endum Leeds Utd, framkvæmda-
stjóranum Bill Fotherby og for-
vera hans Leslie Silver, 10 millj-
ónir punda fyrir 65% hlut þeirra
í liöinu. Hópurinn er einnig til-
búinn aö borga skuld Leeds Utd
upp á 10 milljónir punda. The
Caspian Group Plc hefur aðal-
lega unnið við framleiðslu sjón-
varpsefnis en ætlar nú að reyna
að byggja upp sterka íþrótta-
starfsemi hjá Leeds Utd.
Guus áfram
með Hollendinga
Hollenski landsliðsþjálfarinn,
Guus Hiddink, hefur framlengt
samninginn sinn um tvö ár og
stjórnar því Hollendingum fram
yfir heimsmeistarakeppnina í
Frakklandi árið 1998. Samning-
urinn hans átti að renna út eftir
Evrópukeppnina í Englandi sem
hefst um næstu helgi.
Hiddink tók við starfinu í jan-
úar 1995 þegar Dick Advocaat
hætti og tók við PSV Eindhoven.
Klinsmann á förum?
Orðrómur er í gangi í Bret-
landi um að Ársenal ætli að
bjóða 210 milljónir í Jurgen
Klinsmann sem spilar með
Bayern Múnchen. „Ég vissi að
ég yrði að yfirgefa Tottenham til
að vinna titil en mér fannst á
tímabili að ég saknaði þess sem
ég gerði svo vel hjá Tottenham
og það væri gaman að spila aftur
í Englandi,” sagði Klinsmann.
Chelsea hefur einnig verið orðað
við Klinsmann en talið er lík-
legra að hann fari til Arsenal.
Bolton út í
stórframkvæmdir
í þessum mánuði verður byrj-
að á nýjum velli fyrir Guðna
Bergsson og lið hans, Bolton
Wanderers. Völlurinn mun taka
25.000 manns i sæti, kostar um 4
milljarða króna og uppfylla allar
kröfur sem FIFA og UEFA setja
um velli. Reiknað er með að völl-
urinn verði tilbúinn í ágúst 1997.
Ekki hefur verið fundið nafn á
völlinn en stuöningsmenn verða
fengnir til að velja nafn.
Kluivert á Anfield?
Breska blaðið Daily Mail
greindi frá því um helgina að
Liverpool væri sterklega orðað
við Patrick Kluivert, hinn
snjalla framherja sem leikur
með Ajax og hollenska landslið-
inu.
Kluivert hefur lýst því yfir að
það væri vissulega ánægjulegt
að spila í Englandi og draumur-
inn væri að leika með Liverpool.
Það yrði áhugavert að fylgjast
með honum og Robbie Fowler í
framlínunni.
Cruyff og Eiöur
Smári saman?
Það bendir margt til þess að
Jordi Cruyff, sonur Johans Cru-
yff, fyrrum þjálfara Barcelona,
spili með PSV Eindhoven, liði
Eiðs Smára Guðjohnsen á næstu
leiktíð.
Eftir aö Johan Cruyff var rek-
inn frá Barcelona vill sonurinn
yfirgefa herbúðir þeirra og er
sterklega orðaður við PSV Eind-
hoven.
-JGG
Aðalfundur Vals
Aðalfundur Vals verður hald-
inn í kvöld í félagsheimili Vals
að Hlíðarenda og hefst kl. 20.
Júlíus fer til
Hildesheim
- Hilmar Bjarnason einnig á förum til liðsins
Júlíus Jónasson, handknattleiks-
maður úr Val, leikur á næsta tíma-
bili með þýska liðinu Hildesheim.
Júlíus hefur gert 10 mánaða samn-
ing við liðið eins og Hilmar Bjarna-
son sem lék með Fram í 2. deildinni
í vetur.
í samtali við DV í gær sagði
Júlíus það stóra ákvörðun að yfir-
gefa herbúðir Vals þar sem hann
hefði verið í sjö ár og unnið íslands-
meistaratitil fimm sinnum.
