Dagblaðið Vísir - DV - 15.10.1996, Síða 21
ÞRIÐJUDAGUR 15. OKTÓBER 1996
25
Fréttir
Sextfu tonna þorsk
hal á Flákanum
DV, Hellissandi:
Dragnótabáturinn Steinunn SH
167 frá Ólafsvík hefur fiskað vel
síðustu vikumar. í síðustu viku
vænum þorski sem fékkst í þrem-
ur köstum á Flákanum út af
Breiðafirði. Meðalþyngd fiskanna
var um sjö kíló og vom þeir seld-
ir á fiskmarkað. Skipstjóri á
son.
Þetta er ekki í fyrsta skipti sem
Brynjar fiskar vel. Fyrir rúmum
mánuði fékk hann 60 tonna hal
sem náðist ekki inn. Þurfti að
kom hann í land með 46 tonn af Steinunni er Brynjar Kristmunds- draga voðina á eftir bátnum upp
undir landsteina til að geta háfað
fiskinn upp.
Átta manna áhöfn er á Stein-
unni. Þar af sex bræður og er
Brynjar einn þeirra.
-ÆÞ
Fækkar í þjóðkirkjunni:
Hátt á annað
þúsund farið
Alls skráðu sig 1.848 einstak-
'lingar úr þjóökirkjunni á tíma-
bilinu janúar-september en til
samanburðar skráðu sig 755 úr
þjóðkirkjunni allt árið 1995 og
528 allt árið 1994.
Samanlagður fjöldi skráðra
breytinga á trúfélagsaðild lands-
manna voru 2.064 fyrstu níu
mánuði ársins en það svarar til
að 0,8% landsmanna hafi skipt
um trúfélag. Langstærstur hluti
þessara skráninga er úr þjóð-
kirkjunni og í þann hóp sem
stendur utan trúfélaga. -SÁ
Sjónvarpsstööin Sýn:
Akveðið að fara
með stöðina á
Eyjafjarðarsvæðið
- segir Páll Magnússon sjónvarpsstjóri
DV, Akureyri:
„Það hefur verið tekin ákvörðun
um að fara með útsendingar Sýnar
norður á Eyjafjarðarsvæðið, til Ak-
ureyrar og nágrennis í fyrstu lotu,“
segir Páll Magnússon, sjónvarps-
stjóri á Sýn.
Páll segir að þessa dagana standi
yfir viðræður við Póst og síma varð-
andi það hvernig farið verði með
efni stöðvarinnar norður og að því
loknu líði einhver tími þar til út-
sendingar geti hafist þar sem m.a.
þarf að ákveða hvernig efninu verð-
ur dreift fyrir norðan og fá senda er-
lendis frá.
„Ég get ekki sagt nákvæmlega til
um það hvenær við hefjum útsend-
ingar fyrir norðan, en það verður í
fyrsta lagi eftir 6 vikur og í síðasta
lagi eftir 18 vikur, allt eftir því
hvaða leið verður ofan á. Fyrst um
sinn verður einungis um Sýn að
ræða, ekki gervihnattarásirnar. Að
öllum líkindum fórum við með efn-
ið um ljósleiðara til Akureyrar og
það er svo dýrt að það borgar sig
ekki að flytja fjölvarpsrásirnar
þannig.
Fjölvarpið kemur þó norður, það
er bara spuming hvenær það verð-
ur. Það sem við þurfum að gera fyr-
ir norðan er að setja þar upp diska
og taka efnið niður af gervihnöttun-
um þar þannig að Reykjavík komi
ekkert við sögu í því sambandi,"
sagði Páll.
-gk
Akureyri:
Norræn upplýsingaskrifstofa opnuð
DV, Akureyri:
Norræn upplýsingaskrifstofa
verður opnuð á Akureyri nk.
sunnudag. Skrifstofan verður að
Glerárgötu 26 en hún verður rekin
með styrk frá Akureyrarbæ og öðr-
um sveitarfélögum á Norðurlandi
og með fjárframlagi frá Norrænu
ráðherranefndinni og Sambandi
norrænu félaganna í Ósló.
Á skrifstofunni verða veittar upp-
lýsingar um norrænt samstarf á
vegum ríkisstjórna landanna, sveit-
arfélaga á Norðurlöndum og um
norrænar stofnanir. Skrifstofunni
er einnig ætlað að kynna norrænt
samstarf á þjónustusvæði sínu og
styrkja samstarf skóla, menningar-
stofnana og félaga á Norðurlöndum
og að koma á nýjum tengslum milli
norrænna stofnana og félaga. Þá
mun skrifstofan bjóða einstakling-
um og fyrirtækjum aðstoð sína við
ýmiss konar verkefni og þjónustu er
varða Norðurlönd.
Valgerður Hrólfsdóttir hefur ver-
ið ráðin forstöðumaður skrifstof-
unnar sem verður opin virka daga
kl. 9-12. -gk
Iðja á Akureyri:
Launataxtar stórhækki
DV, Akureyri:
Krafa almenns félagsfundar í
Iðju, félagi verksmiðjufólks á Akur-
eyri, er að tryggt verði í næstu
samningum að lægstu launataxtar
stórhækki ásamt auknum kaup-
mætti þannig að lægstu laun verði
sambærileg við niðurstöður Kjara-
rannsóknarnefndar um greidd dag-
vinnulaun. Þá skoraði fundurinn á
rikisvaldið að taka aftur upp teng-
ingu bóta almannatrygginga við
laun.
