Dagblaðið Vísir - DV - 12.09.1996, Blaðsíða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 12.09.1996, Blaðsíða 13
DV FIMMTUDAGUR 12. SEPTEMBER 1996 13 Mitt hlutverk að skrifa sögu jar sem conur eru líka með 31 »£2s Agnes S. Arnórsdóttir sagnfræöingur. Hefur ekki áhuga á að loka sig inni í saumaklúbbi. DV-mynd Hari Sitt lítið af hverju Upphafstónleikar nýs starfs- árs Sinfóníuhljómsveitar ís- lands verða þrennir, klukkan 20 á fimmtudags- og föstudags- kvöld og kl. 17 á laugardag, vegna mikillar eftirspurnar. Að venju verður tónleikagestum gefið í skyn hvað í vændum er í vetur, þó ekki séu leikin sömu verk og eru á tónleikaskrá vetr- arins. Á efnisskránni um helg- ina verða verk eftir Fi-anz von Suppé, Benjamin Britten, Jan K. Vanhal, Igor Stravinsky, Camille Saint-Saéns, Paul Dukas, Pjotr Tchaikovsky og Alexander Borodin. Einleikarar eru fagottleikararnir Hafsteinn Guðmundsson og Rúnar Vil- ; bergsson, en tónlistarstjóri upp- hafstónleikanna er Takuo Yu- I asa frá Japan. Ráðstefna á afmæli Nordals Stofnun Sigurðar Nordals gengst fyrir alþjóðlegri ráð- í stefnu um íslenska málsögu og textafræði í tilefni af tíu ára af- mæli sínu laugardaginn 14. september, fæðingardag dr. Sig- urðar Nordals. Alls verða fluttir fjórtán fyrirlestrar. Ráðstefnan verður í Norræna húsinu og hefst klukkan 9 um morguninn. Allir eru velkomnir meðan hús- rúm leyfir. íslensk silfursmíði Þór Magnússon þjóðminja- vörður flytur opinn fyrirlestur í Þjóðminjasafninu í dag kl.17 um íslenska silfursmiði og verk þeirra. í Bogasal safnsins stend- ur einmitt yfir sýningin Silfur í Þjóðminjasafni og geta áheyr- endur notað tækifærið og skoð- að marga góða gripi, meðal ann- ars silfurkaleika frá miðöldum, | búninga- og borðsilfur. Draumasmiðjan frumsýnir í fyrradag var í þessum dálki sagt frá nýju vinnustaðaleikriti Draumasmiðjunnar sem er byggt á bókinni Karlar eru frá Mars, konur eru frá Venus. Við- bótarfréttir eru þær að það verður frumsýnt á Kaffi Reykja- vík á hádegi á sunnudaginn. Umsjón Silja Adalsteinsdóttir Árið 1242 var samið um að Skál- holtsbiskup og Steinvör Sighvats- dóttir á Keldum skyldu gera um mál Þórðar kakala og Ámesinga, en þar sem þau greindi á skyldi Stein- vör ráða ein. Þetta er eitt dæmi um stjórnmálaáhrif kvenna á Sturl- ungaöld sem Agnes S. Arnórsdóttir fjallar um í bókinni Konur og víga- menn. Hún er unnin upp úr kandídatsritgerð sem hún skrifaði við háskólann í Björgvin í Noregi. Hugarheimur kvenna lokaður „Ég hef oft velt fyrir mér hvers vegna ég nota þennan titil, Konur og vígamenn," segir Agnes, „en ekki bara konur og menn. Ég er með allar konur undir en bara víga- menn. En það vantar meiri rann- sóknir í kvennasögu en karlasögu, við vitum svo mikið um karla að við getum leyft okkur að flokka þá í smærri hópa. Þetta er stjórnmála- saga og ég er að fjalla um stjórn- málaþátttöku kvenna, þess vegna urðu vígamenn fyrir valinu með konunum. Vígamaður er stjórnmálamaður þess tíma, sá sem situr á þingi, veg- ur og lætur vega menn. Goðar voru vígamenn. Snorri Sturluson var vígamaður. Ég er ekki að skoða stjórnmálasöguna út frá stjórnkerf- inu heldur því sem liggur á bak við það, hefndarskyldunni til dæmis. Að vega menn var stundum eina leiðin til að ná rétti sínum. Menn greiddu atkvæði með vopnum og grjóti. Sturlunga var mín aðalheimild, en hún er auðvitað karlmanna- saga. Við nálgumst hugarheim kvenna aldrei beint á miðöld- um, við verðum að rýna í beimildirnar til að sjá þær. En ég held að þær hafi skipt óskaplega miklu máli sem tengiliður milli hópa, ætta, fjölskyldna, og lika milli kynslóöa." Þú ert að skoða sam- spil milli kynjanna og áhrif kvenna á stjórn- málin. Kallarðu þetta kvennasögu? „Það fer eftir því við hvem ég er að tala. Á kvennasöguþingum kalla ég þetta kvenna- sögu, þá vitum við allar um hvað ég er að tala. En þegar ég sit með körlum, kannski sér- staklega ungum körl- um, sem ekki hafa komið nálægt kvenna- sögu, þá kalla ég þetta stjórnmálasögu eða fé- lagssögu. Ef ég segist vera að fást við kvennasögu er ég um leið komin á bás. Ég hef engan áhuga á að sitja á rannsóknar- stofu í kvennafræðum. Ég er sagnfræðingur. Við höfum þurft að hafa kvennasögu til mótvægis við hefðbundna sögu, en nú er kominn tími til að halda áfram. Mitt hlut- verk tel ég vera