Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.1996, Blaðsíða 19
18
ÞRIÐJUDAGUR 25. JÚNÍ 1996
Þriðjudagur 25. JÚNÍ 1995
23
íþróttir
Tilkynning frá
ISI
í grein i DV sl. fimmtudag er íþróttasam-
band íslands borið þeim sökum að hafa horft
á valdníðslu Júdósambands islands án að-
gerða og júdóíþróttina á Akureyri stórskað-
aða eða beinlínis lagða í rúst,
Þessar ásakanir eru settar fram vegna
deilna um val á þátttakendum fyrir Júd-
ósamband íslands á ólympíuleikana. Af
þessu tilefhi er rétt að eftirfarandi komi
fram:
1. ÍSÍ fer með æðsta vald í málefnum
íþróttahreyfmgarinnar með þeirri undan-
tekningu að Ólympíunefnd íslands annast og
ber ábyrgð á undirbúningi og þátttöku á
ólympíuleikum. Deilumál vegna Vernharðs
Þorleifssonar, Jóns Óðins Óðinssonar,
Michal Vachum og stjórnar JSÍ voru og eru
óviðkomandi ÍSÍ meöan skipulag iþrótta-
hreyfingarinnar er þeim annmarka háð að
skilja sundur íþróttamál og ólympiumál.
2. Sunnudaginn 16. júlí óskaði formaður
iþróttabandalags Akureyrar formlega eftir
atbeina ÍSÍ og var strax farið í málið með
þeim hætti að hafa samband við deiluaðila
og bjóða fram liðsinni ÍSÍ til aö finna lausn
á málum.
Lögð var áhersla á að Vernharð Þorleifs-
son fengi að keppa á ólympíuleikunum í Atl-
anta eins og hann hafði unnið sér rétt til og
að JSÍ tæki afsökunarbeiðni hans til greina
án frekari fjölmiðlaumræðu. Með þessum
atbeina er það von ÍSÍ að friður komist á og
íþróttamaðurinn geti einbeitt sér að undir-
búningi fyrir ólympíuleikana.
3. ÍSÍ mun áfram beita sér fyrir því að
júdóiþróttin fái notið frábærra starfskrafta
Jóns Óðins Óðinssonar.
Með vinsemd, Stefán Konráðsson,
framkvæmdastjóri fSÍ.
Tilkynning frá Óí
í grein sem blaðamaður DV, Gylfi Krist-
jánsson, skrifar í blaðið um deilur
júdómanna á Akureyri og stjómar JSÍ víkur
hann m.a. að því hvers vegna Ólympíunefnd
fslands og íþróttasamband íslands taki ekki
í taumana þegar JSÍ beitir forsvarsaðila júd-
óíþróttarinnar í KA annarri eins valdníðslu
eins og hann kýs að nefna það í grein sinni.
Efnislega ætlar undirritaður sem formað-
ur Ólympíunefndar fslands ekki að Qalla um
greinina heldur að skýra frá örfáum atriðum
er varða samskipti JSÍ og Óf um undirbún-
ing og þátttöku í Ólympíuleikunum í Atl-
anta.
Ólympíunefnd veitir JSÍ fjárhagslegan
styrk og ýmsan stuðning til undirbúnings
fyrir ólympíuleikana. Það er ákvörðun JSl
hverjir taka þátt í þeim undirbúningi, bæði
hvað varðar keppendur, stjómendur og
starfsfólk. Þrír til flórir júdókappar hafa
barist um það sl. ár við júdðmenn annarra
þjóða að ná þeim árangri að fá að keppa fyr-
ir islands hönd á ólympíuleikunum i sumar.
Vemharð Þorleifsson náði þeim rétti einn
júdómanna fýrir íslands hönd.
