Dagblaðið Vísir - DV - 24.06.1996, Blaðsíða 5
24
MÁNUDAGUR 24. JÚNÍ 1996
MÁNUDAGUR 24. JÚNÍ 1996
25
íþróttir
íþróttir
David Seaman, markvöröur
enska landsliösins, fékk 9 i ein-
kunn hjá Reuter-fréttastofunni
fyrir frammistöðu sína gegn
Spánverjum. Margir eru á því að
Seman sé besti markvörður
keppninnar.
Tony Adams, Gareth Southga-
te, Stuart Pearce og Steve
McManaman fengu 8 í einkunn.
Gary Neville, David Platt, Paul
Gadcoigne, Darren Anderton,
Alan Shearer og Teddy Shering-
ham fengu 7 í einkunn.
Hjá Spánverjum var hæsta
einkunnin 8. Hana fengu mark-
vörðurinn Zubizarreta, Nadal,
Amor, Barjuan og Narvaez.
-SK
Seaman meö 9
Klinsmann
er ánægður
í fyrsta skipti á stórmóti í
knattspymu er fyrirkomulag
framlengingar þannig að um leið
og annað liðið skorar lýkur leik.
Jurgen Klinsmann er mjög
ánægður með þetta nýja fyrir-
komulag en þjálfari hans, Berti
Vogts, finnur því flest til foráttu.
-SK
Olía á eldinn
ítalskir fjölmiðlamenn eru
æfareiðir vegna frammistöðu
ítalska liðsins á EM.
Til að skvetta olíu á
Gríðarleg fagnaðarlæti brutust út um allt England um helgina eftir að Ijóst var að enska landsliðið í knattspyrnu hafði tryggt sér keppnisrétt í undanúrslitum Evrópukeppninnar í knattspyrnu. Dansað var á
götum úti langt fram eftir nóttu en þrátt fyrir allar hrakspár höguðu stuðningsmenn enska liðsins sér mjög vel og aðeins 16 voru handteknir. Ungir stuðningsmenn enska liðsins létu ekki sitt eftir liggja.
eldinn sagði Arrigo
Sacchi, þjálfari ítala, í
gær, að hann hefði
ekki gert nein mistök
á EM. í kjölfarið
heimtuðu ítalskir fjöl-
miðlar höfuð Sacchis.
Skoðanakönnun á
Ítalíu sýndi að vin-
sældir Sacchis hafa
minnkað stórlega.
84% þeirra sem tóku
þátt í könnuninni,
vildu að Sacchi hætti
með liðið og vildu fá
Cesare Maldini, föður
vamarmannsins Pa-
olos Maldini, sem eft-
irmann Sacchis.
-SK
Ánægður
forseti
Lennart Johansson,
forseti UEFA,
Knattspymusam-
bands Evrópu, er yfir sig ánægð-
ur með framgang Evrópukeppn-
innar.
Hann hefur hælt Englending-
um fyrir framkvæmd keppninn-
ar og þeim áhorfendum sem lagt
hafa leið sína á leikina.
„Við hjá UEFA vomm aldrei í
minnsta vafa um að enska knatt-
spyrnusambandið og ensk yfir-
völd myndu ráða við fram-
kvæmd þessa móts. Það hefur
líka komið í Ijós aö allt er hér í
stakasta lagi,“ sagði Lennart Jo-
hansson.
-SK
Burt með allar
vítakeppnir
UEFA hefur ekki tekist að „út-
rýma“ vítakeppnum úr knatt-
spymunni með nýrri reglu um
framlengingu þar sem leik er
hætt er skorað er.
Vítakeppnir em ljóður á stór-
mótum og það á ekki að þekkjast
að úrslit leikja ráðist í happ-
drætti á vítapunktinum. -SK
Frakkland (0) (0) 5
Holland (0)(0)4
Ekkert mark var skorað
i venjulegum leiktíma og
framlengingu.
Zinedine Zidane, Youri
Djorkaeff, Bixente Lizar-
uzu, Vincent Guerin og
Laurent Blanc skoruðu úr
vítum fyrir Frakka í víta-
spyrnukeppninni.
Johan De Kock, Ronald
De Boer, Patrick Kluivert
og Danny Blind skoruðu
fyrir Holland í vítaspyrnu-
keppninni.
Lið Frakklands: Lama, Lizar-
uzu, Blanc, Desailly, Thuram,
ZZidane, Guerin, Deschamps,
Karembeu, Loco, Djorkaeff.
Lið Hollands: Van der Sar,
Reiziger, Blind, De Kock, Bog-
arde, De Boer, Cocu, Witschge,
Cruyff, Kluivert, Bergkamp.
