Dagblaðið Vísir - DV - 02.11.1996, Síða 2
LAUGARDAGUR 2. NÓVEMBER 1996 jLlV
2 ♦( fréttir___________________________
Bruninn í Vallakirkju í Svarfaöardal:
Kirkjan ónýt og
ómetanlegir dýrgripir
- allt talið benda til sjálfsíkveikju í kirkjunni
DV, Akureyri:
„Ég er mjög hryggur, eins og ég
hafi misst nákominn ættingja, og
þama eyðilagðist ómetanlegur dýr-
gripur þar sem kirkjan var auk
allra innanstokksmuna sem einnig
voru miklir dýrgripir," segir Magn-
ús Skúlason hjá Húsafriðunamefnd,
en hann hafði umsjón með endur-
byggingu kirkjunnar að Völlum í
Svarfaðardal sem eyðilagðist í eldi í
fyrrinótt. Magnús segir mjög miklar
endurbætur hafa verið unnar á
kirkjunni undir hans stjóm í tæp-
lega tvö ár, þvl verki var svo gott
sem lokið og átti að vígja kirkjuna
að nýju eftir um þrjár vikur. Kirkj-
an var byggð árið 1861 og hefði orð-
ið 135 ára á 2. dag jóla.
Sævar Einarsson, bóndi að Völl-
um, varð eldsins fyrst var. „Það
blikkuðu ljósin hér iimi í íbúðar-
húsinu og ég gekk fram í eldhús.
Þegar ég kom aftur inn í stofúna sá
ég hvað var að gerast, eldtungumar
stóðu þá út um forkirkjuna. Ég
hringdi strax á slökkvilið á Dalvík
og á fleiri staði en fór síðan út og
um leið kom aö fólk frá öðrum bæ
hér í dalnum sem átti leið hjá og sá
hvaö var að gerast. Síðan dreif að
fleira fólk og þótt viö notuðum
handslökkvitæki varð ekki við neitt
Inni í kirkjunni að Völlum var ömurlegt um að litast eftir brunann, allt brunnið eða hálfbrunnið og ómetanleg llsta-
verk ónýt. DV-mynd gk
Bergur Höskuldsson, slökkviliðsmaður frá Dalvík, við kirkjudyrnar en eldur-
inn er talinn hafa komið upp í anddyri kirkjunnar. DV-mynd gk
ráöið. Þetta er ákaflega sorglegt,"
sagði Sævar við DV í gær og var
ljóst að hann og aörir Svarfdæling-
ar sem DV ræddi við vora harmi
slegnir yfir atburöinum.
Rúður sprungu út
„Eldurinn stóö upp úr forkirkj-
unni þegar við komum að. Síðan
sprungu rúöur í kirkjunni út og það
varð ekki við neitt ráðið og eldur-
inn breiddist um allt og varð að
einu samfelldu eldhafi," sagði Berg-
ur Höskuldsson, slökkviliðsmaður
frá Dalvík, sem kom fljótlega á vett-
vang.
Fullyrða má að kirkjan sé ónýt
þótt hún sé uppistandandi eftir
branann. Allt inni í henni brann og
þar á meðal ómetanlegir dýrgripir.
„Þarna var predikunarstóll frá
árinu 1741 og altaristafla var álíka
gömul. Ég hef vitneskju um að
kirkjan var tryggð, en það segir
bara ekkert gagnvart missi slíkra
dýrgripa sem vora i kirkjunni. Auð-
vitað er hægt að endurbyggja kirkj-
una, það er til af henni uppmæling
og mikiö af ljósmyndum. Klukkna-
portið með stærstu kirkjuklukku á
íslandi er heilt, en það liggur ekki
fyrir hvað verður gert,“ segir Magn-
ús Skúlason.
Stutt í vígsluna
Kostnaður við endurbyggingu
kirkjunnar, sem var ein elsta kirkja
landsins, nemur um 5 milljónum
króna. Fyrir nokkrum dögrnn var
innanstokksmunum kirkjunnar
sem verið höfðu í geymslu komið
fyrir í kirkjunni að nýju, s.s. predik-
unarstólnum, altaristöflunni, ljósa-
krónu, ljósahjálmum og kertastjök-
um, en allt era þetta hlutir sem ekki
er hægt aö meta til fjár. Mörg sókn-
arbörn höfðu lagt fram umtalsverða
sjálfboöavinnu við endurbyggingu
kirkjunnar og klukkustund áður en
eldsins varð vart var einmitt lokið
við að bera femisolíu á kirkjugólfið.
