Dagblaðið Vísir - DV - 15.10.1996, Side 12
12
ÞRIÐJUDAGUR 15. OKTÓBER 1996
Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF.
Stjórnarformaftur og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON
Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: EYJÓLFUR SVEINSSON
Ritstjóri: JÓNAS KRISTJÁNSSON
Aöstoðarritstjóri: ELÍAS SNÆLAND JÓNSSON
Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON
Auglýsingastjóri: PÁLL STEFÁNSSON
Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar: ÞVERHOLTI11,
blaöaafgreiösla, áskrift: ÞVERHOLTI14,105 RVÍK, SÍMI: 550 5000
FAX: Auglýsingar: 550 5727 - RITSTJÓRN: 550 5020 - Aörar deildir: 550 5999
GRÆN númer: Auglýsingar: 800 5550. Áskrift: 800 5777
Stafræn útgáfa: Heimasíða: http://www.skyrr.is/dv/
Ritstjórn: dvritst@centrum.is - Auglýsingar: dvaugl@centrum.is. - Dreifing: dvdreif@centrum.is
AKUREYRI: Strandgata 25, sími: 462 5013, blaðam.: 462 6613, fax: 4611605
Setning og umbrot: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF.
Rlmu- og plötugerö: ÍSAFOLDARPRENTSMIÐJA HF. - Prentun: ÁRVAKUR HF.
Áskriftarverö á mánuöi 1700 kr. m. vsk. Lausasöluverö 150 kr. m. vsk., Helgarblað 200 kr. m. vsk.
DV áskilur sér rétt til aö birta aösent efni blaösins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds.
r
Olögleg skömmtunarlög
Samkvæmt nýjum hæstaréttardómi mátti Alþingi ekki
framselja utanríkisráðuneytinu skömmtunarvald til að
starfrækja svonefnda Aflamiðlun, sem hefur reynt með
hagsmunaaðilum að takmarka framboð á íslenzkum
ferskfiski á uppboðsmarkaði í erlendum höfnum.
í dómsniðurstöðum segir, að Alþingi hafi framselt
framkvæmdavaldinu of víðtækt vald í lögum frá 1988,
sem Aflamiðlun starfar eftir. Hæstiréttur hefur nokkrum
sinnum áður reynt í dómum sínum að hafa hemil á
valdaafsali Alþingis og stýra því í þröngar skorður.
Til þess að dómurinn hafi fordæmisgildi verður Al-
þingi að taka mark á honum og fækka heimildarákvæð-
um, sem tröllríða lögum. Ekkert bendir til, að Alþingi
hafi séð að sér eftir fyrri dóma, svo að ekki er sjálfkrafa
hægt að gera ráð fyrir, að það geri slíkt núna.
Valdaafsalssinnar munu benda á og hafa raunar þegar
gert, að meirihluti hafi verið naumur í þessum nýja
dómi, þrír dómarar á móti tveimur. Ekki er því víst, að
Hæstiréttur verði alltaf sjálfum sér samkvæmur. Hann
kann síðar að dæma valdaafsali löggjafarvaldsins í vil.
í leiðurum DV hefur oft verið gagnrýnt, að Alþingi
framselur framkvæmdavaldinu vald sitt með því að
hlaða í ný lög ákvæðum, sem heimila ráðherra að gera
hitt og þetta, ef honum sýnist. Þetta hefur breytt þjóð-
skipulaginu hér úr þingræði í eins konar ráðherralýð-
ræði.
Algengt er, að lög frá Alþingi smíði ramma, sem ráð-
herrum er ætlað að fylla með reglugerðum. Samkvæmt
hæstaréttardómum er þetta ekki beinlínis bannað, en
þarf að vera í þröngum skorðum. Reglugerðimar mega
ekki skerða réttindi, sem tryggð eru í stjómarskrá.
Daglegu lífi og atvinnulífi er að umtalsverðu og hættu-
legu leyti stjómað með reglugerðum, sem ráðherrar setja
að eigin geðþótta. Þess vegna snýst þjóðin í kringum ráð-
herrana, sem geta skammtað fólki og fyrirtækjum lífs-
skilyrði nokkurn veginn alveg eftir eigin höfði.
Þetta séríslenzka kerfi ráðherralýðræðis er í senn and-
stætt stjómarskrá lýðveldisins og andstætt vinnubrögð-
um í lýðræðisríkjum. Engin teikn hafa enn sézt á lofti
um, að alþingismenn átti sig eða vilji átta sig á þessu. Ef
til vill breytist það með nýja dóminum.
Þar sem þau frumvörp til laga, sem afgreiðslu hljóta,
eru nærri undantekningarlaust samin undir handarjaðri
ráðherra í ráðuneytunum, þarf Alþingi að gera sérstakar
og altækar ráðstafanir, ef það hyggst endurheimta vald-
ið, sem því er ætlað í stjómarskrá lýðveldisins.
