Dagblaðið Vísir - DV - 24.06.1996, Síða 16
16
MÁNUDAGUR 24. JÚNÍ1996
Fréttir
DV
Ástþór Magnússon forsetaframbjóöandi á beinni línu:
Allt bendir til að hér
séu geymd kjarnorkuvopn
„Mér finnst aö endurskoöa ætti allt stjórnkerfiö, bæöi forsetann og hvernig framkvæmdavaldiö og þingheimur vinn-
ur saman. Þaö vantar aö forsetinn sé sá öryggisventill sem honum var ætlaö. Heföin f huga fólks er oröin þannig aö
forsetinn er bara einhver strengjabrúöa sem dinglar eftir því sem forsætisráöherra og hans fylgisveinum dettur (
hug,“ sagöi Ástþór Magnússon m.a. á beinni línu DV. DV-myndir JAK
„Ég hef fyrir mér heimildir úr
breskum fjölmiölum, til dæmis, að
það sigli kjamorkukafbátar í fiski-
miðunum hér við land. Fjöldi fólks
hefur sagt mér að á Keflavíkurflug-
völl komi flugvélar þar sem öryggis-
gæsla sé langt um fram það sem er
venjulega. Hvort kjamorkuvopn eru
alltaf á Keflavíkurflugvelli eða
koma þar ööm hvoru veit ég ekki,
en þau eru örugglega á ferðinni á
vellinum. Alltaf þegar rætt er um
kjamorkumál er reynt að fela og
hylma yfir. Það er aflt sem bendir
til þess að hér séu geymd kjam-
orkuvopn. Þó að einhverjir ráðherr-
ar séu að spóka sig úti á Keflavíkur-
flugveUi þá efa ég að þeir viti hvern-
ig kjarnorkusprengjur lita út,“
sagði Ástþór Magnússon forseta-
frambjóðandi m.a. á beinni línu DV.
Ástþór var á beinni linu sl. mið-
vikudagskvöld. Töluvert var um
hringingar og bámst Ástþóri fjöl-
margar fyrirspurnir lesenda um
framboð sitt og baráttumál fyrir
kosningarnar 29. júní.
„Ég bauð mig fram vegna þess aö
ég fékk ekki svör við spurningum
mínum. Ein aðalástæðan fyrir því
að ég bauð mig fram var að Davíð
Oddsson forsætisráðherra svaraði
ekki bréfi mínu. Ég fékk t.d. ekki
áheym hjá Davíð fyrr en þaö var
beðið um það frá forseta í Afríku.
Aðrir frambjóðendur tóku friðar-
málin ekki heldur upp og þá ákvað
ég að bjóða mig fram sjálfur,“ sagði
Ástþór m.a. þegar hann var spurður
af hverju hann hefði farið í fram-
boð.
Þeir sem unnu að beinni línu DV
með Ástþóri vom blaðamennimir
Bjöm Jóhann Bjömsson, Stefán Ás-
grímsson, Gísli Kristjánsson, Ingi-
björg Bára Sveinsdóttir og Róbert
Róbertsson. Jóhann A. Kristjánsson
tók allar myndir.
-bjb
Magnús Magnússon,
Reykjavík:
Hver er afstaða þín til þess
hvort tvöföld umferð eigi að vera
fyrir forsetakosningar?
„Eins og embættið er í dag, og
eins og Pétur og hans menn halda
fram, að forsetaembættið sé valda-
laust, þá finnst mér þetta ekki
skipta máli fyrir þjóðina. Kostnaður
yrði bara óþarflega mikill. Ef emb-
ættið ætti að endurskoðast, eins og
mér finnst að eigi að gera, og vera
sterkara og mikilvægara, þá finnst
mér sjálfsagt að taka upp tvöfalda
umferð.
í raun finnst mér að endurskoða
ætti allt stjómkerfið, bæði forset-
ann og hvemig framkvæmdavaldið
og þingheimur vinnur saman. Þaö
vantar að forsetinn sé sá öryggis-
ventill sem honum var ætlað. Hefð-
in í huga fólks er orðin þannig að
forsetinn er bara einhver strengja-
brúða sem dinglar eftir því sem for-
sætisráðherra og hans fylgisveinum
dettur í hug. Þannig hefur þetta þró-
ast að mínu viti og ég tel það mjög
slæmt. Það ýtir undir að valdið sé
ekki nógu dreift í þjóðfélaginu."
