Dagblaðið Vísir - DV - 18.10.1996, Síða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 18.10.1996, Síða 15
14 FÖSTUDAGUR 18. OKTÓBER 1996 FÖSTUDAGUR 18. OKTÓBER 1996 27 Iþróttir íþróttir ef þú spilar til ab vinrta! Beinu ensku útsendingarnar eru hafnar! Tveir Evrópuleikir hjá Haukum um helgina: „Viö ætlum okkur áfram” Haukar mæta liði Martve Tbilisi frá Georgíu í tveimur leikjum í Borgakeppni Evrópu í handknatt- leik um helgina. Fyrri leikurinn er á morgun, laugardag, klukkan 16 og sá síöari á sunnudagskvöld klukkan 20. Báðir leikimir fara fram i íþróttahúsinu viö Strandgötu. „Við rennum algjörlega blint í sjóinn og vitum nánast ekkert um þetta lið. Ég veit þó að í gegnum tið- ina hafa komið góð handboltalið frá þessu héraði í Georgíu. Þetta verður þvi bara meira spennandi og ég vona að fólk fjölmenni á völlinn og styðji við bakið á okkur. Það er mikill metnaður í okkur Hauka- mönrnun að ná langt í þessari keppni svo og öðrum sem við tökum þátt í. Ég geri mér alveg grein fyrir að þetta verður strembiö verkefni en við ætlum okkur áfram,” sagði Sigurður Gunnarsson, þjálfari Hauka, við DV í gær. Haukar hafa stillt miðaverðinu í hóf, 500 krónur kostar fyrir 13 ára ogeldri á stakan leik en 700 krónur ef keyptur er miði á báða leikina. Böm yngri en 12 ára fá frítt í fylgd með fúllorðnum. -GH KR-ingar ráku Champ Wrencher: „Gerum miklar kröfur Kærir KR? Samkvæmt heimildum DV er mjög lUdegt að KR kæri leikinn gegn ÍA í Lengjubikamum í körfuknattleik í gærkvöld, en honum lauk með jafhtefli eins og fram kemur hér í opnunni. Ron- ald Bayless lék með ÍA en áhöld eru um hvort hann sé orðinn löglegur strax þar sem hann spil- aði með Val í fyrra. -VS Stjarnan sigldi Fram-úr Stjaman sigraði Fram, 18-14, í 1. deild kvenna í handknattleik þegar liðin mætt- ust í Garðabæ í gærkvöld. Fram var yfir í hálfleik, 7-8, en Stjaman sigldi fram úr í seinni hálfleiknum. Markverðir liðanna voru bestu leikmenn vallarins, Fanney Rúnarsdóttir hjá Stjömimni og Hugrún Þorsteinsdóttir hjá Fram. Mörk Stjörnunnar: Ragnheiður Stephensen 5, Nína K. Bjömsdóttir 4, Herdís Sigurbergs- dóttir 3, Rut Steinsen 2, Inga Fríöa Tryggvadóttir 2, Björg Gilsdóttir 1, Ásta Sölvadóttir 1. Mörk Fram: Helga Kristjánsdóttir 5, Ama Steinsen 3, Svanhildur Þengilsdóttir 2, Þórunn Garðarsdóttir 2, Steinunn Tómasdóttir 1, Berglind Ómarsdóttir 1. -VS m É 2. umferö - fyrri leikir Nimes-AIK ..................1-3 Sion-Liverpool .............1-2 Olimpija Ljubljana-AEK Aþena . 0-2 Galatasaray-Paris SG .......4-2 Barcelona-Rauða stjaman.....3-1 Fiorentina-Sparta Prag......2-1 Benfica-Lokomotiv Moskva .... 