Portúgal (0) 0
Tékkland (0) 1
O-l Karel Poborsky.
Liö Portúgals: Vitor Baia -
Carlos Secretario, Oceano,
Ferando Couto, Joao Pinto,
Ricardo - Sa Pinto, Rui Costa,
Dimas, Helder - Sousa, Figo.
Lið Tékklands: Petr Kouba,
Radek Latal, Jan Suchoparek,
Miroslav Kadlec, Vaclav
Nemecek - Jiri Nemc, Karel
Poborosky, Javel Kuka, Radek
Bejbl - Michal Homak,
Vladimir Smicer.
Leikstaður: Villa Park.
Dómari: Hellmut Krug,
Þýskalandi.
Áhorfendur: 36.000.
Þýskaland (1) 2
Króatía (0) 1
1-0 Jurgen Klinsman (21)
1- 1 Davor Suker (51.)
2- 1 Matthias Sammer (59.)
Lið Þýskalands: Andy Köpke
- Matthias Sammer, Thomas
Helmer, Markus Babbel,
Stefan Reuter - Dieter Eilts,
Christian Ziege, Mehmet
Scholl (Thomas Hessler 88.),
Andy Möller - Jurgen
Klinsmann ( Steffan Freund
39.), Fredi Bobic (Stefan Kuntz
46.)
Lið Króatiu: Drazen Ladic -
Nikola Jurcevic (Mladen
Mladenovic 78.), Mario Stanic,
Robert Jarni, Igor Stimac,
Slaven Bilic - Nikola Jerkan,
Aljosa Asanovic, Zvonimir
Boban - Davor Suker, Goran
Vlaovic.
Leikstaður: Old Trafford.
Dómari: Leif Sundell, Sviþjóð.
Áhorfendur: 43.412.
England (0) (0)4
Spánn (0) (0) 2
Ekkert mark var skorað
í venjulegum leiktíma og
framlengingu.
Alan Shearer, David
Platt, Stuart Pearce og
Paul Gascoigne skoruðu
allir örugglega úr sínum
vítaspyrnum.
Guillermo Amor skor-
aöi og Alberto Belsue
skoruðu fyrir Spánverja.
Lið Englands: Seaman,
Neville, Pearce, Adams, Sout-
hgate, Platt, Gascoigne, And-
erton (Fowler 109.),
McManaman (Barmby (109.),
Sheringham (Stone 109.), She-
arer.
Lið Spánar: Zubizarreta,
Belsue, Alkorta (Lopez 74.),
Abelardo, Barjuan, Hierro,
Nadal, Amor, Manjarin
(Caminero 46.), Narvaez, Sal-
inas (Perez (46.)
Hollendingurinn Clarence Seedorf, fyrir miðri mynd, gleymir örugglega seint laugardeginum á EM. Hann misnotaði
dauðafæri á lokamínútunum gegn Frökkum og síðan vítaspyrnu í vítaspyrnukeppninni. Símamynd Reuter
„Pearce vildi
taka vítiö“
- sagði Terry Venables
„Stuart Pearce var stór-
kostlegur í þessum leik
og ekki hvað síst í víta-
spyrnukeppninni. Ég var
í mjög miklum vafa um
hvort ég ætti að leggja
það á hann að taka víti en
hann bað um það sjálfur
að fá að taka þriðja vítið,“
sagði Terry Venables,
landsliðsþjálfari Énglend-
inga, eftir sætan sigur
enskra á Spánverjum.
„Ég vissi að þetta var
frábært tækifæri fyrir Pe-
arce til að jafna metin eft-
ir það sem gerðist á HM
1990. Þegar hann síðan
sagði við að hann ætlaði
að taka víti númer þrjú
hafði ég í raun engra
kosta völ,“ sagði Vena-
bles.
Stuart Pearce hefur
ekki skemmtilega reynslu
úr vítaspyrnukeppnum
enska landsliðsins. Á HM
1990 tók hann vítaspymu
og misnotaði spyrnuna.
Hann sagði í gær að þessi
hræðilega lífsreynsla
hefði verið að angra hann
enn þann dag í dag.
Venables sagði enn
fremur: „Þetta var mjög
erfiður leikur og þegar
fer að líða á svona mót
verða leikirnir alltaf erf-
iðari og erfiðari. Mínir
menn stóðu sig stórkost-
lega í þessum leik. Ég
held að allir hafi skemmt
sér vel á þessum leik. Nú
tekur við einn erfiði leik-
urinn enn, í undanúrslit-
unum. Nokkrir leikmenn
í mínu liði eiga við
meiðsli að stríða og svo
er Gary Neville í leik-
banni í næsta leik. Von-
andi verða allir ánægðir
eftir næsta leik okkar í
keppninni," sagði Vena-
bles, sem mun stýra
enska landsliðinu í ein-
um leik til að minnsta
kosti, en hann hættir með
enska liðið eftir keppn-
ina.
