Dagblaðið Vísir - DV - 24.06.1996, Side 32
44
MÁNUDAGUR 24. JÚNÍ 1996
Eru aldraðir ekki í náðinni?
Ellin, vond
fjárfesting?
„Það er sérstaklega áberandi
upp á slðkastið hve rækilega er
haldið að almenningi tölum sem
sýna hve óhagkvæm og dýr og
vond ellin er.“
Árni Bergmann, í DV.
Það vitlausasta
„Það vitlausasta sem íslensk
hljómsveit gæti gert til að ná at-
hygli erlendis væri að hljóma
eins og ensk hljómsveit."
Björk, í Morgunblaðinu.
Ummæli
Skpra á Hannes
„Ég skora hér með á Hannes
Hólmstein Gissurarson að lyfta
lokaspretti kosningabaráttunnar
á mun hærra og málefnalegra
plan með að hætta að taka þátt í
henni.“
Davíð Þór Jónsson, i Alþýðubl.
Er þetta hægt?
„Er þetta hægt? Síðan mundi
ég eftir að Bryndís hafði sagt af
sér sem utanríkisráðherrafrú og
þá er líklega allt hægt.“
Gunnar Smári Egilsson, i Alþýðu-
blaðinu.
Alræmd húsaþyrping
„í dag er ljóst að flugstöðin
trónir fremst á meðal jafningja í
alræmdri húsaþyrpingu íhalds-
ins og skyggir næstum á Ráðhús,
Perlu og Korpúlfsstaðafjós."
Ásgeir Hannes, í Tímanum.
Flestir hlaupa sér til ánægju en
margir hafa einnig náð ótrúleg-
um árangri.
Lengstu hlaupin
Lengsta nlaup án hvíldar, sem
skrár ná yfir, er 568 km á 121
klst. og 54 mín., en það hljóp Sví-
inn Bertil Járluker í Norrköping
í Svíþjóð, 26.-31. maí 1980. Hann
var á hreyfingu 95,04% af tíman-
um.
Lengsta kapphlaupið
Lengstu kapphlaup, sem farið
hefur verið, er hlaup þvert yfir
Bandaríkin, frá New York til Los
Blessuð veröldin
Angeles (5898) árið 1929. Sigur-
vegari var Johnny Salo, finnsk-
ur að uppruna. Hann fór vega-
lengdina á 79 dögum og var tæp-
ar 526 klst. (meþalhraði 11,21 km
á klst.). Það munaði þó ekki
nema rúmum tveimur mínútum
á honum og næsta manni, sem
var Peter Gavuzzi, frá Englandi.
Lengsta árlega
kapphlaupið
Lengsta kapphlaup sem haldið
er árlega er Australia’s Westfield
Run sem fram fer á milli Sydney
og Melbourne. Vegalengdin er
nokkuð breytileg en metið á
Grikkinn Yiannis Kouros. Hann
vann hlaupið 1985 og hljóp 1060
km á 5 dögum, 14 klst. og 47 mín.
Kaldi eða
stinningskaldi
Um landið vestanvert verður suð-
læg átt, kaldi eða stinningskaldi víð-
ast hvar, rigning fram eftir morgni
Veðrið í dag
en síðan dálítil súld með köflum.
Suðaustanlands verður sunnan og
suðvestan kaldi og súld eða rigning
um morguninn en síðan skýjað að
mestu og úrkomulítið. Norðanlands
verður sunnankaldi, skýjað að
mestu en víðast þurrt. Hiti verður á
bilinu 10 til 22 stig, hlýjast á Norð-
urlandi.
