Dagblaðið Vísir - DV - 02.11.1996, Qupperneq 29
LAUGARDAGUR 2. NÓVEMBER 1996
m Landsliðið í bridge varð í 7. sæti á Olympíuleikunum í bridge:
Arangur næst aðeins
með þrotlausri vinnu
Góður árangur íslenska landsliðsins á
Ólympíuleikunum í bridge, sem nú standa
yfir á grísku eyjunni Rhodos, hefur vakið at-
hygli. Þar hafnaði íslenska liðið í 7. sæti af 71
þátttökuþjóð og var slegið út af Indónesíu í
fjórðungsúrslitum. Þeir sem fylgst hafa með
bridgeíþróttinni láta þennan góða árangur
ekki koma sér á óvart þvi að íslenska lands-
liðið náði þeim frábæra árangri fyrir fimm
árum að verða heimsmeistarar í Yokohama.
Síðan hefúr liðið orðið Norðurlandameistari,
sem er ekki lítið afrek þegar tillit er tekið til
þess að Norðurlandaþjóðimar Danmörk, Sví-
þjóð og Noregur, auk íslands, hafa alla tíð ver-
ið í fremstu röð bridgeþjóða heims.
tslenska landsliðið náði því miður ekki að
verja HM titil sinn í fyrra, reyndar voru ís-
lendingar meðal þátttökuþjóðanna í úrslitun-
um. Bridge er ein af fáum íþróttagreinum þar
sem ríkjandi heimsmeistarar fá ekki sjálf-
krafa rétt til að spila í næstu úrslitakeppni.
Til að komast í úrslitakeppnina varð ísland að
vera meðal fjögurra efstu þjóða í Evrópu-
keppninni en það er enginn hægðarleikur.
Timburmenn
Oft er talað um að góðum árangri sé erfitt
að fylgja eftir og oft þjáist menn af „timbur-
mönnum" í nokkum tíma á eftir. Vel má vera
að það eigi við um íslenska liðið að loknu af-
rekinu í Yokohama. En flestir era á þeirri
skoðun að þeim sé nú lokið og nú verði stefn-
an tekin upp á við. Þegar ísland vann sér rétt
til þátttöku í útsláttarkeppninni á ólympíu-
mótinu nú kom það mörgum á óvart. Hins
vegar litu íslensku spilaramir í liðinu á það
sem sjálfsagðan hlut og fyrst og fremst sem
áfanga á leið til enn frekari afreka.
Leiki í útsláttarkeppnum tekur fljótt af.
Andstæðingamir, Indónesar, vora í miklu
stuði í leiknum og lítið gekk hjá íslendingum.
íslendingar sáu aldrei til sólar í leiknum og
töpuðu 116-180. Eftir alla vinnuna við að kom-
ast áfram í úrslitin var tapið mikið áfall. Spil-
aramir höfðu það á orði að vel mætti koma á
öðru formi þar sem komið yrði á keppni í
milliriðlum að lokinni keppni í undanriðlum.
Tap í einum leik eftir alla þessa vinnu er súrt
í broti.
Á vel við
landann
Margir hafa velt þvi fyrir sér
hvemig standi á því að smáþjóðin
ísland stendur svo framarlega í
bridge. Það sama á reyndar við um
skák því þar hefur einnig náðst at-
hyglisverður árangur. fsland er í
báðum þessum greinum í baráttu
meðal efstu þjóða, hafnaði í 7. sæti
nú í bridge og i 8. sæti í skák á
ólympíumótum ársins. Báðar þess-
ar greinar eru hugaríþróttir sem af
einhverjum orsökum virðast eiga
vel við fslendinga.
Bæði bridge og skák era iðkuð af
óhemjumörgum og bridgespilarar
tala um það sín á milli að aðeins
ein íþróttagrein sé iðkuð af fleirum
en það er blessaður fótboltinn. í
ljósi þessa er góður árangur þeim
mun athyglisverðari.
Er bridge íþrótt?
Margir deila um það hvort kalla
megi bridge íþrótt. Alþjóðasamtök-
in í bridge, WPF, berjast hart fyrir
því að öðlast þá viðurkenningu og
Ólympíunefndin hefur það mál nú
til umfjöllunar. Talið er líklegt að
ekki líði á löngu þar til bridge verði
viðurkennd ólympíugrein og keppt
i henni á sama tíma og ólympíu-
leikar fara fram..
Margir gætu haldið að góður ár-
angur í bridge byggðist að mestu á
tilviljun og því hversu heppnir þeir
era með spil við spilaborð-
ið. Því fer þó víðs fjarri. í
löngu ólympiumóti sem
þessu er heppnifaktorinn
þurrkaður út að mestu.
Góður árangur er fyrst og
fremst byggður á mikilli
vinnu, að sjálfsögðu ráða
hæfileikar einnig miklu
um árangurinn.
Langur
aðdragandi
Vinnan fyrir ólympíu-
leikana nú hefur staðið
iengi yfir. Björn Eysteins-
son var aftur ráðinn lands-
liðsþjáifari í lok síðasta
árs en hann var einnig
þjálfari liðsins sem náði
HM-titlinum í Yokohama.