Á liðnum árum hefur Ólympiunefnd átt
mikil og góð samskipti við stjórn JSl. Allan
þann tíma hefur Michal Vachun verið lands-
liðsþjálfari, ráðinn af stjóm JSÍ. Hann hefur
undirbúið og skipulagt allar ferðir, bæði i
æfmgabúðir og í keppni fyrir hönd JSÍ, hef-
ur haft þar allt frumkvæði, veg og vanda.
Þessar keppnis- og æfingaferðir eru nú 20
talsins sl. 18 mánuði. Það dylst engum sem
til þekkir að því verki hefur hann stýrt sem
landsliðsþjálfari, réttilega ráðinn af stjóm
“ JSÍ. Störf hans hafa einkennst af mikilli fag-
mennsku sem er til eftirbreytni. Það er ekki
verkefni Óí að velja landsliðsþjálfara, það
gerir viðkomandi sérsamband. En það er
m.a. verkefni Óí að velja keppendur og að-
stoðarfólk á ólympíuleika þegar og ef við-
komandi sérsamband gerir tillögu um það til
framkvæmdarstjómar Óí. Um keppendur
gilda þær reglur að rökstuðningur um getu
keppandans í viðkomandi íþróttagrein verö-
ur að koma fram. Um aðstoðarfólk, þ.e.
flokksstjóra og þjálfara, hefur sérsambandið
allt að segja. í þessu máli sem blaðamaður-
inn gerið að umtalsefni hefur sfjóm JSÍ að
öllu leyti farið eftir iögum, reglum og
starfsvenjum. Ólympíunefnd íslands getur
ekki séð valdníðslu af hálfu stjómar JSÍ í
þessu máli. Nú hefur það gerst að Vernharð
og stjórn JSl hafa náð fullum sáttum um
undirbúning og þáttöku á Ólympíuleikunum
í Atlanta.
Skynsamlegast væri að allir aðilar ein-
beittu sér að því verkefni og létu frekari
biaðaskrif eftir liggja.
Július Hafstein
formaður Ólympíunefndar
Mjólkurbikarinn í knattspyrnu:
Bikarmeistarar
KR fá Breiðablik
í Frostaskjólið
Bikarmeistarar KR mæta Breiða-
bliki í 16 liða úrslitum Mjólkurbik-
arkeppninnar í knattspyrnu en
dregið var í keppninni í gær. Leik-
imir eiga að fara fram 3. og 4. júlí.
11 lið úr 1. deild og 5 lið úr 2. deild
voru í brúsanum i drættinum.
KR-ingar komu fyrr upp úr brús-
anum góða og eiga því heimaleik í
Frostaskjólinu.
2. deildarlið Þróttar fær verðugt
verkefni á heimavelli gegn Eyja-
mönnum. Þróttarar tefla fram í dag
ágætu liði og gætu hæglega velgt
Eyjamönnum undir uggum.
Akurnesingar taka á móti Fram
sem slógu þá úr keppninni í fyrra.
Það verður öllu erfiðara fyrir Fram-
ara að mæta Akurnesingum í þetta
skiptið.
Nágrannaslagur verður á Akur-
eyri þegar Þór og Leiftur mætast.
Þar gæti orðið hörkuleikur.
Keflvikingar fá FH-inga í heim-
sókn og Grindvíkingar 2. deildar lið
KA. í báðum tilvikunum gætu neðri
deildar liðin veitt 1. deildar liðun-
um verðuga keppni.
Fylkir fékk Skallagrím á heima-
velli en Skallagrímsmenn hafa ver-
ið að leika vel að undanfömu. Loks
fengu Valsmenn heimaleik gegn
Stjörnunni og þar verður ábyggi-
lega ekkert gefið eftir.
í bikarkeppninni getur ýmislegt
komið á óvart eins og dæmin hafa
sannað í gegnum tíðina.
-JKS
Frestað í
Grindavík
Leik Grindvíkinga og Eyja-
manna i 1. deild i gærkvöldi var
frestað. Eyjamenn komust ekki
upp á land vegna þoku. Ákveð-
ið hefur verið að leikurinn fari
fram á sunnudaginn kemur, 30.
júní, klukkan 14.00.
