Dagblaðið Vísir - DV - 02.08.1996, Síða 2
26
FÖSTUDAGUR 2. ÁGÚST 1996
Enn einn rússneski íþróttamaö-
urinn féO á lyfjaprófi í gær þeg-
ar lyf sem eru á bannlista Al-
þjóða frjálsíþróttasambandsins
fundust i Marinu Trandenkovu
100 metra hlaupara sem hafnaði
í 5. sæti í greininni.
Hún er fjórði Rússinn sem fellur
á lyfjaprófi á leikunum en allir
hafa þeir greinst með lyfið
Bromantan.
-GH
Ferílíin á
enda
hjá Bubka?
„Ferillinn gæti
verið á enda hjá
mér,” sagöi Úkra-
ínumaðurinn
Sergie Bubka við
fréttamenn í gær
en hann varð að
hætta við þátttöku í
stangarstökki á Ólymp-
íuleikunum vegna meiðsla í
hásin.
„Það er mjög erfitt að eiga við
svona meiðsl og ég tala nú ekki
um ef hásinin er slitin.
Ef allt er eðlilegt á verkurinn
að hverfa eftir upphitunina en
hjá mér hélt verkurinn áfram og
það var eins og það væri að
kvikna í mér,” sagði þessi 32 ára
gamli frábæri íþróttamaður.
-GH
fer að
aukast
Ólympíuleikunum lýkur á
sunnudag. Þegar hafa fjölmargir
íþróttamenn lokið keppni og fjör
er farið að færast í skemmtanalíf-
ið. Vinsælasti staðurinn er House
of Blues sem er í eigu leikarans
fræga, Dan Akroyd. Þar hafa
heimsfrægir skemmtikraftar
komið fram og má þar nefna
James Brown. Reiknað er með að
fjörið nái hámarki á sunnudags-
kvöld. -SK
Perec er best
- önnur konan til að vinna 200 og 400 m hlaup kvenna á sömu leikum
Það tókst ekki enn hjá Merlene Ottey frá
Jamaíka að vinna til gullverðlauna á Ólympíu-
leikum. f nótt tapaði hún úrslitahlaupinu í 200
metra hlaupi kvenna og það var franska stúlk-
an Marie-Jo Perec sem hirti gullið af Ottey á síð-
ustu metrum hlaupsins.
Ottey hljóp mjög vel í byrjun og var fyrst þeg-
ar 170 metrar voru að baki og 30 metrar í mark-
ið. Perec kom þá upp að hlið hennar og þessi
stórstíga franska hlaupadrottning virtist ekki í
neinum vandræðum með að innbyrða sigurinn
og áreynslulítið kom hún fyrst í mark á tíman-
um 22,12 sekúndum.
Jafnaði met Valerie Brisco Hooks
Sigur Perec í nótt var sögulegur. Hún jafnaði
met Valerie Brisco Hooks frá leikunum 1984
með því að sigra bæði í 200 og 400 metra hlaupi.
Þrátt fyrir ósigurinn hjá Ottey getur hún
sæmilega vel við unað. Hún á enn met í sögu
Ólympíuleikanna sem seint verður slegiö. Ottey
hefur komist í úrslitahlaup í 100 metra hlaupi
kvenna á öllum þeim fimm leikum þar sem hún
hefur verið á meðcd keppenda.
„Á mínum aldri er það of strangt að hlaupa
tvö 200 metra hlaup með klukkustundar miÚi-
bili. Ég var orðin þreytt í síðara hlaupinu. Ég
varð þó ekki fyrir neinum vonbrigðum. Ég gerði
mitt besta og meira er ekki hægt að ætlast til af
nokkrum íþróttamanni," sagði Merlene Ottey
eftir hlaupið í nótt.
Ottey er 36 ára gömul og hefur örugglega lok-
ið sér af hvað Ólympíuleika varðar. -SK
Enn einn Rússinn
fellur á lyfjaprófí
Gebrselassie
ósáttur við
hlaupabrautina
Eþíópíumaðurinn Haile Gebr-
slassie, sem stefndi á að vinna
sigur bæði í 5 og 10 þúsund
metra hlaupi, verður að sætta
sig við að vinna bara ein gull-
verðlaun á leikunum.
Gebrslassie, sem vann örugg-
an sigur í 10.000 m, var mjög
kvalinn í fótunum þegar hánn
kom í mark og treysti sér ekki til
að keppa í 5.000 m af þeim sök-
um.
„Þessi hlaupabraut er sniðin
tyrir spretthlaupara en ekki iyr-
ir þá sem eru í lengri hlaupun-
um,” sagði Gebrslassie.
Hann átti góða möguleika á
að bætast í hóp fjögurra
hlaupara til að vinna til gull-
verðlauna í 5 og 10 þúsund metra
hlaupi á leikunum.
-GH
Þjóöarsorg
rikirí
Brasifíu
Þjóðarsorg rikir i Brasilíu eft-
ir tap heimsmeistara Brasilíu-
manna gegn Nígeríumönnum í
undanúrslitum knattspyrnu-
keppninnar í fyrrinótt.
Brasilíumenn töldu víst að
sínir menn færu alla leið og
raddir eru uppi um það í Brasil-
íu að reka eigi þjálfarann vegna
ósigursins.
-GH
íþróttir
Vandræðalaust
hjá Adkins
Heimsmeistarinn í 400 metra grindahlaupi,
Bandaríkjamaðurinn Derrick Adkins, sýndi og
sannaði að hann er bestur í þessari grein þegar
hann tryggði sér Ólympíumeistaratitilinn í nótt.
Adkins, sem er frá Atlanta, vann tiltölulega ör-
uggan sigur og kom í mark á 47,54 sek. sem er jöfn-
un á besta árangri hans.
Næstur á eftir Adkins, eins og á heimsmeistara-
mótinu varð, Zambíumaðurinn Samuel Matete og í
þriðja sæti hafnaði Bandaríkjamaðurinn Calvin
Davis eftir gríðarlega haröa keppni við Svíann Sven
Nylander.
Nylander hefur verið á meðal bestu hlaupara í
þessari grein í 15 ár. Timi hans í gær, 47,98 sekúnd-
ur, er besti árangur hans en því miöur fyrir hann
náði hann ekki verðlaunasæti frekar en á Ólympiu-
leikunum í Los Angeles árið 1984 þegar hann missti
naumlega af þriðja sætinu. -GH
merka
úr leik
Óvæntir atburðir áttu sér
stað í undanrásum 1.500
metra hlaups kvenna í Atl-
anta í gær.
Hassiba Boulmerka frá
Alsír, Ólympíumeistarinn í
greininni frá Barcelona, datt
um miðbik hlaupsins og
missti því af möguleikum á
aö verja titilinn frá
Barcelona. Boulmerka lauk
þó hlaupinu og fékk lófatak
fyrir frá áhorfendum. -SK
Marie-Jo Perec frá Frakk-
landi kemur fyrst í mark í 200
metra hlaupi kvenna í nótt.
Perec varð þar með önnur
konan í sögu leikanna til að
vinna gullverðlaun ■ 200 og
400 metra hlaupi á sömu
Ólympíuleikum.
Símamynd Reuter