Dagblaðið Vísir - DV - 04.07.1996, Page 14

Dagblaðið Vísir - DV - 04.07.1996, Page 14
14 27 .. íþróttir Shearer fer hvergi Forráðamenn Blackburn Rovers eru harðir á því að markamaskínan Alan Shearer muni ekki yfirgefa félagið þrátt fyrir gylliboð frá ensku meistur- unum í Manchester United. „Við höfum sagt United að Shearer er einfaldlega ekki til sölu og að hann vilji leika áfra með Black- burn á næsta tímabili,” sögóu Blackburn menn. Souness ráðinn Graeme Souness var i gær ráöinn næsti framkvæmdastjóri enska úrvalsdeildarliðsins Sout- hampton. Souness, sem rekinn var frá Galatasaray í Tyrklandi á síðasta keppnistímabili, tekur við stjórninni af Dave Merr- mgton og gerði hann 3ja ára samning við félagið. Di Mattio til Chelsea Ruud Gullit, hinn nýi stjóri Chelsea, tók upp veskið í gær og keypti hinn 26 ára gamla Ro- berto Di Mattio frá Lazio. Di Mattio er ítalskur landsliðsmað- ur og verður nú sá eini í lands- liðinu sem leikur með félagi utan Ítalíu. Hammarby efst Eyjólfur Harðarson, DV, Svíþjóð: Hammarby, lið Péturs Mart- einssonar, er á toppnum í norð- urdeild 1. deildarinnar í Svíþjóð eftir 3-1 sigur Luleá í fyrrakvöld. Pétur lék vel i vörn Hammarby og stjórnaði henni eins og her- foringi. Brassar enn efstir Heimsmeistarar Brasilíu- manna halda toppsætinu á nýj- um styrkleikalista FIFA sem gef- inn var út í gær. Hinir nýkrýndu Evrópumeistarar Þjóðverja eru í öðru sæti eins og siðast, Frakkar fara í 3. sæiið eftir að hafa verið í 8. sæti á síðasta lista, Tékkar eru í 4. sæti en þeir voru í 13. sæti og ítalir falla úr þriðja sæti niður í það fimmta. Stærsta stökkið á listanum taka Englend- ingar en þeir fara úr 21. sæti í það 13. Tap hjá stúlkunum íslenska u-16 ára kvennalands- liðið í knattspyrnu tapaði fyrir Svíum, 2-1, á Norðurlandamót- inu sem fram fer í Finnlandi þessa dagana. Mark íslands skor- aði Anna B. Björnsdóttir. í fyrra- kvöld töpuðu stúlkurnar fyrir Dönum með sama mun. Sex ný lönd inn í FIFA FIFA staðfesti á fundi í Zúrich í dag aö sex nýjar þjóðir yrðu teknar inn í sambandið og ein af þeim er Bosnía-Herzegóvína og hún mun vera með í und- ankeppni fyrir HM 1998 í Frakk- landi. Liðið mætir tveimur fyrr- um lýðveldum Júgóslavíu, Sló- veníu og Króatíu, en fyrsti leik- ur þess er gegn Grikkjum 1. sept- ember, það mætir einnig Dön- um. Þau flmm sem voru líka tek- in inn eru: Andorra, Anguilla, Montserrat, Guam og Bresku jómfrúreyjarnar. Þjóðverjar hylltir Hundruð knattspymuaðdá- enda um allan heim, allt frá Kamerún til Lesotho, hafa óskað Þýskalandi til hamingju með að hafa unnið Evrópukeppnina sl. sunnudag. Knattspyrnusam- bandið þar á bæ fær i kringum 300 heillaóska skeyti á dag og þ. á m. fengu leikmenn boð frá ferðaskrifstofu í Egyptalandi um að fara í siglingu niður ána Níl en því miður ná þeir eflaust ekki að koma henni inn í þéttskipaða dagskrá sína. Eyjamenn voru í erfiðleikum - unnu þó spræka Þróttara, 2-3 „Við erum komnir áfram en þetta varð erfitt eftir að við urðum einum manni færri. Þróttur er með mjög gott lið og sterkt í loftinu. Það þarf lítið að smella saman hjá þeim til þess að þeir fari upp í 1. deil,“ sagði Atli Eðvaldsson, þjálfari Eyja- manna, eftir sigur á 2. deildar liði Þróttar, 2-3, í hörkuleik á Valbjam- arvelli í bikarnum í gærkvöld. Eyjamenn voru frískari í upphafi en Þróttarar náðu með.baráttu að komast betur inn i leikinn um miðj- an hálfleikinn. Gestirnir komust yfir á 28. mín. með fallegu marki frá Steingrími Jóhannessyni. Skömmu eftir markið