Þriðja þrennan
í gærkvöldi
Akurnesingurinn Mihajlo
Bibercic varð þriðji leikmaður-
inn til að skora þrjú mörk í ein-
um og sama leiknum í 1. deild í
sumar gegn Breiðabliki í gær-
kvöldi. Fyrir vikið vann hann
sér inn 100 þúsund krónur sem
Lengjan borgar þeim sem nær
þessum áfanga. Áður höfðu
Bjarni Guðjónsson, ÍA, og
Rastislav Lazorik náð að skora
þrennu í leik.
-JKS
Fjórir leikir
í 2. deild
Fjórir leikir eru á dagskrá 2.
deildar í kvöld og lýkur þar
með 5. umferð með eftirtöldum
leikjum. KA-FH á Akureyri,
Skallagrímur-Leiknir í Borgar-
nesi, ÍR-Þór, Þróttur-Völsung-
ur.
-JKS
Breiöablik (O) O
ÍA (2) 4
O-l Mihaljo Bibercic (35) fékk
boltann út við vítateigshorn, sneri sér
í 180 gráður og hamraði boltann efst i
vinstra markhomið.
0-2 Mihaljo Bibercic (36) sendi
boltann í boga yfir Cardaklija í mark-
inu af um 30 metra færi.
0-3 Bjarni Guðjónsson (52) skor-
ar af stuttu færi eftir þvögu í mark-
teig.
0-4 Mihaljo Bibercic (65) skorar
með skalla eftir laglega fyrirgjöf frá
Haraldi Ingólfssyni.
Lið Breiðabliks: Harjudin Carda-
klija @ — Vilhjálmur K. Haraldsson
@, Pálmi Haraldsson @, Hákon
Sverrisson, Theódór Hervarsson @ -
Sævar Pétursson, Hreiðar Bjamason,
Gunnlaugur Einarsson (Guðmundur
Þ. Guðmundsson, 45), Kristófer Sigur-
geirsson @ - Anthony Karl Gregory
(Gunnar B. Ólafsson, 70), Kjartan Ein-
arsson (ívar Siguijónsson, 70)
Lið ÍA: Þórður Þórðarson - Steinar
Adolfsson, Ólafur Adolfsson (Gunn-
laugur Jónsson 58), Zoran Miljkovic
@, Sigiusteinn Gíslason - Jóhannes
Harðarson @, Alexander Högnason,
Ólafur Þórðarson @, Haraldur Ing-
ólfsson @ - Mihajlo Bibercic @@
(Stefán Þórðarson), Bjami Guðjónsson
@.
Markskot: Breiðablik 8, ÍA 15
Hom: Breiðablik 3, ÍA 10
Gul spjöld: Hákon, Breiðabl. og
Sigursteinn, ÍA.
Rauð spjöld: Engin.
Dómari: Ólafur Ragnarsson, með
betri mönnum vallarins.
Áhorfendur: 550.
Skilyrði: Ákjósanlegt knattspymu-
verður, þurrt og logn en völlurinn
ekki góður.
Maður leiksins: Mihaljo Biber-
cic, funheitur þessa dagana og
Fylkismaðurinn Aðalsteinn Víglundsson og KR-ingurinn Einar Þór
Daníelsson gefa hvorugur eftir í leik liðanna í gærkvöldi. DV-mynd ÞÖK
Skagamaðurinn ungi, Bjarni Guðjónsson, stígur hér dans við boltamanninn og Biikann, Pálma Haraldsson á Kópavogsvelli í
gær. Bjarni og félagar hans í ÍA höfðu sigur gegn Blikunum sem eru algjörlega lánlausir þessa dagana.
