Dagblaðið Vísir - DV - 24.06.1996, Síða 7
MÁNUDAGUR 24. JÚNÍ 1996
27
Liðsstyrkur til Keflvíkinga:
Gestur löglegur
með Keflvíkingum
Gestur Gylfason hefur gengiö til liðs viö Keflvikinga á ný eftir að hafa
leikið knattspymu með norska liðinu Strömgodset.
Gestur lék með Ketlvíkingum gegn Örebro í Toto-keppninni í gærkvöld
(sjá bls. 28) og leikur fyrsta leik sinn með Keflavík í 1. deildinni gegn
Breiðabliki á fimmtudaginn. -SK/-ÆMK
Úrslitin í
4. deildinni
Úrslit í leikjum helgarinnar í 4. deild íslandsmótsins í
knattspyrnu urðu þessi: SM-Hvöt . 3-1
Leiknir-Einherji . 4-3
Framherjar-Afturelding . 2-3
TBR-Víkingur Ó1 0-10
Magni-KS . 3-2
Neisti H.-Kormákur . 2-0
10.00 í einkunn í Búdapest
Ekaterina Serebrianskaya frá Úkraínu var mjög sigursæl á heimsmeistaramótinu í nútímafimleikum sem fram fór
í Búdapest um helgina. Keppendur á mótinu sýndu sniildartilþrif en engin þó betr en Serebrianskaya. Hún gerði
sér lítið fyrir og fékk hæstu einkunn, 10.00, fyrir tilþrif sín með bolta. Hér sést hún í æfingum sínum með band en
þar náði hún einnig mjög góðum árangri. Stúlkur frá Spáni náðu mjög athyglisverðum árangri á mótinu en lið
Búlgaríu fór hailoka í mörgum greinum. Símamynd Reuter
Þriðja rallíkrosskeppni sumarsins - Silfurkrossið:
Einni sekúndu munaði
í krónubílaflokknum
Jöfn og hörð keppni einkenndi spennandi
rallikrosskeppni, Silfurkrossið, sem fram fór um helg-
ina.
í krónubílaflokki var keppnin hvað jöfnust. Þar
sigraði Elías Pétursson á Fiat á 4,08 mín. Annar varð
Garðar Þór Hilmarsson á MMC Sapporo á 4,09 mín. og
þriðji Ólafur Ingi Ólafsson á Toyota Corolla á 4,18
mín.
Guðbergur Guðbergsson sigraði í rallíkrossflokkn-
um á Porsche 911 á tímanum 3,55 mín. Annar varð Ás-
geir Örn Rúnarsson á Ford Mustang á 4,06 mín og Sig-
urður Unnsteinsson á Volvo þriðji á 4,27 mín.
Jöfn keppni var í teppaflokknum. Þar sigraði Ellert
Kr. Alexander. Hann ók Ford Mustang á 4,19 mín. í
öðru sæti varð Gunnar Öm Hjálmarsson á Malibu en
hann fékk tímann 4,24 mín. Þriðji varð Sigfús Þorm-
arsson á Chrysler Cordoba á 4,44 mín.
Linda ók best í unglingaflokknum
Einnig var keppt í ungingaflokki og þar sigraði
Linda Garðarsdóttir. Hún ók Nissan Cherry og fékk
tímann 3,12 mín. Annar varð Andri Freyr Þórarins-
son. Hann sýndi listir sínar á Nissan Sunny og fékk
tímann 3,16 mín. Litlu munaði í þessum flokki eins
og flestum hinum i keppninni.
-SK
íþróttir
Mjólkurbikarinn í knattspyrnu:
Naumt hjá FH í
Bolungarvík
Höröur Magnússon tryggði FH
sigur gegn Bolungarvík í Mjólkur-
bikarnum um helgina og skoraði
eina mark leiksins.
ÍBV vann Breiðablik U23, &-2.
Tryggvi Guðmundsson og Stein-
grímur Jóhannesson skoruðu 2
mörk og Sumarliði Árnason og
Rútur Snorrason eitt. ívar Sigur-
jónsson skoraði mörk Breiðabliks.
Völsungur tapaði fyrir KA á
heimavelli, 0-3. Höskuldur Þór-
hallsson, Logi Jónsson og Stefán
Þórðarson skoruðu fyrir KA.
Loks tapaði ÍR gegn Þrótti, 4-6.
Einar Öm Birgisson (2), Heiðar
Sigurjónsson (2), Páll Einarsson og
Ingvar Ólason skoruðu fyrir
Reykjavíkur-Þróttara en þeir Guð-
jón Þorvarðarson (2), Ágúst Bene-
diktsson og Kristján Brokks skor-
uðu mörk ÍR.
Dregið verður í 16 liða úr-
slitin í dag
í dag klukkan fjögur verður
dregið í 16 Oliða úrslit bikarkeppn-
innar og fer drátturinn fram á Hót-
el Loftleiöum. Eftirtalin lið eru í
hattinum:
Fylkir, Breiðablik, Þór Akur-
eyri, Skallagrímur, Akranes, KR,
Stjaman, Keflavík, Valur, Leiftur,
Fram, Grindavík, ÍBV, FH, KA og
Þróttur Reykjavík.
-SK
Taktu þátt í leitinni að Evrópumeistara DV! Með þvi að spá fýrir um
úrslit EM og hver markakóngur keppninnar verður og senda svarseðilinn
til DV ertu kominn í pottinn og gætir orðið Evrópumeistari DV.
Dregið daglega!
Daglega verða dregnír út skemmtilegir vinningar úr öllum innsendum
seðlum. Nöfn vinningshafa veröa birt daginn eftir á íþróttasíöum DV.
Svarseðlarnir birtast jafnframt á hverjum degi í DV þartil keppninni
lýkur, þú getur því sent inn eins marga seðla og þú
(Ekki er tekiö við Ijósritum)
Geisladiskar og
bíómiðardc
Daglega eru nöfn þriggja
þátttakenda dregin úr pottinum og fá
þeir heppnu geisladisk frá Japis og
bíómiða fyrir tvo í Háskólabíó.
Glæsileg verðlaun fyrir
Evrópumeistara DV!
byrjun júlí verður dregið
úr öllum réttum
innsendum seðlum og
fær Evrópumeistari DV
glæsilega Soriy
myndbandstökuvél,
CCD-TR340 frá Japis, að
verömæti 59.900 kr. Vélin er
8 mm, mjög Ijósnæm (0,3 lux)
sem þýðir aö þaö er nánast er
hægt að taka myndir í myrkri án
Ijóss og með 10 x aðdrætti. Vélinni fylgir
rafhlöðukassi fyrir LR6 rafhlöður og fjarstýring.
SONY
rsTO
HASKÓLABIO
1) Hvaða lið lenda í fyrstu þremur sætunum í EM?
II________________2)__________________3)
2) Hver verður markakóngur keppninnar?____
Nafn:
Sími:
Heimilisfang:________________________________________________________
Sendlst tll DV, merkt: Evrópumelstarl DV, Þverholtl 11,105 Reykjavík.
Skllafrestur er tll 28. júní.