„Ég hef átt góð ár hjá Val. Ég var
hins vegar kominn á þann tíma-
punkt að breyta til. Það er metnað-
ur hjá þessu þýska félagi og það
leggur allt undir til að komast upp
úr 3. deild. Því mistókt naumleg í
vor að komast upp í 2. deild. Það
verður góð tilbreyting að fara út og
sanna sig á nýjum slóöum," sagði
Júlíus í samtali við DV í gær.
Það er Valsmönnum mikill miss-
ir að sjá á eftir Júlíusi til Þýska-
lands en honum var ætlað að leysa
af hólmi Ólaf Stefánsson sem einnig
leikur í Þýskalandi næsta vetur.
-JKS
Níu Islendingar leika í
Þýskalandi næsta vetur
- og Viggó Sigurðsson þjálfar að auki
íslenskir handknattleiksmenn
fara um þessar mundir í stórum stíl
inn í þýskan handbolta. Nú er ljóst
að níu íslendingar, að minnsta
kosti, munu leika með liðum víðs
vegar um Þýskaland næsta vetur.
Patrekur Jóhanesson, Essen, Ró-
bert Sighvatsson, Nettelstedt, og
Héðinn Gilsson, Fredenbeck, munu
allir leika með liðum í úrvalsdeild-
inni. Jason Ólafsson. Leuters-
hausen, Ólafur Stefánsson,Wupper-
tal, og Dagur Sigurðsson, Wupper-
tal, leika allir í 2. deild. Júlíus
Gunnarsson, Hildesheim, Hilmar
Bjarnason, Hildesheim, og Magnús
Sigurðsson, Willstedt, í 3. deild.
Viggó Sigurðsson bættist í þessa
ílóru sem tíundi maður en hann
þjálfar hjá Wuppertal og þá eru
líkur á að Guðmundur Hrafnkels-
son bætist í hópinn eins og fram
kemur hér til hliðar.
Aldrei áður hafa jafnmargir ís-
lendingar leikið samtímis hand-
knattleik í Þýskalandi. Ástæðuna
má rekja til Bosman-málsins svo-
kallaða en það gerir liðum kleift að
fá til sín eins marga leikmenn og
þau lystir ef þeir á annað borð koma
frá löndum sem eru á Evrópska
efnahagssvæðinu. -JKS
Kikic með gegn
Fýlki á föstudag?
Grindvíkingar eru mjög ánægðir með júgóslavneska knattspyrnu-
manninn Sinisa Kikic sem kom til þeirra um helgina og að sögn Jónas-
ar Þórhallssonar, varaformanns knattspyrnudeildarinnar, stefna þeir
að því að hann verði orðinn löglegur á föstudag þannig að hann geti
spilað með þeim gegn Fylki í 1. deildinni.
„Hann lofar góðu, hefur sýnt skemmtilega takta á æfingum með okk-
ur og er greinilega hörku sóknarmaður," sagði Stefán Jankovic, fyrir-
liði Grindvíkinga, við DV í gærkvöld. -ÆMK
Mjólkurbikarinn
Tíu mörk á
ÍR-vellinum
Það gekk mikið á þegar 2.
deildar lið ÍR tók á móti 23 ára
liði KR-inga i 2. umferð Mjólkur-
bikarsins á ÍR-vellinum í gær-
kvöld. ÍR náði að jafna, 3-3, rétt
fyrir lok venjulegs leiktíma og
hafði svo betur í framlengingu
og vann, 6-4.
Leiknismenn fóru hamförum
á siðustu 35 mínútunum gegn
Reyni frá Sandgerði og skoruðu
þá 7 mörk, þar af sex á 14 mín-
útna kafla. Reynir var yfir, 0-1,
fram að þeim tíma en Leiknir
vann að lokum, 7-2.
Úrslitin í gærkvöldi:
f A23-Keflavík23..........0-2
Guðmundur Steinarsson 2.