Fundurinn skoraði einnig á
stjómvöld að stórauka flárframlög
til starfsfræðslunámskeiða iðn-
verkafólks. Einnig lýsti fundurinn
furðu sinni á að verðbætur og vext-
ir þurfi að hækka án nokkurra sjá-
anlegra ástæðna. -gk
Akureyri:
Mjog goðar
verðmerk-
ingar
DV, Akureyri:
Vilhjálmur Ingi Ámason, for-
maður Neytendafélags Akureyrar
og nágrennis, segir að verðmerk-
ingar í útstillingargluggum versl-
ana á Akureyri séu mjög góðar.
í könnun samtakanna kom í
ljós að í 99 tilfellum af þeim 100
verslunum sem kannaðar vora á
Akureyri vora verðmerkingar í
mjög góðu lagi og eigandi þeirrar
verslunar sem skar sig úr hyggst
bæta úr ástandinu hjá sér.
Vilhjálmur Ingi segir að sams
konar athuganir hafi verið gerðar
á Sauðárkróki og Húsavík.
Ástandið á þessum stöðum sé í
samræmi við minna eftirlit og
færri heimsóknir en standi von-
andi tfl bóta þegar líði á veturinn.
-gk
Styrkur til handritarannsokna
í Kaupmannahöfn
í framhaldi af lyktum handritamálsins
ákváöu dönsk stjórnvöld aö veita íslensk-
um fræðimanni styrk til handritarannsókna
við Stofnun Árna Magnússonar (Det Arnamagnæanske
Institut) í Kaupmannahöfn. Styrkurinn veitist til allt aö tólf
mánaöa dvalar en miöast þó aö jafnaði viö styttri dvöl.
Hann nemur nú um 16.900 dönskum krónum á mánuði,
auk feröakostnaöar.
Styrkur Árna Magnússonar (Det Arnamagnæanske Legat).
Sjóöurinn Det Arnamagnæanske Legat hefur þaö verkefni
aö veita íslenskum ríkisborgurum styrki til rannsókna í
Árnasafni eöa öörum söfnum í Kaupmannahöfn. Styrkir eru
veittir námsmönnum og kandídötum sem hafa sýnt svo
mikla þekkingu á norrænni tungu, sögu eöa bókmenntum
aö vænta megi aö þeir muni inna af hendi verk í þessum
greinum sem þyki skara fram úr. Til úthlutunar á næsta ári
eru 30.000 danskar krónumr.
Umsóknarfrestur um ofangreinda styrki á árinu 1997 er til
18. desember nk. en umsóknir ber aö stíla til Árnanefndar
(Den Arnamagnæanske Komission) í Kaupmannahöfn.
Nánari upplýsingar um styrkina og tilhögun umsókna fást í
mennamálaráðuneytinu, Stofnun Árna Magnússonar á
íslandi og skrifstofu heimspekideildar Háskóla íslands.
Menntamálaráöuneytiö 11. október 1996
A» Myndlampi Black Matrix
• 100 stöðva minni
• Allar aðgerðir á skjá
• Skart tengi • Fjarstýring
• Aukatengi f. hátalara
• íslenskt textavarp
• Myndlampi Black Matrix
1 50 stöðva minni
' Allar aðgerðir á skjá
' Skart tengi • Fjarstýring
• íslenskt textavarp
BEKO fékk viðurkenningu í hinu virta breska tímariti WHAT VIDEO sem bestu sjónvarpskaupin
• Myndlampi Black Matrix
• 50 stöðva minni
• Allar aðgerðir á skjá
• Skart tengi • Fjarstýring
A» Myndlampi Black Matrix
• 50 stöðva minni
• Allar aðgerðir á skjá
• Skart tengi • Fjarstýring
Á öllum tækjum er öryggi
sem slekkur á sjónvarpinu
þegar útsendingu lýkur!
BRÆÐURNIR
Lágmúla 8 • Sími 533 2800
Umbobsmenn um allt land
Reykjavík: Byggt & Búið, Kringlunni. Vesturland: Málningarþjónustan Akranesi, Kf.Borgfirðinga, Borgarnesi.Blómsturvellir, Hellissandi. Vestfirðir: Geirseyrarbúðin, Patreksfirði. Rafverk.Bolungarvík.Straumur.ísafirði.
Norðurland: Kf. V-Hún.,Hvammstanga. Kf. Húnvetninga, Blönduósi. Hegri.Sauðárkróki. Hljómver, Akureyri. KEA.Dalvík. Kf. Þingeyinga, Húsavík. Austurland: KHB, Egilsstöðum. Verslunin Vík, Neskaupsstað.
Kf. Fáskrúðsfirðinga, Fáskrúðsfirði. Kf. Stöðfirðimga, Stöðvarfirði. Suðurland: Mosfell, Hellu. Árvirkinn, Selfossi. Rás, Þorlákshöfn. Brimnes.Vestmannaeyjum. Reykjanes: Stapafell, Keflavík. Rafborg.Grindavík.