DV-mynd ÞÖK
íslandsmótið í knattspyrnu, 1. deild
Meistarabragur á
leik Skagamanna
- Blikar í alvarlegri stöðu eftir leiki fimmtu umferðar
Það var allt útlit fyrir
hörkuspennandi og jafna
viðureign Breiðabliks og ÍA
þegar liðin mættust i Kópa-
vogi í gærkvöldi. Jafnvægi
var í leiknum lengst af fyrri
hálfleiks, liðin skiptust á að
sækja og áttu bæði þokkaleg
færi.
En á 35. mínútu sýndi
Skagamaðurinn Mihaljo
Bibercic sannkallaða meist-
aratakta þegar hann opnaði
markareikning sinn í þess-
um leik með stórglæsilegu
marki.
Og brosið var ekki farið
af stuðningsmönnum ÍA í
stúkunni þegar Bibercic var
búinn að skora annað glæsi-
legt mark aðeins mínútu
síðar.
Blikar, sem fram að þessu
höfðu haft í fullu tré við ís-
landsmeistarana, misstu
nokkuð móðinn við þessi
glæsimörk Bibercic en
Skagamenn voru hvergi
hættir og þeir voru vart
komnir inn á í seinni hálf-
leiknum þegar Bjarni Guð-
jónsson var búinn að auka
forskot Skagamanna enn
frekar.
Bibercic kórónaði síðan
góðan leik sinn með fallegu
skallamarki og sýndi það að
hann er einn besti framherji
landsins í dag.
Hann var jafnframt 100
þúsund krónum ríkari
vegna þrennunnar í
leiknum.
Eftir markið gerðu báðir
þjálfarar nokkrar breyting-
ar á liðum sínum og við það
varð meira jafnvægi í leikn-
um.
„Ég er þokkalega
ánægður"
“Ég er þokkalega ánægð-
ur. Við ætluðum okkur að
fara rólega inn í leikinn og
keyra síðan upp hraðann.
Bibercic var búinn að ná sér
í 100 þúsund kallinn og ég
ákvað að leyfa honum að
hvíla sig,” sagði Guðjón
Þórðarson, þjálfari ÍA.
Staða Breiðabliks er
alvarleg
Staða Breiðabliks í deild-
inni er nú orðin mjög alvar-
leg. Leikur þeirra er ekki
nægilega beittur og mark-
viss og er hreinlega eins og
allt annað lið sé að spila
núna heldur en það sem lék
í deildabikarkeppninni í
vor.
Skagamenn agaðir
Skagamenn léku í þessum
leik eins og þeir sem valdið
hafa. Þeir leika sem ein
heild, leikur þeirra er agað-
ur og skipulagður og flestir
leikmenn liðsins geta brotið
leikinn upp og skapað stór-
hættulegar sóknir.
-ih
„Okkur miðar áfram“
- sagði Lúkas Kostic eftir sigurinn á Fylki í gærkvöldi
„Við tókum völdin um
miðjan fyrrir hálfleik. Ég
var ánægður með margt og
okkur miðar vel áfram og
auðvitað er ég bjartsýnn á
framhaldið. Fylkisliðið er
vel spilandi en það vantar
broddinn í leik liðsins,"
sagði Lúkas Kostic, þjálfari
KR-inga, eftir sigurinn á
Fylk, 0-2, í Árbænum í gær-
kvöldi.
KR-ingar taplausir
KR-ingar halda áfram
uppteknum hætti og eru enn
ósigraðir í deildinni.
Ástandið í herbúðum Fylkis
er ólíkt en í gærkvöldi beið
liðið sinn þriðja ósigur.
Ekki verður liðunum
hrósað fyrir rismikla knatt-
spyrnu framan af en fátt var
um flna drætti í fyrri hálf-
leik. KR-ingar voru þó öllu
markvissari í leik sínum en
Fylkismenn hugsuðu meira
um vamarleikinn. Þeir áttu
þó skyndisóknir en þær
voru bitlausar.
