Dagblaðið Vísir - DV - 24.06.1996, Síða 25
MÁNUDAGUR 24. JÚNÍ 1996 37
STEINSTEYPUSÖGUN
KJARNABORUN
•múrbrot
•VIKURSÖGUN
• MALBIKSSÖGUN
Sími/fax 567 4262,
853 3236 og 893 3236
ÞRIFALEG UMGENGNI VILHELM JÓNSSON
NYTT
- TYGGJÓ - NÝTT
Er Chroma Trim tyggjóið besta
leiðin til að losna við aukakíióin?
Eykur brennslu. Eykur orku. Byggir upp
vöðvavefina. Dregur úr matarlöngun.
Mest seldi megrunarkúr í Ameríku.
ÚTSÖLUSTAÐIR: APÓTEKIN,
STÚDÍÓ DAN, ÍSAFIRÐI, og
HEILSUHORNIÐ, SELFOSSI,
eða uppl. í síma 567 3534.
BftSKÚRS
OG IÐNAÐARHURÐIR
Eldvarnar- Öryggis-
hnrriir GIÓFAXIHE hnrAir
iiuroir ármúla 42 • sími 553 4236 iiuroir
Smágröfuþjónusta - Lóðaframkvæmdir
JCB smágrafa á gúmmíbeltum Kemst inn um meters breiðar dyr.
með fleyg og staurabor. Skemmir ekki grasrótina.
Ýmsar skóflustærðir.
Efnlsflutningur, jarðvegsskipti,
þökulögn, hellulagnir,
stauraborun og múrbrot.
Ný og öflug tæki.
Guðbrandur Kjartansson
Bílasímar 893 9318 og 853 9318
Loftpressur — Traktorsgröfur
Brjótum hurðargöt, veggi, gólf,
innkeyrslur, reykháfa, plön o.fl.
Hellu- og hitalagnir.
Qröfum og skiptum um jarðveg í
innkeyrslum, görðum o.fl.
Útvegum einnig efni. Qerum
föst tilboð. Vinnum einnig á
kvöldin og um helgar.
VÉLALEIGA SÍMONAR HF.,
SÍMAR 562 3070, 852 1129, 852 1804 og 892 1129.
Steiiisteypusögun Cí.T.
Steypusögiui, múrbrot,
kj arnaborun
Sögum fyrir dyraopum og gluggum
Kjarnaborum fyrir lögnum
Þrifaleg umgengni, áralöng reynsla
Smiar 892 9666 og 557 4171
Sfmi: 554 2255 • Bfl.s. 896 5800
L0SUM STÍFLUR ÚR
Wc
Vöskum
Niðurföllum
O.fl.
VISA/EURO
ÞJ0NUSTA
, ALLAN
S0LARHRINGIN
10 ÁRA REYNSLA
VÖNDUÐ VINNA
Ný lögn á sex klukkustundum
í stab þeirrar gömlu -
Nú er hcegt aö endurnýja gömlu rörin,
undir húsinu eba í garbinum,
örfáum klukkustundum á mjög
hagkvœman hátt. Cerum föst
verötilbob í klœöningar
á gömlum lögnum.
Ekkert múrbrot,
ekkert jarbrask
24 ára reynsla erlendis
nsmwmm
Myndum lagnir og metum
ástand lagna meb myndbandstœkni áöur en
þú þarft ekki ab grafa!
lagt er út í kostnaöarsamar framkvœmdir.
Hreinsum rotþrœr og brunna, hreinsum
lagnir og losum stífíur.
Hreinsibílar hf. Bygggöröum 6
Sími: 551 51 51
Þjónusta allan sólarhringinn
Geymið auglýsinguna.
Dyrasímaþjónusta
Raflagnavinna
ALMENN DYRASÍMA- OG
RAFLAGNAÞ JÓNUST A.
Set upp ný dyrasímakerfi og geri við
eldri. Endurnýja raflagnir í eldra húsnæði
ásamt viðgerðum og nýlögnum.
Fljót og góð þjónusta.
JÓN JÓNSSON
LÖGGILTUR RAFVERKTAKI
Sími 562 6645 og 893 1733.
FJARLÆGJUM STIFLUR
úr vöskum.WC rörum, baðkerum og niður-
föllum. Við notum ný og fullkomin tæki.
RÖRAMYNDAVÉL
til að skoða og staðsetja
skemmdir í WC lögnum.
VALUR HELGASON
8961100*568 8806
DÆLUBÍLL 568 8806
Hreinsum brunna, rotþrær,
niðurföll, bílaplön og allar
# stíflurífrárennslislögnum.
VALUR HELGASON
Er stíflað? - stífluþjónusta
f'/ Virðist rennslið vafaspil,
_ vandist lansnir kunnar:
— bugurinn stcfnir stöðugt til
stifluþjónustunnar.