björguðu Eyjamenn á línu frá Ingvari Ólasyni eftir klafs í teignum. Undir lok hálfleiksins fékk Rútur Snorrason tvö góð færi en brást bogalistin. Eyjamenn byrj- uðu seinni hálfleikinn einnig betur og uppskáru mark á 54. mín. Rútur fékk stungusendingu og skoraði ör- ugglega. En það liðu aðeins tvær minútur þar til Þróttarar minnkuðu muninn þegar Þorsteinn Halldórs- son skoraði með föstu skoti úr teignum. Þróttarar tóku völdin á miðjunni eftir markið og á 30. mín. fékk Rútur að sjá gula spjaldið í annað sinn fyrir klaufalegt brot langt úti á velli, en hið fyrra var fyrir að fara úr peysunni þegar hann skoraði. Þegar pressa Þróttara var sem mest kom mark frá Eyja- mönnum, Steingrímur gerði sitt annað mark eftir mistök markvarð- ar Þróttar. Þróttarar héldu áfram þungum sóknum og glæsilegt mark frá Ingvari minnkaði muninn í 2-3 á 89. mín. en of seint og Eyjamenn fara þvi í mjólkurbrúsann. „Við spiluðum ljómandi vel, sér- staklega i síðari hálfleik, og það var ekki mikill munur á liðunum," sagði Páll Einarsson, fyrirliði Þrótt- ar, en hann lék best ásamt Vil- hjálmi og Ingvari. Bjarnólfur var bestur gestanna og Hermann lék vel. Áhorfendur Þróttar voru ánægðir með sína menn þrátt fyrir tapið og hljómaði „Lifi Þróttur“úr stúkunni eftir leikinn. -ÞG Mark Heimis eini Ijósi punkturinn - þegar bikarmeistarar KR lögöu Breiöablik, 1-0 Það var ekki falleg knattspyrnan sem spiluð var í gær á KR-velli þó að aðstæður væru hinar bestu. Vest- urbæingamir náðu samt aö tryggja sér 1-0 sigur í seinni hálfleik með fallegu marki frá Heimi Guðjóns- syni og var þetta eini ljósi punktur- inn i leiknum. Fyrri hálfleikur fór rólega af stað og einkenndist af mikilli baráttu og endalausu miðjuþófi sem hélst út leikinn. KR-ingar voru meira með boltann en voru samt ekki að gera neitt að ráði. Hilmar Björnsson sýndi smálit í fyrri hálfleik þegar hann átti skot rétt fram hjá og mín- útu síðar átti hann skot í slá eftir góða sókn KR-inga upp hægri kant- inn. Heimamenn voru reyndar klaufskir að vera ekki yfir í hálfleik og átti varnarmaðurinn sterki, Sig- urður Örn Jónsson, fint skot sem var varið í stöngina en lítið annað gerðist þessar daufu 45 mínútur. Ástandið breyttist lítið I seinni hálfleik og áttu bæði lið í miklum erfiðleikum með að láta boltann gangp og ekkert virtist ganga upp hjá þeim. Guðmundur Benediktsson fékk hins vegar algjört dauðafæri en honum brást heldur betur boga- listin. Ríkharður Daðason og Brynj- ar Gunnarsson byrjuðu ekki inná fyrir KR-inga sökum meiðsla en komu báðir inn á og fékk Ríkharð- ur mjög gott færi eftir vel útfærða aukaspyrnu sinna manna og hreint ótrúlegt að hann skyldi ekki skora. „Knattspyrnan var ekki skemmti- leg í dag og ekki eins og við höfum verið að spila en þetta hafðist og var þetta sanngjarn sigur. Ég er ánægður með að við skyldum halda hreinu og vorum við ekki bara betri, heldur miklu betri, sagði Lúkas Kostic, þjálfari KR-inga. Það er lítið hægt að segja um leik- menn beggja liða því meðalmennsk- an var í algjöru hámarki en þó stóð einn leikmaður upp úr. Radenko Maticic, varnarmaður hjá Breiða- bliki, var að spila sinn fyrsta leik fyrir Kópavogsbúa og var eini leik- maður vallarins sem virtist gefa sig allan í þetta og ljóst er aö hann á eft- ir að styrkja lið Breiðabliks það sem eftir lifir sumars. Hjá KR-ingum átti Hilmar Björnsson nokkra ágæta spretti í jöfnu liði heimamanna. -JGG Örebro tapaði DV, Svíþjóð: Hvorki gengur né rekur hjá Is- lendingaliðinu Örebro í sænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. í gær tapaði liðið enn einum leiknum þegar það beið lægri hlut fyrir Öster, 2-1. Arnór Guðjohnsen átti skot í stöng snemma í leiknum. Þá tapaði Djurgárden á heimavelli fyrir Malmö, 0-1. Gautaborg og Hels- ingborg eru jöfn og efst með 27 stig, Örgryte, lið Rúnar Kristins- sonar, er 6. sæti með 18 stig en Örebro næstneðst með 11 stig. -EH Ólympíunefnd íslands: Verða að ná lágmörkum til að komast á ólympíuleikana I gær samþykktu stjómarmenn Ólympíunefndar íslands samhljóða að þeir sem ættu eftir að ná lágmarki til að komast á Ólympíuleikana í Atl- anta yröu að ná því. „Við gefum þeim eins mikinn möguleika og við getum og hafa þau frest til miðnættis 15. júlí til að ná þessu . Reglurnar eru svona og ekkert öðru- vísi,“ sagði Júlíus Hafstein, formaður ólympíunefndar, i samtali við DV. Vernharð Þorleifsson, júdó, Guðrún Arnardóttir, grindahlaupi, Vé- steinn Hafsteinsson, kringlukasti, Rúnar Alexandersson, fimleikum, Jón Amar Magnússon, tugþraut, og sundmennirnir Eydís Konráðsdóttir, Elín Sigurðardóttir og Logi Jes.Kristjánsson eru þau einu sem náð hafa lág- markinu í sínum greinum en kúluvarparinn Pétur Guðmundsson, spjót- kastarinn Sigurður Einarsson og Martha Ernstdóttir hlaupakona hafa til að mynda ekki náð lágmörkum í sínum greinum. Bjarki til Fylkis Bjarki Pétursson knattspymu- maður, sem Ieikið hefur með ÍA í sumar, gekk í gær til liðs við Fylki og skrifaði undir tveggjja ára samning við Árbæjarliðið. Bjarki var ekki sáttur við hlut- skipti sitt hjá Skagamönnum en hann hefur lítið fengið að spreyta sig með liðinu það sem af er sumri. Hann ætti að geta orðið Fylkismönnum styrkur en liðið er að berjast á botni deildarinnar. Hann er þegar orðinn löglegur með Fylki en verður þó ekki í leikmannahópnum gegn Skalla- grími í Mjólkurbikamum í kvöld. Eru að skoða Júgga Fylkismenn hafa hug á að styrkja lið sitt enn frekar í bar- áttunni sem fram undan er. Þeir fengu á dögunum leikmann frá Júgóslavíu, 22 ára gamlan varnar- mann, og ákvörðun verður tekin fyrir helgina um hvort gengið verður frá samningi við hann. -GH FIMMTUDAGUR 4. JÚLÍ 1996 I FIMMTUDAGUR 4. JÚLÍ1996 Iþróttir Framarar áttu mörg góð marktækifæri í leiknum gegn Skagamönnum í gær. Hér á myndinni er eitt af bestu færum þeirra bláklæddu í leiknum. Þorvaldur Ásgeirsson (Elíassonar) er sloppinn inn fyrir vörn Skagamanna en Þórður Þórðarson mark- vörður íslandsmeistaranna sá við honum eins og öllum leikmönnum Fram í leiknum. Þórður átti frábæran leik í markinu og varði oft meistaralega. Með sigrinum komust Skagamenn í 8-liða úrslit keppninnar og á morgun kemur í Ijós hverjiir andstæðingar þeirra verða þegar dregið verður til 8-liða úrslitanna. DV-mynd ÞÖK Fyrsti sigurinn hjá Keflavík - vann 2. deildar lið FH á heimavelli, 2-0 DV, Suöurnesjum: „Það er alltaf gaman að sjá boltann syngja svona í markinu og er þetta eitt af þeim fallegustu sem ég hef gert. Það skipti hins vegar meira máli að við náðum að sigra,“ sagði Keflvikingurinn Eysteinn Hauksson sem skoraði glæsilegt mark beint úr aukaspymu rétt utan við vítateig FH í bláhorniö og var það fyrra mark Keflvíkinga í 2-0 sigri gegn 2. deildar liði FH í 16-liða úrslitum bikarkeppninnar. Þetta var jafnframt fyrsti sigur Keflvíkinga í sumar. Leikurinn í heild var ekkert til að hrópa húrra fyrir enda um geysi mikilvægan leik að ræða fyrir bæði liðin og mikið í húfi. Það var meira jafru-æði með liðunum í fyrri hálfleik og fengu þau bæði marktækifæri