1-0 Brann-PSV Eindhoven ........2-1 Körfuknattieiksdeild KR hefur rekið Bandaríkjamanninn Champ Wrencher frá félaginu og er hann á forum til Bandaríkjanna. Við stöðu hans hjá úrvalsdeildarliði KR tekur landi hans, David Edwards. „Champ var alls ekki að leika illa fyrir okkur en hann átti mjög mis- jafna leiki. Hann stóð sig alltaf vel gegn lakari liðunum en datt síðan niður þegar andstæðingurinn var i sterkari kantinum," sagði Benedikt Guðmundsson, þjálfari KR-inga, í samtali við DV í gær. „Það má segja að ástæðan fyrir því að við létum Champ fara sé blanda af getu hans innan og utan vallar. Hann var ekki nægilega mik- ill foringi inni á vellinum, enda er hómn lokaður persónuleiki. Við þurfum leikstjómanda sem drifúr menn áfram. Það hefur verið nokk- ur doði yfir mannskapnum undan- farið en nýi leikmaðurinn er þegar farinn að lofa góðu hvað þetta varð- ar,“ sagði Benedikt. KR-ingar hafa oft átt í vandræð- um með erlenda leikmenn en þeir sluppu þó vel frá þessum málum í fyrra. „Við gerum miklar kröfúr. Við þurfum leikmann sem getur skorað 20-30 stig í leik, sérstaklega eftir að þeir Ósvaldur Knudsen og Ólafúr Jón Ormsson duttu út vegna meiðsla." Nýi leikmaðurinn, David Ed- wards, er 1,77 metrar á hæð. Hann hefúr leikið með liði í 1. deildinni í Litháen undanfarið og staðið sig mjög vel þar. „Hann skoraöi þar að meðaltali 23,2 stig í leik, átti 8,8 stoðsendingar og stal 4,2 boltum í leik. Þetta eru góðar tölur enda á deildin i Litháen að vera sterkari en úrvalsdeildin hér.“ - Mun Edwards byrja strax að leika með ykkur? „Já, hann kom til landsins í gær og byrjar strax að leika með liðinu. Það er hins vegar ekki vist að það verði mikið til að byrja með. Hann er ekki í neinni æfingu og það mun örugglega taka þijár vikur að koma honum í sæmilega góða æflngu. Við verðum bara að vera þolinmóöir. Markmið okkar er að gera góða hluti í vetur og vera með besta liðið á réttum tíma þegar það skiptir máli,“ sagði Benedikt enn fremur. Tveir af bestu leikmönnum KR- inga eru enn meiddir, þeir Ósvaldur Knudsen og Ólafúr Jón Ormsson. „Ósvaldur sleit fremra liðband í hné og Ólafur Jón á við meiðsli í baki að stríða. Það er alveg ljóst að þessfr tvefr leikmenn koma ekki til með að leika með okkur fyrr en eftir ára- mótin," sagði Benedikt. -SK Evrópukeppni bikarhafa: Hagi og félagar skelltu meisturunum Hlynur og Sigurlín prúðust Frakkinn Patrice Loko er vigalegur á þessari mynd en tilþrifin dugöu skammt gegn Galatasaray í gærkvöldi og Paris SG mátti þola ósigur í Istanbúl. Símamynd Reuter Hlynur Stefánsson úr ÍBV og Sigurlín Jóns- dóttir úr KR voru í gær útnefnd prúðustu leikmenn 1. deildar karla og kvenna í knatt- spymu 1996. Þetta er í sjötta sinn sem KSÍ og VISA-ísland standa að þessari verðlaunaveit- ingu. ÍBV fékk verðlaun sem prúðasta lið 1. deild- ar karla í sumar og Stjaman í 1. deild kvenna. Bjami Sigurösson úr Stjömunni og Vanda Sigurgeirsdóttir úr Breiðabliki fengu sérstakar viðurkenn- ingar sem fyrirmyndir á glæsilegum ferli en bæði em þau aö leggja skóna á hilluna. Dagbjartur Einarsson, útgerðannaður úr Grindavík, og stuðningsklúbbur Þróttar, „Köttaramir", fengu sérstakar við- urkenningar fýrir áhuga og stuðning við sitt félag. Loks vom Grindavík og Reyni úr Sandgerði veittar viðurkenning- ar fyrir uppbyggingu á knattspymumannvirkjum. Á myndinni eru verðlaunahafamir eða fúlltrúar þeirra