Dagblaðið Vísir - DV - 18.10.1996, Síða 25
FÖSTUDAGUR 18. OKTÓBER 1996
37
DV
Kristinn R. Ólafsson er sögu-
maður á Spænsku kvöldi í Hlað-
varpanum.
Lífið er ekki
saltfiskur
í kvöld er sýning á Spænsku
kvöldi sem hefur undirskriftina
La via no es bacalao eða Lífið er
ekki saltfiskur. Hefur sýningin
gengið í Kaffileikhúsinu í Hlað-
varpanum fyrir fullu húsi að
undanfornu. Um er að ræða tón-
listar-, dans- og leikveislu þar
sem leitast er við að skapa góða
kvöldstund úr broti af þeim
efnivið sem spænskir listamenn
hafa lagt mannkyninu til. Tón-
listin sem flutt er spannar marg-
ar aldir, sú elsta er frá miðöld-
um og sú nýjasta frá seinni
hluta 20. aldar.
Leikhús
Sá sem hefur samið textann
og er sögumaður er Kristinn R.
Ólafsson sem býr í Madrid og er
þekktur útvarpsmaður hér
heima en reglulega sendir hann
frá sér pistla sem mikill fengur
er í. Auk Kristins taka þátt i
sýningunni Sigríður Ella Magn-
úsdóttir söngkona, Lára Stefáns-
dóttir dansari og gítarleikararn-
ir Pétur Jónasson og Einar
Kristján Einarsson. Leikstjóri
er Þórunn Sigurðardóttir.
Milli himins og
jarðar
Maður, guð og menning í hnot-
skurn hugvísinda er umræðuefni
á Hugvísindaþingi sem haldið
verður í dag og á morgun í aðal-
byggingu Háskóla íslands.
Smiðjudagar
á Úlfljótsvatni
Smiðjuhópurinn heldur sína ár-
legu Smiðjudaga að Úlfljótsvatni
um helgina. Um er að ræða úti-
legu eldri skáta með ýmsum verk-
efnum. Farið verður frá BSÍ í
kvöld kl. 20.00.
íslenskt dagsverk '97
Námsmannahreyfíngin íslenskt
dagsverk ’97 heldur landsfund á
Akranesi um helgina. Á fúndinn
mæta fulltrúar frá öllum skólum
víðs vegar af landinu. Fundurinn
hefst í kvöld og verður slitið á há-
degi á sunnudag.
Samkomur
Alliance Francaise
býður í bíó
1 kvöld kl. 20.30 mun Alliance
Francaise bjóða ókeypis í bíó.
Sýnd verður kvikmynd eftir sögu
Pierre Loti, Pécheur d’Islande sem
segir frá daglegu lífi fólks í litlu
bretónsku þorpi, þaðan sem sóttur
var fiskur alla leið til íslands-
stranda. Sýningin er í Austur-
stræti 3 og er gengið inn frá Ing-
ólfstorgi. Myndin er á frönsku og
ótextuð.
Hörður Torfa
í Valaskjálf
Hörður Torfa heldur landsreisu
sinni áfram. í kvöld leikur hann í
Valaskjálf á Egilsstöðum og annað
kvöld á Hótel Tanga á Vopnafirði.
Á sunnudagskvöld verður Hörður
síðan á Þórshöfn.
Félagsvist
Spiluð verður félagsvist í Gjá-
bakka, Fannborg 8, í kvöld kl.
20;30.
Kabarett á Inghóli á Selfossi:
Sólarauki á Kosta del Karma
Það er ekki bara í Reykjavík
sem settar eru upp kabarettsýn-
ingar og skemmtidagskrá. Þeir
sem heimsækja Selfoss um helgina
geta barið augmn uppfærslu Leik-
félags Selfoss á kabarett sem sýnd-
ur er í veitingahúsinu Inghóli við
Austurveg.
Um er að ræða samvinnu Leik-
félagsins, hljómsveítarinnar
Karma og Inghóls. Kabarettinn
sem úr þessu samstarfi kemur
heitir Sólarauki á Kosta del
Karma og á þessari sýningu fá all-
ir sólarauka í kroppinn. Næsta
sýning er annað kvöld.
Skemmtarúr
Gloss á Fógetanum
Gleði- og diskóhljómsveitin
Gloss mun spila á Fógetanum í
kvöld og annað kvöld. í sumar
sendi hljómsveitin frá sér lagið
Allir dansa salsa og var það mikið
Sólaraukafólkiö á Selfossi er hér á myndinni kátt aö lokinni frumsýningu.
Fremst á myndinni er Katrín Karlsdóttir leikstjóri.
spilað. Þau sem skipa Gloss eru:
Helga J. Úlfarsdóttir, söngur,
Matthías Baldursson, hljómborð,
sax, raddir, Freyr Guðmundsson,
trompet, slagverk, Hjalti Grétars-
son, gítar, Kristinn Guðmundsson,
bassi, og Finnur P. Magnússon,
trommur.
Hálendisvegir
að mestu
ófærir
Færð á vegum er yfirleitt góð.
