Dagblaðið Vísir - DV - 02.08.1996, Síða 3
FÖSTUDAGUR 2. ÁGÚST 1996
27
DV
íþróttir
Xr
. Tennis:
Agassi mætir
Bruguera
Það verða Bandaríkjamaður-
inn Andre Agassi og Spánverj-
inn Sergei Bruguera sem leika
til úrslita í einliðaleik karla i
tennis á morgun.
Bruguera vann sigur á Brasil-
íumanninum Fernando Meligeni
í undanúrslitunum i gær nokkuð
örugglega, 7-6 og 7-2.
„Fyrir mig er þetta ólýsanleg
tilfinning og mikilvægt at'riði í
lífi mínu. Þetta er búið að vera
erfitt ár fyrir mig, ég hef ekki
náð að vinna marga leiki á tíma-
bilinu og hef átt við þrálát
meiðsli að striða," sagði Brugu-
era eftir sigurinn.
Andre Agassi tryggði sér sæti
í úrslitunum með því að leggja
Indverjann Leander Paes að
velli, 7-6 og 6-3. Agassi þurfti að
hafa fyrir sigrinum. ífyrri lot-
unni lenti Agasi undir, 6-5, en
tókst að innbyrða sigurinn með
góðum leik í lokin. Indverjinn
hefur svo sannarlega komið á
óvart í keppninni en hann er í
127. sæti á styrkleikalistanum.
Á áhorfendum mikið að
þakka
„Ég á frábærum áhorfendum
mikið að þakka. Þegar ég var
undir í fyrri lotunni hvöttu þeir
mig dyggilega og fleyttu mér yfir
erfiðasta hjallann. Þetta var ann-
ars hörkuleikur og ég þurfti að
leggja mikið á mig til að vinna,“
sagði Agassi eftir leikinn.
-GH
Kínverjar bestir
í borðtennis
Kínverjar hafa verið sigursæl-
ir í borðtenniskeppni Ólympíu-
leikanna og hafa unnið 8 gull-
verðlaun af þeim 12 sem hafa
veriö í boði. í einliðaleik karla
varð Kinverjinn Liu Guoliang
Ólympíumeistari í gærkvöld
með sigri á landa sínum í úr-
slitaleik, 3-2 (21-12, 22-24, 21-19,
15-21, 21-6).
Brassarnir
unnu Króata
Brasilía og Grikkland leika
um 5. sætið í körfuknattleik
karla. Brasilíumenn, með Oscar
Schmidt í fararbroddi, gerðu sér
lítið fyrir og lögðu Króata, 80-74.
Schmidt var Króötum sérlega
erfiður í fyrri hálfleiknum en þá
skoraði hann 24 stig en í síðari
hálfleiknum var hann í strangri
gæslu Toni Kukocs og skoraði þá
aðeins 8 stig. Grikkir, sem keppa
í fyrsta sinn í körfuknattleik á
Ólympíuleikunum, rótburstuðu
Kínverja, 115-75, Panyotis
Fassoulas var stigahæstur
Grikkjanna með 20 stig.
Bandaríkjastúlkur
Ólympíumeistarar
Kvennalandslið Bandaríkj-
anna varð i gær Ólympíumeist-
ari í knattspyrnu þegar það
vann 2-1 sigur á Kína í úrslita-
leik.
Norsku stúlkumar tryggðu
sér í gærkvöld bronsverðlaunin í
knattspymukeppninni með 2-0
sigri á Brasilíu. Trine Tangerass
skoraði bæði mörkin um miðjan
fyrri hálfleik. -GH
Charles Barkley blæs tyggjókúlu í rólegheitum í leiknum viö Ástrala í nótt. Bandaríkjamenn sigruðu auðveldlega og
mæta Júgóslövum í úrslitum og Barkley var stigahæstur með 24 stig. Símamynd Reuter
Eiginkona Ólym-
píunefndarmanns
var handtekin
Julie Pould, eiginkona Dick
Pounds, nefndarmanns í Alþjóða
Ólympiunefndinni, var handtek-
in á götu í Atlanta i gær. Hjón-
in gengu þvert yfir umferðar-
götu og virtu aðvaranir götulög-
regluþjóns að vettugi.
Samkvæmt skýrslu lögreglu-
konunnar sendi frúin honum
tóninn á niðrandi hátt og gekk í
burtu. „Þá greip ég í handlegg
hennar og sagði henni að hún
væri handtekin. Frú Pound fór
aftur niðrandi orðum um mig og
sparkaði í nárann á mér. Síðan
kallaði hún, hjálpið mér, lög-
regluþjónninn er að ráðast á
mig,“ stóð í skýrslunni.
