Dagblaðið Vísir - DV - 17.09.1996, Page 33
ÞRIÐJUDAGUR 17. SEPTEMBER 1996
37
Ein vatnslitamynda Erlu í Ráð-
húsinu.
Vatnslita-
myndir úr
náttúrunni
Nú stendur yfir sýning á
vatnslitamyndum Erlu Sigurð-
ardóttur í Ráðhúsi Reykjavíkur.
Á sýningunni eru vatnslita-
myndir sem allar eru náttúru-
stemningar. Þetta er sjöunda
einkasýning Erlu en hún hefur
sýnt bæði hér heima og erlendis
og auk þess tekið þátt í samsýn-
ingum. Undanfarin ár hefur
Erla verið mikilvirk í skreyting-
um á barnabókum og hlotið við-
urkenningar fyrir. Á síðasta ári
fékk hún íslensku bamabóka-
verðlaunin ásamt Herdísi Egils-
dóttur fyrir bestu myndskreyttu
bamabókina.
Sýningar
Japönsk list á
Annarri hæð
Opnuð hefur verið sýning á
verkum eftir japanska lista-
manninn On Kawara í sýningar-
salnum Önnur hæð að Lauga-
vegi 7. On Kawara er óvenjuleg-
ur listamaður sem hefur á
þremur síðustu áratugum unnið
að nokkram mjög afmörkuðum
flokkum verka sem á einn eða
annan hátt fjalla um tíma og
benda okkur á hversu hverfult
augnablik lífið er. Á sýningunni
sýnir hann málverk sem gert
var hér á landi á síðasta ári og
símskeyti sem send hafa verið
með óreglulegu millibili. Sýn-
ingin stendur út október og er
opin á miðvikudögum, kl. 14-18,
eða eftir samkomulagi.
Hjalti les ljóð
Þorsteins frá
Hamri
í kvöld er komið að siðasta
ljóðaupplestrinum um sinn hjá
Hjalta Rögnvaldssyni leikara á
Kaffi Óliver við Ingólfsstræti.
Mun hann lesa upp úr tveimur
ljóðabókum eftir Þorstein frá
Hamri, Jórvík og Veðraskjálft-
um. Hjalti hefur lesturinn kl. 22.
Tvímenningur
Á vegum bridgedeildar Félags
eldri borgara í Kópavogi verður
spilaður tvtmenningur í Gjá-
bakka, Fannborg 8, kl. 19 í
kvöld.
Samkomur
Félag þroskaþálfa
Aðalfundur verðm- haldinn í
kvöld kl. 20 að Grettisgötu 89, 4.
hæð. Dagskrá: Venjuleg aðal-
fundarstörf og tillaga að stofnun
stéttarfélags.
Danskennsla
Félag eldri borgara í Reykja-
vík stendur fyrir danskennslu í
kúrekadansi í Risinu í kvöld, kl.
18.30-20. Sigvaldi kennir.
Dansæfing kl. 20.
Gullöldin
Inga Magnúsdóttir miðill og
Heiðar Jónsson snyrtir skyggn-
ast yfir um á léttu nótunum.
Samkoman hefst kl. 20.30.
Sharon Stone og Isabelle Adjani leika
konurnar tvær sem búnar eru ab fá
nóg af elskhuganum og eiginmannin-
um.
Illur hugur
Bíóborgin hóf sýningar um síð-
ustu helgi á sakamálamyndinni 111-
ur hugur (Diabolique). I myndinni
leika Sharon Stone og Isabelle
Adjani ólíkar konur, Nicole og Miu,
sem eiga þó eitt sameiginlegt, þær
sofa báðar hjá sama manninum,
Guy Baran (Chazz Palmintieri), og
báðar eru orðnar dauðþreyttar á
því að láta hann ráða yfir lífi sínu.
Nicole er hjákona Guys og dróst að
honum í fyrstu eins og segull að
stáli en er orðin dauðþreytt á lygum
hans og yfirgangssemi. Mia er eig-
inkona Guys. Hún er fyrrum
nunna, hjartveik og á barmi ör-
væntingar vegna ráðríkis eigin-
mannsins og það hvemig hann nið-
urlægir hana.
Kvikmyndir
The American Boychoir í Grensáskirkju:
Einn besti drengjakór í heimi
Hin nýja og glæsilega Grensáskirkja veröur vettvangur fallegra tóna í
Bandarískir drengjakórinn The
American Boychoir heldur tón-
leika í kvöld í hinni nýju og fal-
legu Grensáskirkju. Drengjakór-
inn er hér í boði Grensáskirkju og
dvelur hér á landi í þrjá daga eftir
tónleikahald í Danmörku og
Þýskalandi.
Kórinn skipa 36 drengir á aldr-
inum 11 til 14 ára og er hann tal-
inn einn þriggja bestu drengja-
kóra heims ásamt Vínardrengja-
kómum og King’s College-kórn-
Skemmtanir
um. Kórdrengirnir koma víðs veg-
ar að úr Bandaríkjunum og
stunda tónlistarnám ásamt al-
mennu námi í Princeton- kórskól-
anum í New Jersey. Dr. James
Litton er stjórnandi kórsins og
hefur skoðun hans á söngtækni
drengja í mútum notið almennrar
athygli. Hefur hann fengið ein-
róma lof fyrir vinnu sína og þykir
The American Boychoir sjálfsagð-
kvóld.
ur á öllum helstu tónlistarhátíðum
í Bandaríkjunum. Drengirnir í
kórnum koma einnig fram sem
sólóistar með kóram og sinfóníu-
hljómsveitum og í óperusýning-
um.