Hvöt-Magni................1-4
Albert Arason - Brynjar Óttarsson 3,
Ingólfur Áskelsson.
Dalvík-Tindastóll..........8-0
Heiðmar Felixson 4, Örvar Eiríksson
2, Gunnlaugur Gunnlaugsson, Ólafur
Steinarsson.
Fram23-Ökkli ..............5-1
Einar Freyr Sverrisson 2, Kristján
Baldursson 2, Michael Payne - Árni
Harðarson.
GG-Ægir ...................1—5
Reynir Schmidt - Teitur Guömunds-
son 2, Guðmundur Einarsson 2, Kjart-
an Helgason.
Grótta-Breiðablik23...... 1-3
Kristinn Kærnested - Gunnar B.
Ólafsson 2, fvar Sigurjónsson.
ÍR-KR23.....................64
Örvar Grétarsson 2, Magni Þóröar-
son, Pálmi Guðmundsson, Jón Þór
Eyjólfsson, Kjartan Kjartansson - Vil-
hjálmur Vilhjálmsson 2, Árni Ingi
Pjetursson, Óskar Sigurgeirsson.
FH23-Valur23 ..............1-2
Sigurjón Sigurðsson - Tryggvi Vals-
son, Ómar Friðriksson.
HK-Stjaman23...............1-2
Alen Mulamuhic - Hallur Ásgeirsson,
Hörður Gíslason.
Leiknir R.-Reynir S........7-2
Steindór Elísson 2, Róbert Arnþórs-
son 2, Friðrik Jónsson 2, Heiðar
Ómarsson - Trausti Ómarsson, Ant-
on Ólafsson.
Þór A.23-Völsungur.........0-2
Guðni Rúnar Helgason, Róbert
Skarphéðinsson.
Afturelding-Víkingur Ó....2-5
Guðmundur Hannesson, Tómas Guð-
jónsson - Hjörtur Ragnarsson 2, Dag-
ur Dervic 2, Gestur Pálsson.
Vikingur R.-Selfoss........4-0
Atli Einarsson, Þorri Ólafsson, Sig-
urður Ragnar Eyjólfsson, Yngvi Borg-
þórsson. -VS
Guðmundur
Hrafnkelsson hef-
ur tekið við mörg-
um bikarnum
með Val undan-
farin ár. Nú gæti
hann bæst í stór-
an hóp íslenskra
leikmanna í
Þýskalandi næsta
vetur.
Stjörnuhrap
á opna franska
Þekktir tennisleikarar féllu úr
keppni á opna franska mótinu í gær.
Goran Ivanisesvic frá Króatíu tapaði
fyrir Bemd Karbacher frá Þýska-
landi, Thomas Muster frá Austur-
ríki, meistarinn frá því í fyrra, tap-
aði fyrir Michael Stich frá Þýska-
landi og Stefan Edberg, Svíinn frægi,
tapaði fyrir Marc Rosset frá Sviss.
-VS
Allir sektaðir í
enska landsliðinu
Allir leikmenn enska landsliðsins
í knattspyrnu verða sektaðir í kjöl-
far óláta og skemmda sem leikmenn
ollu um borð í flugvél á heimleið til
Englands eftir keppnisferð til Hong
Kong og Kína á dögunum. Enginn
leikmaður játaði á sig skemmdirnar
og því þurfa þeir allir að taka á sig
skellinn.
Chicago og Seattle
leika til úrslita
- slagurinn um titilinn hefst í Chicago annað kvöld
Frjálsíþróttir:
Fredericks
hljóp á 9,95
sekúndum
í Frakklandi
Namibíumaðurinn Frankie
Fredericks sýndi það og sannaði
á alþjóðlegu móti í Frakklandi í
gærkvöld að hann er líklegur
sigurvegari í 100 metra hlaupi
karla á ólympíuleikunum í Atl-
anta.
