Dagblaðið Vísir - DV - 02.11.1996, Side 6
LAUGARDAGUR 2. NÓVEMBER 1996
f stuttar fréttir
Hermenn Rúanda í Saír
Hermenn frá Rúanda réðust
inn í borgina Goma í Saír í gær
l til að aðstoða uppreisnannenn
I tútsa, að sögn stjórnarerindreka.
1 Utanríkisráðherra Rúanda vísaði
i fuUyrðingunum á bug.
Landnemi ákærður
ísraelsk yfirvöld ákærðu í gær
; ísraelskan landnema vegna
morðs á 11 ára palestínskum
: dreng.
íhugaöi sjálfsvíg
Hertogaynjan af Jórvík, Sara
| Ferguson, hefði svipt sig iífi eftir
ástarsamband
sitt við ijár-
málaráðgjafa
sinn, John
Bryan, hefði
hún ekki átt
tvær litlar
dætur. Breska
blaðið Daily
jssu og vitnar í
höfund umdeildrar bókar um
f Söru.
Pyntingar í Austurríki
Mannréttindanefhd á vegum
Evrópusambandsins hefur beðið
austurrísk yfirvöld að kanna
i hvað hæft er í ásökunum um að
lögregla hafi pyntað fanga.
§f
Kynlífsævintýri á Netinu
Maður í Arkansas í Bandaríkj-
| unum varð svo reiður er kona
hans eyddi póstforriti sem hann
notaði til kynlífssambands á Net-
| inu að hann fleygði henni upp að
:, vegg og barði hana.
í mál gegn Rainier
Grínarinn Timothy Ward hef-
ur höfðað mál gegn Rainier
fursta af
Mónakó
vegna kjafts-
höggs. Furst-
inn haföi sótt
sýningu
Wards ásamt
Karólínu
dóttur sinni
og syni sín-
um, Albert. Reiddist furstinn at-
| hugasemdum grínarans um
skalla sonarins og matarvenjur
hans og baö hann að koma nær.
Ward fékk síðan einn á hann.
Trúa á drauga
Fjórðungur Kanadamanna trú-
ir á drauga samkvæmt niður-
stöðum skoðanakönnunar. Ungt
fólk var í meirihluta þeirra sem
kváðust trúa á drauga.
1
Stal söfnunarfé
Skoskur kráreigandi stakk af
tO Spánar með um 80 þúsund ís-
lenskar krónur sem safnað hafði
verið handa fiölskyldum barna
| er féllu fyrir hendi byssumanns.
Skotinn var í gær dæmdur í 30
mánaða fangelsi. Reuter
Vöruverö erlendis:
Enn lækkar
kaffið
Kaffi á heimsmarkaði heldur
áfram að lækka í verði. Þriggja
mánaða verð á tonninu var komið
niður í 1.384 dollara um síðustu
helgi. Á nokkrum vikum hefur
kaffiverðið lækkað um nærri fimmt-
ung, yar í tæpum 1.700 dollurum um
miðjan septembermánuð. Sykur-
verð hefur sömuleiðis veriö að
lækka en líkur á hækkunum á næst-
unni eru miklar.
Bensínverð í Rotterdam tók ekki
miklum breytingum í vikunni én
hins vegar lækkaði hráolíutunnan
töluvert í verði á markaði í London.
Það er talinn eðlilegur slaki á
spennu undanfarinnar vikna. Tunn-
an var komin yfir 25 dollara í stað-
greiðslu en seldist á rúma 22 dollara
þegar viðskiptum lauk á fimmtu-
daginn.
Hlutabréfavísitölur í helstu kaup-
höllum heims hafa lítið breyst í vik-
unni. -Reuter
Forskot Clintons
á Dole minnkar
Forskot Bills Clintons Banda-
ríkjaforseta á Bob Dole, forsetafram-
bjóðanda repúblikana, var í gær að-
eins 5,5 prósent ef marka má niður-
stöður skoðanakönnunar Reuter-
fréttastofunnar. Samkvæmt niður-
stöðunum fær Clinton 42 prósent at-
kvæða en Dole 36,5. Ross Perot hlýt-
ur 8,4 prósent.