The American Boychoir var
stofnaður 1937 og meðal heims-
þekktra stjórnenda kórsins má
nefna Leonard Bernstein, Zubin
Metha og J. Levine. Verkefiiaskrá
kórsins er fjölbreytt og er bæði
kirkjuleg og veraldleg. Undirleik-
ari með kómum er Thomas Goem-
an, organleikari og söngvari. Tón-
leikamir hefjast kl. 20.30.
Færð víðast góð
Færð á vegum er víðast góð.
Vegavinnuflokkar eru enn að störf-
um á nokkrum stöðum og ber að
virða hraðatakmarkanir. Enn er
verið að lagfæra vegi í Mývatns-
sveit. Á Suðurlandi er verið að lag-
færa leiðina Suðurlandsv. - Galta-
lækur og á Snæfellsnesi eru einnig
Færð á vegum
vegavinnuflokkar að störfum við
leiðina á milli Grandarfjarðar og
Ólafsvíkur. Þá er sums staðar búið
að setja nýja klæðingu og getur það
valdið steinkasti og þar með
skemmt lakk á bílum ef keyrt er
óvarlega á þeim leiðum.
Ágæt færð er einnig á hálendinu
og eru allar leiðir færar en vert er að
taka það fram að margar leiðir eru
aðeins færar jeppum og fjallabílum.
Hálka og snjór 13 Vegavinna-aðgát @ Öxulþungatakmarkanir
Q) LokaðrSt°ÖU ® Þungfært (g) Fært fjallabílum
Ástand vega
-i' Sonur Olgu og Hauks Myndardrengurinn á myndinni ans 12. september kl. 00.27. Hann fæddist á fæðingardeild Landspítal- reyndist vera 4.310 grömm að þyngd þegar hann var vigtaður og
Barn dacrsins ar hans eru Olga Hrund Sverris- Hnttir hp Hanlmr bnr í'YlafsQnn
Dag einn ákveða eiginkonan og
hjákonan að losa sig við Guy fyrir
fullt og allt. Ráðabruggið heppnast
að því er virðist en þegar einka-
spæjari, sem Kathy Bates leikur, fer
að forvitnast hvað hafi orðið um
Guy fer ýmislegt að koma upp á yf-
irborðið sem þær stöllur reiknuðu
ekki með ...
Leikstjóri Diabolique, Jeremy
Chechik, er best þekktur fyrir kvik-
mynd sína Benny and Joon.
Nýjar myndir:
Háskólabíó: Stormur
Laugarásbíó: Hættuför
Saga-bíó: Happy Gilmore
Bíóhöllin: Eraser
Bíóborgin: lllur hugur Regnboginn:
Independence Day
Stjörnubíó: Margfaldur
Krossgátan
Lárétt: 1 fráhverfur, 8 lík, 9 ílát, 10
aflífun, 11 hvíli, 12 bóla, 14 ekki, 15
fæöa, 17 grömu, 19 óreiða, 20 himna,
22 dugleg, 23 venju.
Lóðrétt: 1 blær, 2 þögull, 3 ósoðinn,
4 byrjun, 5 spil, 7 hræðsla, 13 um-
hyggja, 14 espi, 16 hraði, 18 grjót, 21
möndull.
Lausn á síðustu krossgátu:
Lárétt: 1 dagmál, 7 öfugt, 9 að, 10
gosa, 12 aum, 14 grama, 16 fæ, 17
skrafar, 18 kallar, 21 ofát, 22 rún.
Lóðrétt: 1 dögg, 2 af, 3 gusar, 4 áta,
5 laufa, 6 óa, 8 gamalt, 11 orka, 13
mærin, 15 afar, 17 sko, 20 rú.
Gengið
Almennt gengi LÍ nr. 201
17.09.1996 kl. 9.15
Eininq Kaup Sala Tollqengi
Dollar 66,750 67,090 66,380
Pund 103,860 104,390 103,350
Kan. dollar 48,680 48,980 48,600
Dönsk kr. 11,4830 11,5440 11,6090
Norskkr 10,3160 10,3730 10,3430
Sænsk kr. 10,0610 10,1170 10,0220
Fi. mark 14,6580 14,7440 14,7810
Fra. franki 12,9800 13,0540 13,0980
Belg.franki 2,1460 2,1589 2,1795
Sviss. franki 53,8600 54,1500 55,4900
Holl. gyllini 39,4200 39,6500 40,0300
Þýskt mark 44,2000 44,4200 44,8700
It. líra 0,04372 0,04400 0,04384
Aust. sch. 6,2770 6,3160 6,3790
Port. escudo 0,4323 0,4349 0,4377
Spá. pesetl 0,5240 0,5272 0,5308
Jap. yen 0,60610 0,60970 0,61270
írskt pund 107,380 108,040 107,600
SDR 96,26000 96,84000 96,83000
ECU 83,6400 84,1500 84,4200
Símsvari vegna gengisskráningar 5623270