Dagblaðið Vísir - DV - 24.06.1996, Síða 8
8
MÁNUDAGUR 24. JÚNÍ 1996
Utlönd
Fjórtán arabaleiðtogar sameinast um afstöðuna til ísraela:
Vara viö afleiðingunum
fari friðarferlið í vaskinn
- Netanyahu segist ekki stjórnast af fyrirskipunum eða hótunum
Leiðtogar allra fjórtán arabaríkj-
anna sem funduðu í Kaíró um helg-
ina sögðu að ef ísraelar breyttu skil-
yrðum fyrir áframhaldandi friðar-
viðræðum myndu þeir endurskoða
alla eftirgjöf af sinni hálfu í friðar-
samningunum síðastliðin fimm ár.
Þeir sögðust hins vegar myndu
fagna því ef ísraelar héldu friðar-
ferlinu áfram á grundvelli þeirrar
„land fyrir frið“ reglu sem verið
hefur hornsteinn friðarviðræðn-
anna frá 1991.
Tilefni fundarins var kosning
Benjamins Netanyahus sem forsæt-
isráðherra Israels í lok maí. Eftir
fundinn í gær sakaði hann leiðtoga
araba um einhliða kröfur og að
reyna að ráða forsendum áfram-
haldandi friðarviðræðna. Hann
sagði að tilraun til að ráða fyrir-
fram forsendum sem ógnuðu öryggi
ísraels væru ekki í takt við raun-
verulega friðarsamninga. „Við mun-
um ekki segja þeim fyrir verkum og
þeir ekki okkur,“ sagði Netanyahu.
Hann tjáði sig hins vegar ekkert um
einstaka liði samþykktar arabaleið-
toganna.
Á bak við samhljóða yfirlýsingu
arabaþjóðanna standa 14 arabaleíð-
togar og fulltrúar sjö annarra ríkja.
Fundurinn var sá fyrsti síðan Flóa-
bardagi klauf einingu arabaríkj-
anna 1990. Ástæða fundarins var
ekki síst að Netanyahu hefur haft
endaskipti á stefnu
Israela gagnvart frið-
arferlinu. Hann neitar
að hörfa frá Gólan-
hæðum, hafnar sjálf-
stæðu ríki Palestínu-
manna, vill útloka
austurhluta Jerúsal-
em frá friðarviðræð-
unum og boðar
frekara landnám ísra-
ela á herteknu landi
araba. Arabar vöruðu
Netanyahu hins vegar
harðlega við afleiðing-
um þess að víkja frá
fyrri stefnu.
„Slíkt myndi þýða
afturhvarf í friðarferl-
inu og hafa í för með
sér ýmsar hættur.
Svæðið myndi á ný
dragast inn í víta-
hring spennu," sagði í
yfirlýsingu leiðtog-
anna.
Sýnt þykir að Sýr-
lendingar, verstu
fjendur ísraela meðal
arabarikja, hafi farið
með sigur af hólmi á leiðtogafundin-
um en helsta krafa þeirra, brott-
hvarf ísraela frá öllu herteknu
landi, hafi verið sett á oddinn.
Haft var eftir diplómötum á fund-
inum að hann hefði aðallega komið
Yasser Arafat, forseti Palestínu, t.v., og Muammar Gaddafi, leiðtogi Lýbíu, ræðast hér við á
fundi arabaleiðtoga sem fram fór í Kaíró í Egyptalandi um helgina. Símamynd Reuter
Sýrlendingum til góða en al-Assad
forseta hafi tekist að afla viðhorfum
sínum til nýrrar hægristjórnar í
ísrael stuðnings. Þeir sögðu að
fyrstu fimm blaðsíðurnar í níu
síðna samþykkt væru samhljóða
stefnu Sýrlendinga í friðarviðræð-
um við ísraela síðastliðin fimm ár,
þar á meðal kröfunni um að ísrael-
ar hyrfu frá Gólanhæðum og að
landamærin yrðu eins og þau voru
sumarið 1967. Reuter
.LITUR EÐA SVARTBD
ÞU VELUR FORSEIANN
þÚGETURTREBTHONIM.
Þann 29. júní býðst þér að velja ákveðinn og steikan mann í foreetastól, sem lætur ekki bugast þótt á móti blási.
tó getur trcyst því að Ástþór Magnússon mun ekki láta undan þrýstingi irá valdaklíkum eða
stjómarherrum þegar forsetinn þarf að standa vörð um hagsmuni fólksins í landinu. Ás^órhefúreinnig
víðtæka reynslu í viðskiptum á alþjóðlegum vettvangi og mun stuðla að uppbyggingu nýrra
atvinnuvegahér álandi ogvíðtækri kynningu álandi ogþjóð um allan heim.
EKKlTRAUSTSiSVERÐ
Hinn kostuiinn í framboði er tvískinnungsháttur stjómmálanna og litlaus forseti sem líklegt er að hagi seglum
eftir því hvemig vindurinn blæsfrákerfinu. Það hefurkomið bersýnilega í ljós á frambo&fúndum að litlu
' máli skiptir hvem afþessum litlausu frambjóðendum þú velur Enginn jjeirra hefúr viljað gefa
afdráttaiiausa afstöðu gegn þamodmvopnastefiiu rikisstjómarinnar né ganga fram fyrir sþöldu í baráttu fyrir
betri lrfskjörum ílandinumeðþví að gegna forsetaembættinu álaunumsemsamsvarameðallanum
fjölskylduílandinu.
Ki
Ástþór Magnússon
Moður sem sefur ekki ó verðinum
STUDNINGSMENN F R 1 Ð A R
Háþrýstingur
- er mömmu að kenna
Krefjandi starf, kaffidrykkja og
saltát eru aUt þættir sem geta stuðl-
að að of háum blóðþrýstingi. Ekki er
síður mikilvægt að móðir borði rétta
fæðu meðan á meðgöngu stendur.
