Dagblaðið Vísir - DV - 17.09.1996, Síða 7
ÞRIÐJUDAGUR 17. SEPTEMBER 1996
7
Fréttir
Laddi í dönskum sjónvarpsauglýsingum:
Vildu fá vanan
mann í hlutverkið
Innbrotafaraldur upplýstur
Rannsókn er nú lokið hjá Rann-
sóknarlögreglu ríkisins á málum
fjögurra manna sem allir sitja nú í
gæsluvarðhaldi, grunaðir um fjöl-
mörg innbrot.
Upplýst er að þeir fjórmenningar
bera ábyrgð á a.m.k. 15 innbrotum
sem framin voru í sumar. 13 inn-
brot voru í íbúðarhús, þá brutust
þeir inn í einn skóla og loks hjá
Modelskartgripum við Hverfisgötu.
í þessum innbrotum var stolið mál-
verkum, skartgripum, listmunum,
silfurborðbúnaði, hljómflutnings-
tækjum, heimilistækjum o.fl.
Andvirði þýfisins í þessum 15
innbrotum er um 25 milljónir
króna. Stór hluti þýfisins kom í leit-
imar við rannsókn málsins. Sumir
fengu nánast allt sitt til baka en aðr-
ir mun minna. Mennirnir fjórir
hafa allir komið við sögu lögreglu
áður vegna sams konar afbrota.
-RR
„Þetta bar svo brátt að að ég hafði
varla tíma til að pakka niður. Ágúst
Baldursson hringdi í mig frá Dan-
mörku og bað mig að taka verk-
efnið að mér en hann starfar
þar í auglýsingabransan
um,“ sagði Þórhallur Sig-
urðsson, eða Laddi, sem
nú er fastagestur á sjón-
varpsskjá frænda vorra
Dana þar sem hann
bregður sér í furðuleg
hlutverk í auglýsingu
fyrir risafyrirtækið Tele-
Danmark, eins konar Póst
og síma þar ytra.
Um er að ræða tvær
auglýsingar þar sem
verið er að aug-
lýsa statíf fyr-
ir síma í bíl
svo fólk
geti verið
með báð- A
ar hend- '
ur á
stýri. „í
Akureyri:
Ullariðnaðurinn
að taka við sér?
DV, Akureyri:
„Ég er mjög bjartsýnn á framtíð
ullariðnaðarins hér á Akureyri, ég
væri varla í þessu starfi annars,"
segir Hermann Sigursteinsson,
framkvæmdastjóri ullarvörufyrir-
tækisins Foldu hf. á Akureyri. Her-
mann tók við starfi framkvæmda-
stjóra 1. ágúst og hann segir að
rekstur Foldu gangi mjög vel um
þessar mundir.
„Þetta gengúr mjög vel og hér er
bullandi vinna og geysilega mikið
sem liggur fyrir af pöntunum. Það
er ekki um neinar sérstakar vörur
að ræða heldur bara þverskurð af
öllum framleiðsluvörum Foldu,“
segir Hermann.
Hann segir að helstu markaðir
fyrir framleiðsluvörur Foldu séu á
Norðurlöndum og í Þýskalandi.
Hann þakkar aukningu i pöntunum
nú m.a. það að veðurfar í Þýska-
landi á sl. vetri var mjög slæmt,
miklir kuldar ög fólk vilji e.t.v. vera
betur undir það búið að mæta öðr-
um svo köldum vetri.
Um 65 manns starfa hjá Foldu og
segir Hermann mjög mikið að gera.
Reyndar sé besti tíminn í ullariðn-
aðinum alltaf í ágúst og september
en hann segir ástandið mjög bjart
fram undan á næstu mánuðum og
engin ástæða til svartsýni heldur
þvert á móti. -gk
Sturla Kristjánsson hefur verið
ráðinn skólasálfræðingur í
Reykjanesbæ.
Reykjanesbær:
Sturla Krist-
jánsson skóla-
sálfræðingur
DV, Suðurnesjum:
„Bæjarráð samþykkti með öllum
greiddum atkvæðum að ráða Sturlu
Kristjánsson til starfa sem skólasál-
fræðing. Hann mun heija störf sem
fyrst. Þetta er mikill léttir fyrir okk-
ur enda skólamir teknir til starfa.
Hann er talinn mjög góður í sínu
starfi," sagði Jónina Sanders, for-
maður bæjarráðs Reykjanesbæjar,
sem samþykkti á fundi sínum á
miðvikudag að ráða.Sturlu Kristj-
ánsson í stöðu skólasálfræðings
Reykjanesbæjar. Var hann valinn
úr hópi þriggja umsækjenda. Að
sögn Jónínu gekk illa að manna
stöðuna enda liggja sálfræðingar
ekki á lausu. Hún segir að bærinn
hafi auglýst og leitað mikið fyrir sér
til að manna stöðuna.