Árni Björnsson, Reykjavík:
Þú sagðir í DV einu sinni að þú
værir klukkan sem vekti þjóðina.
Ef miðað er við kannanir er þá
klukkan ekki biluð eða þjóðin
ekki að hlusta?
„Ég held að þjóðin sé að hlusta
meira og meira. Sumir sofa svo
vært að það tekur nokkurn tíma að
vekja þá. Aðrir eru alltaf að ýta á
takkann og vilja sofa aðeins lengur.
Það er bara tímaspursmál hvenær
ég verð búinn að vekja upp alla
þjóðina."
Guörún Árnadóttir, Reykja-
vík:
Ertu enn þeirrar skoðunar að
einhver öfl í þjóðfélaginu vinni
gegn þér bak við tjöldin?
„Það gerðist hjá mér á kynningu
í Keflavík á dögunum að einn mað-
ur sagðist hafa verið á fundi í
Reykjavík með sjálfstæðismönnum.
Fundarefnið hefði verið hvemig
hægt væri að hægja á honum Ást-
þóri. Þar kom fram ýmislegt varð-
andi þetta Eureka-auglýsingafyrir-
tæki. Menn hefðu orðiö varir við að
framboð mitt væri í ónáö hjá Davíð
Oddssyni. Þessi maður sagði að
honum hefði ofboðið svo umræðan
að hann hefði gengið út af fundin-
um og sagt sig úr Sjálfstæðisflokkn-
um.“
Jón Jóhannsson, Reykjavík:
Mér finnst þú langpólitískast-
ur af frambjóðendunum í þínum
friðarboðskap. Væri ekki nær
fyrir þig að fara í framboð til
þingkosninga?
„Ég er ekki flokkspólitískur og
veit ekki i hvaða flokki ég ætti að
vera. Það er ekki rétt að ég sé póli-
tískur. Það er líka pólitík hvemig
keypt er í matinn. Hins vegar veit
ég ekki hvort mig langar inn á þing.
Ég las það í Mogganum að það séu
bara þrír menn á íslandi sem ráði
öllu. Ég veit ekki hvort ég hef þá
áhuga á að dingla þarna sem einn af
hinum 60.“
Kristinn Guömundsson,
Kópavogi:
Ef þú værir ekki í framboði,
hvem myndir þú þá styðja?
„Það eru bara tveir valkostir í
þessum forsetakosningum. Það er
ég, sem þori að tala, og svo hinir
sem eru með plástur fyrir talandan-
um á sér og þora ekki að segja neitt
nema það sem passar stjómvöldum
að heyra. Þeir em allir orðnir mál-
pípur kerfisins, munu allir sitja og
standa eins og þeim er sagt. Aftur á
móti þori ég að tala og læt engan
líma plástur fyrir kjaftinn á mér.
Þess vegna er ég eini raunhæfi kost-
urinn fyrir fólk, ef það vill einhverj-
ar breytingar. Ef fólk vill engar
breytingar þá er ég ekki rétti val-
kosturinn. Þess vegna gæti ég ekki
hugsað mér að kjósa annað, ef ég
væri ekki í framboði. Þetta er allt
það sama. í því tilfelli mætti eins
vel eiga vaxmynd og góðar upptök-
ur af Vigdísi og notast við það á
meðan hún er á eftirlaunum."
Páll Pálsson, Hafnarfiröi:
í hvaða landi eða löndum hefur
þú og Friður 2000 talið fram þær
miklu tekjur sem þið hafið afiað
ykkur á tiltölulega stuttum tíma
og hvar hafið þið greitt tekju-
skatt? ' _
„Friður 2000 hefur ekkert aflað
gífurlegra tekna, það er ekkert byrj-
uð fjáröflun hjá okkur að neinu
marki. Þannig að það sem hefur
verið aflað t.d. hjá Friði 2000 í sam-
bandi við flugið til Sarajevo, það
vom framlög frá einstaklingum og
einhverjum fyrirtækjum hér innan-
lands núna fyrir jólin og það kemur
fram í ársreikningum sem verða
birtir hér, sem og annars staðar.
