Dagblaðið Vísir - DV - 22.08.1996, Síða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 22.08.1996, Síða 8
8 FIMMTUDAGUR 22. ÁGÚST 1996 Útlönd ^ Borís Jeltsín mætti aftur til starfa í morgun: Ibúar Grosní efins um að vopnahlé Lebeds haldi Skelfdir íbúar Grosní flýja borgina í gær en þá höfðu hershöfðingjar Rússa lýst því yfir að þeir mundu sprengja borgina sundur og saman. Símamynd Reuter Borls Jeltsln Rússlandsforseti kom til vinnu sinnar í Kreml í morgun eftir tveggja daga frí í norð- vesturhluta landsins. Var búist við að forsetinn ynni við einhverja pappíra í dag og mundi hitta þá sem sækjast eftir ráðherrastöðum sem enn eru lausar. Jeltsín hefur ein- ungis sést einu sinni á almannafæri síðan hann sigraði í forsetakosning- unum í júlíbyrjun en það var við innsetningu hans í embætti. Þá þótti hann stirður og stífur sem gaf vangaveltum um slælegt heilsufar hans byr undir báða vængi. En meðan Jeltsín kom sér fyrir á skrifstofu sinni í Kreml biðu íbúar Grosní, höfuðborgar Tsjetsjeníu, milli vonar og ótta um hvort yfirlýst vopnahlé mundi halda. Tiltölulega hljótt var í borginni í nótt eftir harðar stórskotaliðsárásir Rússa á stöðvar skæruliða í gærdag. íbúamir, þeir sem ekki höfðu þegar flúið, horfðu kvíðnum augum til dagsins í dag og vom fullir efa- semda um að loforð Alexanders Lebeds, öryggisfulltrúa Jeltsíns, mundi halda. Hann hafði lofað að af- stýra fyrirhugaðri stórárás á Grosní sem rússneskir hershöfðingjar sögðu að væri ætlað að svæla skæruliða aðskilnaðarsinna út úr borginni í eitt skipti fyrir öll. Lebed sagði í gærkvöldi að hann hefði samið um vopnahlé við yfir- mann skæruliða en þeir náðu Grosní á sitt vald fyrir tveimur vik- um. En þar sem vopnahlé hafa ekki haldið lengi í Tsjetsjeníu undan- farna mánuði búast íbúarnir við hinu versta. Talsmenn rússneska hersins, sem auömýktur var af skæruliðum við yfirtöku borgarinnar, gáfu frekara tilefni til efasemda um vopnahlés- samninginn þegar þeir sögðu að skæruliðar mundu einungis not- færa sér ástandið til að styrkja stöðu sína. I gær höfðu þeir gefið íbuúm borgarinnar stuttan frest til að yfirgefa hana því þeir mundu sprengja hana sundur og saman. Lebed sagði hótanir hershöfð- ingja Rússa í Tsjetsjeníu marklaus- ar og lofaði að engar stórárásir yrðu gerðar á Grosní í framtíðinni. Að- spurður um valdabaráttu milli hans og hershöfðingjanna sagði Lebed að enginn hefði gefið neinum vald til ákvörðunar. Hann hefði einfaldlega tekið sér slíkt vald i hendur. Boðaði hann auk þess einfóldun boðleiða varðandi málefni Tsjetsjeníu en misvísandi yflrlýsingar háttsettra aðila um aðgerðir þar hafa valdið mikilli óvissu um hvert stefndi. Reuter Um 50 smáhvalir villtust upp að ströndum Ástralíu í gær. Unnu um 500 náttúruverndarsinnar aö björgun hvalanna og tókst að bjarga þeim flestum. Er þetta í annaö sinn á skömmum tíma sem hvalir synda á land í Ástralíu en unnið var að björgun yfir 200 hvala á dögunum. Alls fórust fjórtán hvalir í þessum sér- stæðu hamförum. Símamynd Reuter Hóta að halda 48 daga mótmælasvelti áfram Fjármál drottn- ingar flókin í kjölfar yfirlýsinga Elísabetar drottningar um róttækar breyt- ingar á breska konungdæminu beinast augu manna að flóknum fjármálurn konungsfjölskyldunn- ar. Drottningin er talin ein ríkasta kona heims og eru eignir hennar skv. viðskiptahandbók metnar á 158 milljónir punda. Talsmaður Buckinghamhallar segir hins veg- ar að þessar tölur séu stórýktar. Hann segir að þeir sem fái þessar tölur reikni með hlutum sem ekki eru í einkaeign drottningar, t.d. skartgripum og húseignum , hlut- um sem hún getur ekki selt. Drottningin hefur fengið um- talsverða fjármuni síðastliðin ár til aö mæta kostnaði konungdæm- isins en síðan 1992 hefur hún greitt skatta af eigin tekjum. Afrískir