Sólarlag í Reykjavík: 24.04
Sólarupprás á morgun: 2.57
Síðdegisflóð í Reykjavík: 24.31
Árdegisflóð á morgun: 00.31
Veðrió kl. 12 á hádegi i gœr:
Akureyri skýjaó 16
Akurnes hálfskýjaö 15
Bergsstaðir skýjað 15
Bolungarvík skýjaó 12
Egilsstaóir skýjaö 16
Keflavíkurflugv. alskýjaö 11
Kirkjubkl. háifskýjaö 17
Raufarhöfn alskýjað 9
Reykjavík mistur 12
Stórhöfói rigning 12
Helsinki skýjað 17
Kaupmannah. hálfskýjaö 16
Ósló léttskýjað 19
Stokkhólmur hálfskýjaö 19
Þórshöfn hálfskýjaó 13
Amsterdam rign. á síö. klst. 13
Barcelona hálfskýjaö 20
Chicago heiöskírt 16
Frankfurt skýjað 15
Glasgow skýjaó 18
Hamborg alskýjaö 12
London skýjaö 18
Los Angeles léttskýjaö 16
Lúxemborg skýjaö 12
Madríd léttskýjað 23
París skýjaó 15
Róm léttskýjaö 22
Valencia hálfskýjaö 25
New York heiöskirt 19
Nuuk þoka á síð. klst. 2
Vín skúr 12
Washington hálfskýjaö 26
Winnipeg alskýjaö 9
Kjartan Helgason, eigandi Istravel:
Strætisvagnaferðir með flugi
DV, Suðurnesjum:
„Ferðaskrifstofan Istravel hefur
verið til síðan 1977 og átti 19 ára
afmæli nýlega. Ég er hins vegar
búinn að vera i þessum bransa síð-
an 1963. Það hefur verið mikil og
stöðug þróun í þessu síðan ég byrj-
aði. í dag erum við að gera stór-
góða hluti í sölu farseðla um heim
allan," sagði Kjartan Helgason,
eigandi Istravel.
Ferðaskrifstofan hóf að fljúga
tvisvar í viku á milli Keflavíkur
og Amsterdam í byrjun júní. Flog-
ið er með hollenska flugfélaginu
Transaviu.
„Þetta flugfélag er ekki þekkt
Maður dagsins
hér á landi en við erum að kynna
það. Það er 80% í eigu flugvélaris-
ans KLM og er allur flugflotinn
nýlegur. Þetta er traust og gott
flugfélag. Farþegar okkar hafa ver-
ið ánægðir með flugfélagið og
þjónustuna um borð. Þá er þjón-
ustan hjá Flugleiðum til mikillar
fyrirmyndar."
Kjartan segir að stórir hlutir
séu að gerast í fluginu. „Stærstu
hlutimir, sem eru að gerast í flug-
inu í heiminum, er það sem er ver-
ið að gera með tilkomu sjötta rétt-
arins. Flugfélög geta flogið án tak-
markana og fá meira frelsi til að
fljúga á milli landa og sameina
flugfélög. Það eru félög núna að
sameinast í svokallaða heimsrútu.
Það þýðir ekkert í dag að vera
bara með samstarf á milli tveggja
landa. Málið í dag er að geta ferð-
ast í strætisvagnaferðum með
flugi. Við erum í samstarfi við yfir
níu stór flugfélög sém fljúga um
allan heim. Þess vegna getum við
boðið þetta hagstæða fargjald.“
Kjartan ætlar einnig að ná Hol-
lendingum til landsins. „Við ætl-
um að reyna að koma með þá
hingað heim. Við ætlum að vera
með tilboð á mjög góðu verði í
sumarbústaði hér í vetur. Við
reiknum með að geta aukið tekjur
íslenskra bænda og þeirra sem
starfa að gistingu í landinu um
milljónir króna á næsta vetri og í
framtíðinni."
Kjartan átti 74ra ára afmæli ný-
lega og vakti mikla athygli eig-
enda Transaviu fyrir hressleika.
„Ég er búinn að fara í tékk og það
er ekkért að mér. Ég finn það að
ég er farinn að eldast og er ekki
eins og fyrir 20 árum. Ég reyni að
labba eins og ég get og það eina
sem er að mér er að ég hreyfi mig
of lítið. Ég vildi á köflum að ég
væri í landbúnaði nokkra tíma á
dag með skóflu og haka.“
Áhugamál Kjartans eru nokkur:
„Ég er gamall pólitíkus og les mik-
ið um pólitík. Þá er ég mikið i
sögu og ættfræði og les allt sem ég
næ I um land og þjóð, fólkið og
náttúruna og allt það.“
Eiginkona Kjartans er Ingibjörg
Einarsdóttir og eiga þau fjögur
börn saman; Björgu, Ólínu, Einar
Helga og Gunnar Braga sem er
framkvæmdastjóri Istravel. Kjart-
an á eina dóttir frá fyrra hjóna-
bandi, Kristínu, sem býr í Amman
í Jórdaníu. -ÆMK
Hallar réttu máli. Myndgátan hér að ofan lýsir orðasambandi
DV
Fylkir sem hér sést í leik gegn
Stjörnunni fær KR-inga í heim-
sókn.