Sturla er búsettur á Akureyri og
mun á næstu vikum flytjast til
Reykjanesbæjar. Flestir kannast við
Sturlu sem er fyrrum fræðslustjóri
Norðurlands en var vikið úr því
starfi af Sverri Hermannssyni, sem
var mjög frægt og umtalað á sínum
tima. -ÆMK
Leiörétting
í blaðinu í gær var rangt farið
með tölur varðandi kostnað á rann-
sókn á nikkelsvæðinu í Njarðvík.
Kostnaðurinn er áætlaöur 100-150
þúsund dollarar eða 6-9 milljónir ís-
lenskra króna.
annarri auglýsing-
unni er ég kona en
gamall maður í
hinni og það er
verið að gera
grín að tveim-
ur öðrum
dönskum aug-
lýsingmn. Ég
babbla þarna
eitthvað á
dönsku en svo
er talað
yfir
það,“ sagði Laddi. Inntak auglýsing-
anna er að TeleDanmark kasti ekki
til höndunum heldur vandi vel til
verks og er m.a. snúið út úr dömu-
bindaauglýsingu og „öryggið" heim-
fært upp á símann.
Laddi sagði að rætt hefði verið
við aðra leikara en Ágúst hefði end-
að á því að hringja heim til að fá
vanan mann í hlutverkið. „Ég var í
Kaupmannahöfn í tvo daga og við
tókum upp eina auglýsingu hvorn
daginn. Svo er reyndar búið að hafa
samband við mig aftur og biðja mig
að leika í einni í viðbót sem þeir
vildu bæta við,“ sagði Laddi. Að-
spurður sagði hann þetta vera
sæmilega borgað, þetta borgaði sig
í það minnsta, og taldi ekkert því
til fyrirstöðu að íslenskir leikar-
ar færðu út kvíarnar og léku í
auglýsingum á erlendri grund.
-ingo
Laddi í hlutverki
konunnar í sjónvarps-
auglýsingu fyrir Tel-
eDanmark en þar er
m.a. gert grín að
dömubindaauglýs-
ingu og „öryggið“
heimfært upp á
símann.
Akranes:
Ræstingar
boðnar út
DV, Akranesi:
Bæjarráð Akraness ákvað fyrir
skömmu að bjóða út þrif á tveim-
ur leikskólum bæjarins og er von-
ast til að ákvörðun í málinu verði
tekin fljótlega. Að sögn Jóns
Pálma Pálmasonar starfandi bæj-
arstjóra er ástæðan fyrir útboðinu
sú, að ákveðið hafi verið að prófa
þennan kost. Ræstingar hafa ver-
ið unnar samkvæmt ákvæðis-
vinnu, uppmælingu og var ákveð-
ið í bæjarráði að láta á það reyna
hvort hægt væri aö ná hagkvæm-
ari rekstri viðkomandi stofnana
með því að bjóða út ræstinguna.
Tilboð munu verða opnuð í byrj-
un september og vonast til að
gengið verði til samninga við ein-
hvern verktaka. Ef ekki verður
sama fyrirkomulagið eða brugðið
á einhver ný ráð. -DVÓ
Annað sumarið í röð til íslands:
Gersamlega
heillaður af
íslenskri náttúru
- segir Þjóðverjinn Philip Wagner
„Ég kom hingað í fyrrasumar og
ferðaðist þá um Vestfirði sem var
stórkostleg upplifun. Ég ákvað þá
strax að koma aftur í sumar,“ segir
þýski ferðamaðurinn Philip Wagner
sem var á ferð um Austur- Skafta-
fellssýslu eftir að hafa ferðast um
norðanvert landið. Hann ferðast um
á hjóli og sefur í tjaldi. Philip, sem
er líffræðinemi frá Bonn, með fugla
sem sérgrein, segist vera gersam-
lega heillaður af náttúru landsins.
Hann segist ekki hafa skýringu á
því hvers vegna þýskum ferða-
mönnum hefur fækkað á íslandi.
Hann segist þó geta ímyndað sér að
veðurfar í Þýskalandi í sumar hafi
þar nokkur áhrif.
„Það hefur verið leiðindaveður
heima í sumar og mikið um rigning-
ar. Það getur hafa orðið til þess að
ferðamenn leiti til Spánar og ann-
arra sólarlanda," segir Wagner.
Hann segist ákveðinn í að koma
aftur næsta sumar.
„Ég ætla að fara til Vestfjarða aft-
ur næsta sumar. Það er óskaplega
gaman að ferðast um þetta land ykk-
ar,“ segir Wagner.
-rt
Phiiip Wagner er Þjóðverji sem ferðast hefur um fsland í sumar og í fyrrasumar. Hann segist ákveöinn í að koma í
þriðja sinn næsta sumar enda fái hann aldrei nóg af hinni fjölbreyttu íslensku náttúru. Hér er hann aö skoða Jök-
ulsárlón. DV-mynd ÞÖK