Fredericks hljóp á 9,95 sek-
úndum. Hann hefur undanfarið
búið sig undir 200 metra hlaupið
og því kom þessi góði árangur
honum sjálfum á óvart í gær-
kvöld. „Ég hef ekki enn ákveðið
hvort ég tek þátt í 100 eða 200
metrunum í Atlanta en ég mun
taka ákvörðun um það fljótlega.
-SK
Missir Valur enn einn leikmanninn?
Guðmundur
til Rostock?
- skoðaði aðstæður hjá félaginu um helgina
Guðmundur Hrafnkelsson, lands-
liösmaður í handknattleik, dvaldi
um helgina hjá þýska 2. deildar lið-
inu Hansa Rostock. Þjóðverjarnir
höfðu samband við Guömund fyrir
skömmu og hann fór utan í boði
þeirra til að ræða málin og skoða
aðstæður. Guðmundur kom síðan
aftur til landsins í gærkvöld.
„Ég skrapp þarna út og leit á að-
stæður hjá félaginu. Maður var
kannski ekki alltof bjartsýnn á
þetta enda var ég á þessum slóðum
með íslenska landsliðinu fyrir tíu
árum og leist ekki alltof vel á mig
þá í Rostock,“ sagði Guðmundur í
samtali við DV í gærkvöld.
Miklar breytingar hafa átt
sér stað
„Það hafa greinilega átt sér stað
miklar breytingar frá því ég var
þarna síðast og mér leist ágætlega á
það sem ég sá. Ég æfði með liðinu
og leist alveg þokkalega á aðstæð-
ur.
Það er hins vegar alltof snemmt
að segja til um hvort af því verður
að ég fari til liðsins. Málin eru á
byrjunarstigi og munu skírast síð-
ar,“ sagði Guömundur í gærkvöld.
Síðasta tækifæriGuðmundar
til að fara utan?
Guðmundur hefur ekki leikið
með erlendu félagsliði á sínum ferli.
Er þetta ekki hans síðasta tækifæri
til að komast að hjá erlendu liði?
„Það má kannski segja það. Mað-
ur er auðvitað farinn að eldast og
líklega er þetta tækifærið ef maður
hefur á annaö borð áhuga á að leika
með erlendu liði,“ sagði Guömund-
ur.
Lið Hansa Rostock varð í 4.-5.
sæti í þýsku 2. deildinni á liðnu
leiktímabili. Þekktasti leikmaður
liðsins er Rudiger Bochardt,
vinstrihandarskytta sem gerði
garðinn frægan á árum áður með
landsliði Austur-Þýskalands.
Sá fimmti frá Val?
Ef Guðmundur hverfur á braut
verður hann fimmti leikmaðurinn
sem íslandsmeistarar Vals missa
frá nýliðnu tímabili. Dagur Sig-
urðsson og Ólafur Stefánsson eru á
fórum til Wuppertal og Júlíus
Gunnarsson til Hildesheim í Þýska-
landi og Sigfús Sigurðsson er geng-
inn til liðs við Selfyssinga. í stað-
inn hafa Valsmenn fengið Rúnar
Sigtryggsson frá Víkingi og sam-
kvæmt heimildum DV eru líkur á
að Einar Baldvin Árnason úr KR
gangi til liðs við Hlíöarendafélagið
en fleiri lið hafa verið inni í mynd-
inni hjá honum. -SK/-VS
Gestur aftur til
Keflvíkinga?
- fær ekki tækifæri hjá Strömsgodset og stefnir heim
Miklar líkur eru á því að knatt-
spyrnumaðurinn Gestur Gylfason
hætti hjá norska úrvalsdeildarlið-
inu Strömsgodset og gangi til liðs
við sína gömlu félaga í Keflavik inn-
an skamms.
Gestur lék tvo fyrstu leiki
Strömsgodset í úrvalsdeildinni í vor
en hefur síðan ekki fengið tækifæri.
„Mér gekk mjög illa í öðrum
leiknum og var skipt út af og síðan
hef ég orðið að láta mér nægja að
spila með varaliðinu í 4. deild. Þetta
er ekki skemmtilegur tími og ég vil
miklu frekar koma heim og spila í 1.
deildinni. Það er öruggt að ef ég geri
það verð ég með Keflavík,11 sagði
Gestur í samtali við DV í gærkvöld.
