Dagblaðið Vísir - DV - 02.11.1996, Side 22
LAUGARDAGUR 2. NÓVEMBER 1996
22
fréttir
ér ______
Formannsslagurinn í Alþýðuflokknum: ■ ■
Rannveig og Ossur
gætu ráðið úrslitum
- ef þau blanda sár í formanns- eða varformannsslaginn
Formannsslagurinn 1 Alþýðu-
flokknum er nú í algleymingi. Þeir
eru fáir sem þora að spá um úrslit
enda margir leikir til í stöðunni
sem geta flækt valdataflið sem í
gangi er. Aðeins
þeir Sighvatur
Björgvinsson og
Guðmundur Árni
Stefánsson hafa
lýst því yfir að þeir
gefi kost á sér til
formennsku. Rann-
veig Guðmunds-
dóttir hefúr ekkert
sagt opinherlega
hvað hún ætlar að
gera.
Síðustu daga hef-
ur verið vaxandi
umræða í Alþýðu-
flokknum um að
Össur Skarphéð-
insson ætli að
blanda sér í for-
mannsslaginn eða
slaginn um vara-
formanninn. Hann
haldi sig viljandi
til hlés í umræð-
unni en geti svo komi fram á réttu
augnabliki á flokksþinginu sjálfu.
Slíkar fléttm- eru vel þekktar í póli-
tik.
Varafor-
mannsefni
getur ráðið
urslitum
Þegar litið er
yfir stöðuna í
þeirra skák sem
nú er tefld um for-
mannsstólinn í
Alþýðuflokknum
virðist sem vara-
formannsefni
þeirra Sighvats
Björgvinssonar og
Guömundar Árna
Stefánssonar geti
ráðið úrslitum
um hvor þeirra
sigrar, veröi þeir
tveir í kjöri.
Því er haldið
fram af stuðningsmönnum Guð-
mundar Áma að hann ætli ekki að
vera með varaformannskandidat
með sér. Flokksþingið eigi að velja
hann óháð því hver verði kjörinn
formaður. Hann ætli að höföa til
unga fólksins sem vilji að flokkur-
inn losni úr viðj-
um gamalla
vinnubragða ís-
lenskra stjórn-
málaflokka um
undirróðurs-
starfsemi og
blokkamyndanir
við val á forystu-
mönnum. Á
þessari stundu
er ekki vitað
hvort Sighvatur
verður með
varaformanns-
efni með sér á
flokksþinginu.
Ef Sighvatm-
fengi Rannveigu
Guðmundsdóttur með sér sem vara-
formann eiga þau sigurinn vísan.
Þó benda margir á að ef Össur
Skarphéðinsson gæfi kost á sér sem
varaformaður
með Guðmundi
Árna gæti það
breytt mjög
miklu. Þeir gætu
sigrað sem dúett.
Eins er talið að
gefi Rannveig
kost á sér sem
varaformaður
Guðmundar Áma
séu þau sigur-
strangleg.
Það er talið
afar ólíklegt að
Rannveig gefi
kost á sér sem
varaformaður
flokksins. Hún
hafi áður verið
varaformaður og
muni því ekki
sækja í annað en
formannssætið.
Enn er því svo-
mikil óvissa um
hverjir gefi kost á
sér í hin ýmsu embætti flokksins að
afar erfitt er að átta sig á stöðunni
Guömundur Árni Stefánsson vill
kanna fylgi sitt meö framtíöina í
huga.
Ymsir
möguleikar
Sighvatur Björgvinsson er talinn
hafa nauman meirihluta fram yfir
Guðmund Árna eins og málin
standa í dag.
Lítill munur
Ef þeir Sighvatur og Guðmundur
Ámi verða bara tveir í framboði til
formanns er talið að staðan í dag sé
þannig að Sighvatur hafi nauman
meirihluta. Menn benda þó á að
fram að flokksþingi og þegar til
þingsins kemur geti staðan breyst.
Slíkt gerist svo oft á flokksþingum.
Ef Rannveig og Össur gefa kost á
sér líka, annað hvort eða bæði,
breytist allt. Verði Rannveig þriðji
frambjóðandinn á Sighvatur sigur-
inn visan. Þau Guðmundur Ámi og
Rannveig sækja fylgi sitt í sama
hópinn, sem er hinn fjölmenni hóp-
ur Reyknesinga á þinginu. Ef Össur
bættist við sem fjórði maður yrði
óvissan alger. Hann er talinn munu
sækja fylgi til ungliðahreyfingar
flokksins og róttækari arms hans.
Ný hugmynd
Stuðningsmenn Rannveigar Guð-
mundsdóttur í Kópavogi eru uppi
með þá hugmynd að hún gefi kost á
sér sem formaður og fái Guðmund
Áma með sér sem varaformanns-
efni. Þeir telja aö þannig muni þau
Fréttaljós á
laugardegi
Sigurdór Sigurdórsson
sigra auðveldlega. Það fylgdi sög-
unni að rætt væri um að Rannveig
yrði formaður í 3 ár eða svo en
segði þá af sér og Guðmundur Ámi
tæki þá við flokknum og heföi eitt
ár fram að næsta flokksþingi til að
festa sig í sessi.