„Grátlegt að brenna
af vítaspyrnu"
„Það er grátlegt að mis-
nota víti í vítaspyrnu-
keppni. Það þekki ég frá
HM 1990. Ég vorkenni
þeim leikmönnum
spænska liðsins sem náðu
ekki að skora úr sínum
spyrnum í þessum leik.
Ég veit að þeim líður
hræðilega," sagði Stuart
Pearce eftir leikinn gegn
Spáni.
„Það kom aldrei annað
til greina en að taka víti í
þessari keppni,“ sagði Pe-
arce, en hann hefur legið
undir stöðugum árásum
vegna frammistöðunnar
1990. -SK
Slapp á flótta frá
Gassaog Seaman
Ensku landsliðsmennirnir hafa átt í
erfiðleikum með að verjast ágangi fjöl-
miðlamanna og stuðningsmanna sinna.
Ástandið hefur versnað með hverjum
sigurleik enska liðsins.
Paul Gascoigne og David Seaman
reyndu að laumast í stangaveiði á dög-
unum en fyrr en varði var einn ljós-
myndarinn mættur á árbakkann. Gassi
og Seaman eltu Ijósmyndarann og
kröfðust þess að fá filmuna en ljós-
myndarinn komst undan á flótta á bil
sínum og ók í gegnum hlið á bílnum og
eyöilagði það og skemmdi bílinn. -SK
Komið að undanúrslitum í Evrópukeppni landsliða:
Gestgjafarnir í
góðum málum
Englendingar eru komn-
ir í undnúrlit Evrópu-
keppni landsliða í knatt-
spyrnu eftir 4-2 sigur gegn
Spánverjum í rosalegum
spennuleik á Wembley á
laugardag.
Leikurinn var fram-
lengdur en hvorugu liðinu
tókst að skora. í víta-
spyrnukeppninni mistók-
ust tvær vítaspyrnur Spán-
verja, önnur fór í slá og
David Seaman varði hina
og tryggði enskum þar með
sigurinn. Spánverjar eru
því dottnir úr keppninni.
Gríðarleg dramatík var
á lokamínútum vítakeppn-
innar og varla hefur meiri
fógnuður brotist út á
Wembleyleikvanginum frá
því að Énglendingar urðu
heimsmeistarar 1966.
Sky sjónvarpsstöðin
sýndi myndir af fagnaðar-
látum enskra um allt land
og í sama mund myndir af
grátandi spönskum
„senjórítum" í heimalandi
sínu.
Mæta Þjóðverjum
Það verða Þjóðverjar
sem leika gegn Englend-
ingum á Wembley á mið-
vikudag. Þjóðverjar unnu
sigur á skemmtilegu liði
Króatíu, 2-1, en máttu hafa
mikið fyrir sigrinum og
skoruðu ólöglegt sigur-
mark.
Dómari leiksins var
slakasti maður vallarins
og reyndar hefur dómgæsl-
an verið slök á EM.
Enn sigra Frakkar
Frakkar sigruðu Hol-
lendinga og eru komnir í
undanúrslitin.
Leikur liðanna var leið-
inlegur og endaði með víta-
spyrnukeppni. Frakkar,
sem unnu þarna enn einn
sigurinn, voru ljónheppnir
því Clarence Seedorf fékk
sannkallað dauðafæri á
lokamínútum leiksins og
gat tryggt Hollendingum
sæti í undanúrslitunum,
en hann misnotaði færið.
í vítaspyrnukeppninni
misnotaði Seedorf síðan
sína vítaspyrnu, Frakkar
skoruðu úr öllum sínum
spymum og því fóru þeir
áfram í keppninni. Þeir
eru margir sem eru óá-
nægðir með að leikjum
ljúki með vítaspyrnu.
Portúgalir úr leik en
Tékklendingar áfram
Portúgal tapaði nokkuð
óvænt fyrir Tékklending-
um í gær í síðasta leik und-
anúrslitanna.
Magir höfðu veðjað á lið
Portúgals sem líklegan sig-
urvegara á mótinu en ljóst
er að svo verður ekki.
Tékkland mætir liði
Frakka í undanúrslitun-
unum. -SK
Besti árangur-
inn í 28 ár
Englendingar höfðu ríka
ástæðu til að gleöjast yfir árangri
sinna manna um helgina.
Enskt landslið hefur nefiiilega
ekki komist í undanúrslit Evr-
ópukeppninnar síðustu 28 árin.