Sjálfsíkveikja
Daníel Snorrason, deildarstjóri
rannsóknarlögreglunnar á Akur-
eyri, sagði eftir skoðun á kirkjunni
í gær að allt benti til sjálfsíkveikju,
annaðhvort vegna femisolíu sem
borin hafði verið á gólfið eða bilun-
ar i rofa í rafmagnstöflu, og hugsan-
lega væri um samspil þessara
tveggja þátta að ræða. -gk
1200 þúsundum stolið í Ölveri:
Tóku 200 kíló af
50 króna peningum
- Ölver vill kaupa þýfið aftur
Þú getur svaraö þessari
spurningu me6 því a6
hringja í síma 904 1600.
39,90 kr. mtnútan
Já Q Nel H
J rödd
FOLKSINS
904 1600
Eiga íslendingar að
taka upp annan þjóðsöng
Þjófamir sem bratust inn á veit-
ingastaðinn ölver aðfaranótt fóstu-
dags hafa þurft að hafa mikið fyrir
því aö koma þýfinu á brott. Þeir
stálu tólf hundrað þúsund krónum
í 50 króna peningum úr spilaköss-
um staöarins og er þýfiö talið vega
um 200 kíló.
Magnús Halldórsson er fram-
kvæmdastjóri Ölvers og hann
sagði við DV í gærkvöld að vegna
framkvæmda hefði veggur verið
settur fyrir skynjara á staðnum og
því hefði innbrotið verið mögulegt
þessa nótt og næstu nótt á undan.
Til heföi staðið aö laga þjófavam-
arbúnaðinn i gær, 200 kílóum af
fimmtíu króna peningum of seint.
Magnús segist ætla að reyna að
kaupa þýfið til baka.
„Þaö er ekkert grín að vera með
eintóma mynt í umferð og því hef
ég látiö þau boð út ganga að ég sé
til viðræöna um að kaupa pening-
ana á sanngjömu verði til baka,“
segir Magnús. Hann vildi ekki gefa
upp kaupverðið en reiknaði með
að heyra frá þjófunum á næstunni.
-sv
Scndutn í póstkröfu um alit land.
Með DV í dag fylglr 4 bls. auglýs-
ingablað frá Skífunni í tilefni af 20
ára afmæli fyrirtækisins. í blaðinu er
kynning á vörum sem verslanir Skíf-
unnar bjóða.
i
Dalvík:
Hörð aftaná-
keyrsla
Tvær jeppabifreiðar skuUu
harkalega saman á veginum rétt
norðan við Dalvík seinni part dags í
gær.
Hríðarkóf var og blint og ók sá
ffernri mjög hægt þess vegna. Sá
sem á eftir kom sá ekki fremri bíl-
inn fyrr en of seint og enduöu báðir
bílamir utan við veg.
Tveir vora í öðrum bílnum og
þrír í hinum og sluppu allir án telj-
andi meiðsla. Bílamir skemmdust
mikið.
-sv
—
Kópavogur:
Tveir ölvaðir
við akstur
Tveir ökumenn vora stöðvaðir í
Kópavogi í fyrrinótt grunaðir um
ölvvm við akstur.
Að sögn lögreglmmar vora þeir
settir í blóöprufur og niðurstöður
úr þeim era væntanlegar.
-RR
Hafnarfjöröur:
Eldur í
fjölbýlishúsi
Slökkviliðið i Hafnarfirði slökkti
eld í íbúð fjölbýlishúss við Birkihlíð
undir kvöld í gær. Einn maður var
i íbúöinni og var hann fluttur á
slysadeild. Ekki var vitað um
ástand hans í gærkvöld en slökkvi-
liðið vann þá að því að reykræsa
húsið. -sv
stuttar fréttir
Ákall til ríkisstjórna
Framkvæmdastjórar nor-
rænu Rauöa koss félaganna
hafa sent ákall til ríkisstjóma
Norðurlanda vegna ástandsins
í Saír og beöið þá að beita sér
fyrir lausn mála.
Heimir vill heim
Heimir Steinsson útvarps-
stjóri hefúr lýst þvi yfir að
hann sækist aftur eftir stöðu
Þingvallaprests. Líklegt þykir
að Markús Öm Antonsson taki
að nýju viö starfi útvarpsstjóra.
450-550 milljónir
Að mati tímaritsins Vísbend-
ingar greiddi VÍS 450-550 millj-
ónir króna fyrir trygginga- og
fjárfestingarfélög Skandia.
Mlnni stangvelöi
Samkvæmt úttekt Veiöimála-
stofnunar komu 30 þúsund lax-
ar í stangveiði sumarsins sem
er 12% minna en í fyrra.
-bjb