Dagblaðið Vísir - DV - 24.06.1996, Síða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 24.06.1996, Síða 6
6 MÁNUDAGUR 24. JÚNI1996 Fréttir Sandkorn Jónsmessuró og stilling meðal farþeganna þegar Fagranesið strandaði: Uppgötvuðum strandið þegar skipið hallaðist - segir Skafti Elíasson, einn 235 farþega í árlegri miðnætursólarsiglingu „Viö sem vorum uppi á dekkinu tókum ekki eftir neinu fyrr en skip- ið fór aö hallast og vélarnar voru keyrðar á fullu en ekkert hreyfðist. Þá segir einhver: Við erum strand, skál fyrir því,“ segir Skafti Elías- son, einn 235 farþega um borð í Djúpbátnum Fagranesinu. Skipið strandaði á skeri í innsigl- ingunni í Æðey á ellefta tímanum á laugardagskvöldið. Fagranesið var í árlegri Jónsmessusiglingu og var hvert rúm skipað um borð að vanda. Ætlunin var að hafa varðeld í Æðey um miðnættið. Þeir sem voru í borðsal skipsins heyrðu best þegar það strandaði. Þar voru skruðningar og læti og matarílát ultu af borðum. Enginn var þó í hættu ef frá er talinn mat- sveinninn sem var rétt nógu snögg- ur til að víkja frá pottunum áður en gusaðist upp úr þeim. „Það voru allir rólegir um borð enda er ekki hægt að segja að hætt- an hafi verið mikil - logn og blíða,“ segir Skafti. Björgunarsveitir voru ekki kall- Fagranesið hallaðist talsvert á strandstað. Varðskip náði skipinu á flot í gærdag. DV myndir Hörður Þrír bátar voru notaðir til þess að ferja farþegana frá hinu strandaða skipi í Æðey. Farþegar voru alls 235 í Jónsmessuferð um ísafjarðardjúp. Björgun farþeganna gekk mjög vel. aðar út en farþegarnir ferjaðir í land með skipsbátunum. Varðeldur- inn var tendraður á réttum tíma í Æðey en eftir það varð nokkur bið eftir að komast til lands. Bátar frá ísafirði komu og fluttu fólkið ýmist í Ögur, Súðavík eða til ísafjarðar. Við þá flutninga fóru tíu manns í sjóinn þegar lítil flotbryggja gaf sig. StfMiÉ fkjpiMSS % % Bolungarvík Djúpbáturinn Fagranes strandaöi á skeri viö Æöey laust fyrir kl. 11 á laugardagskvöldið. Varðskipiö Ægir dró Fagranesiö á flot eftir 15 tlma á skerinu. Drangajökull , GETUR ÞU HORFT IAUGU BARNA ÞI^INA OG SAGT ÞEIM AÐ ÞU HAFIR VALIÐ SVART/HVITT ? STERKUR OG UTRÍKUR Þann 29. júní getur þú valið sterkan oglitríkanmann í embætti forseta sem mun berjast fyrir öryg^ okkar og framtíð hvað sem á móti blæs. Þú getur treyst því að Ástþór Magnússon mun ekki láta undan þrýstingi frá valdaklíkum eða stjómariierrum jjegar forsetinn þarf að standa vörð um hagsmuni fólksins í landinu. Astþór hefur einnig víðtæka reynslu í viðskiptum á alþjóðlegum vettvangi og mun stuðla að uppbyggingu nýrra atvinnuvegahér álandi ogvíðtækri tynningu álandi ogþjóð um allan heim. miAUS TVÍSKINNUNGUR Bessastaði, er hætt við að ímynd lands og þjóðar fölni um leið og lítsafkoma fólksins í landinu. Við höfum ekki efniáþvíað gefa Kolkrabbanum forsetastólinn. Ástþór Magnússon Maður sem sefur ekki ó verðinum STUflNIHGSMEH N F R I Ð A R Voru of margir komnir út á bryggj- una. Engum varð þó meint af volk- inu. Varðskipið Ægir dró síðan Fagra- nesið á flot um klukkan tvö í gær. Skemmdir eru á botni skipsins og lak inn með botnstykki. Lekinn var þéttur og sigldi Fagranesið fyrir eig- in vélarafli til ísaijarðar. Sjópróf vegna strandsins verður á ísafirði á morgun en ekki mun að fullu ljóst hvað olli óhappinu. _________________________-GK Þróunarsjóður: Tekur ákvörðun um tilboð í Tanga í dag Stjórn Þróunarsjóðs sjávarútvegs- ins hittist í dag til að taka afstöðu til tilboða í 33 prósenta hlut Þróun- arsjóðsins í Tanga