Fjarlægi stíflur úr frárennslisrörum, innanhúss og utan.
® 9 Þj sta. Heimasími 587 0567
Sturlaugur Jóhannesson Fars. 892 7760
Skólphreinsun Er stíflað?
Fjarlægi stíflur úr wc, vöskum, baðkerum og niðurföllum.
Nota ný og fullkomin tæki, rafmagnssnigla.
Röramyndavél
til að mynda frárennslislagnir og staðsetja skemmdir.
œ
Asgeir Halldórsson
Sími 567 0530, bílas. 892 7260 og
852 7260, símboði 845 4577 '
Menning
Ferskur endasprettur
- Karl Kvaran í Norræna húsinu
Abstraktið eða konkretlistin er ein
sterkasta listastefna seinni hluta þessarar
aldar. Stefna þessi hélt innreið sína hér á
landi í kringum 1950 með septembersýning-
unum og átti sitt blómaskeið árin þar á eft-
ir. Fljótlega upp úr því varð tær einfaldleiki
naumhyggjunnar að alþjóðlegri hreyflngu
sem náði þó ekki landfestu hér fyrr en líða
tók á áttunda áratuginn. Nú er svo komiö að
konkretlist og naumhyggja mynda sterkustu
alþjóðlegu straumana í myndlist ásamt um-
hverfislist. í skrá sýningar á síðustu verkum
Karls Kvarans í Norræna húsinu lætur
Björn Th. Björnsson aö því liggja að konkret-
listin sé sterkasta alþjóðlega stefnan eftir
1945 vegna þess að þar þirtist andsvar með
traustri skipun og hreinum gildum við upp-
lausn og formleysi sprengjuógnar og kalda-
stríðs.
Ferskleiki tvö síðustu árin
Karl Kvaran (1924-1989) var hvað staðfast-
astur fylgismaður konkrethugsunar og
hreinnar og klárrar myndskipunar meðal
hérlendra myndlistarmanna á árunum eftir
1950. Spenna formanna var hans aðalsmerki
og við skoðun þessarar sýningar á síðustu
verkum hans, frá árunum 1984-1989, verður
ljóst að hann var á hátindi ferils síns er
hann lést 65 ára að aldri árið 1989. Margir
eru á því að listamenn nái fyrst fullkomnum
tökum á list sinni eftir sextugt. Þó ekki sé
réttlætanlegt að slá slíku fram um Karl
Kvaran er jafn ljóst að það er meiri fersk-
leiki og meiri spenna í myndunum er hann
gerði tvö síðustu árin en árin þar á undan.
Hin hreinu og kláru gildi
Verk, sem parast vel saman eins og nr. 1
og 2 og 6 og 7, öll frá 1988, standa að mínu
Myndlist
Olafur J. Engilbertsson
mati upp úr á sýningunni og eru til vitnis
um að Karl Kvaran var að blómstra í list
sinni á þessu tímabili. Hin hreinu og kláru
gildi virðast hér líða áreynslulaust fram líkt
og náttúrulögmál en ekki sem frelsisheftandi
reglukerfi. Karl innleiddi hinar ávölu og
mjúku línur eftir að kona hans, Sigrún, lést
árið 1970. Lætur Björn Th. að því liggja að
sýningin næst þar á eftir, þar sem ávalar lín-
ur voru allsráðandi, hafi verið eligia Karls
um konu sína. Hér er líkt og þetta tímabil sé
rifjað upp og vera má að í þvi felist forspá
um leiðarlok og endurfundi.
Klassík og kirkjulist
Karl var alls óhræddur við að feta ljóð-
rænar brautir við að nefna myndir sínar,
ólíkt flestum naumhyggjumanninum, sem
vill láta verkið tala. Ugglaust ræður því að
hann átti eftir að nefna þær nýjustu að svo
margar myndir eru án titils á sýningunni.
En myndheiti eins og Kynjaskógur og Dulin
erótík bera vott um að hann hafi haft lúmsk-
an húmor gagnvart lífsgildunum. Tærleiki
formanna er líkt og endurspeglun hreinna
hljóma, enda mun Karl hafa verið mikill
unnandi klassískrar tónlistar. Glerlist kem-
ur einnig upp í hugann vegna þess hvernig
svart rammar inn tæra liti í verkunum og
vísar eitt sterkasta verk sýningarinnar,
Kaleikur lífsvonarinnar, því til áréttingar til
kirkjulistar. Eldri verk sýningarinnar, eins
og Trúðu á tvennt í heimi (1984-85) eru stað-
fastari og þyngri. Það er eins og það hafi
komið andvari inn í líf Karls Kvarans síð-
ustu tvö árin og fyrir þá innsýn ber að þakka
FÍM og Norræna húsinu. Sýningin stendm-
til 30. júní.