Dagblaðið Vísir - DV - 14.09.1996, Síða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 14.09.1996, Síða 14
14 LAUGARDAGUR 14. SEPTEMBER 1996 M-Þ Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. StjórnarformaíSur og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: EYJÓLFUR SVEINSSON Ritstjóri: JÓNAS KRISTJÁNSSON Aöstoðarritstjóri: ELÍAS SNÆLAND JÓNSSON Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON Auglýsingastjóri: PÁLL STEFÁNSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar: ÞVERHOLT111, blaðaafgreiðsla, áskrift: ÞVERHOLT114, 105 RVÍK, SÍMI: 550 5000 FAX: Auglýsingar: 550 5727 - RITSTJÓRN: 550 5020 - Aðrar deildir: 550 5999 GRÆN númer: Auglýsingar: 800 5550. Áskrift: 800 5777 Stafræn útgáfa: Heimasíða: http7/www.skyrr.is/dv/ Ritstjórn: dvritst@centrum.is - Auglýsingar: dvaugl@centrum.is. - Dreifing: dvdreif@centrum.is AKUREYRI: Strandgata 25, simi: 462 5013, blaðam.: 462 6613, fax: 461 1605 Setning og umbrot: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Filmu- og plötugerð: ÍSAFOLDARPRENTSMIÐJA HF. - Prentun: ÁRVAKUR HF. Áskriftarverð á mánuði 1700 kr. m. vsk. Lausasöluverð 150 kr. m. vsk„ Helgarblað 200 kr. m. vsk. DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins I stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Andvana þrælaþjóð íslendingar eru eins og klipptir út úr bókum Guðbergs Bergssonar. Þeir eru saddir og sljóir, lamaðir af yfirtíð og sjónvarpsglápi. Sumir rithöfundar hafa fyrir satt, að þetta háfi gerzt með stríðsárakynslóðinni, en aðrir segja íslendinga öldum saman hafa verið þrælslundaða. Einstaka ljós sést í þokunni, til dæmis tilraun Félags islenzkra bifreiðaeigenda til að losa bíleigendur undan áþján fáokunarhrings tryggingafélaganna. Sú tilraun mun þó ekki koma í veg fyrir, að meirihluti bíleigenda heldur áfram að þéna undir hefðbundna tryggingaherra. Ef almennt væri hryggur i þjóðinni, hefði hún flykkzt í Neytendasamtökin og Skattgreiðendafélagið og kúgað þjóðarleiðtogana til að láta af þjónustu við sérhagsmuni. Hún hefði flykkzt í stjórnmálaflokka og rutt brott ómög- um og smákóngum, sem þar hafa safnazt fyrir. Þjóðin hefur örlög sín á valdi sínu, en kærir sig ekki um að notfæra sér það. Menn taka í staðinn því, sem að höndum ber, eins og hverju öðru hundsbiti og reyna að kría út meiri yfirtíð til að halda uppi lífskjörum á erfið- um tímum. Þeir taka ekki ábyrgð á örlögum sínum. Fólk stundar lífsstíl, sem er gersamlega út í hött, og ætlazt síðan til að heilbrigðis- og tryggingageirinn komi með færibandið, sturti sér inn á sjúkrahús í uppskurði og eiturlyfjameðferð og haldi sér síðan uppi með örorku- bótum og sjúkradagpeningum. Það ber enga ábyrgð sjálft. Ein afleiðing sofandaháttar og þrælslundar þjóðarinn- ar er, að stjórnmálin snúast ekki um almannahagsmuni, heldur um auð og völd, auð sérhagsmunanna og völd stjórnmálamannanna til að stunda geðþótta út og suður, þvert á vestræn lýðræðis- og markaðslögmál. Önnur afleiðing er, að þjóðfélagið er illa rekið og þol- ir ekki há laun. Það er svo illa statt, að reynt er að hampa lágum daglaunum þjóðarinnar framan í erlenda fjárfesta. Láglaunakerfið er beinlínis orðið að landkynn- ingu. En yfirtíðin bjargar öllu að mati imbakassaim- banna. Tugum milljarða króna er brennt á hverju ári með hindrunum hins opinbera í vegi markaðskerfisins, svo sem innflutningsbanni, innflutningshöftum, innflutn- ingstollum, millifærslum, kvótum, búmarki, aflamarki, sóknardögum, reglugerðum og aftur reglugerðum. Markmiðið með öllu þessu rugli er, að sérhagsmunirn- ir geti haft það gott og þurfi ekki að taka