Alls tóku 1200 manns þátt í skoð-
anakönnuninni. Óákveðnum hafði
fækkað úr 15,3 prósentum í 6,4 pró-
sent frá því fyrr í vikunni.
Fyrir fimm dögum var forskot
Clintons á Dole 13 prósent sam-
kvæmt skoðanakönnun Reuter-
fréttastofunnar. Síðan hafa Dole og
Perot beint að honum hörðum skot-
um vegna meintrar ólöglegrar fiár-
mögnunar kosningabaráttunnar.
Fjöldi frétta hefur einnig birst um
framkvæmdasemi Johns Huangs,
söfnunarstjóra demókrata, sem
tókst að afla hárra framlaga frá
asískum fyrirtækjum. Huang hefur
látið af starfi söfnunarstjóra.
í kosningaræðu í Kalifomíu í gær
svaraði Clinton ásökunum Doles og
Perots og bar fram tillögu um úr-
bætur á lögum um fiármögnun
kosningabaráttu. Hann lagði meðal
annars til að framlög frá öðrum en
bandarískum ríkisborgurum yrðu
bönnuð.
„Margir innflytjendur gegna mik-
ilvægu hlutverki í okkar landi en
kjami lýðræðis okkar er sá að borg-
ararnir taka ákvörðun. Það eru að-
eins þeir sem geta greitt atkvæði.
Og aðeins þeir ættu að veita fiár-
framlög," sagði forsetinn.
Dole er á maraþonkosningaferða-
lagi fram að kjördegi þann 5. nóv-
ember og fer hann á miili 14 ríkja
um helgina. Hann gerir aðeins hlé á
ferðum sínum til að fara í sturtu á
hótelum. Um tillögu forsetans um
úrbætur á lögum um kosningafram-
lög sagði Dole: „Ég stakk upp á
þessu í fulltrúadeildinni fyrir sex
árum. Ég bar aftur fram tillögu um
þetta fyrir tveimur vikum. Ég er
glaður yfir því að forsetanum skuli
fara fram.“ Reuter
Þúsundir Filippseyinga flykktust í kirkjugarða í gær til að halda upp á allraheilagramessu sem er núna um helgina.
Þetta er eini tími ársins sem öll stórfjölskyldan á Filippseyjum safnast saman og gera menn sér því glaðan dag.
Símamynd Reuter
Þýskaland:
Utfararstjóri höfuöpaur
í svindli með eiturefni
Útfararstjóri á sextugsaldri í
Frankfurt am Main í Þýskalandi er
grunaður um að vera höfuðpaur
samtaka sem þénað hafa að
minnsta kosti tugi milljóna á
svindli með eitruð úrgangsefni.
Samtökin áttu fiölda fyrirtækja
sem lofuðu auðtrúa viðskiptavin-
um að losa þá við eitruð úrgangs-
efni á löglegan hátt. Viðskiptavin-
irnir greiddu um 35 þúsund ís-
lenskar krónur fyrir rúmmetrann
og fengu í staðinn falsað skírteini
upp á að allt væri í sómanum.
En kaupendumir seldu eiturefn-
in til endurvinnsíustöðva undir
því yfirskini að eitrið væri af-
gangsolía eða endurnýtanlegt hrá-
efni. Þeir fengu um 3.500 krónur
fyrir tonnið.
Þetta var einungis hægt að gera
með aðstoð embættismanna sem
þágu mútur. Eiturefnunum, sem
ekki var hægt að „endurvinna" á
þennan hátt, var komið fyrir í mal-
argryfium eða ekið ólöglega á
ruslahauga. Það var oftast í A-
Þýskalandi sem þetta fór fram.
Umhverfisglæpamennirnir hafa
verið að verki að minnsta kosti
síðan 1993. Grunur vaknaði fyrst
hjá lögreglunni í fyrra. í vikunni
var gerð skyndileit hjá 140 fyrir-
tækjum. Hingað til hafa sjö manns
verið handteknir. Lagt hefur verið
hald á 8 þúsund möppur með sönn-
unargögnum. Lögreglan telur að
hún hafi eimmgis séð toppinn á ís-
jakanum. Ekki er talið útilokað að
starfsemin teygi sig út fyrir landa-
mæri Þýskalands.