Bjöm hófst þegar handa og
valdi pör til spilamehnsku.
Fljólega varð ljóst hvaða
þrú pör höfðu orðið fyrir
valinu, þar af vora 4 spil-
arar (af 6) sem höfðu spilað
í Yokohama.
Guðmundur Páll Arnar-
son og Þorlákur Jónsson
spiluðu enn saman sem
par, Jón Baldursson, sem áður spilaði við Að-
alstein Jörgensen, spilar nú við Sævar Þor-
bjömsson en spilafélagi Aðalsteins er Matthí-
as Þorvaldsson sem er aðeins þritugur að
aldri.
„Frá árámótum höfum við lagt á okkur gif-
urlega vinnu. í hverri viku erum við með lík-
amsæfingar, innanhússknattspymu og lang-
hlaup. Fyrir mótið í Yokohama var tekin upp
líkamsþjálfun og við teljum okkur ekki geta
án hennar verið í undirbúningnum," segir
Matthías.
„Spilaþjálfun er einnig stíf. Við höfðum
fastar spilaæfingar í hverri viku fyrir mótið á
Rhodos og af og til voru teknar spilahelgar
þar sem spiluð vora mót frá morgni til kvölds.
Einnig fengu allir spilaramir heimaverkefni.
Ég er háskólanemi og verð að sleppa að
minnsta kosti einum áfanga vegna álagsins,"
segir hann.
Æfingamar koma einnig niður á vinnu Að-
alsteins, „Ég rek myndbandaleigu á Selfossi
og hefði gjaman viljað gefa mér meiri tíma til
að sinna rekstrinum. Því miður hefur sú
vinna nær öll kömið niður á eiginkonunni,“
sagði Aðalsteinn. Það er því ljóst að allir spil-
ararnir í liðinu þurfa að færa miklar fómir
sem kemur bæði niður á fjölskyldu og vinnu.
Bakka hver
annan upp
Að sjálfsögðu er hugað að sálfræðilegri
þjálfun liðsins. í svona löngu móti sem
ólympíleikunum er lífsnauðsynlegt að hafa
óskert baráttuþrek til enda og láta ekki áfoll á
sig fá. „Það var lögð áhersla á að láta ekki töp
í leikjum koma niður á hugarfarinu
og vera fljótir að þurrka þau úr
minninu. 1 svona löngu móti tapast
alltaf einhveijir leikir og við pössuð-
um það mjög vel í liðinu að bakka
hver annan upp ef einhver átti dapr-
an dag,“ segir Þorlákur Jónsson.
íslenska liðið bryddaði upp á
þeirri nýbreytni nú að fá kanadíska
þjálfarann Erik Kokish hingað til
lands til að þjálfa liðið en hann er
kunnur fyrir góðan árangur í því
efni. Hann þjálfaði meðal annars
Hollendinga sem náðu HM-titlinum
stuttu síðar. Allir era sammála um
að hann hafi gert góða hluti en leið-
beininga hans hefði þó mátt njóta í
lengri tíma. Hann var hér á landi í
eina viku.
„Vinna hans byggðist fyrst og
fremst á tæknilegum atriðum,
skerpa á kerfum okkar og að upp-
ræta óræddar stöður við spilaborðið.
Við komumst að því að margar stöð-
ur við spilaborðið vora meira og
minna í þoku og Kokish aðstoðaði
okkur mikið við að greiða úr henni,“
segir Þorlákur.
Fleiri þjóðir munu hafa nýtt sér
krafta Kokish, meðál annars landslið
Indónesa sem sló ísland úr keppni í
fjórðungsúrslitunum. Indónesar hafa
úr meiri peningum að spila og nutu
kennslunnar í tvo mánuði samfleytt og spilar-
arnir vora á launum allan tímann!
Næg verkefni
fram undan
Þó að þátttöku íslands sé nú lokið á ólymp-
íumótinu á Rhodos era næg verkefni fram
undan. Bjöm Eysteinsson hefur verið ráöinn
þjálfari fram að lokum Evrópumótsins sem
spilað verður í júlí á næsta ári. Spilararnir fá
nú nokkurra mánaða frí en síðan taka aftur
við stífar æflngar hjá liðinu fram aö Evrópu-
mótinu. Þar verður það fyrst og fremst verk-
efni að vera meðal fjögurra efstu þjóðanna og
vinna sér rétt til þátttöku á HM um Bermúda-
skálina eftirsóttu.
ísak Örn Sigurðsson
GoldStar
símabúnaður
GoldStar GT-9500
Þráðlaus sími fyrir heimili og fyrirtæki, með
innbyggt símtæki í móðurstöð og innanhúss-
talkerfi milli allt að þriggja þráðlausra síma
og móðurstöðvar.
Grunnpakki:
Móðurstöð með einum þráðlausum síma og öllum
fylgihlutum. Verð kr 25.900.-stgr.
Auka þráðlaus sími:
Þráðlaus sími með fylgihlutum.
Verð kr. I l.900.stgr^.
GoldStar
GS-635
Símtæki með hátalara og
endurvali.
Sérstaklega falleg hönnun.
Litir Rauður; grænn og Ijós
grár.
Verð kr. 4.900.-stgr.