Hvað mig varðar þá hef ég starfað
á alþjóðlegum vettvangi og mitt fyr-
irtæki hefur verið á eyjunum Jers-
ey og British Virgin Islands, sem
em skattfrelsiseyjar. En ég hef sjálf-
ur greitt mína skatta og gjöld, bæði
í Bretlandi og á íslandi.“
Eyþór Ómarsson, Hellu:
Þú hefur talað um að gera ís-
land að forystulandi í friðarmál-
um fyrir árið 2000. Friður er auð-
vitað góður og flott að tryggja
börnunum frið og öryggi fyrir
kjarnorku, en er ekki hætta á að
innanríkisstefnan gleymist? Hef-
ur það ekki lítið komið fram
hvað þú hyggist gera i hefð-
bundnum kosningaloforðum?
„Nei, það hefur komið fram að ég
er ekkert að gleyma innanríkismál-
unum. Ég hef t.d. talað um það að
það sé mikið atriði að forsetinn sé á
launum sem samsvara meðallaun-
um fjölskyldna í landinu, vegna
þess að það myndi virka eins og
eins konar vísitala á það sem síðar
myndi tíðkast í öllu kerfinu og ef
forsetinn gengur fram fyrir skjöldu
og sættir sig við að búa við það
sama og lifa við sömu kjör og fólkið
í landinu þá er miklu líklegra að
aðrir embættismenn muni þróast í
sömu átt. Þegar þeir byrja aö þróast
í sömu átt þá mun hagur almenn-
ings í landinu þróast upp á við ef
kjörin eru bág.“
Eyþór Ómarsson, Hellu:
Ef þú ætlar að gera ísland að for-
ystulandi í friðarmálum þá þýðir
það gríðarlega kynningu á landinu?
„Ég tel hægt að útvega fjármagn í
slíkt víða að úr heiminum. Það er
orðið þannig að 94% af viðskiptum í
heiminum byggjast á friði. Það eru
37 þúsund alþjóðleg fyrirtæki í
heiminum sem raunverulega geta
ekki starfað að neinu marki nema
það sé heimsfriður. Brytist út
heimsstyrjöld þá myndi riðlast mik-
ið af þessari starfsemi. Það eru ekki
nema um 6% af viðskiptum í heim-
inum sem tengjast hemaði. Félög
eins og t.d. Boeing- verksmiðjumar,
sem framleiða flugvélar sem að
stærstum hluta eru farþegavélar,
ekki herflugvélar þó að svo hafi ein-
hvem tima verið, er lýsandi dæmi
um mikla hagsmuni af því að styðja
friðarmál.
Ég ætti kannski að nefna það hér
að Boeing-verksmiðjurnar studdu
flugið okkar til Sarajevo með miflj-
ón króna framlagi, þannig að þær
era dæmi um eitt af þeim fyrirtækj-
um sem styðja myndu íslenska frið-
arbaráttu undir forystu forsetans."
Sigríöur Geirsdóttir,
Reykjavík:
Þú sagðir í upphafi baráttunn-
ar að þú værir ekkert endilega að
sækjast eftir embætti forseta en
vildir nota þetta tækifæri til að
koma þínum skoðunum á fram-
færi. Ertu þá ekki að misnota að-
stöðu þína og forsetaembættið?
„Nei, ég er að segja að forseta-
embættið geti verið leiðandi afl til
að vísa okkur veginn fram á við,
þannig að við förum ekki fram af
bjarginu þar sem við stöndum í dag.
Við sofum einhverjum værðar-
blundi meðan allt er að fara á helj-
arþröm í kringum okkur.
Þegar ég fékk í fyrstu ekki hljóm-
grunn hjá hinum frambjóðendunum
um að þeir vfldu tala fyrir friðar-
málunum þá var ekki um annað að
ræða en að bjóða mig fram sjálfur
til að vinna enn frekar að þessum
málum.“