Samkvæmt heimildum DV höfðu
Grindvíkingar einnig mikinn hug á
að fá hann til sín en hann lék með
þeim fyrir nokkrum árum.
Gestur Gylfason myndi styrkja
Keflavíkurliðið mikið í baráttunni í
sumar. DV-mynd ÆMK
Gestur er að spila sitt annað tíma-
bil með Strömsgodset en liðið vann
sér sæti í úrvalsdeildinni í fyrra-
sumar og þá spilaði hann alla leik-
ina nema einn. Nú eru fimm erlend-
ir leikmenn hjá félaginu og að sögn
Gests er í bígerð að fækka þeim.
„Ég er í mjög góðu formi og hef
ýmist spilað sem vinstri eða hægri
bakvörður eða þá á miðjunni. Þetta
ræðst á næstu dögum, við eigum að
mæta Rosenborg á miðvikudag og ef
ég fæ ekki tækifæri þá tel ég allar
líkur á því að ég komi heim til
Keflavíkur," sagði Gestur.
Það yrði mikill styrkur fyrir Kefl-
víkinga að fá Gest til sín á ný. Hann
var einn lykilmanna þeirra áður en
hann fór til Noregs og á að baki 67
leiki með Keflavík í 1. deildinni,
auk eins leiks með 21-árs landslið-
inu. -ÆMK/VS
Sam Perkins hjá Seattle gnæfir yfir John Stockton hjá Utah. Seattle hafði
betur eftir mikið einvígi liðanna í úrslitum vesturdeildar NBA og mætir
Chicago í úrslitaleikjum deildarinnar. Sá fyrsti verður í Chicago aðfaranótt
fimmtudagsins. Símamynd Reuter.
Seattle SuperSonics vann sér réttinn
til að leika gegn Chicago Bulls um titil-
inn í bandaríska körfuboltanum í fyrri-
nótt. Seattle sigraði Utah Jazz í
sjöundu viðureign liðanna, 90-86. Leik-
urinn bar þess merki að mikið var í
húfi en Seattle, með heimavöflinn að
baki sér, sigraði naumlega. Leikurinn
var í járnum allan tímann og mátti
vart á milli sjá hvort liðið hefði sigur.
Seattle leikur nú til úrslita í fyrsta sinn
í 17 ár.
Á tímabili voru margir farnir að trú
því að Seattle væri að gefa eftir í bar-
áttunni. Utah sýndi mikinn styrk að
jafna metin, 3-3, en Seattle koma aftur
til baka og sigraði í 7. leiknum. Það er
sannfæring margra að á brattann verði
að sækja við leikmenn Seattle gegn
Chicago.
Chicago vel hvílt
Hafa verður í huga að leikmenn
Chicago hafa verið í hvíld í rúma eina
viku á meðan mikið hefur mætt á liði
Seattle. Munurinn á liðunum, þegar úr-
slitin hefjast annað kvöld, verður sá að
Chicago er hvflt en Seattle ekki.
1 fyrra var Houston í sömu stöðu og
Chicago er núna. Houston-liðið var
mun fljótara að vinna sér sæti í úrslit-
unum en Orlando. Þetta kom greini-
lega fram í úrslitaleikjunum en reynsla
Houston-liðsins vó einnig þungt.
Gary Payton hjá Seattle var ánægður
með að hans lið skyldi nú loksins vera
komið í úrslit. „Eftir þessari stöðu hef-
ur maður beðið lengi. Það var kominn
tími á Seattle. Við höfum verið að leika
vel í vetur, sérstaklega vörnina. Leik-
irnir við Chicago verða erfiðir en við
erum ákveðnir í að gera okkar besta.
Það er komin svolítil þreyta í okkar lið
en við mætum samt ákveðnir til leikj-
anna gegn Chicago," sagði Gary Payton
eftir leikinn í fyrrinótt.
