Dagblaðið Vísir - DV - 02.11.1996, Qupperneq 37
Verðstríð bandarískra
flugfélajja:
VAXANDIAHRIFIEVROPU
Sá sem staddur er í New York getur auðveldlega komist hvert á land sem er
innan Bandaríkjanna, hvenær sem er og fyrir ákaflega lítið fé, þökk sé ódýr-
um flugfélögum. DV-mynd Hilmar Þór
í Bandaríkjunum hefur sprottið
upp fjöldi flugfélaga sem bjóða ódýr
fargjöld en leggja þá minna upp úr
aðbúnaði og dekri við farþega.
Sömuleiðis grípa mörg þessara fé-
laga til þess að nota eldri og/eða
minni vélar. Afkoma flugfélaga á
borð við ValuJet, Southwest og Un-
ited Shuttle hefur sýnt fram á að
veruleg eftirspurn er eftir slíkri
þjónustu.
Rekstur margra þessara flugfé-
laga hefur gengið mjög vel en önn-
ur hafa lent í vandræðum, sum
mjög alvarlegum. Þar fer ValuJet
fremst í flokki en félagið fékk nú
nýlega aftur flugleyfi eftir flugbann
sem sett var á eftir alvarlegt slys
þar sem ein af vélum félagsins
hrapaði í fenjum Flórída og á annað
hundrað manns létu lífið. Reyndar
hefur Félag bandariskra flugliða
mótmælt ákaft og telur að öryggi sé
verulega ábótavant hjá félaginu.
í heildina má segja að rekstur
þessara félaga hafi verið mjög gæfu-
ríkur og hagur neytenda hefur
vænkast mjög eins og sjá má af því
að ekki aðeins hefur verðið lækkað
mjög heldur hefur ferðum fjölgað
svo að nú er t.d. flogið á 15 mínútna
fresti milli Los Angeles og San
Francisco.
Bretar neita alfarið
En eiga Evrópubúar eftir að njóta
svipaðra kjara í nánustu framtíð?
Vitað er að a.m.k. tvö af stóru evr-
ópsku flugfélögunum eru að íhuga
að taka upp slíka hliðarstarfsemi.
Háttsettir aðilar hjá ítalska flugfé-
laginu Alitalia hafa staðfest aö und-
irbúningur sé að hefjast og Swissair
er enn að vega og meta
kosti og galla.
Stærsta hindrunin
er verkalýðsfélögin
sem eru andstæð
slíkri starfsemi þar
sem hún hefur óhjá-
kvæmilega launalækk-
un starfsmanna flugfé-
laganna í för með sér.
British Airways hefur
t.d. aftekið með öllu að
aðlaga starfsemi sína
þessari bandarísku fyr-
irmynd og segir verka-
lýðsfélögin aðeins vera
einn, en þó mjög mikil-
vægan, þátt í jöfnunni.
Markaðsstjóri British Airways,
Mike Batt, segir að aðstæðurnar í
Bandaríkjunum séu of ólíkar þeim
evrópsku. Hann segir Evrópubúa
ekki vilja fórna öllu fyrir lægra
verð, þeir geri ákveðnar kröfur.
Sömuleiðis hafi veðrið mikil áhrif
en veðurfarið í Evrópu geri aðrar
kröfur til flugvéla en það banda-
ríska. Síðast en ekki síst komi til
allur sá fjöldi farþega sem þarf að
millilenda á leiðinni en þeir þurfa á
ákveðinni þjónusta að halda sem
ekki er gert ráð fyrir í innanlands-
flugi i Bandaríkjunum.
Framtíðin óráðin
Enn sem komið er hafa evrópsk
flugfélög ekki lent í því verðstríði
sem orsakaði hin ódýru bandarísku
fargjöld. En þau hafa verið nálægt
því og í Evrópu eru þónokkur lítil
og ódýr flugfélög starfandi sem hin-
um stóru risum stendur nokkur ógn
af. Því má ætla að fleiri evrópsk
flugfélög feti í fótspor þeirra hand-
an Atlantshafsins og íhugi leiðir til
lækkunar. Enn sem komið er verð-
ur þó að telja að erfiðara sé að
koma slíku kerfi á í millilandaflugi
en í innanlandsflugi eins og í
Bandaríkjunum. En eftir því sem
Evrópa sameinast meira og hindr-
unum landa á milli fækkar er
ómögulegt að spá um hver framtíð-
in verður.