til hendinni við að bæta reksturinn. Þess vegna koðnar flest framtak nið- ur í fáokun og einokun, meðan þjóðin ypptir öxlum og stundar sína yfirtíð og sitt sjónvarpsgláp. Meðal þeirra fáu, sem kunna að reka fyrirtæki, eru nokkrir gamlir kommúnistar austur í Neskaupstað, sem græddu í fyrra hundruð milljóna á hlutabréfabraski og rekstri frystihúss af sama tagi og aðrir reka með dúndr- andi tapi. Þetta sýnir vel litróf vannýttra möguleika. ísland gæti verið gósenland, ef íslendingar kærðu sig um. Þjóðin er að vísu svo fámenn, að hún hefur ekki greind til að manna alla pósta, sem máli skipta. En það hlýtur að vera hægt að fá miklu meira vit i pólitíkina, í blýantsnögunar-stofnanirnar og í einkaframtakið. Svo illa er mannað í toppstöðum þjóðfélagsins, að það er orðinn óskadraumur margra, að landið álpist inn í Evrópusambandið, svo að íslenzkir smákóngar geti síð- ur haldið úti séríslenzku böli á borð við áðurnefndar markaðshindranir og verðmætabrennslu af öðru tagi. Meðan kjósendur eru meira eða minna andvana í yfir- tíð og sjónvarpsglápi, breyta sér ekki úr þrælum í borg- ara, taka þeir enga ábyrgð á þjóðfélaginu og framtíðinni. Jónas Kristjánsson Kosningar breyta engu í Bosníu Eftirlitsmönnum með friðarferli í Bosníu ber saman um að mikið skorti á aö þar hafi skapast skil- yrði til frjálsra og marktækra kosninga, svo sem gert er ráð fyr- ir í Dayton-samkomulaginu sem stöðvaði bardaga í landinu. Samt sem áður fara kosningar til svæðaþinga og sambandsþings fram í dag. Ástæðan er kosninga- hagsmunir Bills Clintons Banda- ríkjaforseta. Þegar eftirlitsmenn frá Stofnun öryggis og samvinnu í Evrópu vöktu athygli á þvi um mitt sum- ar að vonlaust væri að Dayton- skilyrðin fyrir kosningum yrðu uppfyllt í haust var aðvörun þeirra vísað á bug fyrir harðfylgi Bandaríkjastjórnar. Hún barði þá afstöðu fram að með engu mótu mætti hagga fyrirfram ákveðnum kjördegi, hvað sem liði aðstæðum. Undir þessari afstöðu býr það sjónarmið að miklu skipti fyrir sigurhorfur Clintons í forseta- kosningunum í nóvemher að hann geti haldið því fram að staðið hafi verið við gefin fyrirheit um að vera bandarísks herliðs í Bosníu sé tímabundin og heimkvaðning þess geti hafist ekki síðar en 20. desember í vetur. í Dayton var gert ráð fyrir að ferðafrelsi hefði verið komið á í Bosníu áður en gengið yrði til kosninga, fjölmiðlafrelsi ríkti og skilyrði hefðu skapast til óheftrar stjórnmálastarfsemi. Engu af þessu er til að dreifa. Flóttafólki er meinað að snúa til fyrri heim- kynna, sér í lagi á yfirráðasvæði Serba. Útvarp og sjónvarp eru málgögn valdhafa og útgáfustarf- semi heft. Málsvarar fjölþjóðlegs samfélags í sameinaðri Bosniu hafa oröið fyrir hótunum og árás- um hvenær sem þeir hafa reynt að hafa sig í frammi í kosningabar- áttunni. Því þykir kunnugustu mönnum Erlend tíðindi Magnús Torfi Ólafsson sýnt að úrslit kosninganna í dag veröi fyrst og fremst til aö festa skiptinguna milli þjóðarbrota eins og hún hefur markast af aðgerð- um fjölþjóðaliðsins sem kom á vettvang eftir Dayton-samkomu- lagið. Meginverkefni þess hefur reynst vera að koma á og halda við belti milli áður stríðandi fylk- inga. Yfirstjórn liðsins, sem er í höndum Bandaríkjamanna, hefur staðfastlega neitað að greiða fyrir heimkomu flóttafólks eða elta uppi eftirlýsta stríðsglæpamenn. Ljóst er af verkum herstjórnar- innar að hún hefur fyrirmæli frá Bandaríkjaforseta um að forðast það umfram allt að til atvika dragi sem leitt geti til mannfalls í bandarísku sveitunum. Ekkert manntjón er að dómi Clintons nauðsynleg forsenda þess að ákvörðun hans um að taka þátt í