Dagblaðið Vísir - DV - 22.08.1996, Side 7

Dagblaðið Vísir - DV - 22.08.1996, Side 7
T FIMMTUDAGUR 22. ÁGÚST 1996 Fréttir * T Matthías Halldórsson aðstoðarlandlæknir: Lyfsala dróst saman um 10 til 14 prósent - fyrstu 15 daga læknadeilunnar „Fyrstu 15 daga eftir að heilsu- gæslulæknar hættu störfum dróst lyfsala saman á milli 10 og 15 pró- sent að því er ég best veit. Undan- farin ár hefur lyfsala aukist um 10 prósent frá ári til árs og því hefði lyfsala þessa 15 daga átt að vera meiri en sömu 15 daga í fyrra. Þess vegna má segja að hér sé um all- nokkum samdrátt að ræða. Hann kemur ekki á óvart því fólk nær nú síður í lækni en áður og ekki eru öll lyf lífsnauðsynleg," sagði Matthías Halldórsson aðstoðarlandlæknir í séuntali við DV. Hann var spurður hvort þetta þýddi að á venjulegum tímum væri fólk að fá lyf sem það hefði ekkert við að gera. „Ég vil ekki taka undir það. Á þessu getur til að mynda verið sú skýring að fólk hafi birgt sig upp af lyfjum þegar það sá í hvað stefndi í læknadeilunni en því miður hafa ekki verið teknar saman tölur um lyfsölu í júlímánuði til að kanna - þetta. Svo munu þeir sem geta dreg- ið við sig að endumýja lyf sín gera það þegar fyrirhafnarsamt er að ná í lækni,“ sagði Matthías. Hann sagði að sérstakur hópur kæmi saman á hverjum morgni og færi yfir stöðu mála vegna lækna- deilunnar. Reynt væri að stoppa í götin þar sem ástandið væri verst Ástandið versnar jafnt og þétt í heilsugæslumálunum vegna læknadeilunn- ar. Þessi mynd var tekin í gær á endurkomudeild Sjúkrahúss Reykjavíkur og eins og sjá má er biðrööin löng og lengist dag frá degi. DV-mynd BG til að koma í veg fyrir neyðará- stand. Það hefði tekist en það væri staðreynd að víða úti á landi væri slæm staða. Hann nefndi sem dæmi íbúa Vopnafjarðar. Þurfi þeir að leita læknis verða þeir að fara til Þórshafnar til þess. „Þetta er því bæði erfitt og alvar- legt ástand á nokkrum stöðum. Við höfum beðið lækna að gegna ákveð- inni neyðarþjónustu þannig að eng- inn bíði varanlegt Ijón á heilsu sinni eða týni lífinu vegna stöðunn- ar I heilsugæslumálunum. Þeir hafa orðið við því,“ sagði Matthías Hall- dórsson. Hann sagði að vandamál eldra fólksins hafa aukist eftir því sem lausn deilunnar hefur dregist á langinn. Einnig væri farið að bera á því að aðsókn til sérfræðinga ykist. Þar væri fyrst og fremst um að ræða bamalækna og augnlækna. -S.dór Alvarlegt ástand aö myndast vegna læknadeilunnar: Hættuástand á landsbyggðinni - segir Ólafur F. Magnússon heimilislæknir „Ég tel að það sé þegar skollið á neyðarástand á landsbyggðinni vegna kjaradeilu heilsugæslulækna við fjármálaráðuneytið. Ég tel það bara heppni að ekkert alvarlegt hef- ur hlotist af og tel tímaspursmál hvenær það gerist,“ sagði Ólafur F. Magnússon, formaður Félags sjálf- stætt starfandi heimilislækna, í sam- tali við DV. Hann segir að sjálfstætt starfandi heimilislæknar hafi mjög orðið varir við að fólk, sem ekki er á skrá hjá þeim, leiti nú til þeirra. Þetta sé mik- ið fólk utan af landi og eins skjól- stæðingar heilsugæslustöðvanna á höfuðborgarsvæðinu. Hann segir þetta áberandi eftir síðustu helgi. Það sé eins og fólk hafi setið á sér og vonast til að deilan leystist en geti nú ekki beðið lengur. „Okkm- sjálfstætt starfandi heimil- islæknum, sem