Alþingi getur komið sér upp frumvarpsskoðunardeild,
þar sem lögmenn hafa það hlutverk að leita að heimild-
arákvæðum í frumvörpum úr ráðuneytum, ýmist til að
fella þau niður eða takmarka svigrúm þeirra, svo að þau
stríði ekki gegn stjórnarskrá og dómvenju.
Raunar verður ekki séð annað en, að Alþingi þurfi að
koma sér upp lagaþekkingu, svo að það þurfi ekki itrek-
að að fyrirverða sig fyrir að hafa sett lög, sem Hæstirétt-
ur síðan segir vera ólögleg. Það hlýtur að vera óþægilegt
fyrir Alþingi að sæta sífelldum áminningum.
Aflamiðun verður væntanlega lögð niður í framhaldi
af dómi Hæstaréttar. Menn munu öðlast frelsi til að selja
afla sinn eins og þeim þóknast. Þá mun það merkilega
koma í ljós, að enginn mun sakna Aflamiðlunar og að líf-
ið mun halda áfram sinn vanagang án hennar.
Þannig mun einnig koma í ljós, ef á reynir, að daglegt
líf mun blómstra, þótt felldar séu úr gildi ótal reglugerð-
ir, sem ráðherrar hafa sér nú til dægrastyttingar.
Jónas Kristjánsson
Reynslan hefir sýnt að ólíkt
auöveldara er að koma efnahags-
málum þjóðar í kaldakol en að
reisa þau úr rústum. íslendingar
bjuggu við þrálátan óstöðugleika á
því sviði allt frá lokum fyrri
heimsstyrjaldar fram að tíma þjóð-
arsáttarsamninga í byrjun þessa
áratugar.
Hérlendis hefir verðlag á um sjö
áratugum þúsundfaldast gróft
reiknað m.v. verðlag í Danmörku,
Noregi og Svíþjóð, sem þýöir að ís-
lensk króna hefir rýmað um
99,9% að verðgildi samanborið við
hinar Norðurlandakrónumar.
Þessi lækkun íslensku krónunn-
ar hefir átt sér stað án þess að
henni hafi verið veitt veruleg at-
hygli því samfara lækkuði gengi
hennar hafa átt sér stað launa-
hækkanir sem hafa fyrr eða síðar
bætt upp áhrif gengisfellinga og
verðhækkana í flestum tilvikum.
Lögmál skorts og offram-
boös
Þar eð hin einfoldu lögmál
skorts og offramboðs gilda jafnt
um peninga sem vörur og þjón-
ustu fellur verðmæti þeirra með
auknu framboði. Á styrjaldartím-
um og skeiði annarrar óáranar
hafa ríkisstjómir ekki treyst sér
til að skattleggja þegna sína sem
skyldi til að standa straum af her-
kostnaði eða öðrum útgjöldum.
Afleiðingar hafa verið stórfelld-
ur hallarekstur ríkissjóða samfara
minnkuðu framboði neysluvara
sem er óhjákvæmilegur fylgifiskur
styrjalda þar eð framleiðslutæki,
fjármunir og mannafli eru flutt úr
neysluvöruiðnaði í hergagnaiðn-
að.
GENGISSKRANING M
RATES OFEXCHANGE
R
KAUP SALA
SPANSKUR PESEH
ESP 0.50930 0.53130
JAPANSKT YEN
109.8001/ (0.000
SERSTOK DRATTARRETT. XDR 196 (0 0 0
ECU EVROPUMW
XEU Pll i30Í8HÍT30l;d H
' ; PVV MOH V»AB BUYING SELI.ING i
BANDARÍKJADOLLAR ÚSD mmm m
$0' STERLINGSPúND GBP mmu mi - \
- KANADADOLLAR CAD mm wam
= |:s. DÖNSK KRÓNA DKK mm ml
-•-1 '95 NORSK KRÓNA NOK mra mn)
Ejppi SÆNSKKRÓNA SEK — ram)
qfo* FINNSKT MARK FIM 'MSm lt%JÍWBÍ |
fiö FRANSKUR FRANKI FRF
q||i BELGÍSKUR FRANKI BEC .ÍÁS3MB Q
Q; SVISSNESKUR FRANKI CHF $IS300 ssmrn
11§: HOLLENSKT GYLUNI NLG 38.S I00 90.3 100
ÞÝSKT MARK DEM 93.9800 95.1000
3®^ rröLSKLÍRA ITL 0.09309 0.09539
1 JgE AUSTURRÍSKUR SCH. ATS 6.09000 6.93000
I p PORTÚGALSKUR ESCUDO PTE 0.93/80 0.99580
„Lækkun ísiensku krónunnar hefur átt sér staö án þess aö henni hafi ver-
iö veitt veruleg athygli_segir m.a. í grein Kristjóns.
