Dagblaðið Vísir - DV - 02.11.1996, Side 21
LAUGARDAGUR 2. NÓVEMBER 1996
21
Einu þríburaforeldrarnir á Skaganum:
Langarað
prófa að eiga
eitt barn
- segir Pála Ásgeirsdóttir þríburamamma
„Það er ekkert mál að hugsa um
þríburana en ég geri ekki margt
annað á meðan,“ segir Pála Ásgeirs-
dóttir, móðir einu þríburanna á
Akranesi, Þóru Bjarkar, Svönu og
Jósefs Halldórs sem fæddust fyrir
ellefu mánuðum og dafna nú vel.
Eiginmaður hennar, Þorgeir Jós-
efsson, kvartar yflr svefnleysi und-
anfarnar nætur þar sem Pála sé að
venja þríburana af pela. „Þeir hafa
verið óþekktarormar þessa vikuna
en það er uppeldishörkunni í
mömmu þeirra að kenna,“ segir
Þorgeir. Pála segir að það trufli næt-
ursvefninn hjá allri fjölskyldunni
þegar þríburarnir séu stöðugt að fá
sér sopa alla nóttina og því sé best
að venja þá af pelanum.
Börnin eru örlítið minni en gerist
og gengur með ellefu mánaða böm
en það er eðlilegt þar sem tvö þeirra
voru við fæðingu í kringum sjö
merkur og eitt þeirra fimm og hálf
mörk.
Nennir ekki
í heimsókn
„Ég nenni yflrleitt ekki í heim-
sókn með þau öll nema þau séu sof-
andi því þá þarf ég að klæða þau öll
úr og það er talsvert mikið verk.
Börnin eru nýfarin að uppgötva
hvert annað og byrjuð að rífast um
dótið. Svana og Jósef Halldór ná bet-
ur saman en Þóra Björk er einfar-
inn í hópnum," segir Pála.
Pála segist vera til í að eignast
fleiri börn en Þorgeir segir nóg
komið þar sem hann eigi eina dótt-
ur fyrir. Pálu langar til þess að
prófa að vera með eitt bam í einu.
Ólíkir
persónuleikar
„Börnin era mjög ólíkir persónu-
leikar. Jósef er vargurinn í hópnum
og hann er jafnframt mjög kelinn.
Svana brosir stöðugt ef einhver
nennir að tala við hana og unir sér
best af þeim. Þóra Björg er rólegust
en þegar hún reiðist kemst maður
ekki hjá því að vita af því,“ segir
Pála.
Pála og Þorgeir eru ósátt við að
fæðingarorlofið er einungis lengt
um einn mánuð fyrir hvert barn
sem fæðist sem fjölburi. Hún fékk
greitt fæðingarorlof samtals í átta
mánuði. Þorgeir bendir á að ef þau
hefðu átt þrjú böm sitt á hvoru ár-
inu hefði fæðingarorlofið samtals
orðið átján mánuðir.
Fatagjafir frá
þríburafálaginu
Félag þríburaforeldra hefur verið
þeim Pálu og Þorgeiri innan handar
með fatasendingar og lán á tækjum
sem nauðsynleg era fyrir ung börn.
Það hefur náttúrlega komið við
pyngjuna að eignast þrjú böm og er
þá gott að eiga góða að. Félagið
hugsar mjög vel um sína og hefur
reynt að berjast fyrir auknum rétt-
indum þríburaforeldra. -em
líUZÍJj Jji3Íjj VlJ jvj-Í)
Rumar4,5kg
' þrettán þvottakerfi
Stiglaus hitastillir
Áfangaþeytivinda 1000/650 sn/mín
Leggur í bleyti
Sjálfhreinsandi dæla
Barnalæsing
Ryðfrí tromla og belgur
Hámarksorkunotkun 1,9 kw
Stærð H 85 B 59,5 D 55 (cm)
RONNING
Borgartúm 24
Sími 562 4011
Pála og Þorgeir ásamt Póru Björk, Svönu og Jósef Halldóri.DV-myndir PÖK
Áskrifendur
fá
aukaafslátt af
smáauglýsingum
a\\t mil/l hirru
'inSl
Smáauglýsingar
itoM tto tm&i wwu
ER RAKASTIGIÐ ORUGGLEGAILAGIA
ÞINNI SKRIFSTOFU EÐA ÞÍNU HEIMILI?
RAKATÆKIN FRÁ BIONAIRE EIMA
VATNIÐ OG ÞVÍ ENGIN HÆTTA^Á SÝKLAMYNDUN.
Raka- og hitamælir
Verð kr. 1.99.4
fÆ }y
BIONAIRE RAKATÆKI
UMzoKnem
UM AUT LANÞ
Verð frá kr. 5.715
Lífeyrissjóðir
Adrar þjódir öfunda okkur ðf
lífeyrissjóMerfiiiu veqna:
Samtryggingar, sem greiðir sjóðfélögum ellilífeyri
ævilangt og er auk þess trygging fyrir óvæntum
áföllum s.s. við orkutap eða andlát.
Sjóðsöfnunar, sem stuðlar að auknum þjóðhags-
legum sparnaði og gerir sjóðina betur í stakk búna
að standa undir lífeyrisskuldbindingum í
framtíðinni.
Skylduaðildar, sem tryggir öllum starfandi
mönnum aðgang að lífeyrissjóðum, þannig að
enginn verði afskiptur.
d" " -4
Landssðmbðnd lífeyrissjóða
Samband almennra lífeyrissjóða