Malone ekki sáttur
Karl Malone var að vonum ekki eins
ánægður. „Ég er ekki sáttur með minn
hlut í leiknum. Ég missti nokkrum
sinnum auðvelt skot en maður verður
að bæta úr þessu á næsta tímabili og
mæta þá sterkari til leiks,“ sagði
Malone.
Shawn Kemp skoraði 26 stig fyrir
Seattle gegn Utah og Gary Payton 21
stig. Karl Malone skoraði- 22 stig fyrir
Utah og John Stockton 22 stig.
í slagnum um sigurinn 1 NBA mæt-
ast tvö frábær lið og valinn maður er
þar í hverri stöðu. Þetta er óskaúrslita-
leikur hjá mörgum en bæðin liðin hafa
verið fræg fyrir annálaðan varnarleik.
Aðrir benda á að munurinn á liðunum
sé sá að Chicago hefur Michael Jordan
en Seattle ekki.
Spennandi nætur fram undan
Næstu dagar munu leiða í ljós hvort
þetta sé raunin. Það mun eflaust mikið
ganga á áður en úrslit koma í ljós.
Einu er þó hægt að lofa og það er að
körfuboltaáhugamenn eiga spennandi
nætur fram undan fyrir framan sjón-
varpstækin sín.
-JKS
Evrópukeppni landsliða hefst á laugardaginn:
Flestir veðja á Þjóðverja
Knattspyrnuveislan hefst á laug-
ardaginn á Wembley þegar heima-
menn mæta Svisslendingum í opn-
unarleiknum.
Klinsmann markakóngur?
Veðbankar í Englandi veðja á
Þjóðverja og eru líkurnar 4-1 að
þeir vinni og framherji þeirra,
Jurgen Klinsmann, er líklegastur
til að verða markakóngur keppninn-
ar þótt hann missi af fyrsta leik
þeirra gegn Tékklandi sökum leik-
banns. Næstur í röðinni er Patrick
Kluivert, Hollandi, þar á eftir kem-
ur Fabrizio Ravanelli, Ítalíu, og síð-
•A
an koma Dennis Bergkamp,
Hollandi, og Davor Suker hjá Króöt-
um með líkurnar 10-1.
ítalir koma á eftir Þjóðverjum og
ef leikmenn eins og Maldini, Dino
Baggio, Ravanelli, Del Piero og Gi-
anfranco Zola ná að sýna hvað í
þeim býr verða þeir erfiðir viður-
eignar. Hollendingar voru ekki
nógu sannfærandi í undankeppn-
inni en ef lið þeirra, sem byggist
mikið á leikmönnum Ajax, nær vel
saman eru þeir til alls líklegir.
Sama er að segja um Frakka sem
hafa ekki tapað leik í tvö og hálft ár
og sigruðu Þjóðverja, 1-0, á útivelli
í fyrradag, og síðan heimamenn,
Englendingar.
Líkurnar á að England vinni
hafa aukist talsvert undanfarið sök-
um keppnisferðalags' þeirra til Kína
og Hong Kong og eru heimamenn að
vona að úrslitin í heimsmeistara-
keppninni árið 1966 endurtaki sig.
Þá voru Englendingar einmitt gest-
gjafar og sigruðu Þjóðverja i úrslita-
leiknum.
England hefur aðeins tapað ein-
um leik á síðustu tveimur árum og
þá á móti heimsmeisturunum í
Brasilíu.
Listi veðbankans er eftirfarandi:
1. Þýskaland 4-1
2. Italia . . . 5-1
11-2
4. Frakkland 6-1
5. England . 7-1
6. Spánn . . . 8-1
7. Portúgal . 10-1
8. Króatía . . 12-1
9. Rússland . 16-1
10. Búlgaría 25-1
11. Rúmenía 25-1
12. Danmörk 25-1
13. Sviss . . . 50-1
14. Tékkland 66-1
15. Skotland 80-1
16. Tyrkland 100-1
-JGG
l