Hálka getur þó myndast fljótt á
heiðum um allt land. Vegavinnu-
flokkar eru enn víða að lagfæra,
meðal annars á leiðinni Hafnar-
fjörður-Keflavík, Fáskrúðsfiörður-
Reyðarfjörður og Brjánslækur-
Siglunesvegur. Á Öxarfjarðarheiði
er komiim 5 tonna hámarksöxul-
þungi.
Færð á vegum
Nú eru flestir hálendisvegir lok-
aðir vegna snjóa og þeir sem ætla á
hálendið ættu að leita sér upplýs-
inga áður en lagt er af stað.
Ástand vega
m Hálka og snjór 0 Vegavinna-aðgát @ Öxulþungatakmarkanir
C^ánfrnrstóðu m þungfært 0
Fært fjallabílum
Dóttir Hrefnu og
Guðmundar
Myndarlegi drengurinn
á myndinni fæddist á fæð-
ingardeild Landspítalans
14. október kl. 13.32. Hann
Barn dagsins
var viö fæðingu 3320
grömm að þyngd og 49
sentímetra langur. For-
eldrar hans eru Hrefna
Björg Gunnarsdóttir og
Guðmundur Ámason og
er hann fyrsta bam
þeirra.
John Travolta leikur George. Meö
honum á myndinni er Kyra Sed-
wick.
FYrirbærið
Fyrirbærið (Phenomenon),
sem Sam-bíóin sýna, gerist í litlu
sveitaþorpi í Kalifomíu. Sagt er
frá George Malley en líf hans tek-
ur óvænta stefnu á 37. afinælis-
degi hans. Hann öðlast nýja hæfi-
leika sem m.a. felast í að hann
getur fært hluti með hugar-
orkunni einni, lært ný tungumál
á 20 mínútum, skynjað undanfara
jarðskjálfta, innbyrt innihald allt
að 5 bóka á sólarhring og fleira
mætti nefha. Vinum George og
þorpsbúum öllum verður brugðið
við hina nýju hlið á honum en
hann heldur sínu striki og fer aö
einbeita sér að lífrænum rann-
sóknum og fleiri verkefiium sem
engan hafði órað fyrir. Samt
gleymir hann ekki unnustu sinni,
Lace, sem á fastan stað i hjarta
hans á hverju sem gengur.
Kvikmyndir
Með aðalhlutverkið fer John
Travolta og þykir hann fara eink-
ar vel með vandmeðfarið hlut-
verk. Kyra Sedwick leikur unn-
ustu hans. Aðrir þekktir leikarar
í myndinni era Forest Whitaker
og Robert Duvall.
Nýjar myndir:
Háskólabíó: Klikkaði prófessorinn
Laugarásbíó: Flóttinn frá L.A.
Saga-bíó: Það þarf tvo til
Bíóhöllin: Gulleyja Prúðuleikar-
anna
Bíóborgin: Dauðasök
Regnboginn: Girl 6
Stjörnubíó: Djöflaeyjan
Krossgátan
J— T~ r i
T~
ió I " 19"
m ■■■
15
ir~ I9 I k
’ii n pF“
Lárétt: 1 sáldur, 6 hætta, 8 einnig, 9
lausung, 10 beiðni, 11 karldýr, 12
bikkjan, 15 kökur, 18 gálga, 20 gegn,
21 nægtir, 22 skóli.
Lóðrétt: 1 lævís, 2 vitur, 3 hagur, 4
blót, 5 sléttum, 6 gráta, 7 elska, 13
úrkoma, 14 brúka, 16 tölu, 17 rödd,
19 svik.
Lausn á síðustu krossgátu:
Lárétt: 1 spyma, 8 ollu, 9 ógn, 10
rós, 12 nagi, 13 Agnar, 15 ið, 16 laun,
17 öng, 19 örðugur, 21 glamur.
Lóðrétt: 1 sora, 2 plógar, 3 yl, 4 ran-
an, 5 nóa, 6 agginu, 7 snið, 11 snuða,
14 rögu, 16 lög, 18 gró, 20 varðandi.
Gengið
Almennt gengi LÍ nr. 231
18.10.1996 kl. 9.15
Eininq Kaup Sala Tollgengi
Dollar 67,220 67,560 67,450
Pund 106,590 107,130 105,360
Kan. dollar 49,700 50,010 49,540
Dönsk kr. 11,3820 11,4430 11,4980
Norsk kr 10,2810 10,3380 10,3620
Sænsk kr. 10,1090 10,1650 10,1740
Fi. mark 14,5660 14,6520 14,7510
Fra. franki 12,9000 12,9740 13,0480
Belg. franki 2,1156 2,1283 2,1449
Sviss. franki 52,9800 53,2700 53,6400
Holl. gyllini 38,8300 39,0600 39,3600
Þýskt mark 43,5800 43,8100 44,1300
ít. líra 0,04369 0,04397 0,04417
Aust sch. 6,1930 6,2320 6,2770
PorL escudo 0,4323 0,4349 0,4342
Spá. peseti 0,5175 0,5207 0,5250
Jap. yen 0,59700 0,60060 0,60540
írskt pund 107,420 108,090 107,910
SDR 96,12000 96,70000 97,11000
ECU 83,6700 84,1700 84,2400
Simsvari vegna gengisskráningar 5623270