Samantekt-ggá
Southwest-flugfélagið heldur fargjöldum t.d. niðri
með því að greiða ekki stórfé fyrir einkennisbún-
inga heldur láta starfsfólk sitt vera í bolum og
stuttbuxum.
Frönsku strendurnar:
KONUNGLEGT VETRARATHVARF
Nice og aðrar Miðjarðarhafsborg-
ir í Frakklandi hafa löngum verið
vinsælir áfangastaðir ferðalanga
sem hafa verið að leita að sól, sjó og
skemmtunum í sumarleyfinu. En
þeir eru færri sem kjósa að ferðast
til þessarar frönsku sólskinspara-
dísar á vetuma þó að Viktoría sál-
uga Englandsdrottning hafi stytt
enska veturinn með því að eyða
hluta hans í Nice og nágrenni. En
það er engin ástæða til að dvelja
ekki í þessari frönsku Miðjarðar-
hafsborg þegar líða tekur á árið og í
raun fylgja því margir kostir. Til að
mynda kvarta margir yfir þeim
þrengslum sem fylgja þeim gifurlega
ferðamannafjölda sem þangað kem-
ur á hverju sumri, auk þess sem
gistirými og þjónusta er á mun hag-
stæðara verði. Sömuleiðis er sjórinn
áberandi hreinni þegar hausta tek-
ur og mesta mannmergðin hefur
flutt sig i heimahagana.
Glysbær Evrópu
Margir eru þeirrar skoðunar að
Nice sé eins konar Kalifomía Evr-
ópu. Pálmatrén, ríkidæmið, glysið,
stórbyggingarnar, fallega fólkið,
næturklúbbarnir og mótorhjólin
minni töluvert á stórborgir þær sem
eru í sólskinsfylkinu handan Atl-
antshafsins. Þeir sem viija njóta alls
hins þægilegasta og æsi-
legasta finna það í Nice
en sé verið að leita að
meiri kyrrð þá er henn-
ar ekki langt að leita. Til
dæmis er hægt að leita
inn til lands í bæinn
Fayence þar sem hægt er
að sitja á blómum
skrýddri verönd ein-
hvers veitingahússins,
hlusta á hjalið í ánni,
njóta lostætis og hafa út-
sýni yfir fallega kapellu
frá 12. öld sem er uppi í
fjallshlíðinni. Haustið er
líka góður árstími til að
fara og skoða hið gríðar-
stóra Verdongljúfur,
njóta kyrrðarinnar og
velta fyrir sér mikilfeng-
leik þess, sitjandi á hlýjum klöppun-
um.
Bærinn Théoulesur-Mer er rétt
við Cannes en hefur hingað til verið
látinn nokkum veginn í friði af
ferðamönnum. Þar má fá sér ljúf-
fenga sjávarrétti á Marco Polo veit-
ingahúsinu á ströndinni og fylgjast
með mávunum sem bíða þess þolin-
móðir að fá að hirða upp hvem
þann mola sem af borðunum fellur.
Það eina sem heyrist er niðurinn í
Miðjarðarhafinu, þar éru engin
vatnaskíði, engir vatnakettir og eng-
ir mótorbátar, bara nokkrir letilegir
fiskimenn.
Letilíf við píanóundirleik
Lengra inni í landinu, miðja vegu
milli Nice og Cannes, er bærinn
Grasse sem á áram áður skapaði sér
nafn fyrir að vera bústaður aðals-
Nice var eftirlæti Evrópuaðalsins um aldamótin
en þangað var farið til að njóta sólarinnar, spila,
sýna sig og sjá aðra.
ins, þó í dag sé það nú frekar mótor-
stybba en höfug angan ilmvatna
sem einkennir
andrúmsloftið.
Þar má enn
þann dag í dag
meðal annars
finna húsnæði
það sem Vikt-
oría drottning
dvaldi í þegar
bærinn var
heimsóttur en
hún mun hafa
haft á honum
mikið dálæti.
