Dagblaðið Vísir - DV - 17.09.1996, Side 20
24
ÞRIÐJUDAGUR 17. SEPTEMBER 1996
íþróttir unglinga
Þórsarar frá Akureyri íslandsmeistarar í 3. flokki karla í knattspyrnu:
Töpuðu ekki stigi í mótinu
- sigruðu Keflavík í úrslitaleik, 2-1, og urðu um 100 mörkum í plús í íslandsmótinu
DV, Akureyri:
Iþróttafélagiö Þór á Akureyri
eignaðist sina aðra íslandsmeistara
i knattspymu, frá upphafi, 7. sept-
ember, þegar 3. flokkur karla sigr-
aði lið Keflavíkur, 2-1, í úrslitaleik
sem fór fram á Framvellinum.
Piltarnir sem skipa þennan flokk
urðu, sumir hverjir, fyrstu islands-
meistarar Þórsara 1990, þegar þeir
unnu í A-liði á pollamóti KSÍ i 6.
flokki.
Frábær árangur
Á íslandsmótinu í sumar léku
þeir alls 15 leiki og unnu þá alla og
markatalan var 117-19.
Umsjón
Halldór Halldórsson
Jónas Róbertsson, þjáifari liðsins,
hefur verið með strákana í mörg ár
og má í raun segja að hann hafi alið
þá upp á knattspymuvellinum.
Hann segir hópinn mjög samstilltan
og skemmtilegan og eins og marka-
talan segir til um þá er hér á ferð
mikið sóknarlið.
Riölakeppnin
Þór, A.-Leiftur/Dalvík . . . 14-2
Leiftur/Dalvík-Þór, A . . . 0-10
Þór, A.-Völsungur . ... 7-0
Völsungur-Þór, A . . . 2-14
Þór, A.-KS . . . 11-0
KS-Þór, A . . . 1-12
Þór, A.-Tindastóll . ... 7-2
Tindastóll-Þór, A . ... 3-8
Þór, A.-KA . ... 7-1
KA-Þór, A . ... 1-2
Undankeppnin:
Þór, A.-Fram.....................4-2
Þór, A.-Grindavik...............11-1
8-liða úrslitin:
Þór, A.-KA.......................4-0
Þór, A.-Fram.....................4-3
Úrslitaleikurinn:
Þór, A.-Keilavik................2-1
„I úrslitaleiknum vorum við betri
en markatalan segir til um,” sagði
þjálfari liðsins.
Jóhann Þ. Þórhallsson kom Þór
yfir, 1-0. Þórarinn Kristjánsson
jafnaði fyrir Keflavík en þremur
minútum fyrir leikslok skoraði
Óðinn Viðarsson sigurmark Þórs.
Stefnum á meistaraflokkinn
Tveir af lykilmönnum 3. flokks
Þórs eru þeir Orri Hjaltason fyrir-
liði og Jóhann Þórhallsson sem hef-
ur verið iðinn að koma boltanum í
net andstæðinganna í sumar:
„Við tveir erum búnir að vera
saman i Þór alveg frá því við vorum
í 6. flokki, en þessi hópur sem er í
dag er búinn að vera óbreyttur í
svona 3-4 ár. Þetta er annars búið
að vera ótrúlega létt hjá okkur í
sumar. Við lentum bara einu sinni í
miklum vandræðum en það var í
4-3 leik gegn Fram, undanúrslita-
leiknum. Þá sofnuðum við illa á
verðinum og fengum á okkur tvö
ódýr mörk.
Svo til allir ganga upp í 2. flokk
nú í haust og fyrir þá bestu þýðir
það líka að æfa með meistara-
flokknum. Við höfum sko sett stefn-
una á meistaraflokkinn," sögðu þeir
félagar er DV ræddi við þá.
-gk
Orri Hjaltason og Jóhann Þórhallsson, 3. flokki Þórs, A., hafa sett stefnuna
á meistaraflokk félagsins.