Siðasti sigur Englendinga á stór-
móti var 1966 er Englendingar
urðu heimsmeistarar. -SK
Má heyra saumnál
detta á hótelinu
Terry Venables varaði í gær
landa sína við of mikilli bjartsýni
og að enska liðið væri alls ekki
orðið Evrópumeistari.
Venables sagði sína leikmenn
mjög rólega og þeir gerðu sér
fulla grein fyrir því að enginn sig-
ur hefði enn unnist.
„Leikmenn mínir hafa ekki far-
ið varhluta af öllum fagnaðarlát-
unum. Þeir vita hins vegar að á
svipstundu getur allt breyst. Á
hótelinu okkar eru rólegheitin í
fyrirrúmi og þar má heyra saum-
nál detta," sagði Venables.
Engir aðrir gestir eru á hótel-
inu þar sem enska liðið dvelur á
meðan á mótinu stendur. -SK
Klinsmann
ekki með á
móti Englandi
Draumurinn hjá mörg-
um að sjá England og
Þýskaland í undanúr-
slitum rættist í gær
eftir að Þjóðverjar
höfðu lagt Króata að
velli á Old Trafford í
Manchester. Jurgen
Klinsmann, sem Eng-
lendingar óttuðust
hvað mest, verður
ekki með vegna
meiðsla sem hann
hlaut í leiknum gegn
Krótaíu. Hann fór af
velli i fyrri hálfleik
meiddur í kálfa.
„Skarð Klinsmanns
verður ekki auðvelt að
fylla en það kemur
vonandi maður í
manns stað. Eins og
meiðslin líta út verður
Klinsmann að taka sér
tíu daga hvíld en við
sjáum hvað setur,"
sagði Berti Vogts,
landsliðseinvaldur
Þjóðverja, eftir leikinn
við Krótaíu. Leikinn
sjálfan sagðist Vogts
vera nokkuð ánægður
með en Króatía væri
svo sannarlega verð-
ugur andstæðingur.
„Ég fékk allt einu verk
í kálfann og það lá
beinast við að biðja
um skiptingu. Ég hef
aldrei lent í meiðslum
sem þessum, en það er
hvíldin sem læknar
þau,“ sagði Klinsmann
eftir leikinn í gær.
Þýskaland hefur
tak á Englandi
Breskir fjölmiðlar
voru í gær farnir að
velta fyrir sér leiknum
gegn Þjóðverjum á
miðvikudag í undan-
úrslitunum. í gegnum
tíðina hafa Englend-
ingar átt erfitt upp-
dráttar gegn Þjóðverj-
um. í 13 síðustu leikj-
um hafa Englendingar
unnið tvivegis. -JKS
BÍÍTO 96
Aðeins 16 hafa
verið handteknir
Rólegheit hafa einkennt stuðn-
ingsmenn liðanna í Evrópu-
keppninni hingaö til.
Öryggisgæsla er öflug og virð-
ast lögregluyfirvöld hafa góða
stjórn á öllu saman. Aðeins 16
bullur hafa verið handteknar,
flestar drukknar og rænulitlar,
eftir sigur Englendinga gegn
Spánverjum og er það minna en
bjartsýnustu menn þorðu að
vona.
-SK
Dugarry úr leik
Franski leikmaöurinn
Christophe Dugarry meiddist
illa á hné gegn Hollendingum.
í gær kom í ljós að hann leik-
ur ekki meira með franska lið-
inu á mótinu. -SK
Spáir Englandi
í úrslitaleik
Mehmet Scholl fagnar marki Jurgens Klinsmanns sem hann skoraði úr vítaspyrnu. Nú er orðið nokkuð víst að Klinsmann
leikur ekki meira með Þjóðverjum í keppninni vegna meiðsla sem hann hlaut í leiknum gegn Króatíu. Símamynd Reuter
Spænski vamarjaxlinn
Nadal spáir því að Eng-
lendingar og Frakkar
muni koma til með að
leika um Evrópumeist-
aratitilinn næsta sunnu-
dagl
„Lið Englands og Frakk-
lands eru mjög góð en
afar ólík. Ég spái þess-
um liðum í úrslit en
hvernig úrslitaleikurinn
fer kemur í ljós á sunnu-
daginn," sagði Nadal
sem misnotaði vita-
spyrnu gegn Englending-
um á laugardag.
-SK
Tvö dæmdaf
Spánverjar voru mjög
óánægðir með að tvö
mörk voru dæmd af
þeim gegn Englending-
um. „Markið sem Sal-
inas skoraði var löglegt.
Það sást greinilega í
sjónvarpinu,“ sagði
franski leikmaðurinn
Amor eftir leikinn. -SK