Þorsteinn Jónsson og
Ólafur Kristjánsson áttu
hættulegustu færi KR-inga í
fyrri hálfleik en í bæði
skiptin vörðu Fylkismenn á
línunni. Ómar Valdimars-
son átti áður skalla að
marki KR-inga sem Kristján
Finnbogason var ekki i
vandræðum með.
Segja má að KR-ingar hafi
brotið leikinn upp með
marki um miðjan síðari
hálfleik en það var einmitt
það sem leikinn vantaði. Að-
eins tveimur mínútum síðar
bætti Guðmundur Bene-
diktsson við öðru marki í
glæsilegri kantinum, sann-
kallað einstaklingsframtak
frá upphafi til enda.
Fyrir vikið þurftu Fylkis-
menn að fara að sækja en
vörn KR-inga sá svo um að
heimamönnum varð lítið
ágengt í þeim málum. Enes
Cogic brá sér í sóknina und-
ir lokin og skaut fóstu skoti
rétt fram hjá úr teignum.
Fylkismenn verða að
bretta upp ermarnar
Fylkismenn verða að
bretta upp ermarnar í
næstu leikjum. Baráttan var
ekki næg í þessum leik og
I
sóknin er ekki nógu beitt.
Enes Cogic og Andri Mart-
einsson voru bestir hjá
Fylki i leiknum.
KR-liðið þurfti ekki að
hafa mikið fyrir sigrinum.
Liðið getur þó meira en það
sýndi í gærkvöldi. Vestur-
bæjarliðið er til alls líklegt í
vetur og hefur ekki í langan
tíma verið sterkara. Þor-
steinn Jónsson var sterkur
á miðjunni og einnig áttu
þeir Heimir Guðjónsson og
Þormóður Egilsson góðan
leik. Þormóður var öryggið
uppmálað í vörninni að
venju. Sömuleiðis var
Ólafur Kristjánsson drjúgur
í vörninni.
-JKS
David Seman er
bjargvættur
enska landsliðsins
Það eru margir sem spá
því að David Seaman,
markvörður enska lands-
liðsins, verði valinn mark-
vörður Evrópukeppninnar
enda hefur hann spilað frá-
bærlega og varið m.a. tvær
vítaspyrnur. Seaman er
samt síðasti maðurinn til
að gleyma sér í gleðinni
sem ríkir í Englandi eftir
gott gengi heimamanna.
Hann varði víti frá Migu-
el Angel Nadal og tryggði
þar með Englendingum
sæti í undanúrslitum en
ferill Seamans hefur geng-
ið upp og ofan og því hugs-
ar hann litið út í allt þetta
jákvæða umtal sem hann
hefur verið að fá undan-
farna daga og vikur. „Það
er frábært að fá allt þetta
hól fyrir að vinna vel og ég
mun taka það allt til mín
því þetta getur fljótlega
breyst,” sagði þessi 32 ára
gamli leikmaður Arsenal.
„En þó ég hafi fengið
mestu athyglina eftir víta-
spyrnukeppnina þá get ég
ekki haplt þeim nóg sem
tóku vítin fyrir okkur.”
Þrátt fyrir hógværðina
reiddist hann eftir að hafa
lesið grein þar sem hann
var titlaður besti mark-
vörður í heimi og Gordon
Banks, markvörður í
enska landsliðinu, er þeir
unnu Heimsmeistara-
keppnina árið 1966, hafði
þetta að segja um Seaman.
„Ekki nóg með það að
hann sé bjargvættur Eng-
lands í mótinu heldur er
hann sá besti í keppninni
og þ.a.l. einn sá besti í
heiminum.”
Vonandi verður þetta
gott veganesti fyrir hinn
sterka markvörð Englend-
inga á morgun gegn sterk-
um Þjóðverjum á
Wembley.
-JGG
Átta mörk í
baráttuleik
- þegar Leiftur vann Stjörnuna, 5-3
Leiftur (4) 5
Stjarnan (1) 3
1- 0 Gunnar Oddsson (2.)