Geri hún það ekki kann barn hennar
síðar að fá of háan blóðþrýsting.
Þetta eru niðurstöður sem kynntar
hafa verið á ráðstefnu í Glasgow í
Skotlandi.
Við rannsóknir kom m.a. fram að
börnum, sem gefin var saltlítil fæða,
var minni hætta búin of háum blóð-
þrýstingi síðar á lífsleiðinni. Reuter
UPPBOÐ
Framhald uppboös á eftirfarandi
eignum verður háð á þeim sjálf-
um sem hér segir:
Ásgarður 143, 69% hluti, þingl. eig.
Björn Finnsson, gerðarbeiðendur
Búnaðarbanki íslands, Akranesi, ís-
landsbanki hf., útibú 526 og Trygging
hf., föstudaginn 28. júní 1996 kl.
14.00.________________________
Brekkubær 10, kjallari, þingl. eig. El-
ínborg F. Friðgeirsdóttir og Kristján
Valgeirsson, gerðarbeiðandi Erla
Kristín Birgisdóttir, föstudaginn 28.
júní 1996 kl. 15.00.__________
Eyjabakki 13, íbúð á 3. hæð t.h. + bíl-
skúr, þingl. eig. Sveinn V. Kristinsson,
gerðarbeiðendur Húsbréfadeild Hús-
næðisstofnunar og Skúli Magnússon,
föstudaginn 28. júní 1996 kl. 14.30.
Hverfisgata 56, íbúð í v-enda 3. hæð-
ar og ris merkt 0301, þingl. eig. Vigdís
Ósk Sigurjónsdóttir, gerðarbeiðendur
Framkvæmdasjóður íslands, Gjald-
heimtan í Reykjavík, Landsbanki fs-
lands, Höfðabakka, og Lífeyrissjóður
bókagerðármanna, föstudaginn 28.
júní 1996 kl. 13.30.__________
Stóragerði 14, hluti í 1. herb. í kjallara
frá suðvhomi, þingl. eig. Benedikt
Jónsson, gerðarbeiðendur Gjald-
heimtan í Reykjavík og Lífeyrissjóður
rafiðnaðarmanna, föstudaginn 28.
júní 1996 kl. 15.30.__________
SÝSLUMAÐURINN IREYKJAVÍK
Þýskaland:
Páfivm
grýttur
Jóhannes
Páll páfi fékk
slæmar mót-
tökur þegar
helgarheim-
sókn hans til
Þýskalands
lauk í gær.
Að bíl páfans
var hent pok-
um fullum af málningu þegar
hann ók að Brandenborgarhlið-
inu og skullu að minnsta kosti
tveir þeirra á bifreiðinni. Þá
hljóp nakin kona í veg fyrir bíl-
inn en óeirðalögregla átti í
miklu basli með lýðinn. Fjöl-
margir voru handteknir fyrir
óviðeigandi hegðun en meðal
þess sem hrópað var að hinum
76 ára gamla páfa var „farðu til
helvítis" og „kveikjum í páfan-
um“. Leita þarf aftur til 1987 til
að minnast jafn slæmra við-
bragða við heimsókn páfa sem
þá varð á vegi homma og lesbía
í San Francisco.
Nú var það hópur ungra anar-
kista úr Berlín sem stóð fyrir
ólátunum en sá hópur er þekkt-
ur fyrir að reyna að leysa upp al-
mennar samkomur. Þetta var
fyrsta heimsókn páfa til Þýska-
lands frá því landið sameinaðist
en í för með honum í Berlín var
Helmut Kohl kanslari. Ræður
þeirra beggja fóru fyrir ofan
garð og neðan hjá flestum enda
að þeim gerð hróp. Reyndar
horfði meirihlutinn, fjölskyldur
og miðaldra fólk, á þessar aðfar-
ir með vanþóknun en fékk lítið
að gert, rétt eins og lögreglan.
Reuter
Stuttar fréttir
Lok og læs í Kína
Kínverjar hafa hætt við að
bjóða Klaus Kinkel, utanrikis-
ráðherra Þjóðverja, til Kína í júlí
vegna samþykktar þýska þings-
ins um mannréttindabrot í Tí-
bet.
Karadzic hættir
Radovan Karadzic, sem
ákærður hefur verið fyrir stríðs-
glæpi, mun segja af sér sem for-
seti Bosníuserba á næstunni en
halda stöðu sinni sem leiðtogi
Lýðræðisflokks Bosníuserba.
Með forustu
Samkvæmt
niðurstöðum
tveggja skoð-
anakannana
sem birtar
voru i Rúss-
landi í gær er
Borís Jeltsín
með örugga
forustu á Gennadí Zjúganov 10
dögum fyrir aðra umferð forseta-
kosninganna eftir hálfan mánuð.
Lifa á smáræði
Samkvæmt nýrri skýrslu
Heimsbankans um fátækt lifir
meira en fimmtungur jarðarbúa
fyrir upphæð sem er undir 65
krónum á dag.
Unabomber fluttur
Flogið var með Theodore
Kaczynski, sem talið er að sé
Unabomber, frá Kalifomíu til
Montana undir öflugri gæslu.
Þar mun hann svara ákærum
um fjögur sprengjutilræði, þar af
tvö banvæn.
Aukinn þrýstingur
Bill Clinton forseti varð í gær
fyrir þrýstingi frá demókrötum á
Bandaríkjaþingi sem vilja bæla
niður óróa vegna öflunar 400,við-
kvæmra skýrslna frá alríkislög-
reglunni, FBI. Reuter