DV hefur heimildir fyrir því að
þetta hafi verið rætt. Því er meira
að segja haldið fram að Rannveig og
Guömundur Ámi hafi rætt þennan
möguleika sín í milli. Sömu heim-
ildir herma að Guðmundur Ámi sé
ekki hrifinn af þessari hugmynd.
Hann og helstu ráðgjafar hans telji
nauösynlegt fyrir hann að kanna
fylgi sitt með því að bjóða sig fram
og láta kjósa.
Fylgifl
Þrátt fyrir þessar vangaveltur er
talið líklegast að þeir Guðmundur
Ámi og Sighvatur
verði bara tveir í
framboði til for-
manns. Þá spyrja
mehn eðlilega
hvemig fylgið í
hinum ýmsu kjör-
dæmum skiptist á
milli þeirra. Auð-
vitað veit það
enginn fyrir víst
en línur era þó
teknar að skýrast.
í Reykjavík,
sem á mn einn
þriðja af fulltrúm
á flokksþinginu, á
Sighvatur mikið
fylgi vegna stuðn-
ingsyfirlýsingar
Jóns Baldvins
Hannihalssonar
við framboð hans.
Þó er vitað að
Guðmundur Ámi
á nokkurt fylgi í
Reykjavík, ekki síst ungliðanna.
Þeir eru Jóni Baldvini og Sighvati
reiðir eftir vinnubrögð þeirra þegar
fulltrúar Alþýðu-
flokksfélags
Reykjavíkur vora
kosnir.
Úr Reykjanes-
kjördæmi kemur
einn þriðji full-
trúa á flokksþing-
ið. Talið er að
Guðmundur Ámi
eigi þar mikinn
meirihluta at-
kvæða. Hann er
þingmaður flokks-
ins í kjördæminu.
Þótt hann eigi ef
til vill ekki óskor-
að fylgi hefúr
hann yfirburði.
Ekki síst er það
vegna Hafnfirðing-
anna sem era fjöl-
mennir á flokks-
þinginu.
í Vesturlands-
kjördæmi hefur
Guðmundur Ámi mun meira fylgi
en Sighvatur og sagt er að það fari
vaxandi.
Sighvatur Björgvinsson er þing-
maður Vestfirðinga og hann á að
sjálfsögðu meirihluta vlsan hjá
Vestfirðingum, þó ekki óskoraðan,
og að auki bætist við að fulltrúar að
vestan era ekki
fjölmennir.
í Norðurlands-
kjördæmi vestra
er Sighvatur tal-
inn hafa meiri-
hluta. í Norður-
landskjördæmi
eysta hefúr Guð-
mundur vinning-
inn. Sigbjöm
Gunnarsson, fyrr-
um þingmaður og
krataforingi þar,
styður Guðmund
Áma og það mun-
ar um minna.
í Austfjarða-
kjördæmi er fylg-
iö nokkuð skipt.
Gunnlaugur Stef-
ánsson, bróðir
Guðmundar
Áma, er foringi
krata á Austfjörð-
um. Eiríkur Stef-
ánsson, verkalýðsforingi og eðal-
krati, styður Guðmund Áma líka.
Því er búist við að meirihluti fúll-
trúanna þaðan
styðji Guðmund
Árna.
Sighvatur er
sagður hafa
meirihluta á Suð-
m-landi. Það eru
hins vegar ekki
margir fulltrúar
sem þaðan koma.
Það era sem sé
fulltrúamir frá
Reykjavík og
Reykjaneskjör-
dæmi sem munu
ráða mestu um
úrslit kosning-
anna enda koma
tveir þriðju hlut-
ar fulltrúa á
flokksþingið úr
þessum tveimur
kjördæmum.
Við þetta allt
verðrn- þó að hæta
að enn era fimm
dagar fram að flokksþingi. Fimm
dagar era langur tími í pólitík.
Rannveig Guðmundsdóttir. Fram-
boB hennar, hvort heldur væri til
formanns eða varaformanns,
myndi breyta miklu.
Össur Skarphéöinsson er aftur
kominn inn f umræöuna um for-
mannsslaginn.
LANGUR LAUGARDAGUR
Á LAUGAVEGI OG í NÁGRENNI!
Pabbadagurinn er haldinn hátíölegur víöa um heim (byrjun nóvember ár hvert. í tilefni af fyrsta pabbadeginum á íslandi laugardaginn 2. nóvember bjóða herra-
fataverslanir í miöborginni til leiks sem heitir „Ljótasta bindiö". Leikurinn fer þannig fram aö einhver fjölskyldumeölimur kemur meö bindi af pabbanum í einhverja
af neöangreindum verslunum. Bindiö skal merkja meö nafni eiganda, heimilisfangi og síma. í dagslok velur starfsfólk hverrar verslunar Ijótasta bindiö og
eigandinn hlýtur vegleg verölaun. Eftirtaldar herrafataverslanir taka þátt í leiknum: Herrahúsiö, Laugavegi 47, Herrarnir, Austurstræti 3, Sautján, Laugavegi 91,
Herrágaröurinn, Aöalstræti, Dressman, Laugavegi, Herrafataverslun Guösteins, Laugavegi 34,4 You, Laugavegi 51, Books, Laugavegi 61.