2- 0 Baldur Bragason (5.)
3- 0 Rastislav Lazorik (22.)
4- 0 Páll Guðmundsson (30.)
4-1 Rúnar Sigmundsson (44.)
4-2 Baldur Bjarnason (55.)
4- 3 Goran Micic (72.)
5- 3 Baldur Bragason (78.)
Lið Leifturs: Þorvaldur Jónsson -
Auðun Helgason @, Sindri Bjarna-
son, Júlíus Tryggvason, Daði Dervic
(Sigurbjörn Jakobsson 57.) - Gunnar
Oddsson @@, Páll Guðmundsson
@, Gunnar Már Másson @ (Pétur
Björn Jónsson 80.), Sverrir Sverris-
son @ - Baldur Bragason @@
Rastislav Lazorik @ (Matthías Sig-
valdason 87.).
Lið Stjörnunnar: Bjami Sigurðs-
son - Birgir Sigfússon (Ingólfur Ing-
ólfsson @ 46.), Helgi Björgvinsson,
Reynir Bjömsson, Heimir Erlingsson
(Ragnar Árnason @ 46.), Hermann
Arason - Rúnar Sigmundsson, Bald-
ur Bjarnason @@, Valdimar Kristó-
fersson - Goran Micic @, Kristinn
Lárusson.
Markskot: Leiftur 14, Stjarnan 12.
Horn: Leiftur 7, Stjarnan 8.
Gul spjöld: Sindri (Leiftri), Krist-
inn (Stjörnunni), Hermann
(Stjörnunni), Helgi (Stjörnunni).
Rauð spjöld: Enginn.
Dómari: Kristinn Jakobsson, góður.
Áhorfendur: Um 500.
Skilyrði: Frábært veður, völlur góður.
Maður leiksins: Baldur Braga-
son, Leiftri. Vann vel, ógnandi í
sókn, lagði upp tvö mörk og fjölda-
mörg tækifæri. Fór i bakvarðar-
stöðu í síðari hálfleik og stóð sig
mjög vel.
Fylkir (O) O
KR (0) 2
0-1 Heimir Guðjónsson (63.) Rík-
harður lagði boltann fyrir Heimi sem
skoraöi af stuttu færi.
0-2 Guðmundur Benediktsson
(65.). Sannkallaö draumamark með
þrumuskoti af 25 metra færi.
Lið Fylkis: Kjartan Sturluson -
Enes Cogic @, Ólafur Stígsson @
(Halldór Steinsson 81.), Þorsteinn
Þorsteinsson (Gunnar Þ. Pétursson
84.), Aðalsteinn Víglundsson, Ásgeir
Ásgeirsson (Erlendur Gunnarsson
20.), Ómar Valdimarsson, Andri
Marteinsson @ Finnur Kolbeins-
son — Kristinn Tómasson, Þórhallur
Dan Jóhannsson.
Lið KR: Kristján Finnbogason -
Brynjar Gunnarsson @, Þormóður
Egilsson @, Ólafur Kristjánsson
@ Sigurður Jónsson - Heimir Guð-
jónsson @ Þorsteinn Jónsson @,
Hilmar Bjömsson, Einar Þór Daníels-
son (Ámi Pjetursson 87.) - Guðmund-
ur Benediktsson (Þorsteinn Guðjóns-
son 81.), Ásmundur Haraldsson (Rík-
harður Daðason 59.)
Markskot: Fylkir 8, KR 14.
Horn: Fylkir 3, KR 7.
Gul spjöld: Sigurður Jónsson (KR)
Rauð spjöld: Enginn.
Dómari: Gylfi Orrason yfir-
vegaður og dæmdi vel.
Áhorfendur: 960.
Skilyrði: Hægur andvari, hlýtt í
veðri og völlurinn góður.
