Dagblaðið Vísir - DV - 24.06.1996, Síða 4
4
MÁNUDAGUR 24. JÚNÍ 1996
Fréttir
Brúðkaup flugstjóra og flugfreyju í breiðþotu:
Gefin saman yfir
heimskautsbaug
„Þetta var meiriháttar. Það var á
tímabili tvísýnt hvort við kæmumst
í loftið en svona er þetta nú í flug-
inu eins og í lífinu sjálfu, það skipt-
ast á skin og skúrir,“ sagði Ásgeir
Guðmundsson sem giftist Rögnu
Björk Emilsdóttur yfir heimskauts-
baug aðfaranótt sunnudags. Við at-
höfnina voru 200 gestir og fór hún
fram í breiðþotu frá Atlanta.
„Þegar við játuðumst hvort öðru
reis vélin upp úr skýjunum og við
vorum skyndilega í sól og blíðu.
Flugstjórarnir tóku niður staðsetn-
inguna og þetta var u.þ.b. yfir heim-
skautsbaug. Athöfnin heppnaðist
fullkomlega þrátt fyrir að ekki var
hægt að æfa hana fyrirfram."
„Ferðin tók einn og hálfan tíma
frá því vélin fór af stæðinu og þar
í þotunni var sett upp altari og reynt að hafa allt sem hátíðlegast.
Ásgeir og Ragna stíga nýgift frá borði.
Það eru sennilega ekki margir sem hafa kysst brúði sína yfir heimskautsbaug.
til hún lenti. Eftir hana var svo sleg-
ið upp heljarinnar veislu fram eftir
nóttu.“
„Við gerðum allt sem við gátum
til þess að hafa hátíðarbrág á þessu,
settum upp altari í vélinni og Magn-
ús spilaði við athöfnina. Að vísu
voru smávægilegar hremmingar
með rafmagn vegna þess að það er
115 volta straumur i flugvélinni en
það kom ekki að sök og allt small
saman að lokum.“
Þau Ragna og Ásgeir eru engir
nýgræðingar í fluginu. Ragna er
flugfreyja hjá Atlanta en Ásgeir er
flugstjóri hjá Cargolux.
Flugstjórar í ferðinni voru þeir
Amgrímur Jóhannesson, eigandi
Atlanta, sem lagði tii þotuna, og
Hafþór Hafsteinsson, rekstrarstjóri
félagsins.
„Við konan eyddum svo yndisleg-
um morgni saman í tjaldi uppi i
Heiðmörk. Við fórum þangað í fúll-
um brúðkaupsskrúða og ég bar
hana yfir tjaldskörina. Þar drukk-
um við kampavín og gæddum okkur
á flatbrauði með hangikjöti og öðru
góðgæti. Svo vöknuðum við um há-
degið við létta rigningu.
Við vildum endilega vera í tjaldi
því að okkur finnst ekki sérlega
spennandi að vera á hóteli þar sem
við dveljumst mikið á þeim vegna
vinnu okkar."
„Flestir álykta að það sé mun dýr-
ara að halda svona brúðkaup en það
er í raun og veru. Við buðum fólk-
inu upp á snittur og kampavín,
kransakökur og svo kaffi og koniak
á eftir. Allt starfsfólkið gaf vinnu
sína þannig að ég reikna með að
brúðkaupið hefði verið dýrara ef
við hefðum haldið hefðbundna
veislu og verið með mat handa öll-
um,“ sagði brúðguminn fljúgandi.
-SF
Dagfari
Loksins skýrðist stefnan
Það verða ógurleg vonbrigði eft-
ir forsetakosningamar á laugar-
daginn. Þetta er meginniðurstaða
skoðanakönnunar sem Dagfari
rakst á í blaði sínu á laugardaginn.
Þar kom í ljós að rúmlega sjö af
hverjum tíu stuðningsmönnum
Péturs Hafstein sjá rautt ef Ólafur
Ragnar sest að á Bessastöðum.
Svipað er að segja um stuðnings-
menn Ólafs Ragnars. Tæplega sex
af hverjum tíu geta ekki hugsað þá
hugsun til enda ef Pétur Hafstein
tekur við lyklavöldum á því höfð-
ingjasetri.