ásamt formanni KSÍ og fúlltrúum VISA-ísland en Hlynur og Dagbjartur gátu ekki veriö viðstaddir afhend- inguna í gær. Hlynur er á innfelldu myndinni. -VS Evrópubikarmeistarar Paris SG frá Frakklandi máttu þola tap, 4-2, gegn Galatasaray í Tyrklandi i gærkvöldi en þá fóm fram fyrri leikimir í 16-liða úrslitum keppn- innar. Galatasaray, með sjálfan Gheorghe Hagi fremstan í flokki, lék frábæran sóknarleik og Hak- an Sukur skoraði tvö markanna. Liverpool vann góðan sigur gegn Sion í Sviss, 1-2. Bonvin kom Sion yflr en Robbie Fowler og John Bames svömðu fyrir Liverpool sem hefði hæglega get- að skorað fleiri mörk. „Við erum í góðri stöðu en ég hef varann á gagnvart Sion sem er gott lið með frábæran markvörð,“ sagð Roy Evans, ffamkvæmdastjóri Liver- I ' pool. Sænsku KR-banarnir í AIK unnu auðveldan útisigm- á franska 3. deildar liðinu Nimes, 1-3 og sæti í 8-liða úrslitunum blasir við þeim. Gabriel Batistuta og Stefan Schwartz skoruðu fyrir Fiorent- ina í 2-1 sigri á Sparta Prag og Giovanni gerði tvö marka Barcelona sem lenti undir gegn Rauðu stjömunni frá Belgrad á heimavelli en vann að lokum, 3-1. Benfica og AEK frá Aþenu unnu sína leiki, eins og sést hér að ofan, og Brann vann frækinn sig- ur á PSV Eindhoven. -VS Þýski handboltinn: Robert með stórleik - skoraöi 7 mörk í sigri Schutterwald á Gummersbach Róbert Sighvatsson átti stórleik með Schutterwald þegar liðið lagði Gummersbach, 23-25, á útivelli í 2. umferð þýsku bikarkeppninnar í handknattieik í fyrrakvöld. Róbert skoraði 7 mörk og fiskaði 3 vita- köst og var þetta fyrsti sigur liðs- ins á keppnistímabilinu. „Þetta var besti leikur okkar á tímabilinu og þessi sigur ætti að létta af okkur pressunni. Við eig- um heimaleik gegn Hameln á laug- ardag og vonandi náum við aö fylgja þessum góða sigri eftir,“ sagði Róbert í samtali við DV. Ákveðið hefur verið aö leikurinn verði í stærri höllinni sem Schutt- erwald hefúr aðgang að og reiknaði Róbert með að uppselt yrði á leik- inn en höllin tekur 5 þúsund manns. Gott gengi hjá íslendinga- liöunum íslendingaliðin áttu annars góðu gengi að fagna í bikarkeppninni. Lærisveinar Kristjáns Arasonar í Massenheim unnu stórsigur á Wiesbaden, 25-34. Siguröur Bjarna- son og félagar hans í Minden unnu Nettelstedt, 24-23, og Wuppertal, lið þeirra Dags Sigurðssonar, Ólafs Stefánssonar og Viggós Sigurðs- sonar unnu öraggan sigur á 3. deildar liði Mönchengladbach, 18-26. Ólafur skoraði 4 mörk og Dagur var með 2 en hann spilaði aðeins siðari hálfleikinn. Loks unnu Patrekur Jóhannes- son og félagar hans í Essen sigur á 3. deildarliði Wörrstadt, 26-18. -GH Brann skellti PSV Eindhoven í Evrópukeppninni: „Svekkjandi að vinna ekki stærri sigur“ „Það var flott að vinna svona stórlið en samt var svekkjandi að vinna ekki stærri sigur. Við fengum góð færi til að skora fleiri mörk og svo skomðu þeir frekar ódýrt mark á síðustu mínútunni," sagði Birkir Kristinsson, landsliðsmarkvörður í knattspyrnu, við DV i gærkvöld eft- ir að lið hans, Brann, vann