Maður leiksins: Þorsteinn Jóns-
son, KR. Sívinnandi allan tímann
og kom boltanum vel frá sér.
DV, Ólafsfirði:
Áhorfendur verða ekki sviknir á
þvi að mæta á Ólafsfjarðarvöll. Alls
hafa verið skoruð 20 mörk í þremur
fyrstu heimaleikjum Leifturs í sum-
ar. í gærkvöldi voru skoruð átta
mörk þegar Leiftur vann Stjömuna,
5-3, í allsérkennilegum baráttuleik.
í fyrri hálfleik var eins og eitt lið
á vellinum. Leiftur komst i 2-0 eftir
fimm minútur og liðið bætti við
tveimur til viðbótar áður en hálf-
tími var liðinn.
Það var stundum með ólíkindum
hvað Leiftursmenn spiluðu vörn og
miðju Stjömunnar grátt. Svo þegar
þeir skoruðu rétt fyrir leikhlé fögn-
uðu þeir ekki einu sinni, svo óvænt
var markið.
Á þessum kafla sást hvað Leift-
ursliðið getur spilað vel. Það kaf-
sigldi gestina, boltinn gekk vel og
liðsheildin var frábær. Miðjumenn-
Jón Örn Guðmundsson, sem lék
með ÍR-ingum í úrvalsdeildinni í
körfuknattleik á síðasta ári og þar á
undan með Haukum, hefur verið
ráðinn þjálfari 1. deildar liðs Þórs í
Þorlákshöfn. Liðið missti naumlega
af sæti í úrsvalsdeild í vor en á
næsta tímabili er stefnan einnig tek-
in á úrslitakeppnina.
„Það leggst vel í mig að taka við
Þorlákshafnarliðinu. Þetta er spenn-
andi verkefni en í liðinu eru ungir
og efnilegir leikmenn. Liðið var ná-
lægt því að tryggja sér sæti í úrvals-
„Við höfum að undanfórnu verið
að skoða ýmsa möguleika í stöðunni
hvað varðar tvær leikmannastöður
fyrir næsta tímabil. Við horfum
einkum til bakvarðar og einn af
þeim möguleikum sem koma til
greina er Ronald Bayless. Hann
væri vissulega góður valkostur í því
mikla úrvali sem til er. Það verða
allir möguleikar skoðaðir vel ofan í
kjölinn og vonandi komast þessi
mál á hreint á næstu tveimur vik-
irnir unnu alla bolta og kantspil var
virkt. Þetta breyttist allt saman í
síðari hálfleik. Stjörnumennn tóku
strax völdin og héldu þeim lengi vel.
Leiftursvörnin gaf eftir og bakkaði,
sérstaklega þó miðjumennirnir.
Kannski voru þeir sigurvissir og
það var eins og við manninn mælt.
Stjörnumenn gengu á lagið og
áttu hverju stórsóknina á fætur
annarri enda uppskáru þeir tvö fal-
leg mörk með stuttu millibili.
Baldur Bragason var bestur í
annars jöfnu liði Leifturs. Gunnar
Oddsson og Páll Guðmundsson áttu
gríðarlega sterkan leik.
Hjá Stjörnunni átti Baldur
Bjarnason stjörnuleik. Hann var
alls staðar á vellinum og stórhættu-
legur í sókninni.. Goran Micic,
Ingólfur Ingólfsson og Ragnar
Árnason áttu góðan leik.
-HJ
deildinni síðast. Við getum sagt að
stefnan verði tekin á úrslitakeppn-
ina næst. Við erum að skoða leik-
mannamálin og erum meðal annars
að leita að útlendingi en sá sem lék
með liðinu á síðasta vetri verður
ekki endurráðinn.
Mál sem lúta að erlendum leik-
manni ættu að skýrast fljótlega en
það er hugur í mönnum að standa
sig vel næsta vetur,“ sagði Jón Öm
Guðmundsson sem einnig ætlar að
leika með liðinu.
um,“ sagði Gísli Georgsson, formað-
ur körfuknattleiksdeildar KR, í
samtali við DV í gær.