hf. á Vopnafirði en tilboð hafa borist frá Vopnafjarð- arhreppi og íslenskum sjávarafurð- um, ÍS. Hreppurinn á forkaupsrétt í hlutinn. Friðrik Guðmundsson, framkvæmdastjóri Tanga, vm ekki gefa upp hversu há tilboðin eru enda séu þau trúnaðarmál en hlutur Þróunarsjóðsins er að nafnvirði 115 milljónir króna. „Ef stjórnin samþykkir kaupin þá gengur þetta mjög hratt fyrir sig,“ segir Björgólfur Jóhannsson, fram- kvæmdastjóri Útgerðarfélags Akur- eyringa, ÚA, og telur ÚA gera góð kaup ef tilboðinu verður tekið. „Við höfum verið að horfa á að komast meira inn í uppsjávarfiskana, sild og loðnu, og það getur líka komið til ágætissamvinna milli félaganna í kringum það sem þeir hafa yfir að ráða í veiðiheimildum," segir hann. „Við erum bara mjög ánægðir með að ÚA líti á þetta sem áhuga- verðan fjárfestingarkost. Það er mjög jákvætt fyrir Tanga. Það hafa átt sér stað viðskipti með bréf í Tanga en þetta gerir það að verkum að þau lifna enn frekar," segir Frið- rik. -GHS Þakkirtil KA Þórsarar á Ak- ureyri voru borubráttir eft- ir sigurleikinn gegn KA á dög- unum í 2. deild- inni. Svo vildi til að leikurinn var háður á af- mælisdegi Þórs, sem er 6. júní, og í leikslok vildu sumir meina að sigmr- inn hefði veriö afmælisgjöf KA til Þórs. 1 hópi glað- beittra stuðningsmanna Þórs var múrarameistari nokkur sem kotroskinn mjög hóf upp raust sína og sagði í leikslok: Nú sveiflum við fánum, nú syngjum við lag. Svona ætti að vera hvem einasta dag. Samt held ég við sjáum þá fáa. Stigin með þrautseigju fengum við þijú, Þórsarabullur, og sendum því nú þakklæti og kveðjur til KA. Kaup-Þing í Víkurblaðinu á Húsavik var ritstjórinn að velta fyrir sér yfirtöku og leigu Kaupfé- lags Þingeyinga á helsta sam- keppnisaðila sínum í mat- vöruverslun- unni, verslun- inni Þingey. Húsvíkingar hafa verið að velta fyrir sér hvað nýja verslunin eigi aö heita og Baldur nokkur Ein- arsson þóttist finna lausnina með eftirfarandi vísu: Þrýsting ei þurfir að beita, þú ert svo andskoti slyngur. Kaup-Þing skal króginn heita, ég krefst þess sem Þingeyingur. Lítið í blindum Bridgeþáttur Björgvins er fastur þáttur í Víkurþlaðinu og á dögunum rakti Björgvin einhverja viður- eign sem hann hafði átt þátt í sl. vor. Grípum þar niður: „Út- spilið var spaði, ég setti lítið i blindum ef ske kynni að útspil- ið væri frá drottningu en austur drap, tók spaðaás og tígulás og spil- aði meiri tígli sem ég drap. Nú spil- aði ég ónákvæmt þegar ég spilaði hjarta á kóng og til baka á ás, en i þeirri stöðu fær vestur alltaf hjartaslag. Rétt spilaleið, sérstak- lega eftir doblið, er að spila hjartaás fyrst og svo litlu hjarta að blindum . . . Já, það er óneitanlega gaman að sjá hvernig bridgespilarar útskýra spilin sin en varla fyrir mann sem kann bara Olsen Olsen og að leggja kapal að botna nokkuö i þessu. Við erum bestir Ólafsfirðingar vom ekki lítið montnir með sig eftir að Leiftur hafði sigrað íslands- meistara ÍA á heimaveEi á dögunum. Menn bmgðu sér í hljóðver og sungu nýjan liðssöng þar sem segir m.a.: „Menn ættu að skilja að með átaki og vilja þá era menn bestir, og við vitum það flest- ir, við erum bestir . ..“ Gámngam- ir halda hins vegar áfram að skemmta sér yflr leikmannakaup- um Leifturs. Að þeirra sögn er ann- ar tveggja heimamanna sem komust í Leiftursliðið í fyrra nú kominn til KA á Akureyri. Astæðan? Jú, hon- um var farið að leiðast þaö að að- komumennimir í liðinu skildu hann ekki. Umsjón: Gylfi Kristjánsson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.