Dagblaðið Vísir - DV - 17.09.1996, Qupperneq 14
i4 juiveran
ÞRIÐJUDAGUR 17. SEPTEMBER 1996 UV
DV-mynd Sigrún
Heilsustofnun Náttúrulækningafálags íslands:
Nýr lífsstíll fundinn í hveraloftinu
- göngudeild opnuð í sumar
„Þið sáuð kannski kvikmyndina
Ferðin til Melville um Kellogg
lækni sem starfrækti heilsustofnun
sem þótti ansi nýstárleg. Kellogg
þessi, sem markaði upphaf Kellogg-
auðsins, og Jónas voru miklir vin-
ir,“ sagði Árni Gunnarsson, fram-
kvæmdastjóri Heilsustofnunar Nátt-
úrulækningafélags íslands, við
blaðamann og ljósmyndara DV í
heimsókn þeirra á stofnunina. Árni
á hér við Jónas Kristjánsson, lækni
og stofnanda Náttúrulækningafé-
lags íslands og Heilsuhælis NLFÍ.
„Kellogg sendi honum allar bækur
sem hann gaf út, áritaðar, og gott ef
stofnun Kelloggs kom ekki eitthvað
við sögu við stofnun Heilsuhælis-
ins,“ bætir Árni við og sýnir DV-
mönnum minningarherbergi Jónas-
ar sem var skrifstofa hans og staðið
hefur óbreytt frá andláti hans 1960.
Gunnhildur Valdimarsdóttir er hjúkrunarforstjóri Heilsustofnunarinnar. Hún segir hugmyndafræöi stofnunarinnar
ganga út frá fjórum þáttum: umhyggju (styrkingu og verndun mannlegrar reisnar), sjálfshjálp, aölögun og náttúru-
lækningum.
er í andlegri og líkamlegri uppbygg-
ingu fyrir það átak sem það að
hætta að reykja er,“ segir Gunnhild-
ur. Þrátt fyrir að einungis sé um
vikudvöl að ræða er fólkinu fylgt
eftir í heilt ár, með tveimur hálfs
dags endurkomum og símaviðtöl-
um. Nú þegar hafa tveir hópar lokið
námskeiðinu og eru Gunnhildur og
Guðmundur ánægð með árangurinn
það sem af er.
Fleiri stutt námskeið Heilsuskól-
ans eru fyrirhuguð, s.s. námskeið
um breyttan lífsstíl almennt.
Leir,
aftur
leir og
heilsu-
böð
Með góðri skoðunarferð um Heilsu-
stofnunina geta menn verið öruggir
með aö missa einhver grömm því
húsnæðið er um 9.000 fm, á einni
hæð þó. Blaðamanni og ljósmynd-
ara DV gafst kostur á einni slíkri
undir leiösögn Gunnhildar og Guð-
mundar.
Guömundur Björnsson yfirlæknir viö leirbööin. Þaö er helst á þessum staö
sem mönnum gæti dottiö í hug kvikmyndin um Kellogg lækni.
Hverjir koma á stofnun-
ina?
komu göngudeildar. „Það hefur ver-
ið gamall draumur að geta veitt
meðferð og fræðslu fýrir fólk sem
ekki dvelur á stofnuninni,“ útskýrir
Guðmundur Björnsson yfirlæknir.
Göngudeildinni er ætlað að taka á
móti fólki sem vill dvelja daglangt,
kynnast heilsufæðinu, fá heilsufar
sitt kannað og sækja eitthvað af því
sem boðið er upp á; leirböð, heilsu-
böð og fyrirlestra, svo að dæmi séu
tekin. Allt er þetta þjónusta sem
hingað til hefur aðeins boðist þeim
er hafa lagst inn á stofnunina.
Læknisfræðilegi hluti
göngudeildarinnar
Heitir
bakstrar
úr hvera-
leir, vikri
og vaxi.
Þeir eru
hitaöir
upp i 55
gráður
og lagöir
á þá
amsparta
sem
þurfa at
halda.
Fyrst
var
heimsótt-
ur salur
með steypt-
um körum full-
um af leir, leirb-
öðin. „Þetta er
hrár leir sem tek-
inn er af ákveðnum
hverasvæðum hér í
grenndinni. Hann er sigtaður og
blandaður með vatni og settur í
körin og hitaður með gufu í um 35
gráður. Hann er endurnýjaður
með jöfnu millibili en vegna kís-
ils og brennisteins vex enginn
gerlagróður í honum,“ segir
Guðmundur.
Sólarhringurinn kostar um kr.
5000 og er þá allt innifalið, þ.m.t.
læknisþjónusta, sjúkraþjálfun og
hjúkrun. Allir sem leggjast inn hafa
tilvísun frá lækni og þá greiðir rík-
ið kr. 3.700 svo eftir standa um kr.
1.300 sem menn þurfa aö greiða á
sólarhring. „Flestir sem koma hafa
verið í aðgerðum, einkum bækluna-
raðgerðum. Einnig koma krabba-
meinssjúklingar, konur sem misst
hafa brjóst og gigtveikir," segir
Árni og bætir við að stofhunin hafi
sérhæft sig í meðferð offitusjúk-
linga.
Venjulega er fólk í 4 vikur.
Starfsemin teygir úr sár
Ástæða heimsóknar DV var sú
breyting á starfseminni sem varð í
sumar með til-
Ólíkt löngu meðferðunum þá
þurfa þeir sem á göngudeildina
koma ekki tilvísanar frá lækni.
„Fólk bara hringir og pantar þá
meðferð sem það vill en það fer eft-
ir atvikum hvort læknisskoðun fer
fram. Við reynum að fá nauðsynleg-
ar upplýsingar hjá fólki með spum-
ingalista og vegum og metum svo
hvort skoðun sé nauðsynleg," segir
Guðmundur.
Nýr lífsstíll numinn í
Heilsuskólanum
Samhliða göngudeildinni hefur
verið settur á stofn Heilsuskóli
NLFÍ undir umsjón Gunnhildar
Valdimarsdóttur hjúkrunarfræð-
ings. „Skólinn hefur gengist fyrir af-
reykingar-
námskeiði
sem hefur
hlotið góðar
viðtökur.
Fólk dvel-
ur þá hér
í viku og