Dagblaðið Vísir - DV - 02.11.1996, Qupperneq 19
LAUGARDAGUR 2. NÓVEMBER 1996
ílk
19
íslensk stúlka fákk viðurkenningar fyrir að stoppa upp dýr í Bretlandi:
Mig dreymir um að verða hestakona
- segir Brynja Davíðsdóttir
„Ég hætti í skóla í miðjum klið-
um því ég fékk allt í einu köllun til
þess að fara til Bretlands og læra að
stoppa upp dýr,“ segir Brynja Dav-
íðsdóttir, 21 árs, ensk í aðra ættina,
en hún fékk viðurkenningar í Bret-
landi fyrir að stoppa upp dýr.
Brynja fékk viðurkenningu á ár-
legri ráðstefnu og sýningu upp-
stoppara fyrir uglu sem hún gerði
en hún hefur fengið tvær viður-
kenningar fyrir að stoppa upp fugla
og eina fýrir íkoma sem hún vann
að. Einnig vann hún til verðlauna
fyrir ugluna og lenti í þriðja sæti
fyrir spörfuglinn sem hún tók
einnig með sér á sýninguna. Auk
viðurkenningar og verðlauna þótti
uglan best gerði fuglinn á sýning-
unni.
Brynja hefur stundað nám hjá
nokkrum lærimeisturum en nú býr
hún hjá einum af færustu uppstopp-
urum í Bretlandi, i Whetherby sem
er rétt fyrir utan York. Þar er stórt
verkstæði sem er henni til afnota.
Brynja er dóttir Davíðs Þorsteins-
sonar, kennara i MR. Móðir hennar
heitir Janice Þorsteinsson en hún
stundar nám í ítölsku á Ítalíu. Jan-
ice er ensk og þess vegna ákvað
Brynja að fara til Englands. Hún á
tvö systkini sem heita Áslaug, 24
ára, textílhönnuður, og Þorsteinn,
16 ára.
Fjölskyldan bjó á Laugarvatni
fyrstu tíu ár ævi Brynju og þykir
henni það eftirminnilegustu árin.
Eftir það fluttu þau á Óðinsgötuna
og búa þar ennþá. Brynja byrjaði í
MR og fór síðan í FH en söðlaði um
og flutti til Bretlands.
„Ég er meira sveitabarn en borg-
ar. Það var mjög gaman aö búa á
Laugarvatni. Önnur helstu áhuga-
mál mín eru náttúran og útivera. Ég
fer ekki nógu mikið út í sveit en
eins mikið og ég get. Draumurinn
var að verða hestakona en það hef-
ur ekki orðið af því ennþá,“ segir
Brynja
Áhugi Brynju á því að stoppa upp
dýr er gamall. Hann kviknaði þegar
hún bjó á Laugarvatni. Vinir henn-
ar veiddu lunda í Drangey og hana
langaði til þess að læra að stoppa
upp þessa fallegu fugla.
„Kennarinn minn er einn þeirra
færustu í faginu í Bretlandi en ég bý
einnig hjá honum auk þess að nema
af honum fræðin. Mig langaði ekki
til þess að læra þetta heima,“ segir
Brynja.
Þegar dýr eru stoppuð upp er
byrjað á að rista þau á kviðinn og
flá af þeim skinriið. Síðan er búinn
til nýr búkur úr hampi og skinnið
er saumað utan um hann. Búkurinn
er festur við skinnið með alls kyns
vírum. Búkurinn þarf að vera sem
líkastur þeim upprunalega til þess
að dýrið líti eðlilega út.
„Ég tek sjálf skinnið af. Það var
svolítið ógeðslegt til að byrja með
en þetta venst. Ég er hætt að hugsa
út í það því ég er farin að hugsa
fram í tímann, hvernig fuglinn á að
vera,“ segir Brynja.
Brynja er farin að hugsa sér til
heimferðar og segist ekki verða
mikið lengur í Bretlandi. Námið
tekur aldrei enda en þeir sem
stoppa upp dýr geta verið að læra
það endalaust. Ráðstefnurnar eru
notaðar til þess að veita viðurkenn-
ingar og eftir sex viðurkenningar í
hverjum flokki fylgir meistaratitill í
þeim flokki. Sumir fá aldrei neina
viðurkenningu.
„Ég veit ekki hvort ég kem til
með að vinna við þetta heima því ég
held að markaðurinn sé svo lítill.
Þetta er ekki starf sem er neitt sér-
staklega vinsælt og fáir vilja eiga
uppstoppaða fugla," segir Brynja.
-em
Verum hraust í vetur meó MULTI VIT
FJOlVllAMiN
n:i> sreiNi inlim
MTURULEGT
180 ttiflur
Guti miðinn
tryggir gæðin
Þegar þú tekur inn MULTI VIT ert þú að innbyrða
11 steinefni, 12 vítamín, 22 valin bætiefni.
Dagleg neysla byggir upp eru saman með þarfír
likamann og stuðlar að hreysti istendinga i huga.
og góóri heilsu. MULTT VÍT Fæst i heilsu-
búðum, apótekum og
heilsithiUum rnatvöruverslana.
1 frumskógi vitamina og
bætiefna getur verið erfitt að
velja rétta gtasið.
Glösin með gula miðanum
tryggja að þú fáir vönduð
nátturuleg bætiefni, sem sett
Úhei
eilsuhúsið
Skólavörðustig S Krirtgiunni
Brynja Davíösdóttir fékk viöurkenningu fyrir ugluna sem hún stoppaði upp.
Glæsilegar tfmublur?f frá Ítalíu
Mikiö úrval af fallegum sjónvarps- og hljómtækjaskápum
r M304 svartur. N
M304/N hnotubrúnn.
L J
Skápur fyrir sjónvarp -
myndbandstæki og
hljómtæki - hirslur fyrir
myndbandsspólur.
Hljómtækjaskápur fyrir allar
stærðir hljómtækja - hirslur
fyrir geisladiska og plötur.
Made in Italy.
Armúla 38 (Selmúlamegin), Sími 553 1133
Allirskáparnir eru á hjólum. Öll verð eru staðgreiðsluverð.