erum 19 í Reykjavík, er gert skylt, samkvæmt samningi, að hafa 1750 manns á skrá hjá okkur. Við höfúm því ekkert svigrúm til að bæta við okkur sjúklingum. Ég játa það líka að við erum í afar erfiðri að- stöðu í þessari deilu. Það eru starfs- systkin okkar sem eru að berjast fyr- ir bættum kjörum og við viljum ekki bæta sjúklingum á skrá hjá okkur meðan þessi deila stendur yfir. Ég tel að í Reykjavík sé svo fjölbreytt læknaþjónusta rekin utan heilsu- gæslustöðva, bæði hjá sjálfstætt starfandi sérfræðingum og heimilis- læknum, að sams konar neyðará- stand og nú þegar ríkir úti á landi sé miklu lengur að koma fram hér í höfuðborginni. En þetta versnar dag frá degi og manni lýst illa á þær fréttir sem berast af deilunni að ekk- ert sé að þokast í samkomulagsátt," sagði Ólafur F. Magnússon. -S.dór Komur á Vog ’95: Sex komu fimm sinnum í ársskýrslu SÁÁ eru birtar töl- ur yfir þá sem koma oftar en einu sinni á Vog. Alls komu 1.608 á Vog á árinu og þar af 1.214 einu sinni. Það sem vekur hins vegar athygli er að 310 koma tvisvar, 58 þrisvar, 20 górum sinnum og 6 komu alls fimm sinnum á Vog á árinu 1995. Þetta sama ár komu 365 karl- menn á Vog sem höfðu innritast tvisvar sinnum eða oftar í endur- hæfingarmeðferð. -sv BILAhusið SÆVARHÖFÐA 2 ® 525 8020 \ HÚSIINGVARS HELGASONAR Úrval notaðra bíla á góðum kjörum! BMW 318iA ’92,4d.,ek. 32 þús. km, ssk., álfelgur, dökkblár. Verð 1.750.000 Subaru Legacy 1,8 DL4x4, 5 d., ek. 73 þús. km. 5 g., hvítur. Verð 1.350.000 Nissan pickup 2WD '91, 2 d., ek. 69 þús. km, 5 g., hvítur. Verö 590.000 Ford Econoliner 150 V-6,4x4, '91, ek. 100 þús. km, ssk., blár. Verö 1.450.000 Opel Astra 1,4 st. '96, ek. 2 þús. km, dökkgrænn, 5 g. Verð 1.260.000 Toyota Touring 1,6 Gli 4x4 '94, ek. 75 þús. km, grænn/silfur. Verð 1.340.000 Hyundai Sonata, V- 6 '92, ek. 59 þús. km, blár, ssk. Verð 1.450.000 Nissan Primera 2,0 SLX '96, ek. 13 þús. km, ssk., dökkgrænn. Verð 1.790.000 Nissan Sunny 1,6 SLX 4x4 station, '95, ek. 23 þús. km, silfur, 5 g. Verð 1.550.000 Toyota Carina E 2.0 GLi '93, ek. 89 þús. km, sóllúga o.fl. dökkgrár. Verö 1.480.000 Nissan Sunny 1,6 SLX 4x4 st. '93, ek. 58 þús. km, Ijósbl. 5 g. Verð 1.270.000 Renault Charmade 19 '92, ek. 70 þús. km, 5 g., hvítur. Verð 920.000 Toyota Corolla XLi Special Series '94, ek. 34 þús. km, 5 g., 5 d. Verð 1.140.000 Volvo 740 GL 2,3 '95, ek. 155 þús. km, 4 d., ssk., blár. Verð 580.000 MMC Galant 2,0 GLSi '89, ek. 139 þús. km, 5 g„ 4 d. Verð 790.000 MMC Lancer 1,5 GLX '91, ek. 56 þús. km, ssk., spoiler, geislasp. o.fl. Verð 810.000 Toyota Camry 2,2 GL '92, ek. 50 þús. km, ssk. Verð 1.450.000 Opel Vectra 1,7 TD '95, ek. 32 þús. km, 5 g., 4 d. Verð 1.520.000 Nissan Terrano 3,0 '91,5 d., ssk., ek. 97 þús. km. Verð 1.960.000 VW Caravelle 2,4 dísil, '95, ek. 29 þús. km, 9 farþega, ssk. Verð 1.960.000 Nissan Patrol 2,8 TD '96, ek. 10 þús. km, 5 g„ 5 d. Verð 3.700.000 Chrysler Voyager LE, AWD '91,7 manna, ssk., ek. 82 þús. km. Verð 1.950.000 Subaru SVX '93, ek. 2 þús. km, 230 hö, einn með möllu. ssk. Verð 3.650.000 Renault 19 TR '93,5 g., ek. 73 þús. km, 4 d. Verð 950.000 Ath.! Skuldabréf til allt að 60 mánaða. Jafnvel engin útborgun. Visa/Euroraögreiöslur Op\ö vitka \augat' .. . — . ...J-

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.