innflytjendur, sem berj- ast fyrir áframhaldandi landvistar- leyfi í Frakkalndi, hótuðu í gær að þeir mundu halda áfram mótmæla- svelti sínu, sem staðið hefur í 48 daga. Kom sú hótun þrátt fyrir lof- orð frönsku ríkisstjórnarinnar um að hæstiréttur Frakklands mundi endurskoða mál margra þeirra. Eftir fund með Jean-Louis Debre innanríkisráðherra sagði talsmaður innflytjendanna að hann hefði ekki fallist á kröfur þeirra um að allir 300 mótmælendanna fengju land- vistarleyfi i Frakklandi. Af þessum 300, sem hafast við í kirkju, eru 10 í mótmælasvelti. Sagði talsmaðurinn að mótmælasveltið mundi því halda áfram. Stuðningsmenn innflytjend- anna hafa myndað hring um kirkj- una og meina lögreglunni þannig inngöngu. Ríkisstjórn Jaqcues Chiracs kom saman til neyðarfundar vegna máls- ins í gær og var þar rætt að endur- skoða framkvæmd vissra ákvæða innflytjendalaganna. En um leið var boðað að um endurskoðun laganna í heild yrði ekki að ræða. Áfram yrði tekið á ólöglegum innflytjendum af hörku. Nokkur þúsund mótmælendur gengu um götur Parísar í gær til stuðnings innflytjendunum. Nokkr- ir mótmælendanna hittu Debres að máli og sagði hann að alvarlegustu tilfellin meðal innflytjendanna yrðu endurskoðuð. Aðgerðir innflytjendanna hafa komið ríkisstjórn Chiracs í klípu. Skoðanakannanir sýna að franskur almenningur hefur samúð með mál- stað þeirra en þeir geta ekki farið aftur til heimalands síns. En öfga- sinnaðir hægrimenn hafa krafist þess að innflytjendunum verði vísað úr landi. Mótmælendur í París halda því fram að innflytjendurnir hafi fengið landvistarleyfl en þau verið gerð ógild með setningu svokallaðra Pas- qua-laga sem fyrrum innanrikisráð- herra Frakka, harðlínumaðurinn Charles Pasqua, mælti fyrir. Reuter Stuttar fréttir r»v Keppa um athygli Bill Clinton Bandaríkjaforseti undirritaði ný heilbrigðislög, sem er liöur í að stöðva upp- sveiflu keppinautarins Bob Dole. Vilja ná sáttum Kínverjar vilja taka upp póli- tískar viðræður við Taívan. Þeim finnst kominn tími til að þeir hætti að líta á sig sem keppinauta. Eldsneytistankur or- sökin Sérfræðingar telja að elds- neytistankur hafi sprungið í TWA- þotunni sem fórst við Long Island þann 17. júli sl. Skaðabætur Utanríkis- ráðherra Breta vill að Japanir horgi Bretum sem komust lífs af úr vinnubúð- um þeirra í seinni heims- styrjöldinni skaðabætur. Tonn af gulli Joachim von Ribbentrop, utanríkisráðherra í stjómartíð Hitlers, kom undan 15 tonnum af gulli áður en Berlín féll 1945. Blóðtaka Par var dæmt í Kína fyrir að pína andlega veikan mann til að selja þeim blóð sitt og ræna pen- ingum frá honum. Sjálfsmorð Svissneskur læknir framdi sjálfsmorð í flugvél í gær. Vélin var nýlent er hann tók upp hníf og stakk I hjartastað. Arafat stjórnar Yasser Ara- fat hefur ákveðið að sfjórna örygg- ismálum sjálf- ur i kjölfar dauða tveggja manna á Vest- urbakkanum. Stóðst lygapróf Richard Jewell, sem talið var að hefði komið fyrir sprengj- unni í Atlanta, er talinn saklaus. Hann stóðst lygapróf í gær. Karpov mætir heiminum Heimsmeist- arinn í skák, Anatoly Kar- pov, ætlar að tefla við heim- inn á Internet- inu þann 26. ágúst nk. Slöngubit Þriggja metra slanga beit ófríska konu á hótelherbergi í San Diego og vafði sig svo kring- um hana og mann hennar. Björg- unarmenn drápu slönguna. Nýnasisti dæmdur Dómstóll í Þýskalandi dæmdi ýnasistann Gary Lock í fögurra ára fangelsi fyrir kynþáttahatur. Saksóknari fór fram á fimm ára dóm. Hjartveik Móðir Ter- esa gengur ekki heil til skógar þessa dagana. Hún liggur á spít- ala vegna hjartveiki. Hvítflibbabrot Lögreglumenn í Afríku end- uöu í gær ráðstefnu þar sem samþykkt var að reyna að stemma stigu við hvítflibbabrot- um í landinu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.