að skrifa sögu þar sem konur eru líka með. í gegnum aldirnar hafa karlar skrifað um karla, en það góða við að fá konur inn í fræðigreinarnar er að samfé- lagið verður ríkara. Helmingi stærra! Auðvitað er þetta kvennasaga. Markmiðið er að segja frá konum fremur en körlum. Það er erfitt að alhæfa um niður- stöður. Þessi bók er ekki um af- markað efni þar sem ég kemst að af- markaðri niðurstöðu. Ég er að reyna að opna sýn á samspilið milli kynjanna og hvaða máli kynferði fólks skipti. Niðurstaðan sem ég er ánægðust með er að mér finnst mér hafa tekist að nota heimildir á nýj- an og frjóan hátt. Það reynir hver kynslóð sagnfræðinga alltaf að gera. Ef maður finnur ekki beinlínis nýj- ar heimildir þá þarf maður að geta varpað nýju ljósi á þær gömlu. Ég fann mikið efni um konur í Sturlungu og Grágás, og auðvitað er staða þeirra að sumu leyti takmark- aðri en karla, en ekki að öllu leyti. Staða karla er líka takmörkuð. Það eru til svið þar sem konur ná lengra en karlar vegna hlutverks þeirra á heimilunum. Þær miðla sögum og kvæðum, þær eru óskaplega mikil- vægar í hlutverkum sínum sem mæður alla ævi.“ Og Agnes leggur sérstaka áherslu á síðustu tvö orð- in. „Konur skipta máli fyrir synina alla ævi, og verða sterkari eftir því sem þær eldast ef þær lifa lengi, og þær lifa lengur en karlar. Þeir drepa hver annan! í nýjum rann- sóknum úti í Evrópu eru alltaf að koma í ljós meiri áhrif kvenna á sagnaritun." Hvorki betra né verra Hefðirðu viljað vera kona á Sturl- ungaöld? „Já og nei. Að sumu leyti held ég að konur á Sturlungaöld hafi hvorki haft það betra né verra en við höf- um það núna. Ég er uppalin í sveit og þegar ég ber saman frásagnir ömmu minnar og það sem ég les um kjör kvenna í þess- inrLgömlu heimild- um þá er ekkert svo mikill munur. Auðvitað verða breytingar í sögu kvenna eins og karla, en vissir hlutir breytast lít- ið, og þá er ég að tala um þessi óformlegu völd. Konur á Sturl- ungaöld höfðu eng- in formleg völd, við höfum meira af þeim, en þær gátu - ef trúa má sögunum - beitt sér í orði. En þá erum við náttúr- lega að tala um sögur. Við getum aldrei ímyndað okkur alveg hvem- ig var að lifa á öðr- um tíma, og auð- vitað notum við alltaf okkar eigin samtíð við túlkan- ir á gömlum heim- ildum. Þegar ég sé hvernig konur stóðu milli tveggja fjölskyldna og höfðu skyldur við báðar þá öfunda ég þær ekki. Það get- ur enn verið erfitt fyrir konur að vera tengiliður milli tveggja fjöl- skyldna." Hvað er sögulegt? Fyrir nokkrum dögum rifjaði Ár- mann Jakobsson upp í kjallaragrein í DV ummæli 100 ára gamallar konu sem fannst sögulega merkilegasti atburður ævi sinnar þegar hún fékk falskar tennur. Hvað er merkilegt í sögunni að þínu mati? „Ákveðinn hópur hefur ráðið því hvað skipti máli í sögunni, og þar hafa konur ekki verið með. Stjórn- málasagan hefur verið talin mikil- vægust, og hún vissulega skiptir máli. En margt fleira skiptir máli, það fer eftir þörfum hvers tíma. Hvað þurfum við að fá að vita um fortíðina til að geta skilið samfélag- ið í dag og lifað í því? Þannig varð kvennasagan til, af nauðsyninni á að spegla sig í fortíðinni. Við þurf- um að fá að vita að við höfum ekki verið karlar." Agnes er núna á styrk frá norska vísindaráðinu og Óslóarháskóla í fjögur ár við rannsóknir á kaupmál- um hjóna frá síömiðöldum og kenn- ir með. „Ég kenni kvennasögu en kalla hana kynferðissögu því ég vil ekki fæla strákana frá mér. Ég er vara- leiðbeinandi ungs pilts sem er að skrifa um ástir í íslendingasögum, og mér finnst það mjög gaman. Það má ekki verða kvennaverk að fást víð kvennasögu. Ég hef líka áhuga á að fá fleiri til að athuga miðaldasög- una út frá kynferði. í nútímasög- unni á sér stað öll kenningasmíðin og umræðan. Það þarf meiri um- ræðu um eldri sögu, og hún er að vakna. Sjálf stend ég mitt á milli femín- istanna og gömlu karlanna, og það hentar mér mjög vel. Ég vil ekki loka mig inni í einhverjum sauma- klúbbi. Ég hef engan áhuga á því!“ Bókiti Konur og vígamenn kom út hjá Sagnfrœðistofnun 1995. Engin dæmi finnast um aö konum hafi veriö refsaö fyrir aö halda framhjá mönnum sínum, en í Grágás segir aö finni maöur annan mann í rúmi eiginkonu sinnar, dóttur, tengdamóöur eða systur, megi vega hann á staðnum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.