óvæntan sigur á hollenska stórliðinu PSV Eindhoven, 2-1, í Bergen. Þetta var fyrri viðureign liðanna í 16-liða úr- slitum Evrópukeppni bikarhafa. Birkir hafði ekki mikið að gera í leiknum því Brann sótti stifl mest- allan timann. Hann þurfti þó tvíveg- is að verja góð skot í fyrri hálfleik og bjargaði síðan glæsilega sex min- útum fyrir leikslok þegar sóknar- maður Hollendinga komst einn gegn honum. Mons Ivar Mjelde skoraði bæði mörk Brann með fjögurra mínútna millibili um miðjan fyrri hálfleik. Ágúst Gylfason lék á miðj- unni hjá Brann og var tvívegis ná- lægt því að skora í fyrri hálfleikn- um. „Liðið spilaði vel og lék sóknar- leik allan tímann. Áhorfendur vora vel með á nótunum og stemningin á vellinum var frábær. Það verður hins vegar erfitt að fara til Hollands, sérstaklega þar sem þeir náðu að skora þetta mark, en það er aldrei að vita hvað gerist,“ sagði Birkir Kristinsson. -VS Lengjubikarinn í körfubolta hófst í gærkvöld: Nýir Kanar í sviðsljósinu í jafnteflisleik á Akranesi Óvenjuleg úrslit, jafntefli, varð niðurstaðan í leik ÍA og KR i nýja körfuknattieiksmótinu, Lengjubik- amum, sem hófst í gærkvöld. Liöin skildu jöfn, 79-79, á Akranesi. Sam- kvæmt reglum keppninnar er ekki framlengt nema báðir leikir liðanna endi með jafntefli en sá siðari verð- ur á heimavelli KR-inga á Seltjam- amesi á morgun. Bæði lið tefldu fram nýjum Bandaríkjamanni. David Edwards spilaði sinn fyrsta leik með KR og mál manna á Skaganum var að hann væri ekki betri leikmaður en Champ Wrencher, sem KR-ingar sögðu upp störfum á dögunum. Með IA lék Ronald Bayless og hann sýndi oft snilldartakta og á eftir að styrkja Skagaliðið mikið. Bayless skoraði 31 stig fyrir ÍA, Dagur Þórisson 12 og Alexander Ermolinski 11. Edwards skoraði 22 stig fyrir KR, Jónatan Bow 18 og Hermann Hauksson 16. Njarðvík vann Val á Hlíðarenda, 69-99, eftir 38-53 í hálfleik en 1. deildar lið Vals stóð í úrvalsdeildar- liðinu fram eftir fýrri hálfleik. Tor- rey John skoraði 19 stig fyrir Njarð- vík, Rúnar Ámason 13 og Kristinn Einarsson 12. Ragnar Þór Jónsson og Jónas Páll Jónasson gerðu 15 stig hvor fyrir Val. Haukar unnu öraggan sigur á Þór í Þorlákshöfn, 55-84, eftir 30-46 i hálfleik. Shawn Smith skoraði 35 stig fyrir Hauka og Þór Haraldsson 10 en Raymond Hardin skoraði 22 stig fyrir Þór og Óskar Þórðarson 15. Loks vann Grindavík yflrburða- sigur á ÍS, 48-105, í íþróttahúsi Kennaraháskólans. Þessi lið mætast aftur á laugar- dag en í kvöld era fjórir leikir í mót- inu. Þór og ÍR leika á Akureyri, KFÍ og Skallagrímur á ísaffrði, Breiða- blik og Tindastóll í Smáranum og Snæfell og Keflavík í Stykkishólmi. -DVÓ/VS Sigurður áfram með Breiðablik Siguröur Halldórsson verður áfram þjálfari Breiðabliks sem féll í 2. deildina i knattspymu í haust. Sigurður gerði þriggja ára samning við Blikana í fyrra, með ákvæði um endurskoðun eftir hvert ár, og gengið hefur verið frá því að hann haldi áfram. Kristófer Sigurgefrsson er farinn frá Breiðabliki í Fram og ólíklegt