sem á góðum degi hefðu átt að nýtast. En að mestu leyti fór leikurinn fram vítateiganna á milli i fyrri hálfleik. Keflvíkingar vora mun sterkari aðilinn í síöari hálfleik. Þeir fóra samt ekki að gera neinar rósir í leiknum fyrr en Hauk Inga Guðnasyni var skipt inn á á 56. mínútu og náði hann að smita út frá sér baráttu með krafti sínum og þá fór liöið að berjast meira fyrir sínum hlut. Það var einmitt Haukur sem fiskaði aukaspyrnuna sem Eysteinn skoraði úr á 74. mínútu. Fyrr í leiknum átti Karl Finnbogason skot í þverslá FH-marksins og stuttu síðar var Ragnar Margeirsson of seinn að klára gullið færi. FH-ingar náðu að setja pressu á Keflvíkinga undir lok leiksins en áður voru sóknir þeirra bitlausar. Ragnar Margeirsson gerði vonir FH-inga að engu undir leikslok með góðu marki inni í vítateig og átti Haukur Ingi einnig þátt í því marki. Stjarna Keflvíkinga í þessum leik var tvimælalaust Haukur Ingi Guðnason sem er svo sannarlega búinn að festa sæti sitt í byrjunarliðinu. Yfirburðamaður FH-inga var Daníel Einarsson og áttu Keflvíkingar í erfiðleikum með að brjóta Garðsklettinn niður. Enginn munur á þessum liðum „Það sem gerði gæfúmuninn var að þeir voru á heimavelli. Það er enginn munur á þessum liðum. Það hefur alltaf verið seigla í Keflavíkurliðinu og það var það sem fleytti liðinu áfrarn," sagði Ingi Bjöm Albertsson, þjálfari FH. -ÆMK Mjólkurbikarkeppnin í knattspyrnu - 16-liöa úrslit: Skaginn kom fram hefndum - íslandsmeistarar ÍA lögðu Framara á Skipaskaga, 3-0 DV, Akranesi: „Aðalmálið var að vinna leikinn þó svo að hann væri ekki skemmti- legur,“ sagði Haraldur Ingólfsson, leikmaður Skagamanna, eftir 3-0 sigur á Fram í 16-liða úrslitum Mjólkurbikarkeppninnar í knatt- spyrnu á Akranesi í gærkvöld. Har- aldur bætti því við að hann ætti sér enga sérstaka óskamótherja í 8-liða úrslitunum. Það má segja að Skagamenn hafi þar með náð að hefna ófaranna frá því í fyrra en þá slógu Framarar ís- landsmeistararana út með sætum sigri á Laugardalsvelli. Leikurinn í gær var frekar slakur en þó svo að Framarar næðu ekki að komast á blað voru þeir óheppn- ir að skora ekki eitt til tvö mörk í leiknum. Fyrsta mark leiksins leit dagsins ljós á 7. mínútu þegar Mihaljo Bibercic skallaði knöttinn í netið eftir glæsisendingu frá Haraldi Ing- ólfssyni. Á sömu mínútunni bjarg- aði svo Steinar Adolfsson skoti Hólmsteins Jónassonar af marklín- unni. Skagamenn skoruðu annað markið á 28. mínútu þegar Bjarni Guðjónssonr skoraði af stuttu færi eftir að Ólafur Pétursson, mark- vörður Fram, hafði hálfvarið skot Zorans Miljkovic. Það var síöan Haraldur Ingólfs- son sem innsiglaði sigur Skaga- manna þegar hann skoraði þriðja markið á 70. minútu úr vítaspyrnu eftir að Ólafi Adolfssyni hafði verið hrint innan vítateigs. Þrátt fyrir að Skagamenn ynnu öraggan sigur voru þeir ekki aö leika sérlega vel. Þeir voru að vísu betri aðilinn en Framarar fengu fullt af færam og þurfti Þórður Þórðarson, besti maður ÍA í leikn- um, oft að bjarga vel. Zoran Mil- jkovic lék einnig vel og Haraldur Ingólfsson sömuleiðis. „Þetta var eins og við bjuggumst við. Við réðum ekki við Skagamenn þrátt fyrir að við sköpuðum okkur mörg góð marktækifæri," sagði Ás- geir Elíasson, þjálfari Fram, við DV eftir leikinn. Ólafur Pétursson var bestur í liði Fram og Ágúst Ólafsson lék einnig vel. Framherjinn snjalli Þorbjörn A. Sveinsson, átti hins vegar erfitt um vik enda í strangri gæslu Milj- kovic. -DÓ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.