Húsvörðurinn
þar hefur gam-
an af að segja
gestum og
gangandi sög-
urnar sem
amma hennar
sagði henni af
því þegar bæj-
arstjórinn
hljóp til með
rauðan dregil-
inn frá húsi
drottningarinn-
ar að húsi vin-
konu hennar,
frú Rothschild,
sem bjó nokkra
ofar í götunni,
enda vora veg-
irnir lítið ann-
að en þjöppuð
mold á 19. Öld.
Sá sem vill
eigna sér þann
heiður að hafa
gist í sama bæ
og nafntogað-
asti þjóðarleið-
togi síðustu aldar ætti ekki að verða
fyrir vonbrigðum. Auðvelt er að fá
herbergi í litlu, vincdegu gististöð-
unum sem bærinn hýsir. Starfsfólk-
ið er afslappað og brosmiit, matur-
inn frábær, herbergin full af bókum
og eldur logar í aminum á kvöldin
Frönsku smábæirnir við strönd Miðjarðarhafsins eru ótrú-
lega notalegir og vinalegir. Ekki eru þeir síðri á veturna
þegar veðrið er milt og ferðalangar hafa staðina svo að
segja út af fyrir sig.
meðan eigandinn spilar á píanó og
heimilishundamir og kettirnir láta
fara vel um sig. Það verður varla
notalegra.
Samantekt -ggá
49
Aðvörun frá yfirvöldum
Bandaríska innanríkisráðu-
neytið hefur gefið út yfirlýsingu
þar sem bandarískir þegnar era
varaðir við að ferðast til austur-
hluta Saír, m.a. til borgana
Goma, Bukavu og Uvira þar
sem öryggi ferðamanna þar hef-
ur hrakað mjög.
Síma í stað sígarettu
Tveir þriðju allra þeirra sem
ferðast í viðskiptaerindum
styðja algjört reykingabann á
öllum innanlandsleiðum, að því
er fram kemur í nýútkominni
skýrslu Alþjóðlegu flugumferð-
arsamtakanna. Það vora 1000
kaupsýslumenn sem voru
spurðir og var andstaðan við
frekari takmarkanir á reyking-
um mest meðal Evrópubúa. í
könnuninni kom einnig fram
: aukinn þrýstingur á að hafa
síma í flugvélum.
Belgar í verkfall
Evrópskir starfsmenn sam-
göngumála eru duglegir við að
fara í verkföll þessa dagana og á
morgun, sunnudag, hefja
'belgískir lestarstarfsmenn sól-
arhringsverkfall sem búist er
við að hafi mikil áhrif á sam-
göngur innanlands.
Flugfélög mótmæla
Félag sem samanstendur af
flestum flugfélögum heims mót-
mælti harðlega í síðustu viku
þegar bandarísk yfirvöld komu
í veg fyrir reglugerð sem gerir
flugfélögum auðveldara fyrir að
ganga fljótt að samningum þeg-
ar greiða skal fórnarlömbum
I flugslysa skaðabætur. Félagið
sagði ákvörðunina vera ólög-
lega og óskynsamlega og hyggst
kæra til bandaríska samgöngu-
ráðuneytisins.
KLM hækkar fargjöld
Hið konunglega hollenska
flugfélag, KLM tilkynnti nýlega
að það myndi hækka fargjöld
sín frá og með 1. nóvember,
einnig á þeim leiðum þar sem
flogið er í samvinnu við hið
bandaríska flugfélag Nort-west
Airlines, sem er samstarfsaðili
KLM. Skýringin sem er gefin á
hækkuninni er að eldsneyti
hafi hækkað mjög í verði.
Hækkunin nemur sem svarar
350 íslenskum krónum á flug-
leiðum aðra leiðina innan Evr-
ópu og 680 krónum á flugleiðum
tfl Afríku, Mið- Austurlanda,
Indlands og þeirra ferða sem
flognar eru til Bandaríkjanna f
samvinnu við North-western. Á
öllum öðrum flugleiðum nemur
hækkunin 860 krónum.
SAS til Litháen
ÍSAS hefur flug frá Stokk-
hólmi til Vilníus í Litháen
þrisvar sinnum í viku, frá og
með næstkomandi mánudegi.
Flogið verður á mánudögum,
miðvikudögum og fóstudögum.