Það er heldur meira jafnvægi hjá
stuðningsmönnum Guðrúnar Agn-
arsdóttur. Þeir leggja svipaða fæð á
þá Pétur og Ólaf Ragnar þótt sá síð-
arnefndi þyki þó heldur ógnvæn-
legri. Stuðningsmenn Ólafs Ragn-
ars og Péturs eru svo uppteknir af
að sparka hverjir í aðra að tiltölu-
lega fáir þeirra ná að senda Guð-
rúnu eiturörvar. Stuðningsmenn
Ástþórs eru svo friðsamir, í anda
foringjans, að þeir voru ekki einu
sinni spurðir. Það verður enda að
teljast heldur óliklegt að þeir legg-
ist harkalega gegn öðrum. Það
væri síst í anda friðar.
Þessi könnun kemur í kjölfar
þess að Guðrún Pétursdóttir
nennti ekki lengur að sýna sig á
torgum með hinum, kyssa smá-
böm og taka í hendur á gamal-
mennum eins og fylgir kosninga-
baráttu sem þessari. Þá var hún
orðin þreytt á að viðhalda perman-
éntinu og nýja „lúkkinu“ á Óla
Hannibals. Sá mæti Selárdalsbóndi
getur því orðið eðlilegur á ný.
En hvað veldur því að fylgis-
menn Ólafs Ragnars og Péturs eru
algerlega andstæðir pólar? Er það
hárgreiðslan á Ólafi eða brosið á
Pétri? Er það forsaga stjómmála-
mannsins eða vammleysi dómar-
ans? Það verður að teljast ólíklegt.
Kjósendur era orðnir löngu leiðir á
þessum margþvældu tuggum.
Ágreiningsefni frambjóðendanna
tveggja, sem skiptir þjóðinni í tvær
fylkingar, kom í ljós í umræðu-
þætti Stöðvar 2 í liðinni viku. Þá
fengu menn loks eitthvað áþreifan-
legt. Umræða um málskotsrétt,
stjórnarmyndanir, trjárækt og
fleira sem tengist forsetaembætt-
inu skiptir nefnilega svo litlu í
samanburði við þann ágreining
sem opinberaðist í sjónvarpsþætt-
inum.
Þar kom nefnilega í ljós að Ólaf-
ur Ragnar ætlar að loka vínkjallar-
anum á Bessastöðum nái hann
húsbóndavaldi þar. Komist Pétm-
Hafstein aftur á móti að kjötkjötl-
unum á Álftanesinu mun hann
bregðast þveröfugt við. Hann ætlar
að opna vínkjallarann almenningi.
Meiri munur getur ekki verið á
milli tveggja forsetaefna. Stefnan
er í bókstaflegri merkingu í austur
og vestur. Loksins er komið eitt-
hvað sem hægt er að kjósa um.
Það er búið að flikka upp á
Bessastaði fyrir milljarð. Það er
auðvitað smotterí eitt þegar hlúð
er að forsetanum. Hæst ber í end-
umýjun þeirri þríhyrnda baðið
fyrir forsetahjónin og vínkjallar-
ann.
Þríhymda baðið er svo sjálfsagt
að enginn gerir veður út af því.
Það sér hver maður að ástand allt
á forsetasetrinu verður betra nái
húsráöendur þar að slaka vel á í
heitu baði. Gott ef baðið var ekki
hjartalaga, sem undirstrikar enn
ástúðina sem þar skal ríkja.
En sömu sögu er ekki að segja af
vínkjallaranum fræga á Bessastöð-
um. Fréttamönnum var lengi vel
meinaður aðgangur að kjallara
þessum en dýrðin kom þó í ljós í
liðinni viku. Öfundarmenn sögðu
kjallarann hálfgerðan kústaskáp og
vínbirgðir heldur klénar.
Það breytir þó ekki því að menn
hafa loksins val. Ólafur vill loka,
Pétur opna, Guðrún stendur mitt á
milli og Ástþór fer með friði.
Um þetta mun kosningabaráttan
snúast þá örfáu daga sem eftir lifa
fram að kosningum. Vínkjallarinn
er verðugt kosningamál. Það verð-
ur að viðurkennast að þessi kosn-
ingabarátta hefur verið heldur
dauf. Ef Jón Steinar hefði ekki
reddað smágleðskap um hríð hefði
þetta beinlínis verið leiðinlegt. Það
er liðin tíð. Landsmenn hafa loks-
ins fengið í kosningabaráttuna það
sem þá dreymdi um, deilur um
brennivínsgeymslu og vínveitingar
í boðum fína fólksins.
Það slær jafnvel út sígildar deil-
ur um orðuveitingar. Dagfari