Uppskrift að
óðaverðbólgu
Eitt skýrasta dæmi síðara tíma
er Serbía og Svartfjallaland. Þegar
ástandið var sem verst þar hækk-
aði verðlag hveija klukkustimd
álíka mikið og þykir viðunandi
takmark siðmenntaðra þjóða á
heilu ári eða um tvo af hundraði.
Þýskalandsdæmiö
Þjóðverjar bjuggu við svipað
ástand árið 1923 sem var rakið til
þeirra miklu stríðsskaðabóta sem
þeir, hinir sigruðu, urðu aö greiða
sigurvegumm fyrri heimsstyrjald-
ar. Stór hluti útflutningstekna
þeirra þvarr vegna þessara
greiðsina auk þess sem inna þurfti
af hendi atvinnuleysisbætur
til íbúa hernuminna héraða
sem neituðu að starfa undir
stjóm Frakka.
Sá mikli hallarekstur, sem
þessar greiðslur leiddu af
sér, varð til þess að allt verð-
lag margfaldaðist. Þannig
hækkuðu fargjöld úr hálfu
öðru marki í aprílmánuði
árið 1922 I hundrað og fimm-
tíu mörk í
febrúar
árið 1923
og í hund-
rað og
fimmtíu
milljarða
marka í
nóvember
sama ár.
Ódýrara var að
veggfóðra með
seðlum en
veggfóðri enda
gengu seðlaprentsmiðjur nótt sem
nýtan dag með meiri afköstum en
nokkru sinni fyrr. Kæmu menn
inn á krá og ætluðu sér að drekka
tvær kollur af öli var hagstæðast
að greiða fyrir þær báðar strax því
innihald
þeirrar síðari
var líkleg til
að hækka í
verði á meðan
þeirri fyrri
var skolað
niður. Ástand-
ið leiddi til
þess að þeir
sem áttu inn-
lendar f]ár-
kröfur töpuðu
þeim en
skuldir þurrk-
uðust út.
Gæti gerst
hér
Stórfelldar
launahækkan-
ir til allra nú, ásamt fullri verð-
tryggingu, tíðum verðbótum, geng-
isfellingum vegna útflutningsat-
vinnuvega og afnámi verðtrygg-
ingar fjárskuldbindinga gætu leitt
til sliks ástands hérlendis og
þurrkað út spamað landsmanna á
fáum mánuðum með ófyrirsjáan-
legum afleiðingum.
Kristjón Kolbeins
„Hérlendis hefur verðlag á um sjö
áratugum þúsundfaldast gróft reikn•
að miðað við verðlag í Danmörku,
Noregi og Svíþjóð, sem þýðir að ís-
lensk króna hefur rýrnað um 99,9%
að verðgildi samanborið við hinar
Norðurlandakrónurnar. “
Kjallarinn
Kristjón Kolbeins
viöskiptafræöingur
Skoðanir annarra
ESB þarf að ræða
„Um þessar mundir standa yfir miklar umræður í
öllum aðildarríkjum ESB um væntanlegan sameigin-
legan gjaldmiðil, sem gengur í gildi eftir rúmlega tvö
ár. . . . Hver verður staöa íslenzkra atvinnufyrir-
tækja, sem eru í vaxandi samkeppni við erlend fyr-
irtæki, ef flest aðildarríki Evrópusambandsins taka
mjög fljótlega upp hinn sameiginlega gjaldmiðil? ...
Sjálfstæðisflokkurinn og aðrir stjórnmálaflokkar
komast ekki hjá því að ræða þessa þróun og hvaða
áhrif hún hefúr á okkar hagsmuni."
Úr forystugreinum Mbl. 12. okt.
Skattlagning á
sjávarútveg
„Með batnandi hag sjávarútvegs í heild eru menn
síður tilbúnir til að veita honum sérstök fríðindi
umfram annan atvinnurekstur. Skattlagning á sjáv-
arútveg (vörugjald) og veiðileyfagjald er komið á
dagskrá þjóðmálaumræðunnar, jafnvel þótt forsætis-
ráðherra vilji ekki viðurkenna það og hæðist á
Landsfundi að mönnum sem vilja tala um þau mál.
Forsendur umræðunnar eru að breytast og umræð-
an breytist því óhjákvæmilega líka.“
Birgir Guðmundsson í Degi-Tímanum 12. okt.
Ekki skyld sósíalisma
„Barátta Morgunblaðsins fyrir veiðileyfagjaidi og
greiðslu fyrir sjónvarpsrásir og önnur slík verðmæti
er þvi grundvölluð á hugsjónum blaðsins um fram-
tak einstaklingsins og frjálsa samkeppni og að hvers
kyns úthlutun stjórnvalda á verðmætum án þess að
eðlilegt gjald komi fyrir sé í ósamræmi við þau
grundvallarsjónarmiö, sem fijálst samfélag byggist
á. Sú barátta á því ekkert skylt við sósíalisma.“
Úr Reykjavíkurbréfi Mbl. 13. okt.