er að Amar Grétarsson leiki áfram með liðinu en Blikar reikna að öðra leyti ekki með miklum breytingum á leikmannahópnum. -VS Lið Juventus efst hjá veðbönkum Eftir leikina í meistarakeppni Evrópu í fyrrakvöld spá veð- bankar í Englandi því að Juvent- us verji Evrópumeistaratitilinn en fram aö þessu hafa þeir spáð ACMilan sigri. Líkumar á að Juventus vinni era 9 á móti 4. Þar á eftir kemur AC Milan með 11/4, Manchester United í þriðja sæti með 5/1 og Dortmund þar á eftir með 6/1. Minnstu líkumar era á að pólska liðiö Widzew Lodz vinni en þær era 1000/1. Ronaldo enn á skotskónum Brasilíumaðurinn Ronaldo er á góðri leið með teljast til bestu knattspymumanna heimsins þrátt fýrir ungan aldur. Þessi 20 ára gamli strákur hefúr slegið í gegn með Barcelona á Spáni á þessari leiktíð og hann lætur enn meira að sér kveða með landsliði Brasilíu. í fyrrakvöld skoraði hann öll þrjú mörk Bras- ilíu i 3-1 sigri á Litháen í vin- áttulandsleik. United ætlar ekki að kæra Fenerbache Forráðamenn Manchester United ætia að láta hjá líða að kæra tyrkneska félagið Fener- bache vegna atviks sem henti eftfr leik félaganna í Evrópu- keppninni í fyrrakvöld. Æstir stuðningsmenn Fenerbache gerðu aðsúg að rútu Manchester liðsins eftir leikinn, bratu hlið- arrúðu með þeim afleiðingum að glerbrotum rigndi yfir nokkra leikmenn United. Engan þeirra sakaði en litiu mátti muna. Cottee semur við lið frá Malasíu Framherjinn Tony Cottee, sem leikið hefur með West Ham i ensku úrvalsdeildinni, hefur gert eins árs samning við lið Selangor í Malasíu. Tabarez fær að halda starfinu Silvio Berlusconi, eigandi ítalska stórliðsins AC Milan, seg- ir aö Oscar Tabarez, þjálfari Mil- an, þurfi ekki að hafa áhyggjur af því að missa starfíð. ítalskir fjölmiðlar gerðu því skóna að Tabarez fengi að taka poka sinn eftir 2-1 tap gegn Gautaborg í Evrópukeppni í fyrrakvöld sem kom í kjölfar 3-0 tap gegn Roma í 1. deildinni um síðustu helgi. íslandsmótið í kumite á laugardag íslandsmótið í karate, kumite hlutinn, verður haldið á laugar- daginn í íþróttahúsi Víðistaða- skóla í Hafnarfirði. Mótið hefst klukkan 13 og er áætiað að úrslit hefjist klukkan 15. Gunnar Már kyrr hjá Leiftri Gunnar Már Másson hefur gert nýjcm samning við 1. deildar lið Leifturs í knattspymu en á tímabili var útiit fyrir að hann færi í Val. Woosnam úr leik Fyrsta umferðin á heimsmeistaramótinu í holukeppni í golfi var leikin í Wentworth á Englandi í gær en þar er um útsláttarkeppni 12 snjallra kylfmga að rasða. Colin Montgomerie vann Ian Woosnam í einvígi bresku snillinganna. Vijay Singh frá Fiji vann Phil Mickelson frá Bandaríkjunum, Steve Stricker frá Banda- ríkjunum vann Steve Elkington frá Ástralíu og Mark O’Meara frá Bandaríkjun- um vann Nobuo Serizawa frá Japan. Fjórir sátu hjá og mæta i dag sigurvegurunum frá því í gær. Emie Els mætir Stricker, Tom Lehman mætir O’Meara, Steve Jones mætir Singh og Mark Brooks mætir Montgomerie. -VS ♦- -4 ■

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.