íslandsmeistarar Þórs, Akureyri, í 3. flokki 1996. Fremsta röö frá vinstri: Arnar Elíasson. Eövarö Eövarösson, Orri
Hjaltason fyrirliöi, Steingrímur Sigurösson og Haraldur Logi Hringsson. Önnur röö frá vinstri: Guömundur
Hannesson, Brynjar Vatnsdal, Karl Helgason, Gunnar Jónsson og Ragnar Már Gunnarsson. Þriöja röö frá vinstri:
Ingi H. Heimisson, Höröur Rúnarsson, Rúnar Jónsson, Óöinn Viöarsson, Ingólfur Jóhannsson, Jóhann Þórhallsson
og Andri Albertsson. Aftasta röö frá vinstri: Jónas Róbertsson þjálfari, Hans V. Reyenhaus liösstjóri, Peter Jones,
formaður knattspyrnudeildar Þórs, Sigurður Óskarsson, formaöur unglingaráðs, og Guðmundur Sigurbjörnsson,
formaöur Þórs. - Á myndina vantar leikmanninn Þórö Halldórsson. DV-myndir gk
2. flokkur karla, A-deild:
Valur-KR
4-5
KR sigraði Val, 4-5, í síðustu
umferð íslandsmótsins í knatt-
spyrnu 2. flokks karla A-deildar
og gulltryggði um leið íslands-
meisaratitilinn. Nánar síðar á
unglingasíðu DV.
Júdódeild Ármanns:
Andri kjörinn
sá efnilegasti
- og hlaut minningarskjöldlnn um Halldór Gunnar
Haustmótið í 4. flokki kvenna, A- og B-lið:
Fjölnir og KR
haustmeistarar
Haustmót KRR í 4. flokki kvenna 1
knattspymu, utanhúss, fór fram dag-
ana 7. og 8. september. Úrslit uröu sem
hér segir.
Úrslit í riðlakeppni - A-lið
(Riðill 1):
Fjölnir-Leiknir................3-0
KR-ÍR..........................1-1
Leiknir-ÍR.....................1-2
Fjölntr-KR....................,0-0
KR-Leiknir.....................3-0
ÍR-Fjölnir.....................0-3
(Riöill 2):
Vikingur-Valur..................0-2
Fylkir-Þróttur..................0-4
Valur-Þróttur...................3-0
Víkingur-Fylkir.................0-1
Fylkir-Valur....................0-3
Þróttur-Víkingur................3-0
Leikir um sæti:
1.-2. Fjölnir-Valur............1-0
3.-4. KR-Þróttur...............2-0
5.-6. ÍR-Fylkir................1-0
7.-8. Leiknir-Víkingur.........0-0
Úrslit í riðlakeppni - B-lið
(Riðill 1):
KR-fi?.........................3-2
Leiknir-ÍR.....................1-2
KR-Leiknir.....................3-0
(Riðill 2):
Bjölnir-Þróttur.................3-0
Valur-Þróttur...................4-0
Fjölnir-Valur...................0-0
Leikir um sæti:
1.-2. KR-Valur..................3-0
3.-4. ÍR-Fiölnir................2-1
5.-6. Þróttur-Leiknir...........2-0
Að sögn Halldórs Hafsteinsson-
ar hjá Júdódeild Ármanns hefur
Andri Júlíusson verið kjörinn
efnilegasti júdómaður, yngri en 21
árs, hjá Júdódeild Ármanns fyrir
veturinn 1995-'96. Hann hlaut
viðurkenningarskjöld til eignar
og annan farandskjöld sem gefinn
ér til minningar um Halldór
Gunnar Ragnarsson - einn af
efnilegustu júdómönnum Ár-
manns - en hann lést í bílslysi
fyrir nokkrum árum.
Andri Júlíusson, Ármanni, í miöju, var kjörinn efnilegasti júdómaöur
félagsins, 21 árs og yngri, 1995- 96. Með honum er foreldrar Halldórs
Gunnars Ragnarssonar heitins, þau hjónin Þóra Vignisdóttir og Ragnar
Þorsteinsson.