Dagblaðið Vísir - DV - 19.09.1996, Page 11
FIMMTUDAGUR 19. SEPTEMBER 1996
11
Fréttir
Hllðarfjall á Akureyri:
Askan úr Heklugosi
árið 1980 blasir við
Braut upp stöðumæla
Maður var handtekinn í vestur-
bænum í fyrrinótt þar sem hann
var að brjóta upp stöðumæla.
Maðurinn var búinn að brjóta
upp einn stöðumæli og hafði náð
peningabauknum úr honum.
Hann hafði reynt árangurslaust
við nokkra aðra þegar hann var
tekinn.
-RR
DV, Akureyri:
„Það er ákaflega sérstakt ástand i
Hlíðai’fjalli og þar er nú hægt að sjá
öskulagið sem lagðist á snjóinn
sunnan og ofan við lyfturnar þegar
Hekla gaus árið 1980,“ segir Þor-
steinn Þorsteinsson, sundlaugar-
vörður og náttúruskoðari á Akur-
eyri.
Mjög snjólétt var í Hlíðarfjalli sl.
vetur og fjallið varð mjög snemma
sumars snjólaust ef frá er talin þessi
skál sunnan og ofan við lyfturnar.
Nýlega fór snjórinn í skálinni að
taka á sig dökkan lit og Þorsteinn
segir öskuna úr Heklu vera skýring-
una en askan hefur ekki sést i rúm-
an einn og hálfan áratug.
„Þessi skál virðist aldrei verða al-
veg snjólaus. Bæði hefur maður
aldrei orðið vitni að því sjálfur og ef
skoðuð eru málverk í eigu bæjarins
frá síðustu öld má sjá skafl þarna í
skálinni en fjallið autt að öðru
leyti,“ segir Þorsteinn. -gk
Kaupfélag ísfirðinga:
Björnsbúð vill
kaupa lagerinn
DV, ísafirði:
Vart hefur farið fram hjá mönn-
um á Isafirði að Kaupfélag ísfirð-
inga hefur átt við rekstrarvanda að
etja síðustu misserin. Ýmsar getgát-
ur hafa verið manna á milli um
framtíð fyrirtækisins, en forráða-
menn Kaupfélagsins segjast senda
frá sér tilkynningu þegar ljóst verði
um framtíð fyrirtækisins. Viðræður
hafa verið við ýmsa aðila um að
koma inn í rekstur matvöruverslun-
ar Kaupfélagsins og eru þar helst
nefnd til sögunnar Kaupfélag Suður-
nesja og verslunin Björnsbúð á ísa-
firði. í samtali við Björn Garðars-
son, verslunarstjóra í Björnsbúð,
staðfesti hann að búið væri að gera
tilboð í verslunarrekstur Kaupfé-
lagsins ásamt öðrum þjónustuaðila í
bænum. Sagði hann að þar vasri
verið að ræða um kaup á lager og
leigu á verslunarplássi og rekstri
verslunar á ísafirði og í Súðavík.
Sagðist hann vera að bíða eftir svari
frá stjórn Kaupfélagsins, en ekki
var búið að halda stjórnarfund um
málið þegar blaðamaður ræddi við
Bjöm á þriðjudag. Björn sagði að ef
af þessum kaupum yrði þá yrði mat-
vöruverslun Kaupfélagsins og
Bjömsbúðar sameinaðar í eina með
rekstur í húsnæði Kaupfélagsins.
Ekki vildi Bjöm tjá sig um hver
samstarfsaðili hans væri, en sam-
kvæmt heimildum blaðsins er þar
um að ræða aðila sem er í nánum
tengslum við smásöluverslunina í
bænum. -HK
Lýsi og Vörumerking:
Samið um
gæðatryggingu
Nýlega gerðu forráðamenn Lýsis
hf. og Vörumerkingar hf. gæða-
tryggingarsamning sín á milli. Þetta
er annar samningurinn sama eðlis
sem Lýsi hefur gert við innlenda
birgja og er það gert í samræmi við
yfirlýsta gæðastefnu fyrirtækisins.
Auk samninganna hérlendis hefur
Lýsi gert samskonar samninga við
nokkra erlenda birgja.