Eins og körfuknattleiksunnend-
um er enn í fersku minni lék
Bayless með Val í úrvalsdeildinni
seinni hluta síðasta tímabils og
sýndi þá að þar er á ferð frábær
bakvörður. Hann kom þó ekki í veg
fyrir fall liðsins í 1. deild.
-JKS
Körfuknattleikur:
Jón Örn þjálfar
Þór í Þorlákshöfn
-JKS
Körfuknattleikur:
KR leitar að bakverði
íþróttir
Alan Shearer
er eftirsóttur
Flest stórlið Evrópu eru á eftir
Alan Shearer sem spilar með
Blackburn Rovers og enska
landsliðinu. Þau lið sem eru á
höttunum eftir honum eru
Juventus, Barcelona, AC Milan,
Manchester United og Glasgow
Rangers. Mörg af þessum liðum
vilja borga 30 milljónir þýskra
marka fyrir Shearer en hann
hefur skorað fimm mörk í
Evrópukeppninni og er
líklegastur til að hreppa
markakóngstitilinn.
Úrslit í 3. deildinni
Fjölnir-Víðir...........1-5
Ægir Viktorsson skoraði fyrir heima-
menn en Davis Haule og Stefán Ingi-
mundarson skoruðu eitt hver fyrir
Víði og Björn Vilhelmsson skoraði
þrennu.
Grótta-Ægir.............1-1
Kristinn Kjæmested skoraði fyrir
Gróttu en Halldór Páll Kjartansson
skoraði fyrir Ægi.
Reynir-HK...............3-2
Trausti Ómarsson skoraði tvö mörk
fyrir Reyni og Grétar Ólafur Hjartar-
son eitt en Eyþór, Allen Mulamuhici
og Ámi Þór Eyþórsson skoruðu fyrir
HK-inga.
Þróttur N.-Höttur ......3-0
Karl Róbertsson, Jón Ingi Ingimars-
son og Marteinn Hilmarsson skoruðu
eitt hver fyrir Þróttara.
Reynir, S. 6 4 2 0 21-9 14
Dalvík 6 3 3 0 18-8 12
Víðir 6 4 0 2 19-11 12
Þróttur N. 6 3 1 2 13-10 10
Selfoss 6 2 2 2 11-14 8
Grótta 6 1 3 2 12-12 7
Fjölnir 6 2 0 4 15-14 6
HK 6 2 0 4 9-14 6
Æglr 6 1 2 3 9-8 5
Höttur 6 1 1 4 8-21 4
Danir til Bolton
Colin Todd, framkvæmdastjóri
Bolton, festi gær kaup á tveimur
Dönum frá FC Köbenhavn fyrir
samtals 230 milljónir.
Leikmennirnir heita Michael
Johansen og Per Frandsen. Todd
segir þetta góða leikmenn sem
muni styrkja miðju liðsins.
Poborsky vinsæll
Lou Macari, stjóri hjá Stoke, er
mjög hrifmn af Tékkanum Karel
Poborsky sem skoraði sigurmark
Tékka gegn Portúgölum á
sunnudaginn var. Macari er að
íhuga tilboð í hann en vitað er
einnig af áhuga Liverpool. Talið
er víst að Liverpool myndi vinna
það kapphlaup.
EVKÉPUMfl
DV
Vinningshafar 24. Júní
Haukur Heiðar Ingólfsson
Hörpuvík
225 Bessastaðahreppur
Gróa Magnúsdóttir
Laufrima 8
112 Reykjavík
Salomon Nidure
Skipholti 22
105 Reykjavík
Vlnningshafar fá gelsladlsk frá Japis
og bíómlða fyrir tvo í Háskólabíó.
Vlnningshafar fá vlnningana senda
helm.