Dagblaðið Vísir - DV - 17.09.1996, Page 23
ÞRIÐJUDAGUR 17. SEPTEMBER 1996
27
Sviðsljós
Danny Devito er í Ástralíu aö
kynna nýjustu myndina sína,
Matthildi, sem gerö er eftir sí-
gildri barnasögu Roalds Dahls.
Rebbi merki-
legur með sig
Leikarinn og kyntröllið David
Duchovny, öðru nafni Fox Muld-
er úr Ráðgátum, er hálfhræddur
við hamaganginn í aðdáendum
þáttanna en um leið þakklátur
fyrir stuðninginn. Lengra nær
það þó ekki. „Ég hef engan
áhuga á að kynnast þeim nán-
ar,“ sagði hann í viðtali nýlega.
Gillian Anderson, sem leikur
Dönu Sculley, er öllu jákvæðari
og alls ekkert hrædd.
Liz Hurley framleiðandi kvikmyndar sem unnustinn lék í:
Fyrirsætan og leikkonan Eliza-
beth Hurley sagði frá því á dögunum
hvernig hún hefði notið þess að sjá
unnusta sinn, leikarann Hugh
Grant, þjást. Á blaðamannafúndi á
hóteli í Toronto í Kanada sagði hún:
„Ég vildi sjá hann þjást og ég vildi
grafa eftir meiru.“
Nú halda ófáir að hún eigi við
þjáningar vegna ævintýrisins með
hórunni Divine Brown í fyrra, þegar
Hugh var gripinn með henni í aftur-
sæti bíls síns í hliðargötu í Los
Angeles. En, aldeilis ekki. Liz var
hér að tala um samband þeirra í
vinnunni.
Hún er nefnilega framleiðandi
nýrrar kvikmyndar, Extreme Meas-
ures eða Örþrifaráða, þar sem Hugh
leikur ringlaðan lækni. Liz viður-
kenndi fúslega að hún hefði notið
þess að ráðskast með unnustann en
þau hafa verið saman í 10 ár.
„Ég var yfirmaður hans og hótaði
því margsinnis að hann fengi ekkert
útborgað ef hann stæði sig ekki bet-
ur. Kostirnir viö þá aðferð voru
meiri en ókostirnir," sagði Liz hlæj-
andi.
Hún viðurkenndi hins vegar að
valdabaráttan milli þeirra yrði mun
flóknari og erfiðari viðfangs ef hún
væri framleiðandi og hann leikstjóri.
„Þá fyrst mundi hitna í kolunum."
Grant sagði að uppákoman með
Divine Brown hefði síður en svo lagt
stein í götu hans sem leikara og við-
urkenndi fúslega að unnustan hefði
haldið í alla spotta meðan á gerð Ör-
þrifaráða stóð.
„Jú, hún var yfirmaðurinn. Ég
varð meira að segja að ávarpa hana
ungfrú Hurley," sagði Hugh og hætti
við: „Það gekk ágætlega. Þetta var al-
veg eins og heima nema nú fékk hún
greitt fyrir að ráðskast með mig.“
Hugh segir að Liz sé mun betur
með á nótunum og viti hvað sé á
seyði. Nefndi hann sem dæmi að þeg-
ar.þau hefðu rekist á meðlimi hljóm-
sveitarinnar Oasis á hóteli í Los
Angeles nýlega hefðu þeir Gallagher-
bræður þust að sér með látum. Hann
Hugh Grant og Liz Huriey koma til frumsýningar myndarinnar Extreme Measures eöa Örþrifaráöa í New York um
helgina. Hann leikur aöalhlutverkiö en hún framleiöir. Símamynd Reuter
hefði hins vegar staðið eins og þvara það kom í ljós hefði hann heilsað ofan í jörðina af skömm yfir fávisku
og spurt hveijir þeir væru. Þegar þeim en Liz hefði helst viljað hverfa manns síns.
Vildi sjá Hugh þjást og
hafði í hótunum
lan Gillian, gamla kempan úr rokkhljómsveitinni Deep Purple, hamast hér á
tónleikum sveitarinnar í Kiev í Úkraínu á sunnudagskvöld. Yfir 30 þúsund
manns mættu á tónleikana, þá fyrstu sem Deep Purpie heldur þar í landi.
Símamynd Reuter
Miðvikudaginn 2. október
íiiiin aukablað um
gæludýr fylgja
Meðal efnis í blaðinu verður:
Hundur og eigandinn, er hægt að þekkja
eigandann af hundinum? Taminn köttur.
Skrauthænsni. Búrfuglar. Fiskabúr, heill
heimur. Fuglahundar (standandi) o.fl.
Þeir sem hafa áhuga á að auglýsa í þessu
aukablaði vinsamlegast hafi samband við
Ragnar Sigurjónsson í síma 550-5728 hið
fyrsta.
Vinsamlega athugið að síðasti skiladagur
auglýsinga er fímmtudagur 26. september.
Auglýsingar
Sími 550 5000, bréfasími 550-5727.