Mikil undirbúningsvinna liggur i
gerð slíkra samninga og eftir því
sem næst verður komist eru samn-
ingar Lýsis þeir einu slíkir hérlend-
is. Markmið með gerð gæðatrygg-
ingarsamninga er að samræma
kröfur kaupanda og birgja þannig
að hinn síðarnefndi annist allt
gæðaeftirlit og losa þar af leiðandi
kaupanda við alla skoðun þegar tek-
ið er á móti vörunni. -bjb
HAUSTVERÐLISTINN ER KOMINN
UM GRAM GÆÐIN ÞARF ENGINN AÐ EFAST
OG VERÐIÐ HEFUR ALDREI VERIÐ HAGSTÆÐARA.
ALLT AÐ 10.000 kr. VERÐLÆKKUN
A EINSTÖKUM GERÐUM GRAM KÆLISKÁPA.
Snjórinn í skálinni í Hlíðarfjalli er orðinn dökkleitur enda segir Þorsteinn Þor-
steinsson að Hekluaskan blasi nú við.. DV-mynd gk
Smyrill sem gæludýr í Smugunni:
Eins og hundur í brúnni
- segir skipstjórinn á Haraldi Kristjánssyni
„Hann var háifdauður þegar
hann kom um borð til okkar norður
í Smugu en síðan braggaðist hann
fljótt eftir að við fórum að gefa hon-
um að éta,“ segir Eiríkur Ragnars-
son, skipstjóri á togaranum Haraldi
Kristjánssyni, en skipverjarnir
komu með smyril með sér úr Smug-
unni í síðustu viku.
„Þetta var ágætis krydd í tilver-
una því hann var þama eins og
hundur í brúnni. Hann hændist að
okkur, át úr lófum okkar og síðan
var hann tregur til þess að fara þeg-
ar við reyndum að sleppa honum
hérna heima. Þá var hann orðinn
mjög hress eftir hálfsmánaðar,
þriggja vikna vist um borð,“ segir
Eiríkur.
-sv
CRAM HF-462
Áður 60.990
Nú > > 56.980
1S GRAM Ytri mál mm: Rými lítr. Staðgr.
1 gerð: B x D x H kæl.+fr. kr.
Kæliskápar án frystis:
K-130 550 x601 x 715 116 39.990
“H K-155TU 550 x601x 843 155 47.490
íJ KS-200 550x601x1065 195 48.440
II KS-240 550x601x1265 240 53.980
: I KS-180TU 595 x601x 843 168 49.990
I KS-300E 595x601xl342 271 56.990
jf KS-350E 595x601x1542 323 63.980
I KS-400E 595 x601 x 1742 377 71.970
í; Kæliskápar með frysti:
bs KF-120 94+14 41 qqn
1 KF-135TU JJu aDU 1 \ / 1 D 550 x601x 843 109 + 27 1 .3JU 48.980
n KF-184 550 x601x1065 139 + 33 48.980
KF-232GT 550x601x1285 186 + 33 56.940
Ig KF-263 550x601x1465 197 + 55 54.990
|| KF-245EG 595x601x1342 168 + 62 62.990
f| KF-355E 595x601x1742 272 + 62 69.990
i| KF-345E 595x601x1742 190 +133 79.990
Ji Frystiskápar:
l| FS-100 550 x601 x 715 77 39.990
I FS“133 550 x601x 865 119 46.990
i FS-175 550x601x1065 160 52.990
I FS-150 595 x601x 900 131 48.970
FS-250E 595 x601 x 1342 224 59.990;
[ FS-290E 595x601x1542 269 69.990
1 FS-340E 595x601x1742 314 78.990
^ Frystikistur:
» HF-234 800 x695x 850 234 42.980
S HF-348 1100 x695x 850 348 48.980
S HF-462 1400 x695x 850 462 56.980
Í HF'576 1700 x695x . 850 576 72.980
8 F8-203 800 x695x 850 202 45.980
H FB-308 1100x695x 850 307 52.990
41 (FB-gerðir hafa 75mm einangrun - orkusparandi) |
EURO og VISA raðgreiðslur
án útborgunar.
FRÍ HEIMSENDING - og við fjarlægjum
gamla tækið án aukakosnaðar.
/rDniX
HÁTÚNI 6A REYKJAVÍK SÍMI 552 4420
START SETT
DÆMll
Solomon Grundy’s
7 daga vín
2 x Gerjunarkútar
1 x Vatnslás
1 x Hevert
1 x IP 5 (sótthreinsir)
1 x Sykurflotvog
Suðurlandsbraut 22, sími 553-1080. Opið laugardaga í Reykjavík frá kl. 10-14 Hafnargötu 25, Keflavík, sími 421-1432.