Dagblaðið Vísir - DV - 17.09.1996, Page 9
ÞRIÐJUDAGUR 17. SEPTEMBER 1996
9
Utlönd
Breska konungsQ ölskyldan er klofin í tvær fylkingar:
Karl Bretaprins leiðir
unga uppreisnarliðið
Breska konungsfjölskyldan er
klofin í tvær fylkingar. Karl ríkisarfi
fer fyrir hópi uppreisnarmanna af
yngri kynslóðinni sem vill nútíma-
væða konungdæmið en eldri kyn-
slóðin vill reyna að halda í eins mik-
ið af gömlum hefðum og hægt er.
Þetta kom fram í breskum fjöl-
miðlum í gær í tilefni neyðarfundar
konungsfjölskyldunnar sem Elísa-
bet drottning boðaði til í sumarhöll
sinni, Balmoralkastala í Skotlandi.
Tilgangurinn var að ræða framtíð
fjölskyldunnar sem hefur átt mjög
undir högg að sækja síðastliðna
mánuði vegna hjónaskilnaða og
margvíslegra hneykslismála.
í skoðanakönnun meðal sjón-
varpsáhorfenda, sem gerð var í síð-
asta mánuði, kom fram að 52 pró-
sent þeirra vildu hreinlega afnema
konungdæmið áður en Karl fengi
tækifæri til að gerast kóngur.
Heimildarmenn innan hirðarinn-
ar segja að auk Elísabetar drottn-
ingar og Filippusar drottningar-
manns, hafi prinsamir Karl, Andr-
és og Játvarður og Anna prinsessa
sótt fundinn. Talskona konungsfjöl-
skyldunnar sagði að þetta væri einn
af mörgum reglulegum fundum þar
sem stefnumótun fyrir framtíðina
væri rædd.
„Það var fúndur meö forsætisráð-
herranum yfir helgina. Fjölskyldan
hittist á fundi í dag,“ sagði talskon-
Karl Bretaprins í uppreisnarhug.
an í gær og neitaði að gefa frekari
upplýsingar. Einna mest aðkallandi
verkefni konungsfjölskyldunnar,
sem kallar sjálfa sig „fyrirtækið“, er
að komast að niðurstöðu um hvern-
ig fara eigi með kærustur
prinsanna. Karl hefur verið að
spóka sig með Camillu Parker Bow-
les, ástkonu sinni til margra ára, í
þeirri von að almenningur taki
hana i sátt. Sá sami almenningur er
hins vegar á því að Camilla hafí
eyðilagt hjónaband Karls og hinnar
glæsilegu Díönu. Þá var gert ráð
fyrir að rætt yrði um framtíð Díönu
en hún vill fá að gegna einhvers
konar sendiherrahlutverki fyrir
Bretland. Reuter
Clinton og Dole:
Setja bar-
áttuna
gegn
glæpum á
oddinn
- löggur með Clinton
Bob Dole, forsetaefni repúblik-
ana, breytti áherslum í kosninga-
baráttu sinni i gær með því að setja
baráttuna gegn glæpum á oddinn.
Var sýnt að umræða hans um efna-
hagsmál, þar sem áherslan var á 15
prósenta lækkun tekjuskatts, virtist
ekki hafa náð til kjósenda.
„Uppskera þjóðarinnar í glæpa-
málum er rýr eftir íjögurra ára
stjómartíð Clintons. Það er tími til
kominn að taka alvarlegar á glæpa-
málum en gert hefur verið til
þessa,“ sagði Dole á kosningaferða-
lagi í Pennsylvaniu.
En BiU Clinton var fljótur að
svara fyrir sig, gerði glæpi einnig
að höfuðmáli og tryggði sér í þokka-
bót stuðning stærstu lögreglu-
mannasamtaka Bandaríkjanna sem
í eru 270 þúsund manns. Sá stuðn-
ingur gerir að nær engu fullyrðing-
ar Doles um að Clinton sé slappur í
baráttunni gegn glæpum.
Áhersla beggja forsetaframbjóð-
endanna á baráttuna gegn glæpum
er í takt viö nýjar skoðanakannanir.
Samkvæmt þeim vilja kjósendur að
barátta gegn glæpum sé ofar á verk-
efnalista verðandi forseta en mál
eins og bætt menntakerfi, skatta-
lækkanir og bætt efnahagsástand.
Þá sagði Dole að hann vildi ekki
hleypa Ross Perot, frambjóðanda
óháðra, að kappræðum fyrir kosn-
ingamar sem fara fram 11. nóvemb-
er. Reuter
Wilbur Jones, einn stuðningsmanna Bills Clintons forseta, bíður eftir forsetanum á kosningafundi í Cincinatti í gær.