fjölþjóðaliðinu í Bosníu njóti stuðnings bandarísks almennings- álits. En afleiðingin er sú að allar að- gerðir, sem styrkt gætu raunveru- lega myndun ríkisheildar á land- inu sem Bosnía nær yfir, hafa ver- ið vanræktar. Stofnanimar, sem kjömar verða í dag, geta engu um það breytt. , Af þessu leiðir að hverfi fjöl- þjóðaliðið á brott í vetur, eins og látið hefur verið í veðri vaka, sér- staklega af hálfu Bandaríkja- stjómar, eru allar likur á að ófrið- ur hefjist á ný, því allir aðilar eru ósáttir við markalínurnar sem dregnar voru í Dayton og hafa fullan hug á að breyta þeim. Því era fulltrúar NATO í Bosn- íu teknir að ræða um þörfina á að hafa þar fjölþjóðalið lengur, að minnsta kosti fram til 1998, þegar gert er ráð fyrir næstu kosningum í landinu samkvæmt Dayton-sam- komulaginu. Nú er alþjóðaliðið skipað 55.000 mönnum, þar af 16.000 bandarískum hermönnum. Hvað úr verður veltur á afstöðu Bandaríkjastjómar. Kalli Banda- rikjaforseti menn sína heim alla með tölu gera stjórnir Bretlands og Frakklands það líka og alþjóð- aliðið væri úr sögunni. Evrópu- ríkin taka ekki í mál að endurtaka þá reynslu sem þau urðu fyrir þegar Bandaríkjastjórn neitaði að leggja sina menn í hættu en lét sér í léttu rúmi liggja að afleiðingar aðgerða sem hún beitti sér fyrir með lofthemaði bitnuðu á liðs- sveitum evrópskra bandamanna hennar. Málið snýst því í rauninni um hvort Bandaríkin eru í raun fær um að gegna forustuhlutverki í NATO og taka á sig ábyrgð eins og því hlutverki fylgir. Þetta skilja menn eins og Perry, landvarna- ráðherra Bandaríkjanna, og Shalikhasvili herráðsforseti, sem geflð hafa í skyn að þeir séu hlynntir fækkun í bandaríska lið- inu í Bosníu en ekki algerri brott- för þess að sinni. Biljana Plavsic, starfandi forseti Bosníu-Serba, veifar til fundar manna á kosningafundi í höfuöstað þeirra, Pale. Símamynd Reuter skoðanir annarra Mildari tónar frá Moskvu „Aðalvandinn í sambandi við stækkunina (NATO) er viðbrögð Rússa. Breið fylking rúss- neskra stjórnmála- og menntamanna - það á einnig við um marga frjálslynda Rússa og þá sem eru hlið- hollir Vesturlöndum - hefur mælt gegn stækkun NATO. Einstaka stjórnmálamaður og yfirmaður í hernum hefur auk þess hótað að hafa að engu samn- inga um niðurskurð gjöreyðingarvopna ef NATO gerir alvöru úr stækkunaráformunum. Upp á síðkastið, þ.e. eftir rússnesku forsetakosningarnar, hafa hins vegar heyrst mildari tónar frá Moskvu.“ Úr forustugrein Politiken 10. september. Um fjarveru Jeltsíns „Eftir allar blekkingamar í sambandi við heilsu- far Borísar Jeltsíns er hressandi að fá dálitla hrein- skilni. Rússlandsforseti tilkynnti í síðustu viku að hann þyrfti að gangast undir hjartaaðgerð. Á þriðjudag var hann jafn hreinskilinn og ákveðinn þegar hann tilkynnti hvernig Rússlandi yrði stýrt í fjarveru sinni, hvort sem hún verður stutt eða löng. En of margt er enn óljóst.“ Úr forustugreln New York Times 12. september. Útlendingur og útlendingur „Carl I. Hagen kann sér greinilega ekki hóf þeg- ar hann biðlar til kynþáttahatara og kjósenda sem eru á móti útlendingum. Leiðtogi Framfaraflokks- ins hefur að undanförnu talað um Khalid Ma- hmood, borgarstjómarmann hægriflokksins í Ósló, sem útlending og Pakistana sem skipar fyrir um innflytjendastefnu Noregs. Hagen er meira að segja þeirrar skoðunar að útlendingar eigi ekki heima í stofnunum þeim sem þjóðin kýs sér. Hagen ver orðaval sitt með því að Mahmood sé ekki enn orð- inn norskur ríkisborgari eftir rúmlega tuttugu ára búsetu í Noregi. Úr forustugrein Arbeiderbladet 11. september.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.