Fjórir leikir í 1.
deiid karla
Fyrsti leikurinn í 5. umferð i
1. deild karla á íslandsmótinu í
knattspyrnu var leikinn 16. júni
og voru það Valur og Keflavik
sem þar áttust við. í kvöld verð-
ur haldið áfram og fimmta um-
ferðin kláruð. Á Fylkisvelli tek-
ur Fylkir á móti hinu sterka liði
KR, í Grindavík leika heima-
menn gegn ÍBV, Breiðablik fær
íslandsmeistara Akraness í
íþróttir
heimsókn og á Ólafsfjarðarvelli
leika Leiftur og Stjaman. Allir
leikimir hefjast kl. 20. Sjötta um-
ferðin verður svo öll leikin næst-
komandi fimmtudagskvöld.
Einn leikur er í kvöld í Mjólk-
urbikar kvenna, fer hann fram á
Varmárvelli í Mosfellsbæ og eig-
ast þar við Afturelding og FH og
hefst leikurinn kl. 20. Þá fara
fram fjórir leikir í 3. deild karla,
þar mætast Fjölnir og Víðir,
Grótta og Ægir,
Bridge
Bilið milli sigurs og taps getur oft
verið ótrúlega lítið og oft ræður
heppni ein hvernig spilin fara. Hér
er dæmi um spil, þar sem niðurstað-
an gat orðið á hvorn veginn sem
var. Spilið kom fyrir í sveitakeppni
milli tveggja danskra sveita, Team
Danfoss og Steen Schou. Sagnir
gengu þannig í lokuðum sal, norður
gjafari og allir á hættu:
* ÁG743
»4 x
* D95
* D874
* 986
•* KG92
♦ KG1082
4 3
* 10
D1087653
♦ 7
4 G965
Norður Austur Suður Vestur
pass pass 24 dobl
pass pass 3* dobl
p/h
Suður beitti opnun sem vinsæl er í
Danmörku og kölluð er „Blakset"
eftir samnefndum spilara. Tveir
spaðar er eingöngu til hindrunar og
segir ekkert um höndina sem opnar,
annað en að hún er undir opnunar-
styrk. Hönd suðurs er óvenjulega
góð, en þróun sagna varð ekki hag-
stæð fyrir hann. Suður tapaði 7
slögum í 3 hjörtum dobluðum, 4 á
tromp, 2 á lauf og hjartaás. Það var
800 í dálk a-v. Sagnir gengu þannig
í opnum sal:
Norður Austur Suður Vestur
pass . pass 24- dobl
2» 3-f pass 64
p/h
Suður kaus að opna á multi- sagn-
venjunni tveimur tíglum. Hún lofar
alla jafna 6 spilum í hálit, þó sagn-
hafi hafi í þessu tilfelli átt 7 spil.
Þegar norður sagði tvö hjörtu, átti
austur fyrir sögninni þremur tígl-
um og hver getur álasað vestri fyrir
að stökkva beint í slemmuna við
þeirri sögn. Það eru ekki margir
tapslagir sjáanlegir á vesturhend-
inni. En norður spilaði út spaðaásn-
um, sendi félaga sínum stungu í
litnum og sagnhafi hitti heldur ekki
í tígullitinn. N-s græddu því 200 í
spilinu og sveiflan 14 impar. Svei-
flan jaðrar hins vegar við hreina
heppni til þeirra sem græddu á spil-
inu. ísak Örn Sigurðsson
* KD52
•* Á
4 Á643
4 ÁK102