Dagblaðið Vísir - DV - 02.08.1996, Síða 7
FÖSTUDAGUR 2. ÁGÚST 1996
47
DV
íþróttir
- fyrsti Bandaríkjamaðurinn sem
sigrar í tugþraut síðan árið 1976
Bandaríkjamaðurinn Dan
O’Brien felldi þegar ljóst varð að
hann var búinn að tryggja sér
langþráð gull á ólympíuleikum í
tugþraut. Áhorfendur, sem
troðfylltu Ólympíuleikvanginn í
nótt, hylltu þennan frábæra
íþróttamann vel og lengi. Dan
O’Brien átti aðeins eftir að bæta
gullverðlaunum á Ólympíuleikum í
safnið og það tókst loksins á
heimavelli. Hann var búinn að
verða heimsmeistari þannig að það
voru líklega síðustu forvöð að vinna
gullið í nótt. Honum mistókst að
tryggja sér þátttökurétt á
Ólympíuleikunum i Barcelona fyrir
fjórum árum sem urðu honum að
vonum sár vonbrigði.
Dan O’Brien var þó nokkuð frá
heimsmeti- og Ólympíumeti en
sigur hans var engu að síður
öruggur og glæsilegur. Hann tók
forystu í tugþrautinni strax í fyrstu
grein fyrri keppnisdags og lét hana
ekki af hendi eftir það. Hann lauk
þrautinni á 8.824 stigum eða 118
stigum á undan einhverju mesta
efni sem fram hefur komið,
Þjóðverjanum Frank Busemann.
Þjóðverjinn lauk keppni með 8.706
stigum og er ljóst af frammistöðu
hans að hann er arftaki Dan
O’Brien þótt aðeins sé hann 21 árs
gamall.
í síðustu greininni í nótt kom
berlega í Ijós að O’Brien var að fram
kominn af þreytu en hann hefur
alltaf átt erfitt með þá grein. Hann
er miklu fremri i spretthlaupum,
köstum og stökkv-um.
„Ég get ekki lýst með orðum
hvemig mér líður. í öðrum hring í
1500 metra hlaupinu var dásamlegt
að heyra í áhorfendum kalla nafn
Bandaríkjanna hvað eftir annað.
Þetta er stund sem fer mér seint úr
minni.” sagði Dan O’Brien eftir
verðlaunaafhendingu í nótt.
-JKS
Jón Arnar Magnússon hefur hér vippað sér yfir 4,80 metra í stangarstökkinu í Atlanta í gær. Jón Arnar stóð sig
frábærlega vel í tugþrautarkeppninni, setti nýtt íslandsmet og hafnaði í 12. sæti af 40 keppendum. Árangur Jóns
Arnars er frábær þegar það er haft í huga að hann var frekar slakur í tveimur greinum, langstökki og kringlukasti.
Símamynd Reuter
gull hjá
O’Brien
Sigurvegarinn í tugþrautinni, Dan O’Brien frá Bandaríkjunum tekur hér til
hendinni í kringlukastinu í Atlanta í gær. O’Brien er fyrsti
Bandaríkjamaðurinn sem vinnur tugþraut á ÓL í 20 ár. Símamynd Reuter
Loksins
Anægður með minn
hlut í tugþrautinni
- sagði Jón Arnar Magnússon að lokinni keppni í Atlanta i nótt
DV, Atlanta:
„Þegar öllu er á botninn
hvolft er ég ánægður með
minn hlut í tugþrautinni. Ég
get þó ekki leynt því að mað-
ur vill alltaf meira en segja
má að kringlukastið og lang-
stökkið hafi komið i veg fyr-
ir það. Eins gekk 1500 m
hlaupið ekki alveg nógu vel
upp þótt ég bætti mig í
hlaupinu. Ég var þolanlega
ánægður með hástökkið en
annars sáttur með aðrar
greinar,” sagði Jón Arnar
Magnússon eftir að tug-
þrautarkeppni á Ólympíu-
leikunum í Atlanta lauk í
nótt.
Jón Arnar sagði að veðrið
hefði ekki sett strik í reikn-
inginn svo heitið gæti. Það
var þó svolítið sleipt að eiga
við stangarstökkið á blautri
brautinni. Jón sagði að rign-
ingin hefði bara verið góð.
„í síðustu greininni, 1500
metra hlaupinu, var alltaf
markmiðið hjá mér að halda
taktinum út í gegn. Það
hafðist ekki alveg en þessi
síðasta grein er alltaf erfið.
Það sem liggur fyrir hjá
mér er að öllum að líkindum
þátttaka á hinu árlega tug-
þrautarmóti í Talance í
Frakklandi um miðjan sept-
ember.
Fyrst ætla ég þó að taka
mér tíu daga hvíld og taka
síðan þráðinn upp að nýju
við æfingarnar. Þátttakan í
tugþrautinni hér á Ólympíu-
leikunum í Atlanta hefur
verið mér gríðarlega góður
skóli og mér hefur áskotnast
reynsla sem mun örugglega
nýtast mér í þrautinni í
framtíðinni,” sagði Jón Arn-
ar Magnússon í samtaii við
DV í Atlanta í nótt.
Aðspurður hvernig hon-
um hefði liðið þegar hann
var búinn að fella tvisvar
sinnum 4,50 metra í stangar-
stökkinu sagði Jón Arnar að
hann hefði verið ákveðinn í
því í síðustu tilrauninni að
framkvæma stökkið tækni-
lega rétt og það hefði gengið
eftir.
Um leið var hann tekinn
í lyfjapróf.
Mótið í Talance er eitt
stærsta tugþrautarmót sem
haldið er í heiminum. Jóni
Arnari hefur tvívegis verið
boðin þátttaka í því móti og
staðið sig vel í bæði skiptin.
Tugþrautarmenn ná sér
alltaf vel á strik í Talance en
þar setti Jón Arnar íslands-
met 1995 sem hann sló síðan
með eftirminnilegum hætti í
Atlanta í nótt.
Dan O’Brien setti heims-
met sitt i Talance árið 1992
og það stendur enn í dag.
O’Brien verður með á mót-
inu í Frakklandi í september
ásamt öllum fremstu tug-
þrautarmönnum heimsins.
-MT