Símamynd Reuter
Blair reynir að
stöðva innan-
flokksátökin
Tony Blair, leiðtogi breska
Verkamannaflokksins, reyndi í
gær að bera klæði á vopnin í hug-
myndafræðiátökunum sem hafa
skekið flokk-
inn undan-
farna viku
með því að
fullvissa
menn um að
engin áform
væru uppi um
að ijúfa tengsl
flokksins við
verkalýðs-
hreyfinguna eða að hætta að berj-
ast fyrir þá sem minna mega sín.
Flokksmenn á vinstri vængn-
um hafa gagnrýnt Blair á tvenn-
um vígstöðvum að undanfórnu. í
fyrsta lagi vegna þess að látið hef-
ur verið að því liggja að hann vilji
rjúfa tengslin við verkalýðshreyf-
inguna og í öðru lagi vegna til-
lögu bandamanns Blairs um að
flokkurinn hætti að kenna sig við
sósíalisma.
Bóndi drap sig
eftir að konan
ól honum dóttur
Bóndi nokkur í austurhluta
Kina tók það svo nærri sér þegar
kona hans ól honum dóttur núm-
er tvö á dögunum að hann stytti
sér aldur.
Bóndinn drap sig með því að
drekka skordýraeitur. Hann hafði
reynt að drepa sig fyrir nokkrum
árrnn þegar fyrsta bam þeirra
hjóna reyndist vera dóttir.
f blaðafregnum í Kína segir að
maðurinn hafi verið undir svo
miklum áhrifum frá gamla léns-
tímanum, þegar konur voru tald-
ar óæðri verur, að hann hafi
skammast sin og ekki talið lífið
þess virði að lifa því.
Bretar vilja ekki
loka á sameigin-
lega mynt ESB
Flestir Bretar vilja halda þeim
möguleika opnum að taka upp
sameiginlega mynt Evrópusam-
bandsins og yfirgnæfandi meiri-
hluti vill fá meiri upplýsingar um
málið, að því er fram kemur í
nýrri skoðanakönnun.
Könnunin, sem var gerð fyrir
Evrópuhreyfinguna, sýnir að að-
eins 30 prósent bresku þjóðarinn-
ar vilja að stjómvöld útiloki aðild
að sameiginlegri mynt en 60 pró-
sent vilja halda dymnum opnum.
John Major, forsætisráðherra
Bretlands, hefur hvað eftir annað
hafnað kröfum efasemdarmanna
um að heita því að standa utan
við sameiginlegt myntkerfi.
Könnunin leiddi einnig í ljós
mikla vanþekkingu á málefnum
ESB. Aðeins 14 prósent aðspurðra
töldu sig vera vel heima í málefn-
um sambandsins en um helming-
ur taldi sig vita næsta lítið.
Reuter
Nýjar upplýsingar um herstöð Bandaríkjamanna í Thule:
Neyddu eskimóana burt
— til að rýma fyrir stækkun herstöðvarinnar
DV, Kaupmannahöfn:
Bandarísk skjöl sýna að það vora
Bandaríkjamenn sem árið 1953
kröfðust þess að eskimóar yrðu
fluttir nauðugir af heimilum sínum
umhverfis Thule-herstöðina á
Grænlandi. Það var gert til að rýma
fyrir nýju vopnakerfi umhverfis
þessa mikilvægu herstöð. Það er
Jens Brösted, lektor við Kaup-
mannahafnarháskóla, sem fann um-
rædd skjöl í þjóðskjalasafninu í
Washington.
Þessar nýju upplýsingar ganga
þvert á skýringar danskra ráða-
manna. Sérstök rannsóknamefnd,
sem rannsakaði málið í sjö ár, skil-
aði niðurstöðu í fyrra þar sem segir
að engin slík krafa hafi komið frá
Bandaríkjamönnum. Ákvörðunin
hafi verið dönsk og í fullu samráði
við innbyggja. Þess vegna hafa esk-
imóarnir aldrei fengið afsökunar-
beiðni vegna nauðaflutninganna
eða skaðabætur verið greiddar.
„Öll þessi skjöl sýna greinilega að
Bandaríkin kröfðust þess að fólkið
yrði flutt burt og einnig að danska
rannsóknarnefndin hefur unnið
hroðalega að verkinu," segir Jens
Brösted.
Niðurstöður hans vora kynntar í
dönskum blöðum á sunnudag og í
gær er danska rannsóknarnefndin
gagnrýnd harðlega. Nefndin átti að
finna út hvort eskimóarnir hefðu
verið neyddir burt eða farið sjálf-
viljugir. Niðurstaðan er að þeir hafi
farið sjálfviljugir en einnig segir að
eskimóarnir hafi ekki verið þving-
aðir meira en „nauðsynlegt var í
ljósi þeirrar staðreyndar að herstöð-
in var að stækka".
Pj
C
Grænt númer
•'///IIl‘'
Símtal í grœnt númer er
ókeypis fyrir þann sem hringir*
*Gildir fyrir símtöl innanlands. Ef hringt er úr
farsíma, greiðir sá sem hringir farsímagjald.
PÓSTUR OG SfMI
_______\_______