Politiken
Kauphallir og vöruverð erlendisl
2700 DAX-40 1
2300 2659,25
J A S 0
2000 20466,86
J A S 0
Danir láta
undan og leyfa
Rushdie
að koma
Dönsk yfirvöld létu í gær
undan þrýstingi víðs vegar að
úr heiminum og huðu rithöf-
undinum Salman Rushdie að
koma til Kaupmannahafnar til
að taka við bókmenntaverð-
launum. Áður höfðu yfirvöld
lýst því yfir að þau hefðu
áhyggjur af athyglinni sem há-
tíðahöldin fengju og sögðu lög-
| regluna ekki geta veitt næga
I vernd sökum anna vegna stríðs
I mótorhjólagengja. Athöfhin átti
að fara fram um miðjan nóvem-
_ ber en í gær bauð menningar-
málaráðherra Dana, Jytte Hilt-
| en, honum að koma einhvern
| tíma fvrir áramót til að taka við
verðlaununum. „Þaö er
I hneyksli að Kaupmannahöfn,
I sem er menningarborg Evrópu-
sambandsins í ár, neiti að leyfa
vinningshafa að sækja verð-
I launahátíöina," sagði Rushdie
sjálfur áður en Danir skiptu um
skoðun. „Ef það á að fara svona
með mig neita ég að þiggja
verðlaunin. Ég tek ekki við
: þeim í bakherbergi á einhverri
krá,“ bætti Rushdie við.
Tyrkir svíkja
loforð um
umbætur
Baráttumenn fyrir auknum
mannréttindum hafa áhyggjur
af því að enn bóli ekkert á um-
| bótum þeim sem Tansu Ciller,
8 utanríkisráðherra Tyrklands,
I lofaði um miöjan október.
Vegna mikils þrýstings ffá
ÍVesturlöndum um umbætur lof-
aði Ciller meðal annars að
stytta varðhald hjá lögreglu. Að
sögn baráttumanna fyrir mann-
réttindum er mestar hættur á
pyntingum á því stigi. Á sama
Itíma og loforð eru svikin hafa
tyrknesk yfirvöld varað blaða-
menn við og sagt þeim að tak-
marka enn frekar umfiöliun um
mannréttindabrot.
Nú hefur lögfræðingurinn,
sem er fulltrúi Tyrklandsstjóm-
ar í málaferlum fyrir evrópsk-
um mannréttindadómstólum,
gefist upp á að verja Tyrkland
þar sem stjómvöld standi ekki
| við nein loforö.
Neita að hafa
Iboðið upp á
breskt kjöt
Franska lögreglan sakar veit-
ingastaðinn Hard Rock Cafe í
París um að hafa matreitt ham-
borgara úr bresku kjöti þrátt
fyrir innflutningsbann á því
vegna kúariðu. Talsmenn veit-
ingastaðarins segja kjötið af
írskum kúm. Heilbrigðiseftir-
litsmenn fundu 300 kíló af
frosnum hamborgurum á veit-
ingastaðnum með stimpli sem
benti til ensks uppruna. Á veit-
ingastaðnum segja menn kjötið
hafa farið í gegnum vinnslustöð
í Bretlandi þar sem eingöngu
væri tekið við írsku kjöti. ítalir
hafa nú bannað innflutning á
nautakjöti frá Sviss vegna
fiölda kúariðutilfella.
Kennarar ekki
nógu athugulir
j, Elsti 6onur fiöldamorðingj-
I anna Freds og Rosemary West
í hvetur kennara til að taka bet-
ur eftir ummerkjum eftir of-
beldi á bömum. „Þeir ættu að
fá þjálfun í því að þekkja ein-
kennin. Við fómm í skólann
marin og blá eftir barsmíðar og
; enginn tók eftir því. Kennarar
gleyptu við öllum afsökunum
sem við sögðum. Mér var
| snemma sagt að ef ég segði frá
j því sem fram fór heima yrði ég
| drepinn," sagði sonurinn í sjón-
varpsviötali. Reuter
I