Pound-hjónin eru frá Kanada
og Dick er einn æðsti maður
Ólympíunefndarinnar. Hann er
ekki nefndur á nafn í skýrslunni
en hann segir að skýrsla lög-
reglukonunnar sé mjög óná-
kvæm og villandi. „Ég er stadd-
ur í skrýtnu landi og veit ekki
hvernig svona hlutir ganga fyrir
sig. Við voru á gangi í mestu ró-
legheitum og áttum okkur
einskis ills von,“ sagði Dick
Pound. Kona hans hefur verið
ákærð fyrir framkomu sína.
Júggarnir í úrslit
gegn draumaliðinu
- eftir sigur á Litháum og draumaliðið lagði Ástrala
Það verða Júgóslavar
sem fá það skemmtilega
verkefni að mæta
draumaliði Bandaríkj-
anna í úrslitaleik
körfuknattleikskeppninn-
ar en undanúrslitaleikirn-
ir fóru fram í nótt.
Eins og við var að bú-
ast bar draumaliðið sigur
úr býtum af liði Ástrala,
101-73, en í hálfleik var
staðan 51-41. Ástralir
héngu í bandaríska liðinu
fyrsta kortérið en eftir
það skildu leiðir.
Charles Barkley skor-
aði 24 stig og var með
100% skotnýtingu utan af
velli, Arnfernee Harda-
way 14, David Robinson
14, Shaquille O’Neal 14,
Mitch Rithmond 9, Karl
Malone 6, Gary Peyton 6,
Scottie Pippen 6, Reggie
Miller 5 og John Stockton
3. Hjá Áströlum var
Andrew Gaze með 25 stig
og Shane Heal 19.
„Það verður gaman að
mæta Júgóslövum því við
höfum ekki leikið gegn
þeim áður og ég á von á
erfiðum leik,” sagði Bark-
ley eftir leikinn.
Júgóslavar unnu sigur
á Litháum í jöfnum og
spennandi leik, 66-58, eft-
Badminton:
Fyrsti Evrópubúinn
sem vinnur gullið
Daninn Poul-Erik Hoyer-Larsen tryggði sér i gær Ólympíumeistaratitilinn
í einliðaleik karla í badminton þegar hann lagði Kínverjann Jiong Dong í
úrslitaleik, 15-12 og 15-10. Með sigrinum varð Larsen fyrsti Evrópubúinn til
að vinna gullverðlaun á Ólympíuleikum en andstæðingur hans er efstur á styrk-
leikalista Alþjóða badmintonsambandsins. „Ég trúði því statt og stöðugt að ég gæti
unnið þennan leik og mikilvægt var fyrir mig að láta hann ekki sækja of stíft á mig.
Hann gerði mistök sem ég gerði ekki,“ sagði Larsen, glaður í bragði eftir leikinn.
-GH
AttaÉWi
QS2P
Tekur Lewis
sæti Burrells?
Carl Lewis heldur enn i von-
ina um að keppa fyrir hönd
Bandaríkjanna í 4x100 metra
boðhlaupinu á laugardaginn.
Igær dró Leroy Burrell sig
út úr sveitinni vegna
meiðsla í hásin og það gefúr
Lewis möguleika á að verða
valinn í hans stað og um leið
tækifæri til að að vinna sín
10. gullverðlaun á Ólympíu-
leikum.
Mikill þrýstingur hefur verið
frá bandarísku þjóðinni á að
Lewis verði í boðhlaupssveitinni
en upphaflega var hann ekki
inni í myndinni.
„Ég á nokkra möguleika í stöð-
unni en ég mun gera það sem er
best fyrir liðið og bandarísku
þjóðina,“ sagði Erv Hunt, þjálf-
ari bandaríska landsliðsins.
-GH
ir að staðan í hálfleik var,
35-31. Predrag Danilovic
var stigahæstur Júgó-
slava með 19 stig og
Aleksandar Djordjevic 16
en hjá Litháum skoraði
Rimas Kurtinaitis 22 og
Arvydas Sabonis 14.
Júgóslavar hafa
unnið alla sina
leiki í keppn-
inni eins og
draumaliðið
og verður
fróðlegt að
sjá hvort
þeir ná
aö veita
banda-
rísku snillingunum ein-
hverja keppni.
GH
Poul-Erik Hoyer-Larsen,
danski badmintonsnilling-
urinn, vann gulliö í Atlanta
I gær. Símamynd Reuter