Dagblaðið Vísir - DV - 17.09.1996, Page 3
ÞRIÐJUDAGUR 17. SEPTEMBER 1996
3
Fréttir
Nýja vinnulöggjöfin:
Breiðholt:
Auðveldar monnum
ekki vinnulagið
- segir forseti ASÍ en forystan hittist um helgina
Formenn landssambanda og
svæðasambanda ASÍ komu saman
til fundar að Ölfusborgum um helg-
ina. Að sögn Grétars Þorsteinsson-
ar, forseta ASÍ, fór mestur tími í að
undirbúa viðræðuáætlanir fyrir
komandi kjarasamninga í takt við
nýja vinnulöggjöf. Umræða um
kröfugerð í samningum fór ekki
fram.
Áætlun um samningaviðræður
þéuf að liggja fyrir 10 vikum áður en
samningar renna út, þ.e. í lok októb-
er. Ef ekki tekst að semja um áætl-
un lendir það í verkahring sátta-
semjara að koma henni saman.
„Við eyddum mestum tíma í þetta
viðfangsefni. Tæknilegu atriði
skipta miklu máli ekki síst eftir
nýja vinnulöggjöf. Það var sá tónn i
Málmey heim úr Smugunni:
Aflaverðmæti
um 80 miHjénir
DV, Sauðárkróki:
Málmeyjan kom til Sauðárkróks í
síðustu viku eftir 57 daga veiðiferð í
Smuguna. Aflinn er um 12 þúsund
kassar af unnum afurðum sem er 75
prósent af frystirými skipsins. Afla-
verðmæti er um 80 milljónir og há-
setahlutur líklega ríflega 800 þús-
und, samkvæmt stuðlinum. Þetta
þykir góður túr í Smuguna en veiði-
tíminn líka með þeim allra lengstu
sem um getur.
Skafti, Hegranes og Klakkur eru
einnig að veiðum í Smugunni og
gengur sæmilega, að sögn Gísla
Svans Einarssonar útgerðarstjóra.
Það kom gott skot í fiskiriið í síð-
ustu viku og mokveiði á þriðjudegi
til fimmtudags en síðan dofnaði yfír
veiðinni aftur. Til marks um afla-
brögðin i hrotunni má nefna að
bara á þriðjudag aflaði Skagfirðing-
ur 60 tonn og Klakkur 50 tonn.
Skafti er þessa dagana í slipp á Ak-
ureyri. Unnið er að viögerð á
skrúfublöðum skipsins. -ÞÁ
Ný og öflug
aðveitustöð í
Helguvík
umræðunni að aðildarfélögin veittu
landssamböndunum umboð til að
gera viðræðuáætlanir. Það þýðir
ekki að verið sé að sækja um umboð
til samningsgerðar. Þannig að nýja
löggjöfin auðveldar mönnum ekki
vinnulagið í kringum þetta. Það
verður að segjast alveg eins og er að
skriffinnskan er meiri,“ sagði
Grétar. -bjb
Visareikningarnir
hurfu sporlaust
Margir Visareikningar sem
áttu að berast í pósti um síðustu
mánaðamót til íbúa í Skógahverfí
hurfu sporlaust. Málið er í rann-
sókn hjá Pósti og síma en enn hef-
ur ekki verið upplýst hvernig
reikningamir gátu tapast í pósti.
„Þetta voru eingöngu Visa-
reikningar sem töpuðust og viö
vitum ekki hvemig þetta gerðist.
Það er verið að vinna í málinu en
þetta er vafalaust óhapp og mann-
leg mistök. Allir Visareikningam-
ir hafa verið sendir aftur út og
hafa nú borist í réttar hendur. Ég
get ekki séð að það sé neinn
gróðavegur að taka eða stela Visa-
reikningum," sagði einn af starfs-
mönnum Pósts og síma í Mjódd
þegar DV leitaði upplýsinga um
málið.
-RR
DV, Suöurnesjum:
„Stöðin á að sinna þörfum fiski-
mjölsverksmiðjunnar ásamt öðru
sem koma skal í Helguvík í framtíð-
inni,“ sagði Júlíus Jónsson, for-
stjóri Hitaveitu Suðumesja, við DV.
Framkvæmdir við mjög öfluga að-
veitustöð gengur mjög vel í Helgu-
vík en hún á að vera tilbúin um ára-
mótin þegar loðnubræðslan í Helgu-
vík fer í gang. Stöðin þykir mjög öfl-
ug en hún verður 18 MVA að stærð
sem þýðir, að sögn Júlíusar, að hún
geti séð hálfum Reykjanesskagan-
um fyrir rafmagni. Júlíus segir að
hlutverk stöðvarinnar verði fyrst og
fremst að sinna Helguvíkursvæð-
inu. Á fjárhagsáætlun hitaveitunn-
ar er kostnaður við stöðina um 45
milljónir. -ÆMK
Leiðrétting:
Bæjarstjórinn
er Halldórsson
Þau leiðu mistök urðu í umfjöllun
DV að í tvígang var Helgi Halldórs-
son, bæjarstjóri á Egilsstöðum,
sagður vera Haligrímsson. Helgi er
beðinn velvirðingar á þessum mis-
tökum.
Þetta barn er í hættu!
.. .því ekki er víst að það muni hafa aðgang að tölvu með íslensku stýrikerfi. hess vegna er máltilfinningu þess og orða-
forða hætta búin. Við viljum að sjálfsögðu búa bömum okkar bjarta framtíð, þar sem íslensk menning er í hávegum
höfð. Það getum við gert með því að miðla þeim af visku og þekkingu okkar, kenna þeim góða siði og veita þeim
vandað, öflugt námsefni og verkfæri. Vitanlega á allt námsefnið að vera á íslensku, því málfar bamanna mótast af því
sem fyrir þeim er haít. Apple-umboðið er eina íslenska fyrirtækið sem ver árlega umtalsverðu fé til íslenskunar á nýjum
uppfærslum stýrikerfis og hugbúnaðar, s.s. ritvinnslu, töflureikni, gagnagrunni, kennsluforritum og ýmsu fleira. Veitum
börnunum okkar aðeins það besta - kennum þeim íslensku og bjóðum þeim tölvur sem eru á sama máli og þau.
Apple-umboðið
Skipholti 21, 105 Reykjavík, simi: 511 5111
Heimasíða: http://www.apple.is